blaðið - 18.11.2005, Side 26
26 I TÓMSTUNDIR
FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2005 bla6ÍA
Fólk meðfötlunfer á hestbak
Ótrúlegur
árangur enda
mikil hr ey fing
Hestamennska er skemmtilegt
og hressandi áhugamál sem er
stundað af fjölda fólks. Ekki vita
allir að hestamennska er einnig
mjög holl og góð fyrir einstak-
linga með fötlun, hvort heldur
sem er andleg, líkamleg eða bæði.
í Hestamiðstöð Reykjavíkur er
jafnan mikið fjör enda mætir fólk
með fötlun þar reglulega til að
ríða út. Sigurður Már Helgason,
verkefnastjóri hjá íþrótta- og
tómstundaráði Reykjavíkur segir
það ótrúlegt hvað hestamennskan
gerir mikið fyrir fólk með fötlun.
Samkvæmt Sigurði vekur það
stundum furðu að einstaklingur í
hjólastól geti verið á hestbaki og hvað
þá að það hafi svona góð áhrif. „Það
sem gerist er að við hverja hreyfingu
hestsins myndast í kringum þrjátíu
hreyfingar í mannslíkamanum,
ósjálfrátt. Þó að einstaklingur sé
ekki með mikið afl í fótum þá taka
vöðvarnir á, eftir sinni getu,“ segir
Sigurður en bætir við að tilhlökkun
nemendanna sé jafnan mjög mikil
enda er hestamennskan skemmtileg
íþrótt.
Þrjú þúsund hreyfingar
í rólegri hestaferð
Fyrirkomulag námskeiðsins er
þannig að einstaklingar eru á hest-
baki í 40 mínútur. Þó er farið var-
lega í fyrstu tímunum þannig að
enginn fái harðsperrur. Einnig er
hestunum kembt og klappað. „Með
því að teyma undir einstaklingi í ró-
legheitunum þá er líkaminn búinn
að mynda þrjú þúsund hreyfingar
enda er það oft þannig að menn fara
í 1-2 tíma reiðtúr og fá harðsperrur
á eftir. Þetta sannar hvað hesta-
mennskan er rosalega mikil þjálfun
og ég tala nú ekki um fyrir einstak-
ling sem er bundinn við hjólastól.
Til dæmis hef ég unnið með manni
Hér má sjá Sigurð aðstoða nemanda við að komast af hestbaki eftir skemmtilegan reiðtúr.
BlaÖið/SteinarHugi
sem var rúmfastur og það þurfti
að hjálpa honum í hjólastólinn og
annað. Einn góðan veðurdag var
hann farinn að brölta og var sestur
fram á rúmið. Maður er alltaf að
sjá eitthvað nýtt sem sannar fyrir
manni hvað þetta er áhrifamikið,
segir Sigurður með áherslu.
Mikil hreyfing og enn meiri ánægja
Námskeiðin er styrkt með fjárfram-
lögum frá ÍTR og fleirum. I síðasta
mánuði voru heimsóknirnar um sex-
tiu og því ljóst að mikil eftirspurn er
eftir reiðtúrum. Sigurður segir að
fólk með fötlun á öllum aldri sæki
námskeiðin og ekki einungis fólk í
hjólastólum heldur einnig fólk með
andlega fötlun. „Það fer yfirleitt
saman hjá fólki með fötlun að það
fær ekki mikla hreyfingu. Á hest-
baki fær fólk mikla hreyfingu auk
ánægjunnar af því að koma.“ í tím-
unum er notaður sérstakur hnakkur
sem er með baki og Sigurður segir
að nánast hver sem er geti setið í
hnakknum. „I þeim tilfellum þar
sem sérstaklega mikinn stuðning
þarf þá þarfnast einstaklingurinn
frekari aðstoðar.“
svanhvit@vbl.is
Kvikmyndaspilið kemur í búðir í dag
Kvikmyndir leiknar i hœgagangi
Kvikmyndaspilið er nýtt spil sem
kemur í búðir í dag og verður
án efa jólaspilið í ár. Það var
íslenskur vinahópur sem hannaði
spilið upp á sitt einsdæmi og að
sögn lögðu þau mikið á sig til að
gera spilið aðgengilegt fyrir alla.
Haukur M. Hrafnsson er tals-
maður hópsins og í samtali við
Blaðið sagði hann að spilið hafi
byrjað sem Ieikur á milli vinanna.
.Kvikmyndaspilið er spil þar sem
mótherjar velja einhverja kvikmynd
Þú átt að leika senur úr
kvikmyndum og síðan
erum við með alls kyns
frávik í þessu þar sem
þú þarft kannski að
leika í hægagangi, þú
gætir þurft að leika
sjónvarpsþátt, titilá
mynd og svo framvegis.
sem hitt liðið á að leika úr. Þú átt
að leika atriði úr kvikmyndum og
síðan erum við með alls kyns frá-
vik, þar sem þú þarft kannski að
leika í hægagangi, þú gætir þurft
að leika sjónvarpsþátt, titil á mynd
og svo framvegis. Það eru alls kyns
útfærslur á því sem þú þarft að gera
en meginuppistaðan er að þú þarft
að gera eitthvað í tengslum við kvik-
myndir.“ Haukur bætir því við í
gamansömum tón að það sé meira
að segja hægt að vinna Óskar fyrir
framúrskarandi leik, þó það tryggi
ekki sigur í leiknum enda meira til
gamans gert.
Jólaspil
Þegar Haukur er spurður hvar
hugmyndin fyrir spilinu hafi
komið segir hann: „Við erum vina-
hópur og þetta var spil sem við spil-
uðum okkar á milli lengi vel. Mig
langaði alltaf að gera þetta að alvöru
spili og það fór ár í að gera þessa hug-
mynd að raunveruleika. Við fengum
fullt af fólki til að prófa leikinn áður
en hann var gefinn út og viðtök-
urnar voru frábærar." Haukur segir
að vinahópurinn gefi sjálfur spilið
út og dreifi því en þó séu Sambíóin
í samstarfi við þau. „Það vill svo
vel til að það er einn vöruhönnuður,
einn grafiskur hönnuður og þrívídd-
arhönnuður
í hópnum. Það hittir vel á
því við getum þá gert allt sem þarf
að gera sjálf. Vonandi verður þetta
jólaspilið í ár,“ segir Haukur og
hlær.
Margir leikir sameinaðir
Kvikmyndaspilið mun kosta 4990
krónur út úr búð og Haukur segir
að ef fólk hafi áhuga á spilum yfir
höfuð þá getur það spilað kvik-
myndaspilið. „Það er til fullt af kvik-
myndaleikjum sem fólk hefur
verið að spila án borðs, eins og
að skiptast á að koma með til-
vitnanir í kvikmyndir og nefna
allar myndir sem A1 Pacino
hefur leikið í. Við reyndum að
sameina alla þessa leiki í einn
pakka. Það var helsta áskorun
okkar.“ Aðspurður að því hvað
honum finnist skemmtilegast
við spilið segir Haukur: „Það
sem mér finnst skemmti-
legast er að velja einhverja
mynd og sjá besta vin sinn
eða mömmu sína leika atriði
úr þeirri mynd. Það getur
verið mjög fyndið af því að
þú veist hvað hún er að leika
og þá getur þú séð fyrir þér hvað það
er en það getur verið erfitt fyrir aðra
að skilja það.“
Á LAUGARDAGINN
Nú eru nýir sleðar komnir í hús og af þvi tilefni ætlum við
að hafa opið á morgun laugardag frá kl. 10-17.
Komdu og kynntu þér allt það nýjasta frá POLARIS.
Hlökkum til að sjá þig.
Starfsfólk Storms
VELTISTÝRI O
„UPPGÖTVUN
ALDARINNAR."
Snowtrax
900 VÉLIN
„T0GID ER
ÓVIÐJAFNANLEGT."
Snowgoer
IQ™ IFS
„MEÐFÆRILEGT 0G
STÖÐUGT ÓLÍKT
ÖLLUM ÖÐRUM."
SnowTec
Stormur ehf. vill vekja athygli á nauðsyn þess að nota hjálm og brynju.
Haga skal akstri eftir eigin getu og aðstæðum, auk þess á akstur og áfengi enga samleið.
STORMURm
Kletthálsi 15, sími 577 1717