blaðið - 28.10.2005, Side 38
38IFÓLK
FIMMTUDAGUR 27. OKTÓBER 2005 blaðið
Smáborgarinn getur verið óttalega
; smáborgaralegur stundum. Eina
stundina hleypur hann með fjöldan-
um, hrópandi slagorð, og þá næstu
hreykir hann sér með hinum, sem telja
sig yfir fjöldann hafinn og heldur fram
algerlega öndverðum málstað. Aðjafn-
aði er Smáborgarinn þó bara eins og
allir góðir smáborgarar, einlægur og
fallega þenkjandi.
Smáborgarinn hefur sveiflast frá því
að finnast kvennafrídagurinn hinn mik-
ilverðasta samstaða fslenskra kvenna
til þess að vera hin mesta fásinna. Auð-
vitað er það mikilsvert að svona stór
og margbreytilegur hópur fólks, með
ólíkar skoðanir geti látið ágreining sinn
lönd og leið og komið saman til að
gæta sameiginlegra hagsmuna sinna.
Að sama skapi er ákaflega sorglegt að
svona stór hópur manna og kvenna
skuli finnast öryggi sínu ógnað með
einni góðri hópsamkomu.
Smáborgarinn getur vel sýnt þessum
öryggislausu mönnum, og konum,
dálítinn skilning en á erfiðara með um-
burðarlyndið. Það hefur sagan enda
Isýnt að stærsta ógn þessa heims eru
miður gefnir karlar og undirgefnar kon-
ur. Og það hefur aldrei verið góðs viti
að sýna slíkri hættu umburðarlyndi.
Það er eins og að bjóða hættunni
heim.
Svo er það hin hliðin á peningnum.
Þegar hættan hefur fyrir löngu gert
sig heimakomna og hreiðrað um sig
í öllum helstu burðarbitum, skúmum
og skotum. Þá finnst Smáborgaranum
oft eins og það þurfi heilmikla sam-
stöðu til að halda'uppi fúinni grindinni,
á meðan húrt er endursroíðuð,. Þess
vegna sveiflast Smáborgarinn jafnt til
þess að hampakvennafrídeginum og
hatast út í hann; Smáborgarinn telur
það nefnilega allt eins líklegt að úrtölu-
raddir, smásmuguháttur og kjánalegur
útúrsnúningur miður gefinna manna
og undirgefinna kvenna verði til þess
að hann verði enn á ný einn afarfárra
til að halda uppi fúinni grindinni.
Það hefur nefnilega gerst áður þegar
konur tóku sér „frí' einn eftirmiðdag
að þeim fannst nóg gert í þrjátíu ár.
Það voru því sorglega fáir sem sýndu
samstöðu um árabil. Smáborgarinn
vill þó alls ekki vera vanþakklátur fyrir
hjálpina um daginn en það þarf meira.
Gæti ég fengið meira?
HVAÐ FINNST ÞÉR?
Hvað finnst þér um deilur
Húsasmiðjunnar og Byko?
Ingólfur Hjörleifsson, framkvæmdastjóri Sambands íslenskra auglýsingastofa (SÍA)
„Þarna er um að ræða stofur sem eru ekki
innan SÍ A, en eins og þetta lítur út fyrir mér úr
fjarlægð finnst mér þetta mál fyrst og fremst
sýna þau verðmæti sem felast í starfsemi auglýs-
ingastofa. Yfirleitt eru þau ekki sýnileg með ber-
um augum en þau verða það þegar svona mál
kemur upp og samkeppnisaðilar deila. Þarna
er verið að deila um ákveðið „konsept" sem er
það sem verið er að vinna með á auglýsingastof-
um frá degi til dags. Svo vekur þetta mál einnig
athygli á því sem er eiginlega kjarninn eða bak-
beinið í starfi auglýsingastofa, en það er þetta
trúnaðarsamband sem ríkir á milli auglýsinga-
stofunnar og viðskiptavinar annars vegar, og
hins vegar á milli stofunnar og neytenda. Ef að
dregur eitthvað úr því trausti þá er mikill skaði
skeður. En fyrst og fremst finnst mér þetta mál
sýna fólki þau verðmæti sem felast í hugmynd-
um eins og ég sagði. Ég tek það fram að ég er
ekki að leggja neitt mat á hvað er rangt eða rétt
í þessu ákveðna máli. Það gera þeir bara sem að
málinu koma.“
Orlando Bloom ekki full
kominn frekar en aðrir
Orlando Bloom hefur viðurkennt að hann kunni ekki að dansa. Hann segist
verða vandræðalegur þegar hann þarf að dansa og roðnar og blánar. Við upp-
tökur á myndinni Elizabethtown in Kentucky neyddist hann til að dansa við
frumsýninguna og ekki nóg með að hann þyrfti að dansa fyrir framan vinnu-
félagana heldur þurfti hann að dansa fyrir framan fjölmiðlana. Hann þurfti
að taka spor úr atriði þar sem hann sleppir fram af sér beislinu og byrjar að
dansa.
Verst að geta ekki
verið z háum hœlum
Kristin Davis, úr þáttunum Sex and the City, hlaut alvarleg íþróttameiðsli
þrátt fyrir að hún væri ekki við æfingar. Hún slasaði sig þegar hún dvaldist
á hóteli á Spáni. Hún var vakin klukkan 4 um nótt af því að hún fékk fax
og þegar hún fór að ná í það rann hún og sleit liðband. „Ég dvaldist á hóteli
og hrapaði á servíettu sem var á gólfinu. Þar lá ég kylliflöt og varð að fá
íþróttalækni til að hlúa að meiðslunum. Það versta er að ég get ekki verið í
háum hælum og ég hef ekki verið í flatbotna skóm í meira en sjö ár,“ sagði
Kristin Davis.
Lohan drap
nœstum á megrunum
Lindsay Lohan úr The Mean Girls hefur sagt frá því hvernig hún var næstum látin
fyrr á árinu. Þegar hún var spurð af hverju hún hefði grennst svo mikið sagði hún
fjölmiðlum að hún hefði unnið of mikið. „Ég gekk í gegnum erfitt tímabil þar
sem ég þrælaði mér út af vinnu og hugsaði ekki um líkamann.“ Hún hefur sagt að
hún sé móðguð á að vera alltaf sögð vera partý-stelpa en að margir vinir hennar
skemmti sér mun meira en hún. Stjarnan missti mörg kíló en segir að henni hafi
sjaldan liðið betur en í kyrrðinni á spítalanum. „Mér finnst ennþá gaman að fara
út að skemmta mér en ég hef líka fundið aðrar leiðir til að láta mér líða betur“.
,Því verður varla trúað að Sam-
fylkingin hafi nú bæst í þennan
sauðakór sem aðhyllist einkafram-
kvæmd sem trúarbrögð því að
hún þykist nú á góðum degi hafa
viðhorf hagsýninnar til markað-
arins. En hvað á maður að halda
þegar sjálf vonarstjarna flokksins
og framtíðarleiðtogi talar eins og
hann sé enn einn stjúpsonur Geirs
Haarde í pólitík?"
„Telur stjörnublaðamaður Baug-
smiðlanna engan mun á því, hvern-
ig fjölmiðlar segja fréttir og því,
hvernig stjórnmálamenn lýsa skoð-
unum andstæðinga sinna? Er Sig-
ríður Dögg með þessu að réttlæta
lélegan fréttaflutning Fréttablaðs-
ins á þeirri forsendu, að hann sé
sambærilegur við það og þegar
stjórnmálamaður gagnrvnir sjón-
armið andstæðings síns?íl
Ármann Jakobsson, íslensku-
frœðingur - www.murinn.is
Fjárkrafa Loftmælinga á hendur
ríkissjóði fyrir að annast grunn-
þjónustu, sem skattborgaranum
er ætlað að standa straum af kostn-
aði við, er auk þess himinhá en
ágæt vísbending um hvað gerist
þegar fyrirtæki ná að seilast ofan
í vasa skattborgarans í gegnum
einkavædda starfsemi.“
Ögmundur Jónasson, alþingismað-
ur - www.ogmundur.is
Björn Bjarnason, dómsmálaráð-
herra - www.bjorn.is
„Það er því ekki bara ómanneskju-
legt að draga lappirnar í uppbygg-
ingu á hjúkrunarrýmum aldraðra
eins og ráðamenn hafa gert heldur
er það einnig bæði dýrt og heimsku-
legt. Að láta aðhald í ríkisrekstri
bitna svona harkalega á uppbygg-
ingu hjúkrunarheimila er því dýr
sparnaður.“
Jóhanna Sigurðardóttir, alþingis-
kona - www.althingi.is/johanna
eftir Jim Unger
„Ég finn ekki miðann minn. Get ég fengið ein-
hvern bláan oq fínan?" - FATAHENGI
1-11
© Jim Unyet/dÍBl. by Ut»led Media, 2001
HEYRST HEFUR...
Ekkert hefur enn verið upp-
lýst um það hverjir eru nýir
hluthafar í Árvaki, útgáfufélagi
Morgunblaðsins. Samkvæmt
heimildum okkar eru Morgun-
blaðsmenn farnir að horfa vest-
urumhaf,
til Ólafs
Jóhanns
Ólafsson-
ar rithöf-
u n d a r .
Ó 1 a f u r
Jóhann hefur átt farsælan feril
í viðskiptalífi í Bandaríkjunum
og innkoma hans í Morgunblað-
ið myndi eflaust virka sem vít-
amínssprauta. Orðrómur hefur
verið á kreiki um að Straumur
fjárfestingabanki sé meðal
nýrra hluthafa Árvakurs, en
forráðamenn Morgunblaðsins
hafa borið þá sögu til baka.
Egill Helgason liggur ekki á
skoðunum sínum á heima-
síðu sinni og í gær var komið
að FL Group. Hann segir að
fyrir venjulegt fólk úti í bæ
virki kaup Flugleiða á Sterling
gjörsamlega óskiljanleg og að
ekki hafi verið veittar neinar
almennilegar skýringar á því
hversvegnafyr-
irtæki sem er
keypt á 4 millj-
arða er stuttu
síðar selt á 15
milljarða. Síð-
an segir Egill:
.Mennirnir
sem standa á bak við þetta eru
ekki heldur beint traustvekj-
andi. Einkennilega eru menn
fljótir að gleyma á íslajidi.
Pálmi Haraldsson var aðáliaiað-
urinn í grænmetissvindlinö-.,
stóra. Fór eftir það huldu höfði
og lét aðra svara fyrir málið.
Þetta var massíft samsæri gegn
íslenskum neytendum. Hannes
Smárason var aðstoðarforstjóri
hjá Decode á tíma hlutafjárút-
boðsins fræga. Við munum 611
hvernig gengi fyrirtækisins var
skipulega talað upp hér á gráa
markaðinum. öll þessi mylla
kostaði fjölda Islendinga aleig-
una.“
Miðurstaða Egils Helgason-
ar á vefsíðu sinni er þessi.
„Það hlýtur að vekja stórar
spurningar að sómafólk eins
og Inga Jóna
og Ragnhild-
ur Geirsdótt-
ir hverfa
snögglega
frá fyrirtæk-
inu. í staðinn
eru komnir í
stjórn strákar eins og Sigurður
Bollason og Magnús Ármann
- sem til skamms tíma rak nekt-
arstað í miðbænum. Þeir eru
svona liðléttingar í klíkunni,
með stóru körlunum, Pálma,
Hannesi og Jóni Ásgeiri.“
eynir Traustason opnaði
sig í við-
tali við Kol-
brúnu Berg-
þórsdóttur
hér í Blaðinu
um síðustu
helgi. Hann
talaði meðal
annars um
uppvaxtarár-
in á Flateyri
og lýsti því
þegar hann bjargaði ungum tví-
burum, sem óknyttadrengir í
bænum ætluðu að grýta. Núna,
40 árum síðar, barst Reyni
óvænt símtal í vikunni. Á lín-
unni var annar tvíburinn sem
þekkti sig í grein Reynis. Þarna
urðu mikljr fagnaðarfundir...