blaðið - 01.11.2005, Qupperneq 30
38IFÓLK
' ÞRIÐJUDAGUR 1. NÓVEMBER 2005 blaöiö
EFTIRSJÁ AD
PVÍ SEM VAR
Smáborgaranum svíður undan breyt-
ingum. Þrátt fyrir umburðarlyndi og
veiklun gagnvart auknu frjálsræði þá
er hann afar íhaldsamur þegar kemur
að þreytingum á hans nánasta um-
hverfi. Smáborgarinn vill að hlutirnir
haldist innan þægilegra vikmarka.
Hann vill að sú þjónusta sem hon- i
um líkar haldist óbreytt. Hann vill að
uppáhalsþættirnir hans í sjónvarpi séu
sýndir endalaust. Hann vill að nánustu
ættingjar flytji aldrei svo að hægt sé >
: að heimsækja vettvang æskuminn-
inganna. En það sem hann vill helst
að breytist aldrei er útlit og innihald
þeirra neysluvara sem eru hluti af dag-
legri rútínu hans. Smáborgaranum
verður þó sjaldnast að ósk sinni.
Nýjasta áfallið sem dundi yfir var.tekn-
óvæðing* Opal-umbúðanna. ( stað
hins hefðbundna Opal-pakka eru
komnar skynörvandi gos-umbúðir.
Smáborgarinn var rétt búinn að kom-
ast yfir hneykslið þegar að hætt var
að selja bláan Opal þegar þessi nýja
bylgja dundi yfir. Sá sjónarsviptir var
nánast eins og að missa náinn ástvin.
Á þannig ögurstundu fór Smáborg- j
arinn að hugsa aftur til allra þeirra
þægilegu hluta og flata tilverunnar
sem hefur verið kippt í burtu frá hon-
um án þess að nokkur hugsi út í þær
afleiðingar sem slíkar gjörðir hafa á
sálartetur hans. Prins pólóið þótti til ;
dæmis úr sér gengið og nauðsynlegt
varð að gefa því andlitslyftingu. Smá-
borgarinn hætti þá að kaupa sér Prins
póló. Gamla kókið (gleri þótti heldur |
ekki standast nútímakröfur og var
kippt af markaði. Með því hvarf hið
draumkennda bragð fortíðarinnar og
Smáborgarinn hætti samstundis að
drekka kók. Hér í eina tíð þótti stall- j
klippingin móðins. Enginn var maður
með mönnum nema að viðkomandi
skartaði boðlegu pottloki. ( dag þyk- j
ir hún hallærisleg og fólki er sagt að
tjásuklipptar strípur séu framtíðin.
Smáþorgarinn gafst þá upp á því að
fylgja tískustraumum. Meira að segja
mjólkurfernurnar stóðust ekki tímans ;
tönn og voru poppaðar upp úr öllu
valdi til að svala straumlínulöguðum
fýsnum alþjóðasamfélagsins.
Þetta þykir Smáborgaranum miður. •
Hann er fullur af eftirsjá að því sem var. :
Hann lifir nefnilega í þeirri trú að það !
sé alger óþarfi að laga þá hluti sem
ekki eru bilaðir.
Það er nánast ekkert að gerast í við-
ræðum okkar Islendinga við Banda-
ríkjamenn. Engar efnisviðræður
eru hafnar. Himinn og haf ber á
milli varðandi kostnaðarþátttöku
fslendinga í rekstri herstöðvarinn-
ar. Engir fundir eru fyrirhugaðir á
næstunni. íslendingar virðast bíða
eftir því að Bandaríkjamenn eigi
frumkvæði að næstu fundum. Mér
sýnist því að í reynd séu viðræður
okkar við Bandaríkjamenn um varn-
armál sigldar í strand. Geir H. Haar-
de utanríkisráðherra er mér örugg-
lega algerlega ósammála en þetta er
sú ályktun sem ég dreg eftir fund
í utanríkismálanefnd í morgun.
Satt að segja er það mitt mat að
heldur hafi miðað afturábak en
framávið síðustu mánuði. Ég á jafn-
framt erfitt með að sneiða hjá þeirri
ályktun að það hafi orðið stefnu-
breyting af hálfu Bandaríkjamanna.
Þá horfi ég ekki aðeins til þeirrar
staðreyndar að vestra virðist málið
formlega komið undir þjóðarörygg-
isráðgjafann Steve Hadley, sem er
nátengdur „haukunum“ í málinu,
Donald Rumsfeld varnarmálaráð-
herra og Dick Cheynee varaforseta.
Þeir virðast báðir á þeirri skoðun
HVAÐ FINNST ÞÉR?
Þormóður Jónsson, framkvœmdastjóri Fíton
Hvað finnst þér um áfengis-
auglýsingar í blöðum?
„Mér finnst þær nú bara misjafnar! En ef þú ert að spyrja mig um hvað mér finnst
um bann við áfengisauglýsingum í blöðum get ég sagt að mér finnast öll höft
döpur. Þetta er bara vara eins og hver önnur og mér finnst að hún eigi alveg er-
indi í auglýsingar eins og að aðrar vörur. Ég gef því lítið fyrir skoðanir þeirra sem
segja að þessa vöru megi ekki auglýsa. í sjálfu sér má setja einhvers konar reglur
varðandi unglinga og ungt fólk en á meðan varan er leyfð á markaðnum má ekki
hefta hana á markaði. Ef þú hefur leyfi til að selja vöruna áttu að fá að auglýsa
hana líka. Þetta er auðvitað stórt mál fyrir auglýsingabransann og ef banninu
yrði aflétt væri það gott fyrir þann geira sem ég starfa í. Auðvitað eru menn að
fara í kringum þetta með alls kyns hætti, eru með kynningar og reyna að ná til
veitingamanna með því að bjóða þeim hingað og þangað sem er oft miklu frekar
nær spillingu en ef þetta væri bara á opnum markaði."
Fyrirsœtan Robbie
Robbie Williams hefur skrifað undir samning um að vera andlit fata-
línunnar Gio-Goi. Breska blaðið The Sun segir: „Robbie hefur allt-
af haft mikinn áhuga á ímynd sinni. Jafnvel þegar hann var í
Take That lék hann sér með mismunandi strauma og var um
tíma pönkari og á öðrum tíma britpoppari með sjálfstæða
útlitið. Gio-Goi finnst hann vera fullkominn fyrir sína línu.
Hann er strákur frá Norður-Englandi og pottþétt einhver sem
fólk lítur til hvað varðar tískuna." Gio-Goi hafa séð um fötin fyrir
mikið af hljómsveitum eins og til dæmis Oas
/,f'\ is og Primal Scream.
A’ ^
Paris að leika
Zsa Zsa Gabor?
Paris Hilton er að ræða við kvikmyndaframleiðendur um að leika Zsa Zsa
Gabor í nýrri mynd. Leikkonan var eitt sinn gift langafa Paris Hilton, en
hann hét Conrad Hilton. í myndinni verður líka fjallað
um það þegar Gabor vann titilinn ungfrú Ungverjaland
í fegurðarsamkeppni árið 1936.
myndin
Batman Begins hefur verið kosin besta mynd ársins 2005,
samkvæmt skoðanakönnuninni Total Film Awards. Ian
McDiarmid úr Star Wars var svo kosinn besti glæponinn
og Mickey Rourke fékk flest atkvæði sem maður ársins
fyrir túlkun sína á Marv í kvikmyndinni Sin City.
Batman Begins
kosin besta
að herinn eigi að fara og það sé
einungis eðlilegur þáttur í sam-
drætti bandarísks herafla í Evrópu.
I virtum stórblöðum vestra hafa
birst fregnir um það að vilji banda-
rískra stjórnvalda stefni til þess að
hér á landi verði lægsta stig viðbún-
aðar, þ.e.a.s. að hér verði aðstaða
fyrir hendi án margra hermanna,
sem hægt sé að nýta ef viðsjár skap-
ast eða til tíðinda drægi. Það hafa
íslensk stjórnvöld þó ekki viljað
kannast við. Þetta er þó í samræmi
við það sem hefur mátt greina í
óformlegum viðræðum íslenskra
stjórnmálamanna, meðal annars
við starfsmenn Bandaríkjanna hér
á landi. Þetta rímar líka vel við þá
stefnu Bandaríkjamanna að fækka í
herliði sínu í Evrópu úr 112 þúsund
hermönnum niður í allt að 50 þús-
und. Því herliði sem verður staðsett í
Evrópu á að koma fyrir í hefðbundn-
um stærri stöðvum sem liggja nær
hugsanlegum átakamiðjum.
Össur Skarphéðinsson
http://web.hexia.net/roUer/page/ossur/
„Af hverju kemurðu alltaf í rúmið með sokk á hægri fæti?"
HEYRST HEFUR...
Halldór Ásgrímsson, forsæt-
isráðherra, þótti sýna á
sér nýja hlið í þætti Eiríks Jóns-
sonar og Reynis
Traustasonar á
Talstöðinniálaug-
ardagsmorgun.
Forsætisráðherr-
ann hló og gant-
aðist og meira að
segja áleitnar spurningar Eiríks
um sök hans á Íraksstríðinu
slógu hann ekki út af laginu. Að-
eins einu sinni mátti merkja að
hann reiddist en það var þegar
hann var spurður um Pálma
Gestsson og meðferð hans á ráð-
herranum. Þótti ráðherranum
spýtukarlsleikur Pálma tilkomu-
lítill....
Svo virðist sem Kastljós Þór-
halls Gunnarssonar sé að
valta yfir Island
í dag Svanhildar
Hólm. Nú heyr-
ist að mikil og
vaxandi óánægja
sé á Stöð 2 með
samstarfið við Svanhildi sem
sögð er taka samkeppnina inn á
sig með tilheyrandi geðhrifum.
Þórhallur hefur verið iðinn við
að taka viðmælendur og starfs-
menn af sínum gamla vinnu-
stað. Nú síðast réði hann á RÚV
einn virtasta útsendingarstjóra
365, Sigurð Jakobsson, sem yfir-
gefur Stöð 2 í vikunni eftir ára-
tugastarf...
Titringurinn vegna borgar-
stjórnarprófkjörs Sjálfstæð-
isflokksinsnálgast
nú hámark og öllu
er til tjaldað af
frambjóðendum
á lokasprettinum.
Erfitt er aðspá um
niðurstöður en þó
er Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
talinn hafa betri möguleika en
Gísli Marteinn Baldursson. Vil-
hjálmur Þ. og Júlíus Vífill Ing-
varsson eru taldir hafa með sér
bandalag þótt ekki sé það opin-
bert. Báðir njóta þeir stuðnings
Geirs H. Haarde, formanns Sjálf-
stæðisflokksins, og munar um
minna. En það breytir þó ekki
því að allt getur gerst og hinir
fremstu orðið síðastir...
Illugi Gunnarsson, sjónvarps-
maður og fyrrum aðstoðar-
maður Davíðs Oddssonar, er
atvinnulaus í augnablikinu eftir
að Davíð steig út
úr stjórnmálun-
um. Illugi hefur
þó í nógu að snú-
ast í hlutastarfi
með Sunnudags-
þáttinn á Skjá-
Einum auk þess að hann situr
í mörgum stjórnum fyrirtækja.
Þá mun hann nú vera að undir-
búa framboð sitt í þingkosning-
unum árið 2007. Því er spáð að
hann fari fram í Reykjavík og
hrollur er nú þegar í mörgum
þingmönnum sem óttast að
verða undir í þeim slag...
Erfiðleikar DV virðast engan
endi ætla að taka. Dómur
undirréttar yfir Mikael Torfa-
syni, ritstjóra, og L
Illuga Jökulssyni, * *
fyrrverandi ritstjóra, vegna um-
fjöllunar um jógakennara sem
sagður var hafa tryllst er einn
eitt áfall blaðsins sem nær ekki
upp lestri þrátt fyrir ákafar til-
raunir. Því er spáð að senn stytt-
ist vera Mikaels á DV þar sem
Gunnar Smári Egilsson geti ekki
varið öllu lengur af hverju halda
eigi honum í starfi. Mikael mun
þá væntanlega snúa sér aftur að
rithöfundarferlinum sem legið
hefur í láginni...