blaðið - 28.10.2005, Blaðsíða 24

blaðið - 28.10.2005, Blaðsíða 24
24 I TÍSKA FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 2005 blaöiö - ögrandi og öðruvísiföt í bland við klassíkina góðu áberandi í haust Helstu fatahönnuðir heimsins í dag voru snemma farnir að leggja línurnar fyrir haustið þetta árið, en sýningar þeirra báru vott um yfir- gripsmikil klæði og ýktar línur. Lýs- ingar þeirra á komandi straumum hafa gengið eftir og er hægt að sjá margt í fatnaði í dag sem ber þess merki. Á köflum eru fötin yfirdrif- in, í sérkennilegu hlutfalli og mikið er gert úr hlutunum. Svokallaðar blöðrubuxur, síðir og sveiflandi jakkar, hangandi peysur og sérstak- ar ermar í öllum stærðum og gerð- um. Þá er vinsælt að vera í öllum gerðum af kjólum með þröngum beltum í mittinu og víðir frakkar eru einnig áberandi. Blúndur, púff og önnur sérkenni hafa rutt sér til rúms, sem gerir það að verkum að hægt er að gera hin skemmtileg- ustu dress með mörgum misjöfnum áherslum. Allar gerðir af húfum, höttum og öðrum aukahlutum eru leyfileg og það þykir smart að bera sem mest af hálsmenum, armbönd- um og öðrum flottheitum. Klútar og treflar eru auðvitað vinsælir og flott er að hafa þá hangandi með- fram síðunum, sérstaklega ef við- komandi er t.d. í síðum jakka sem er hafður opinn og þar af leiðandi frjálslegur. Það er í raun afar skemmtilegt að klæða sig upp í dag en allt virðist vera leyfilegt og erfitt er að brjóta í bága við annars ákveðin viðmið. Það eru í raun fáar reglur í gangi og allir geta leikið sér eftir eigin höfði án þess að líta út eins og tískuslys. Auðvitað er klassíkin vinsæl í dag sem endranær enda svartur og aðrir dökkir litir vinsælastir í haust. Það sem talið er upp hér að ofan þykir þó sérstaklega áberandi, þ.e.a.s. ögrandi og ýkt föt sem draga fram ákveðin karakter og henta þeim sem þora. halldora@vbl.is Töskur og veski - toppaðu dressið meðfallegu veski Það er ekki alltaf nóg að vera í fal- legum fötum sem passa vel saman. Það er ekki síður mikilvægt að hafa aðra hluti á hreinu sem gera góð klæði betri en ýmsir aukahlut- ir gera oft ansi skemmtilega hluti. Þó er afar mikilvægt að þeir séu klæðilegir og í takt við heildarút- litið, því misjafn er jú mannanna smekkur og við veljum auðvitað allar ólíka aukahluti. Töskur og veski er eitthvað sem allar konur nota. Öðruvísi er víst erfitt að geyma hið endalausa dót sem við viljum hafa með í fartesk- inu. Þá er einnig virkilega flott að vera með fallegt veski enda leggja margar konur mikið upp úr því að eiga hin ýmsu afbrigði af veskj- um og í sem flestum litum. Sumar nota jafnvel veski til aukins glæsi- leika án þess að nokkuð sé í því! Eitt slíkt getur fullkomnað ann- ars ágætt dress og aukið virðuleik- ann yfirhöfuð. Þess má geta að hér á landi hafa flestar tískuvöruverslanir, tösku- búðir og fleiri verslanir mikið úr- val af alls kyns veskjum í öllum litum, stærðum og gerðum. Við virðumst tolla ágætlega í tískunni hvað töskur og veski varðar og hægt er að gera skemmtileg kaup á þessu sviði. Þetta er allt spurn- ing um að hver og ein fylgi eigin höfði og finni sér fallegt, þægilegt og nytsamlegt veski - það er ekki nóg að einblína bara á stílinn. Hér gefur að líta brot af þeim töskum sem einir vinsælustu tískuhönnuðir dagsins í dag bjóða upp á; allt frá litlum og krúttlegum veskjum upp í stærri og viðameiri. ý komiö Luxur.fajj Grfmsbæ við Bústaðarveg • Ármúla 15 • Hafnarstræti 1061 600 Akureyri • Sími 588 8050. 588 8488,462 4010 emait: smartgina@simnet.is Balenciaga. Christian Dior. Lanvin. Valentino. Louis Vuitton.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.