blaðið - 05.11.2005, Qupperneq 20
20 I VIÐTAL
LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 2005 blaöiö
rjsland er fullt
af stjörnum! ”
Björgvin Halldórsson um íslenska tónlist, lífið og listina
Það þarf vart að kynna viðmæl-
anda Blaðsins að þessu sinni.
Hann hefur í áraraðir verið einn
ástsælasti söngvari íslensku þjóð-
arinnar og án efa í hópi þeirra
þekktustu. Björgvin Halldórsson,
eða Bo eins og sumir vilja kalla
hann, hefur litað íslenskt tónlist-
arlíf svo um munar með sinni ein-
stöku rödd og þau eru fá heimilin
sem ekki eiga afrakstur af hans
vinnu í geisladiskasafninu.
Björgvin hefur í mörgu að snúast um
þessar mundir en n.nóvember næst-
komandi kemur út þreföld safnplata
sem ber heitið „Ár&öld - Söngbók
Björgvins Halldórssonar 1970-2005.“
Þá er verið að setja á laggirnar söng-
leikinn Nína & Geiri á Broadway, en
verkið byggir á söngferli Björgvins.
Blaðakonu lék forvitni á að vita
hvernig upplifun það sé fyrir söngv-
arann að sett sé upp sýning eftir ára-
löngum tónlistarferli hans.
„Við köllum þetta eiginlega lítinn
söngkabarett sem byggir á söngbók
Björgvins Halldórssonar frekar en
söngleik byggðan á ævi minni. Auð-
vitað er maður voða stoltur af þessu
og mér finnst æðislega gaman að
koma fram „live“ á þennan hátt með
öllu þessu frábæra fólki sem tekur
þátt í sýningunni,“ segir Björgin að-
spurður um hvernig tilfinning það
sé að settur sé upp söngleikur eftir
hans æviskeiði.
„Þetta er úttekt á lögum þeim sem
ég hef flutt hingað til og þau eru
skreytt þarna á skemmtilegan hátt.
Hugmyndin kviknaði hjá Gísla Rún-
ari, leikara og Gunnar Helgason tók
að sér að leikstýra verkinu. Svipaðri
hugmynd var komið í framkvæmd
fyrir um 10 árum í söngleiknum Þó
líði ár og öld og það er voða skemmti-
legt að gera þetta aftur núna. Þetta
verður náttúrulega öðruvísi og von-
andi gerum við bara betur en síðast,
en sú sýning heppnaðist mjög vel og
stóð yfir í um 3 ár.“
Björgvin segir margt fagfólk
koma að sýningunni; leikara, söngv-
ara, tónlistarmenn og dansara og að
mikið sé lagt í verkið. Æfingar hafa
staðið yfir lengi og hann segist ekki
efast um að vel eigi eftir að takast á
frumsýningu.
„Þarna er algjört úrvalsfólk að
störfum, sama hvert litið er. Það
eru þrir aðalsöngvarar auk mín;
þau Friðrik Ómar, Regína og Heiða
Ólafsdóttir. Svo er stór hljómsveit
með okkur sem samanstendur af
Þóri Baldurssyni, Þóri Olfarssyni,
Benedikt Brynleifssyni, Róberti Þór-
hallssyni, Vilhjálmi Guðjónssyni
og Mattíasi Stefánssyni en allir eru
þeir mjög góðir tónlistarmenn. Svo
má að sjálfsögðu ekki gleyma leik-
urunum tveimur; Steini Ármanni
og Bryndísi Ásmundsdóttur auk
dansaranna 6 sem koma fram,“ seg-
ir Björgvin, en hann segir mikla til-
hlökkun ríkja í hópnum.
„Þetta er allt voðalega spennandi.
Það er skemmtilegt að útfæra lög-
in svona, þ.e. að búa til sviðsmynd
þar sem er leikið, sungið og dansað.
Þetta verður allt svo fjölbreytt fyr-
ir vikið og lögin fá á sig nýja mynd.
Þarna er lögunum beitt til þess
að búa til skemmtilega ástarsögu
- þessa týpísku sem kom fram í lag-
inu Sagan mín og Geira. Á sýningu
sem þessari fær maður viðbrögð
fólks einhvern veginn beint í æð
- en það er allt annað en að vita til
þess að fólk hlusti heima í stofu. Til-
finningin er allt önnur.“
- Það er því ekki hægt að segja að
þú sitjir auðum höndum þessa dag-
ana...?
„Nei, það er í mörgu að snúast. 1
sýninguna fer auðvitað mikill und-
irbúningur og svo hef ég nýlokið
við tökur fyrir safnplötuna. Einnig
verða gefnar út 4 aðrar plötur með
mínum lögum, þar á meðal fyrsta
sólóplatan frá árinu 1970. Svo hef
ég verið að vinna mikið með dótt-
ur minni, Svölu, að útgáfu nýjustu
plötu hennar og hef verið í London í
erindagjörðum vegna hennar mála,“
segir söngvarinn og bætir því við að
hann hafi sérstaklega gaman af því
að vinna með börnunum sínum.
„Það eru ekki allar fjölskyldur
sem fá tækifæri til þess að starfa
saman að tónlist og því er ég voða-
lega ánægður með þetta. Það er mjög
gott að vinna með Svölu og Krumma
- þau eru bæði sjálfstæð í sinni tónlist
og ég er ekkert að skipta mér af. Við
náum líka vel saman í tónlistinni og
eigum auðvelt með samstarfið."
- En hefur þín reynsla mikil áhrif á
vinnsluykkarfeðginanna við hennar
tónlist?
„Nei, það er ekki hægt að segja það.
Maður lætur „artistann“ stjórna
númer 1,2, og 3.
Þó svo að ég hafi „pródúserað"
plötuna hennar Svölu má eiginlega
segja að hún hafi verið aðal „pródús-
erinn“ - ég stjórna voða litlu, enda
á hún að fá að njóta sín eins og hún
vill. Ég er henni meira bara til halds
og trausts en hún ræður ferðinni.
Enda er ég alveg rosalega ánægður
með plötuna hennar.“
(slendingar standa vel að vígi
hvað tónlistina varðar
Björgvin hefur verið landsþekktur
til margra ára og fjölskylda hans hef-
ur einnig verið áberandi. Hann seg-
ir þetta ekki hafa mikil áhrif á sig
- þetta sé partur af pakkanum og
að hann, ásamt fjölskyldunni, taki
þetta ekki of hátíðlega.
„1 gamla daga var þetta aðeins
öðruvísi. Maður var óvanur því að
vera þekktur en nú er maður farinn
að venjast því. Ég hef það líka fyrir
reglu að söngvarinn Björgvin er sett-
ur inn í skáp þegar heim er komið -
þá tekur bara venjulegt fjölskyldulíf
við. Það er mjög mikilvægt að skipta
)essu svona niður, enda er það eitt-
ívað sem maður verður að gera í
lessum bransa. Island er lítið land
og það þekkja allir alla og það er eitt-
hvað sem maður lærir að venjast.“
- En hver er munurinn á því að vera
poppstjarna hér á árum áður og svo
núna?
„Æ, það er svo erfitt að svara svona
löguðu. Ég er ennþá jafnáhugasam-
ur um tónlistina og ég var áður. Eini
munurinn er í raun sá að það eru
aðeins fleiri poppstjörnur núna en
voru í gamla daga... Island er fullt
af stjörnum!!! Tónlistarheimurinn
er miklu opnari en þegar ég var að
byrja. Heimurinn hefur minnkað
svo mikið útaf internetinu - allir
geta hlustað á alla hvar sem þú ert
og það er styttra í allt, sem e'r bara
f;ott mál,“ segir hann og bætir við að
slendingar standi mjög vel að vígi
hvað tónlist varðar.
„ Við eigum fullt af tónlistarfólki
sem er alls ekki síðra en fólkið sem
trónir á vinsældarlistum erlendis.
Margir hverjir eru jafnvel betri. Við
ættum ekki að hafa neina minni-
máttarkennd þó við séum lítil þjóð
- við erum endalaust að vekja upp
fleiri og fleiri listamenn.“
Þó svo að Björgvin hafi hvað mest
verið viðriðinn tónlistarbransann
frá því á yngri árum hefur hann
þó komið við á öðrum vígstöðum.
Hann var dagskrárstjóri Bylgjunnar
í ein 3 ár og átti svo þátt í stofnun Bíó-
rásarinnar fyrir Stöð 2 hér um árið.
„Já, maður hefur svona prófað
fjölmiðlabransann eitthvað til hlið-
ar við tónlistina, enda skemmtilegt
að hafa þetta allt sem fjölbreyttast.
Það er mjög skemmtilegt að vinna
við fjölmiðla en umhverfið hefur
mikið breyst. Það virðast vera eilítil
illindi á milli fjölmiðla í dag, sem
mér finnst alls ekki gott, og ef vel
er að gáð er hægt að lesa milli lín-
anna ákveðna liðsskiptingu. Annars
standa íslenskir fjölmiðlar sig alveg
ágætlega að mínu mati.“
35 ár síðan fyrstu upptökur hófust
Safnplatan Ár&öld - Söngbók Björg-
vins Halldórssonar 1970-2005 kem-
ur út n.nóvember en platan státar
af hinum ýmsu lögum sem Björgvin
hefur í gegnum tíðina gert vinsæl.
Þó svo að mest sé um gamalt efni
verður einnig að finna nýtt og ferskt
efni sem ekki hefur verið spilað áð-
ur.
„Þetta eru 70 lög og þar af 4 ný,
svona til þess að krydda þetta að-
eins. Sýningin og platan eru í raun í
tilefni af því að núna eru 35 ár síðan
ég byrjaði að gefa út tónlist en það
er auðvitað skemmtilegt að halda
upp á það með þessum hætti,“ seg-
ir söngvarinn góðkunni, greinilega
spenntur fyrir komandi tímum.
Hann segir að önnur verkefni komi
svo til með að taka við í kjölfar þess-
ara enda alltaf nóg að gera.
„Núna er bara aðalmálið að keyra
þessa sýningu af stað og fylgja eftir
nýju plötunum. Svo verð ég innan
tíðar komin aftur inn í hljóðver til
þess að fást við næstu verkefni. Það
er bara mjög bjart framundan."
- Þú hefur talað um mikla grósku í ís-
lensku tónlistarlífi. Hefurðu myndað
þér einhverja skoðun um hjörtustu
von okkar Islendinga í dag á sviði
tónlistarinnar?
„Ég get ekki tekið nein ákveðin
nöfn út - það eru svo margir að gera
góða og skemmtilega hluti. Tónlist-
in er bara svo sterk út á við núna frá
íslandi, öll þessi útrás og fjölmiðlun
sem gerir þetta viðameira. Stærð
okkar gerir okkur líka bara sterkari
held ég,“ segir Björgvin að lokum og
kveður þar sem hann þarf að halda á
fund fyrir hönd dóttur sinnar, Svölu
Björgvinsdóttur.
halldora@vbl.is
99...............................................................
,Ég hefþað líka fyrir reglu að söngvarinn Björgvin er settur inn í skáp
þegar heim er komið - þá tekur bara venjulegt fjölskyldulíf við."
Miðar á bréf, pakka, bréfabindi o.fl.
Á CD/DVD diska, miðar úr plasti
Prentar miða úr Word-, Excel- og Outlook
Prentar merkiborða bæði á pappir og plast,
stærðir eftir vali, allt að eins meters langa
Allt að 62mm breidd
• 50 miðar á mínútu*
• USB tenging
• Windowshugbúnaður
• Sjálfvirk klipping
• Heilar lengjur eða staðlaðar
*Staðlaðir póstfangamiðar
Rafport
Nýbýlavegi 14, Kópavogi. Sími 554 4443. Fax 554 4102
rafport@rafport.is www.rafport.is
Umboðsmenn um land allt
■ ■ y°m su|c
brother ql-550