blaðið - 05.11.2005, Qupperneq 54
541
LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 2005 blaðiö
HVAÐ FINNST ÞER?
Katrín Jakobsdóttir, íslenskufrœðingur ogfyrrum stigavörð-
ur Gettu Betur
Hvaö finnst þér um að
Sigmar Guðmundsson sé
nýr spyrill í Gettu Betur?
„Mér líst bara vel á hann, mér hefur þótt hann mjög geðþekkur í Kastljósinu.
Ég held að hann eigi örugglega eftir að standa sig vel. Ég held líka að það sé
bara fínt að breyta til og ég held að hann verði góður með Önnu Kristínu sem
verður dómari. Mér líst líka vel á hana og ég held það verði örugglega ferskur
blær á þessu. Logi var orðinn eins og stofnun þarna þannig að það er örugg-
lega ekki auðvelt að feta í fótspor hans en ég held að Sigmar eigi örugglega
eftir að vera með sinn stíl.“
Stökustund
/' umsjón Péturs Stefánssonar
HINN HARÐI
HEIMUR MIÐ-
BÆJARBÚANS
Smáborgarinn býr i miðbæ Reykjavíkur.
Eins og margir aðrir þá á lendir hann
endrum og sinnum í erjum við bíla-
stæðasjóð og útsendara hans, stöðu-
mælaverðina. Miðbæjarbúum stendur
nefnilega ekki til boða sá munaður sem
íbúarannarra hverfataka sem sjálfsögð-
um hlut, að fá að leggja bifreiðum sín-
I um í námunda við heimili sitt án þess
að greiða sérstaklega fyrir það. Það eru
víst svo mikil forréttindi að fá að búa í
hjarta hellulagðra gatna og yfirgefinna
verslunarhúsnæða að þeir sem vilja
og kjósa að setjast þar að þurfa annað-
hvort að borga árgjöld fyrir bílastæði
eða gjöra svo vel að greiða í stöðu-
mæla. Smáborgarinn hefur hingað til
neitað að greiða slík árgjöld þar sem að
honum finnst það jaðra við að vera dul-
in skattlagning af hendi hins opinbera
og grófleg mismunun eftir búsetu.
Hann hefur þó oftast talið sig sloppinn
við áreiti bílastæðaeftirlitsmanna eftir
að gjaldtöku lýkur á kvöldin. Þar hafði
hann nú heldur betur rangt fyrir sér.
Smáborgarinn hefur nefnilega fengi
háar sektir endrum og sinnum seint á
kvöldin fyrir að leggja upp á gangstétt-
arkanta í nágrenni híbýla sinna. Svo virð-
ist vera að stöðumælaverðir séu ætið í
viðbragðstöðu ef að einhverjum ósvífn-
um dirfist að leggja þar sem þeim svíð-
ur óháð því hvort að „brotið" eigi sér
stað utan verslunartíma eður ei.
Smáborgarinn hefur líka búið í öðrum
hverfum. Þar lagði hann, og raunar
margir aðrir, bílum sínum hvar sem
hægtvaraðkomaþeimfyrir.Aldreivarð
hann var við áreiti stöðumælavarða þar.
íbúar Grafarvogs, Árbæjar, eða í raun
hvaða hverfis sem er utan miðbæjarins
þurfa nefnilega ekki að búa við slíkt
áreiti, það er tekið frá fyrir miðbæjar-
rotturnar. Það er nefnilega ekki nóg að
Smáborgarinn og kollegar hans þurfi
að greiða fyrir að leggja fyrir utan hús-
in sín, ekki nóg með heimili þeirra séu
látin hristast vegna sprenginga og bor-
anna á hverjum degi mánuðum saman
á meðan að verið er að byggja risavax-
ið bílastæðahús í bakgarði þeirra sem
síðan verður hægt að rukka þá fyrir að
leggja í, heldur eru þeir þar að auki und-
irstöðugu eftirliti bílastæðayfirvaldsins
sem grípur hvert tækifæri sem gefst til
að skikka þá glæpamenn sem leggja
bílum í námunda við heimili sitt til með
því að ráðast miskunnarlaust á pyngjur
þeirra.
Rúnar Kristjánsson á Skagaströnd
botnar:
Þó vetrartíð sé víða blíð
þá veit ég hríðar síðar.
Gadds þá níðirgríðar stríð
grund ogfríðar hlíðar.
V.L.:
Ekki síður blíðu bíð,
og býst við þíðu víðar.
Auðunn Bragi Sveinsson:
Þá á skíðum lítum lýð
lands um hlíðar víðar.
D. G.:
Þó engu kvíð, á fjöllumfríð
fönnin prýðir hlíðar.
Rúnar Kristjánsson á Skagaströnd
botnar:
Kvennadagsins djarfa lund
dável körlum sýndi viljann.
Systralagsins starfa stund
sterkan gjörla krýndi viljann.
Auðunn Bragi Sveinsson:
Vel, að þeirra vaxi pund,
vetrar- þegar magnast -kiljan.
Magnús Hagalínsson:
Þjóðarblómi þennan fund
þangað sótti Holtaliljan.
Eldri fyrripartar
E. S. botnar:
Upp til heiða ýmsir skeiða,
ogþar veiða acegrin löng.
Firðar deyða, ötíu eyða,
okkar meiða viðhorfröng.
E.S. botnar áfram:
Þó lífsins tími líði hratt,
lítumfram á veginn.
Oft er á tindum býsna bratt,
baslinu vertufeginn.
V.L. sendir vísu til þáttarins:
Gaman var að Stökustund
staðfcer enn íBlaðinu.
Þetta margra léttir lund,
-líkt ogað vera í baðinu.
Pálmi Ingólfsson frá Fagrabæ
yrkir:
Hryðjuverkin hrista menn,
hrceðslan er á sveimi.
Svívirðingum sœta enn
saklaustfólk í heimi.
Nú í upphafi vetrar yrkir
Helgi Zimsen:
Þó að vetur kóngur kynni
kuldatíð ogskafla spinni
varla slíku vafstri sinni,
vorið býr í sálu minni.
Starfsmannaleigur hafa verið
til umræðu þessa dagana.
Hjálmar Freysteinsson Akureyri
yrkir:
Þó launum smáum lofað sé,
er loforðið svikið.
Trúlega eru 2 B
tveimur of mikið.
Fyrirtceki hér í borg hafa
att ídeilum, út fráþeim
hafa ýmsir veltfyrir sér
hugtakinu verðvernd.
Hreiðar Karlsson yrkir:
Svipað eðli og innri gerð
ceði velégþekki.
Báðir cetla að vernda verð
svo verðiðfalli ekki.
Nú við upphaf rjúpnaveiða
er að mörgu að hyggja.
Davíð Hjálmar Haraldsson
Akureyri yrkir:
Drepa rjúpur djarfir menn,
drjúgt í malinn lata.
1 humáttina halda senn
hjálparsveitir skáta.
Velmegunin leikur suma grátt
Sigrún Haraldsdóttir yrkir:
Er að verða talsvert trog,
tognar brók á rassi.
Kannski égfari ífitusog
svofötin betur passi.
Oft eru loforð lítils virði, þrátt
fyrir vingjarnlega framkomu.
Auðunn Bragi Sveinsson yrkir:
Þœgilegur viðtals var,
varla mikil harka,
en hans loforð allskonar
ekki neitt að marka.
Rúnar Kristjánsson á Skagaströnd
yrkir:
Davíð og Halldór þeir hcekkuðu allt
hjá hátekjuliðinu ríka.
En almenningskaupið í verðfallið valt
og virðingin fyrirþeim líka.
Áfram yrkir Rúnar:
Einskis er metin hin mannlega sál
sem mceðist í óbreyttum Jóni.
En forstióralaun eru milljónamál
í mánuði hverjum á Fróni.
V.L. sendir fyrriparta:
/ lukkupottinn Davíð datt,
-draumar stundum rœtast.
Skagstrendingar gera grín
að gamla kúrekanum.
Botnar, vísur og fyrriparta sendist
til: stokustund@vbl.is
eða á: Blaðið, Bæjarlind 14-16, 201
Kópavogur.
UPPLIFÐU, SKAPAÐU, LÆRÐU
...meö okkur!
ERTU TIL?
OKKUR VANTAR FLEIRA FAGFÓLK
Býrð þú yfir metnaði og brennandi áhuga á faginu?
- Þá ert þú velkomin/n!
Einnig óska litasérfræðingar okkar eftir liðsauka.
Góð þjálfun í boði.
Hjó oklcur liggja tækifærin.
Aðeins faglærðir einstaklingar koma til greina.
Nánari upplýsingar veita Hildur eða Sigrún
i síma 511 6660/822 6461
HAIRDRESSING
LAUGAVEGI 96, 101 REYKJAVlK, www.toniandguy.co.uk
HEYRST HEFUR.
Pórdís J Sigurðardóttir hef-
ur tekið við stjórnarfor-
mennsku í Dags-
brún, móðurfélagi
Og Vodafone og
365 miðla af Skarp-
héðni Berg Stein-
arssyni. Því ber
auðvitað að fagna
að vegur kvenna skuli vera að
aukast í íslensku atvinnulífi.
Þórdís hefur hingað til stjórnað
norrænum fjárfestingum hjá
Baugi, en skiptar skoðanir eru
reyndar um það hversu gáfuleg-
ar þær hafa verið á árinu. Það
vita hins vegar færri að Þórdís
er systir Hreiðars Más Sigurðs-
sonar forstjóra KB banka. Það
getur komið sér vel að vera vel
tengdur inn í bankakerfið þeg-
ar herða tekur að - þetta vita
forráðamenn Baugs manna
best.
Fréttablaðið er sveitt við að
tilkynna um uppsagnir og
mannabreyting-
ar á Sirkus
-bæðistöð- AéjBi/Vf'. s
inni og
tímaritinu.
1 gær bættust
tveir einstaklingar í
hópinn, Sigtryggur Magnason
og Ágúst Bogason. íslensk fjöl-
miðlasaga er saga samfelldra
stjörnuhrapa en menn muna
vart eftir öðru eins hruni á eins
skömmum tíma.
Nýjasta Mannlíf státar ekki
bara af viðtali við Lindu
Pétursdóttur heldur er þar líka
að finna áhugavert viðtal við
Jón Ólafsson og Kristján son
hans, en þeir hafa verið að gera
góða hluti í viðskiptalífi Lund-
úna. Jón gerir upp fortíðina og
fram kemur að þeir feðgarnir
hafi meðal annars stofnað sam-
tök gegn þunglyndi og veitt
milljónum króna í það brýna
verkefni að vinna gegn þung-
lyndi og auka skilning almenn-
ings á þessum sjúkdómi.
Séð og heyrt slær því upp á
forsíðu að Logi Bergmann
og Svanhildur
Hólm séu með
milljónalaun hjá
Stöð 2. Þetta hefur
farið misjafnlega
í marga innanbúð-
armenn sem hafa
staðið vaktina
af samviskusemi og trúnaði
í mörg ár eða jafnvel áratugi.
Einhverjir munu vera farnir að
hugsa sér til hreyfings, enda
þykja hjónakornin heldur hátt
metin miðað við vinnuframlag,
auk þess sem störf þeirra sem
haldið hafa uppi fánanum und-
anfarin ár séu ekki metin að
verðleikum.
Svona að lokum ber að fagna
Legósýningunni í Vetrar-
garðinum í Smáralind. Reynd-
ar er þetta ekki bara sýning
heldur geta börn á öllum aldri
búið til alla mögulega hluti
úr þúsundum kubba. Frábært
framtak, enda hafa Legó leik-
föngin glatt börn í áratugi. Þá
skemmir ekki fyrir að heyrst
hefur að ísland hafi verið eitt
fárra landa sem heimilað var
að framleiða kubbana á sínum
tíma.
„Og sakborningurinn er ákærður fyrir að villa
á sér heimildir sem leynilögregluþjónn?"