blaðið - 28.10.2005, Page 32

blaðið - 28.10.2005, Page 32
321 AFÞREYING FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 2005 blaöiö TÍU BESTU NINTENDO LEIKIRNIR 10 DUCK TALES Jóakim Aðalönd hoppandi um á stafnum sínum - og þú stjórnar því. Þetta var ráðabrugg sem gat ekki farið úrskeiðis, enda tókst það frá- bærlega. Ekki var verra að grafíkin var með því besta sem gerðist á Nin- tendo og leikurinn var hæfilega létt- ur svo allir gátu klárað hann. 109 SU DOKU talnaþrautir Leiðbeiningar Su Doku þrautin snýst um aö raða tölunum frá 1 -9 lárétt og lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar. 1 8 7 5 3 1 4 5 9 2 9 6 7 8 3 1 8 1 9 2 6 2 6 5 8 7 4 9 5 1 7 Lausn á siðustu þraut 9 5 3 4 7 2 6 1 8 4 2 8 3 1 6 5 7 9 6 7 1 8 9 5 4 2 3 1 9 2 5 4 3 8 6 7 8 4 7 2 6 9 1 3 5 3 6 5 1 8 7 9 4 2 2 1 9 6 3 8 7 5 4 5 8 4 7 2 1 3 9 6 7 3 6 9 5 4 2 8 1 MICROSOFT -GOOGLE Microsoft hefur ákveðið að taka þátt í átaki Yahoo sem er að koma bókum á stafrænt form. Eini mun- urinn á sambærilegu verkefni Google er að Microsoft ætlar að ein- beita sér að bókum sem ekki eru varðar með höfundarétti. Google fagnar því að fleiri ætli sér að gera upplýsingar öllum opnar. 9 SUPER MARIO BROS 2 Það er erfitt að feta í fótspor leiks sem varð til þess að Nintendo festist í sessi sem leikjatölva. Ekki bætir úr skák að upphaflega átti annar leik- ur að verða SMB2 en hætt var við það eftir slæmt gengi í Japan. Þessi leikur mun alltaf vera „sá skrýtni" í sögunni af þeim Mario og Luigi og strákapörum þeirra. 8 FINAL FANTASY Final Fantasy brúaði bilið milli Dungeons & Dragons og Dragon Warrior. Stórbrotinn hlutverkaleik- ur með plotti og öllu þannig að þrátt fyrir furðulegan söguþráð var Final Fantasy einn svalur leikur. 7 MEGA MAN 2 Upphaflegi Mega Man leikurinn bjó yfir miklum töfrum og var erfiður í spilun. Hann lagði þó línurnar fyrir eina vinsælustu og lífsseigustu leikj- aseríu fyrr og síðar. Mega Man 2 var með frábæra tónlist, afburðagrafík og stórkostlega stjórnun sem veldur því að hann er enn ferskur, eftir 15 ár og 50 framhaldsleiki. 6 CONTRA Upp, upp, niður, niður, vinstri, hægri, vinstri, hægri, B, A, Select Start... Þetta er eitthvað sem allir Contra spilarar ættu að kannast við þar sem nánast ómögulegt var að spila leikinn án þess að þiggja smá- aðstoð. 5 MIKE TYSON'S PUNCH-OUT!/ Þrátt fyrir hálfkjánalega grafík var hrein unun að stjórna þessum leik sem nefndur var eftir þáverandi meistaranum í boxi. Maður spilaði sem áskorandinn og þurfti að boxa sig á toppinn þar sem meistari Mike beið eftir manni. Hentugt fyrir Nin- tendo að samningurinn við Tyson rann út áður en hann tók upp á því að lumbra á konum og éta eyru. Fyrir tíu dögum var tuttugu ára afmæli leikjatölvu sem átti eftir að gefa tóninn fyrir tölvuleiki um ókomna framtíð. Nintendo Entertainment System er orðin fullorðin. sínum tíma hefðu fáir getað séð fyrir hversu miklar vinsældir tölvunnar áttu eftir að verða. Vissulega gerði Nintendo nokkra ágæta leiki en tölvuleikir voru nánast úreltir þegar tölvan kom á markað þann 18. október 1985. Þegar upp var staðið voru það frábærir leikir, miskunnarlaus (en skilvirk) viðskiptastefna og slungin markaðssetning sem gerði nafnið Nintendo að samnefnara yfir tölvur og tölvu- ......... leiki. Flestir sem einhvern tíma hafa spilað tölvuleiki kannast við sígilda Nintendo — leiki. Netmiðillinn íUp (www.iup. ___ I com) heldur í vikunni veglega af- ;f mælishátíð og hefur þess vegna tekið saman bestu leikina á NES. í þá gömlu góðu daga... 4 RIVER CITY RANSOM Þeir sem spiluðu RCR á Nintendo i gamla daga elskuðu leikinn. Þeir voru þó fáir sem léku hann en leik- urinn varð ekki vinsæll fyrr en hægt var að spila NES leiki í PC tölv- um. Það má því segja að þessi hafi verið á undan sinni samtíð. 3 SUPER MARIO BROS Það má með sanni segja að þetta sé leikurinn sem gerði Nintendo að því veldi sem það er í dag. Það nægir að skoða hverja einustu leikjatölvu sem Nintendo hefur gefið frá sér, Mario er þar einhvers staðar á toppnum og Luigi skammt undan. Þessir pizzu-elskandi ítal- ir urðu með þessum leik að tákni tölvuleikja. 2 THE LEGEND OF ZELDA Zelda var öflugur, leyndardómsfull- ur, erfiður að klára og reyndi ansi oft á þolinmæðina. En tilfinningin sem fylgdi því að finna næstu dýfl- issu, að vinna næsta hlutann af Tri- force og að elta hinn illa Ganon hélt spilurum við tölvuna. 1 SUPER MARIO BROS. 3 Það er ekki hægt að keppa við þenn- an leik. Enn þann dag í dag er fólk að spila hann og ennþá er jafnerfitt að vinna hann án þess að nota töfra- flautur. Möguleikarnir eru svo margir að ómögulegt er að klára leikinn endanlega, að minnsta kosti hefði vistunarmöguleiki ver- ið vel þeginn á mörgum heimilum. omsTunoMsia Fjarstýrðir bilar í miWu úrvali Tómstundahúsið Nethyl 2, sími 5870600, www.tomstundahusid.is Video iPod Klámið bíður átekta Með tilkomu hins nýja kvikmynda-iPod Apple fyrirtækisins bjuggust margir við því að klámframleiðendur stykkju á græjuna til að koma efni sínu á framfæri. Þeir ; hafa ætíð verið snöggir til þegar ný tækni kemur ; á sjónarsviðið og er fljótgert að nefna til dæmis j myndsímana og lítið fyrirbæri sem kaJIast Inter- j netið. Ástæða tregðunnar í ldámframleiðendum er að þeir eru orðnir leiðir á því að vera sífellt á milli tannanna á fólki og stjórnvöldum. Til þess að framleiðendur láti til leiðast þarf ýmislegt: Notendur þarf að aldursgreina með greiðslukort- j um, ekkert efni verður boðið ókeypis og það j verður varið svo ekki sé hægt að fjölfalda það. Þrátt fyrir þetta og fleiri svipaðar yf- irlýsingar úr klámbransanum verður að segjast að líkur séu á því að klámið finni sér leið inn í þessa nýjustu almannaeign því það hefur einstakt lag á að koma sér hvert sem er

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.