blaðið - 01.11.2005, Blaðsíða 13
blaðið ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 2005
NEYTENDUR I 13
Búðarhnupl
kostnaðar-
samt
Samkvæmt niðurstöðum evrópskr-
ar rannsóknar, sem framkvæmd var
af smásölurannsóknarsetrinu í Nott-
ingham og náði til 25 landa, kemur
í ljós að rýrnun í íslenskum verslun-
um vegna þjófnaðar eða innri mis-
taka nemur um 1,1% af veltu, eða 2
milljörðum króna á ári. Ef innri mis-
tök starfsmanna eru lögð til hliðar
og einungis litið á búðarþjófnað, að
viðbættum þeim kostnaði sem leggst
á verslanir vegna öryggismála og
samfélagslegs kostnaðar dómskerf-
isins og lögreglu vegna búðarþjófn-
aðar, þá má ætla að hver íslendingur
greiði að jafnaði um 11.000 krónur á
ári vegna þessara glæpa.
ísienskir starfsmenn stela
Rannsóknin ber heitið European
Retail Theft Barometer og kemur
fram í henni að ísland er eina land-
ið af þeim sem rannsökuð voru þar
sem starfsmenn verslanna stela
meiru en viðskiptavinirnir. Á ís-
landi er um 41,3% rýrnun á veltu
fyrirtækjanna vegna innanbúðar-
þjófnaða en meðaltalið fyrir þjófnað
starfsmanna í samanburðarlöndun-
um var 29%. íslendingar státa þó af
því að vera með lægsta hlutfallið þeg-
ar kemur að þjófnaði viðskiptavina,
eða 39,1%, en meðaltalið fyrir slíkt er
tæplega 48% í samanburðarlöndun-
um í Evrópu. Þetta var í fyrsta sinn
sem ísland var með í rannsókninni
en hún var nú framkvæmd í fimmta
sinn. Hún sýnir að rýrnunin hefur
minnkað á undanförnum árum en
þjófnaðir starfsmanna fari vaxandi.
Er rýrnunin fyrst og fremst rakin til
þess að verslanir eyða sífellt meira
í öryggisbúnað og fyrirbyggjandi
aðgerðir.
Mikiil samfélagslegur kostnaður
Búðarþjófnaðir eru um 23% allra
mála sem kærð eru til lögreglu.
Því virðist vandinn vera stór á ís-
landi þó að hann sé ekki jafn um-
svifamikill og víðfeðmur eins og í
mörgum nágrannalöndum okkar.
Samkvæmt Samtökum verslunar og
þjónustu er söluverðmæti þess sem
er stolið árlega yfir 3.000 milljónir
króna og ljóst að það væri ýmislegt
hægt að gera til að bæta hag neyt-
enda, starfsmanna og eigenda fyrir
slíka fjárhæð ef hægt væri að sigrast
á þessu hvimleiða vandamáli sem
að búðarhnuplið er. ■
t.juliusson@vbl.is
Samanburður á bensínverði
Allir lœkkuðu
í vikunni
Bensínlítrinn enn á hraðri niðurleið
Öll olíufélögin lækkuðu bensínverð
hjá sér í vikunni en þó mismunandi
mikið. Minnst var lækkunin hjá ÓB
þar sem verð á hvern lítra lækkaði
einungis um 10 aura milli vikna en
lækkunin var á bilinu 0,6-0,9 krón-
ur hjá öllum hinum stöðvunum.
Orkan er enn og aftur ódýrust og
kostar lítrinn þar 107,9 kr.. Dýrast er
hins vegar að taka bensín í sjálfsaf-
greiðslu hjá stöðvum Skeljungs við
Bæjarbraut og á stöð félagsins við
Bústaðarveg en þar kostar lítrinn
109,5 kr. ■
. HverjU 1 eru ódýr Samanburður á verð astir? i 95 oktana bensíns
AO *ru«T*a»li Sprengisandur 108 kr. Kópavogsbraut 108 kr. óseyrarbraut 108 kr.
eGO Vatnagarðar 108,10 kr. Fellsmúli 108,10 kr. Salavegur 108,10 kr.
<0 Ægissíða 109,20 kr. Borgartún 109,20 kr. Stóragerði 109,20 kr.
olis Álfheimar 109,20 kr. Ánanaust 109,20kr. Gullinbrú 108 kr.
Eiðistorg 107,90 kr. Ánanaustum 107,90 kr. Skemmuvegi 107,90 kr.
ORKAN
03 Mýrtbwwh Arnarsmári 108,60 kr. Starengi 108,60 kr. Snorrabraut 108,60 kr.
Gylfaflöt 109kr. Bústafiarveal 109,50 kr.
AÐALNÚMER SfMI 520 8000 Bíl3VaTall 1U11T
SKEIFUNNI 11 RVlK. ■ SÍMI 520 8001 SMIÐJUVEGI 68 KÓP. • SlMI 520 8004
DRAUPNISGATA 1 AK • SlMI 520 8002 BÍLDSHÖFÐA 16 RVlK. ■ SÍMI 520 8005
DALSHRAUN113 HFN. • SlMI 520 8003 EYRARVEGI 29 SELF. • SlMI 520 8006
www.stilling.is
Stærð Onegld Negld
I 75/70R15 4.800,- 5.800.
175/65R14 4.990,- 5.990.
185/65R14 5.500,- 6.290.
195/65R15 6.900,- 7.590.
205/65R15 6.900,- 7.900.