blaðið - 18.11.2005, Qupperneq 39
blaðið FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2005
ÍÞRÓTTIR I 39
Knattspyrna:
FIFA rannsakar blóðbað í Istanbul
Upp úr sauð þegar Svisslendingar
kepptu gegn Tyrkjum í Istanbul í
leik um sæti í úrslitum HM í knatt-
spyrnu sem fram fer í Þýskalandi
næsta sumar. Svisslendingar kom-
ust áfram á mörkum skoruðum á
útivelli og líkaði Tyrkjunum það illa
svo slagsmál brutust út í göngum á
leið til búningsklefanna. Hinn sviss-
neski Sepp Blatter, forseti Alþjóða
knattspyrnusambandsins FIFA,
segir að málið verði rannsakað. „Ég
segi þetta, ekki sem Svisslendingur
heldur sem forseti sambandsins, að
við munum bregðast harkalega við
þessu.“
Ódrengilegt
„Leikurinn getur ekki flokkast undir
að hafa spilast drengilega“, segir
Blatter. „Tyrkirnir höfðu mögu-
leika á að vera góðir gestgjafar og
sýna að hefnd á ekki heima í knatt-
spyrnunni." Afleiðingarnar gætu
orðið slæmar fyrir Tyrki því lög
FIFA segja að allt eins mætti meina
þeim að taka þátt í næsta stórmóti.
„Rannsóknin mun einnig leiða í ljós
hvort Svisslendingar brutu af sér.“
Varaforseti tyrkneska knattspyrnu-
sambandsins, Sekip Mosturoglu
sagðist ósáttur við ummæli Blatter.
Hann sagði að Blatter tæki einhliða
afstöðu en að tvær hliðar væru á
málinu.
BAÐSTOFAN
DALVEGUR 4 201 KÓPAVOGUR SÍMI 564 5700 FAX 564 5701
Fyrsta höggið?
Það síðasta sem sást frá leiknum á
sjónvarpsskjám var þegar Svisslend-
ingurinn Benjamin Huggel sparkaði
í einn af þjálfurum tyrkneska liðsins.
Fjölmiðlar þar í landi kenna spark-
inu um lætin sem fylgdu. Tyrkneski
sóknarmaðurinn Halil Altintop
sem spilar með þýska liðinu Kais-
erslautern reyndi að draga úr mál-
inu. „Nokkrir af okkar leikmönnum
brugðust of hart við eftir leikinn en
ég er ánægður með að það hafi ekki
orðið nein alvarleg slys á mönnum.
Ég talaði við nokkra leikmenn í
hinu liðinu sem ég þekki úr þýsku
deildinni í klefanum eftir leikinn og
þeir sögðu að allt væri í lagi.“
Breskir fjölmiðlar segja að lætin
hafi fyrst byrjað þegar fyrrverandi
varnarmaður Aston Villa, Alpay
Ozalan, sparkaði í markaskorara
Svisslendinganna. Alpay var einmitt
sá sem lenti í útistöðum við David
Beckham í undankeppni EM fyrir
tveimur árum.
Svisslendingar flýja í skjól eftir leikinn.
Blóðugt
Öllu lauslegu var fleygt í leikmenn
svissneska liðsins úr áhorfenda-
stúkunum þegar þeir gengu til bún-
ingsklefa að leiknum loknum. Varn-
armaðurinn Stephane Gritching
þurfti svo að fara með á sjúkrahús
með meiðsli í nára eftir áflog í göng-
unum. „Gritchingvar allurblóðugur
eftir að hafa fengið nokkur högg“,
sagði samherji hans, Johann Lonfat,
eftir atvikið. „Það var ráðist á okkur,
þetta var ótrúlegt. Ég er ekki að tala
um neina venjulega ögrun eins og
tíðkast oft. Við bjuggumst vissulega
við rafmögnuðu andrúmslofti, en
ekki þessu. Þetta fór lengra en góðu
hófi gegndi, mér var sagt að ég yrði
skorinn á háls“, sagði Lonfat. Sviss-
neska liðið flaug svo úr landi í lög-
reglufylgd á flugvöllinn.
Forseti FIFA segir að blóðug slagsmál eft-
ir leik Sviss og Tyrklands verði rannsökuð.
Smáauglýsingar
510-3737
Auglýsingadeild
510-3744
blaðið=
ATTU ÞETTA EKKI SKILIÐ!
Utipottar frá USA á frábæru verði
KR. 149.000