blaðið - 01.11.2005, Blaðsíða 22
30 I ÍPRÓTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 2005 blaöiö
Fjölmennt tennismót
í Kópavoginum
Haustmót tennissambandsins var
haldið um helgina í Sporthúsinu í
Kópavogi. Sextíu og átta börn voru
skráð til leiks á aldrinum átta til
átján ára og var þetta fjölmennasta
barnamót sem haldið hefur verið
hér á landi frá upphafi. Krakkar
frá öllum tennisfélögunum: Álfta-
nesi, Fjölni, Hafnarfirði, Kópavogi,
Víkingi og Þrótti tóku þátt í þessu
þriggja daga móti. Nýjasta keppnis-
greinin fyrir börn sem eru að byrja
í tennis kallast „míní tennis“ og var
hún með mesta þátttöku eða 18 kepp-
endur. „Míni tennis“ er leikinn á ein-
um fjórða af venjulegum tennisvelli
og eru mjúkir boltar og léttir spaðar
notaðir til að gera yngstu krökkun-
um kleift að keppa í tennis eftir að-
eins nokkrar kennslustundir.
Sigursælustu keppendurnir á mót-
inu voru Rafn Kumar Bonifacius (n
ára) frá Víkingi, sem vann fimm
verðlaun, Birkir Gunnarsson (13 ára)
TFK, Edda Óskarsdóttir (12 ára) frá
Fjölni og Guðrún Óskarsdóttir (16
ára) TFK sem unnu fern verðlaun
hvert.
Meira en 150 börn æfa tennis á höf-
uðborgarsvæðinu í dag og hafa vin-
sældir íþróttagreinarinnar verið að
aukast með hverju ári. Nýlega voru
stofnaðir unglingalandsliðshópar
fyrir börn 16 ára og yngri með það
markmið að skapa framtíðaafreks-
fólk í tennis. Það má þvi segja að
framtíðin sé björt í tennisíþróttinni
hér á landi og myndirnar sanna það.
Ungt og efnilegt íþróttafólk. B
Unglingameistaramótið í Kumite
Það var mikið fjör á unglinga-
meistaramótinu í Kumite sem
var haldið í Víkinni síðastliðinn
sunnudag. Fjöldi þátttakenda var
um 80 og þarna voru keppendur á
aldrinum 12-20 ára. Á þessu móti
var í fyrsta sinn keppt í flokki 12
ára barna og þótti takast vel til
en lágmarksaldur hefur til þessa
verið 13 ár en er í dag 12 ár. Karate-
félagið Þórshamar hafði titil að
verja í heildarúrslitum og tókst
þeim að verja titilinn og það
glæsilega. Til glöggvunar eru hér
að neðan úrslitatöflur í einstak-
lingskeppni og í samanlögðum
árangri félaganna.
Keflavíkurverktakar fluttir
að Lyngás 11, efri hæð,
210 Garðabæ.
Sama símanúmer 420 6400.
KEFLAVIKURVERKTAKAR hf.
Lyngás 11 • 210 Garðabæ • Sími: 420 6400 • www.kv.is
Keflavíkurverktakar eru eitt af stærri verktakafyrirtækjum
iandsins með verkefni víða um land.
Starfsmenn fyrirtækisins eru á þriðja hundrað.
Aðalskrifstofa fyrirtækisins er staðsett í Garðabæ.
Drengirf. 1993
1. Kristján Helgi Carrasco Afturelding 5
2. Egill Birnir Björnsson Fylkir 3
3. TómasTryggvason Breiðablik 2
4. Jakob Gunnarsson Þórshamar 1
Drengirf. 1992
1. Steinar Valur Bjarnason Fylkir 5
2. Arnar Freyr Nikulásson Breiðablik 3
3. Hákon Logi Herleifsson Fylkir 2
4. Aron Þór Ragnarsson Þórshamar 1
Piltarf. 1991
1. Arnór Ingi Sigurðsson Haukar 5
2. Birkir Ólafsson Völsungur 3
3. Davíð örn Halldórsson Þórshamar 2
4. Goði Ómarsson KFR 1
Piltarf. 1990
1. Aslákur Ingvarsson Þórshamar 5
2. Jón Ingvi Seljeseth Þórshamar 3
3. Steinar Logi Helgason Þórshamar 2
4. Arnljótur Björn Halldórss Þórshamar 1
Eldri piltar (kadett) f. 1988-1989
1. Gunnar Lúðvík Nelson Þórshamar 5
2. Þórshamar Haukar 3
3. Andri Valur Guðjónsen Víkingur 2
4. Andri Bjartur Jakobsson KFR 1
Eldri piltar (juniorar) f. 1985-1987
1. Diego Björn Valencia Víkingur 5
2. Kostas Petrikas Víkingur 3
3. Tómas Lee Róbertsson Þórshamar 2
4. Brynjar Aðalsteinsson KFR 1
Telpurf. 1992-1993
1. Jóhanna Brynjarsdóttir Fylkir 5
2. Gunnhildur Hjördís Grétarsd Fylkir 3
3. Dagný Björk Egilsdóttir KAK 2
4. Aðalheiður Rósa HarðardóttirKAK 1
Stúlkurf. 1990-1991
1. Hekla Helgadóttir Þórshamar 5
2. Bergþóra Sveinsdóttir KAK 3
3. Ása Katrín Bjarnadóttir KAK 2
4. Heiður Anna HelgadóttirÞórshamar 1
Stúlkur (kadett) f. 1988-1989
1. Ingibjörg Helga Arnþórsd Þórshamar 5
2. Helena Montazeri Víkingur 3
3. Guðrún Birna Ásgeirsdóttir KAK 2
4. Guðrún Óskarsdóttir Breiðablik 1
Konur (junior)f. 1985-1987
1. Sólveig Sigurðardóttir Þórshamar 5
2. Auður Olga Skúladóttir Þórshamar 3
Heildarstig félaga
Afturelding 5
Breiðablik 6
Fjölnir 0
Haukar 8
Karatefélag Kópavogs 10
Karatefélag Reykjavíkur 3
Víkingur 13
Völsungur 3
Þórshamar 41
Fylkir 18