blaðið - 05.11.2005, Page 12
12 I FRÉTTASKÝRING
LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 2005 blaAÍÖ
Frásagnir afleynilegumfangelsum Bandaríkjamanna vekja hörð viðbrögð:
Alþjóðasamfélagið krefst skýringa
FRÉTTA-
SKÝRING
EINAR ÖRN JÓNSSON
Bandarísk stjórnvöld hafa sætt
mikilli gagnrýni á alþjóðavett-
vangi eftir að dagblaðið Washing-
ton Post birti grein í vikunni um
leynifangelsi sem Bandaríska
leyniþjónustan (CIA) rekur á er-
lendri grundu. Fangelsin eru sögð
vera eða hafa verið í nokkrum
löndum Austur Evrópu, Taíiandi
og Afganistan og þar hefur meint-
um hryðjuverkamönnum verið
haldið föngnum og þeir yfirheyrð-
ir. CIA setti fangelsin á laggirnar
fyrir fjórum árum og hafa þau
gegnt mikilvægu hlutverki í stríði
stjórnvalda gegn hryðjuverkum.
Á vitorði fárra
Tilvist og staðsetning fangelsanna
sem gjarnan eru kölluð „svört svæði“
í trúnaðarskjölum, hefur aðeins
verið á vitorði lítils hóps embættis-
manna í Bandaríkjunum og aðeins
forseti og háttsettir leyniþjónustu-
menn í hverju landi fyrir sig hafa
haft vitneskju um þau samkvæmt
grein Washington Post.
Mannréttindasamtökin Human
Rights Watch héldu því fram í kjölfar
greinar blaðsins að fangelsin væru í
Póllandi, Rúmeníu, Jórdaníu, Egypta-
landi, Marokkó og Afganistan en töl-
urnar byggðu þau á upplýsingum úr
flugbókum. Pólverjar og Rúmenar
hafa neitað þessum ásökunum.
Stjórnvöld í Tékklandi segja að
Bandarísk stjórnvöld hafi farið þess
á leit að fá að reisa leynifangelsi
í landinu en beiðninni hafi verið
hafnað. Stjórnvöld í Ungverjalandi,
Slóvakíu og Búlgaríu sögðust ekki
heldur hafa fengið slíkar beiðnir.
Framkvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins lýsti því yfir á fimmtudag
að hún myndi fyrirskipa rannsókn
á frásögnum af leynifangelsunum
enda brytu þau í bága við mannrétt-
indareglur sambandsins.
CIA neitar að tjá sig
Talsmenn CIA hafa neitað að svara
spurningum um málið og Scott
McClellan, talsmaður Bandaríkja-
stjórnar, segist ekki ætla að svara
fyrir leyniþjónustuna. Stephen
Hadley, þjóðaröryggisráðgjafi Banda-
ríkjaforseta reyndi að gera lítið úr
tali um leynileg fangelsi og sagði að
jafnvel þó að slík fangelsi kynnu að
vera til þá þýddi það ekki að pynting-
ar væru stundaðar þar.
í kjölfar umfjöllunar Washington
Post hófust umræður á Bandaríkja-
þingi um tillögu demókrata um að
banna stranglega allri beitingu pynt-
ingá' á vegum bandarískra yfirvalda.
Mikil andstaða er við tillöguna
innan varnarmálaráðuneytisins og
George Bush, forseti, hefur hótað að
beita neitunarvaldi gegn henni. For-
setinn telur að bannið muni hefta
CIA um of í baráttunni gegn hryðju-
verkum.
Samkvæmt frétt Washington Post
um fangelsin telja leyniþjónustu-
menn mikilvægt að geta fangelsað
og yfirheyrt meinta hryðjuverka-
menn eins lengi og þeir þurfa án af-
skipta dómstóla. CIA og Hvíta húsið
hafa jafnvel í nafni þjóðaröryggis
latt Óldungadeild Bandaríkjaþings
til að grennslast fyrir um aðbúnað
fanga fyrir opnum tjöldum. Nánast
ekkert er vitað um hverjir eru í haldi
í fangelsunum eða hvaða yfirheyrslu-
aðferðum er beitt þar. Ekki er heldur
vitað hvernig ákvarðanir um hvort
hneppa eigi fólk í varðhald (og þá
hversu lengi) eru teknar.
Rauði krossinn lýsir yfir áhyggjum
Alþjóðaráð Rauða krossins fór á
fimmtudag fram á að fá aðgang að
öllum útlendingum sem grunaðir
eru um að vera hryðjuverkamenn
og eru í haldi Bandarikjamanna.
„Við höfum áhyggjur af afdrifum
óþekkts fjölda fólks sem hefur verið
fangelsað í hinu svo kallaða hnatt-
ræna stríði gegn hryðjuverkum og
er haldið á ótilgreindum stöðum,“
sagði Antonella Notari, aðaltals-
maður Alþjóða Rauða krossins við
Reuters-fréttastofuna og bætti við
að það væri algert forgangsatriði
að fá aðgang að föngum og eðlilegt
framhald af starfi samtakanna í Afg-
anistan, Irak og Guantanamo-flóa á
Kúbu.
Bandaríska mannréttindavaktin,
Gervihnattamynd af húsasamstæðu í Afganistan þar sem talið er að Bandaríska ieyni-
þjónustan visti fanga.
Human Rights Watch, segir að rétta
eigi yfir A1 Kaída-föngunum í stað
þess að halda þeim í ótiltekinn tíma
í leynilegum fangelsum þar sem þeir
njóta engra viðurkenndra réttinda.
Ríkisstjórnir erlendra ríkja og
mannréttindasamtök hafa haft aukn-
ar áhyggjur af meðferð á föngum
í haldi CIA eftir að upp komst um
slæma meðferð bandaríska hersins á
föngum í Afganistan og írak. Meiri
leynd hvílir yfir starfsemi CIA en
bandaríska hersins sem starfar sam-
kvæmt ákveðnum reglum og undir
eftirliti þingsins. Sem dæmi má
nefna að á sama tíma og varnarmála-
ráðuneyti Bandaríkjanna hefur gef-
ið út ítarlegar skýrslur um meðferð
á föngum í kjölfar Abu Ghraib og
Guantanamo-málanna hefur CIA
ekki einu sinni viðurkennt tilvist
„svörtu svæðanna.“ Ef hún gerði það
ættu bandarísk stjórnvöld hugsan-
lega yfir höfði sér lögsóknir, ekki
síst fyrir erlendum dómstólum, og
hætta á alþjóðlegri fordæmingu
myndi aukast.
Brýtur í bága við bandarísk lög
Heimildarmenn Washington Post
innan leyniþjónustunnar segja að
meðferðin á föngunum brjóti í bága
við bandarísk lög og því visti CIA þá
og yfirheyri á erlendri grund.
Lögfræðingar sem dagblaðið ræddi
við halda því reyndar fram að með-
ferðin brjóti einnig í bága við löggjöf
þeirra landa sem gáfu CIA leyfi til
að starfrækja fangelsi á sinni grund.
Þau lönd hafa líkt og Bandaríkin und-
irritað sáttmála Sameinuðu þjóðanna
gegn pyntingum og annarri grimmi-
legri, ómannúðlegri og niðurlægj-
andi meðferð eða refsingu. Þrátt fyrir
það er þeim sem sjá um yfirheyrslur
á vegum CIA erlendis gefið leyfi til að
beita harkalegri yfirheyrsluaðferðum
en leyfðar eru samkvæmt bandarísk-
um lögum og alþjóðlegum mannrétt-
indasáttmálum. ■
<@> HYUnDRI
hefur gæöin
■-■. ■ .’í';
Góður, betri...
stærstur
HYunoni
SANTAf£fe
VerS frá kr. 2.670.000
Bíll á mynd: Hyundai Santa Fe 2.0 dísel, med 17” álfelgum og samlitun
B&L - Grjóthálsi 1 -110 ReykjavIk - 575 1200 - www.bl.is
OPIÐ VIRKA DAGA FRÁ KL. 10 TIL 18 OG LAUGARDAGA FRÁ KL. 12 TIL l6.
Bílasala Akureyrar sími 461 2533 • Bílás Akranesi sími 431 2622 • SG Bílar Reykianesbæ sími 421 4444 • JG Bílar Egilsstaoir sími 471 2524
Veldu Santa Fe, STÆRSTA SPORTJEPPANN frá Hyundai.
Áreiðanlegur FJÖLSKYLDUBÍLL og kraftmikill ferðalangur.