blaðið - 18.11.2005, Blaðsíða 46
461 FÓLK
FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2005 blaöiö
HEYRST HEFUR...
HVAÐ FINNST ÞÉR?
Af netmu
Margir bíða spennir eftir
að sjá hver næstu skref
Morgunblaðsins verða en
nýir og gamlir hluthafar segja
að blásið verði til sóknar á
næstunni. Þannig segir Krist-
inn Björnsson varaformaður
stjórnar að jafnvel megi búast
við tíðindum eftir hluthafa-
fund á þriðjudag. Ljóst er að
risinn er að vakna af löngum
svefni og forvitnilegt að sjá
hver verða næstu skref, sem eig-
endur segja að hafi að gera með
útgáfu, dreifingu og prentun,
auk þess sem þeir muni jafnvel
snúa sér að ljósvakamiðlum í
einhverjum mæli.
.
PAÐ ER MAÐUR
PARMA INNI!
Smáborgaranum finnst jafn þægilegt og
næsta manni að setjast inn í bílinn sinn
á köldum vetrarmorgnum, í stað þess að
þurfa að norpa við Hlemm og bíða eftir
strætó með menntaskólakrökkunum.
Einkabíllinn gefur Smáborgaranum þá
tilfinningu að hann hafi ríka stjórn yfir
lífi sínu; „ég legg bara af stað þegar mér
hentar og fer sko ekki eftir neinni stunda-
töflu eins og smákrakki," gæti verið við-
kvæðið. Svo má í bílnum hlusta á góða
tónlist, drekka kaffi, jafnvel nota timann
og hringja í vini og kunningja eigi maður
þartilgerðan bflhringibúnað.
Það er margt þægiiegt við að eiga
einkabíl og fyrir tilvist þeirra geta smá-
borgarar heimsins verið ævinlega þakk-
látir. Þakklæti, hinsvegar, virðist yfirleitt
ekki vera ofarlega á baugi í umferðinni.
Það er voða vinsælt að flauta á þá öku-
menn sem falla af einhverjum ástæðum
flautandanum illa eða ekki í geð. Svo má
steyta hnefann reiðilega, nú eða gefa
gamla góða fokkmerkið. Fólk sem er að
keyra er kannski oft orðið seint, búið
að leita lengi að bflastæði og pirrað við
stjórnmálamanninn sem er í útvarpinu.
Guð má vita að þessi tiltekni Smáborg-
ari hefur upplifað allar af ofantöldum
kenndum við stýrið... og fleiri!
Hann skilursamt ekki alla þessa reiði.
Fólk kemur ekki svona fram hvert við
annað úti á götu, nema kannski þegar
það er fullt. Sá sem rekst utan í vegfar-
endur á labbi niður Laugaveginn getur
yfirleitt ekki átt von á dónalegum upp-
hrópunum eða bendingum. Venjan er
að biðjast afsökunar og halda sína leið.
Þetta á við á fleiri stöðum þar sem fólk
kemur saman. Smáborgaranum dettur (
hug að bílaillskan stafi kannski fyrst og
fremst af samskipta- og samhengisleysi.
Misskilningi. Sá sem sest bakvið stýrið
gerir oft ekki greinarmun á ökutæki og
manneskjunni í því. Það er allt annað
að öskra af reiði á rauðan Audi en rauð-
hærða Auði. Svo dæmi sé tekið. Því ætti
að hafa hugfast að bakvið öll stýri sitja
(vonandi) manneskjur, manneskjur með
tilf inningar. Það ersamt í lagiað flauta ef
manneskjurnar eru með stæla eða keyra
eins og fávitar, sko.
Baugsmiðlarnir fara mikinn vegna
þess, að tæknileg bilun leiddi til
þess, að ekki var unnt að sýna viðtal
við Jón Ólafsson, kaupsýslumann
kenndan við Skífuna, í Kastljósi
á mánudagskvöld. Er furðulegt að
fylgjast með því, hvílíku hugar-
angri þetta hefur valdið þar á bæ.
Hvernig skyldi þessu blessaða fólki
hafa liðið í kvöld, þegar fréttatími
Stöðvar 2 komst út með miklum
harmkvælum? Og fyrsta fréttin
var um, að á Reykjavíkurflugvelli
væri vél, grunuð um flutninga fyrir
CIA. Skyldi ekki einhvern samsæris-
miðlanna hafa grunað, að CIA væri
að trufla útsendingar Stöðvar 2?
Eða voru þetta kannski ósköp mein-
laus tæknileg vandræði?
Björn Bjarnason
á http://www.bjorn.is/
Óneitanlega læddist að manni sá
grunur að hér væri á ferðinni eins
konar leiksýning í boði Framsóknar-
flokksins. Vel tímasett hjal, ekki síst
í ljósi þess að um síðustu helgi var
prófkjör hjá Framsóknarflokknum
í Kópavogi þar sem konur guldu
mikið afhroð miðað við það sem
stefnt var að. Umræða nú um jafn-
réttismál, þar sem félagsmálaráð-
herra flokksins var til svara, gat því
límt einhverja plástra á sárin.
Mér sýnist að Framsóknarflokkur-
inn sé nefnilega sá stjórnmálflokkur
á tslandi í dag, þar sem innri órói er
mestur með tilliti til baráttu kynj-
anna. Og þarna fari konurnar hall-
oka. Sagan segir að núverandi vara-
formaður Framsóknarflokksins eigi
þau fleygu orð að “staða konunnar sé
á bak við eldavéliná’.
Magnús Þór Hafsteinsson á http://
www.althingi.is/magnush/
Eins og menn muna kom hermálið
nýjasta upp rétt fyrir síðustu kosn-
ingar. Landsfeðurnir töldu þá ekki
hollt fyrir þjóðina að vita af því fyrr
en að kosningum loknum. í ljós
kom auðvitað að ríkisstjórnin - en
á var utanríkisráðherra Halldór
sgrímsson - hafði aldrei gert ráð
fyrir öðru en herinn yrði hér um
aldur og ævi, og ekkert „plan B“ var
til ef Kanninn vildi fækka í liðinu
eða fá það allt heim. Hvað þá að til
væri greinargerð og rannsóknir um
raunverulegar þarfir íslendinga í
varnar- og öryggismálum fimmtán
árum eftir lok kalda stríðsins.
Mörður Árnason á
http://www.althingi.is/mordur/
Pað verður að segjast eins og
er að skammstöfur. nýju
fréttastöðvarinnnar, NFS er
ekki eins þjál í munni
og hjá bandarísku
risunum CBS,
NBC og CBS. Öllu
máþóvenjast. Það
er þó ákveðinn
hópur suður með
sjó sem þekkir skamm-
stöfunina NFS mæta vel. Þetta
er nefnilega skammstöfun fyrir
Nemendafélag Fjölbrautarskóla
Suðurnesja. Spurning hvort
þeir fari ekki í hart. Svo má auð-
vitað spyrja hversu lengi hægt
sé að nota orðið “nýjá’ lengi.
Væntanlega eldist “Nýja frétta-
stöðin” eins og annað í lífi hér
- eða að menn ætla að hún verði
svo skammlíf að það megi not-
ast viðþetta nafn...
En það er fleira að gerast
í ljósvakaheiminum.
Þannig er Hlynur Sigurðsson,
fyrrverandi
fréttamaður á
Sjónvarpinu
að fara af stað
með nýtt fast-
eignasjónvarp.
Hlynur hefur
verið n|eð slíka þætti á Skjá 1
í nokkárn tíma en núna dugir
ekkert j|inna en heil sjónvarps-
stöð. F|rsti útsendingardagur
er í daf og miðað við óendan-
legan fasteignaáhuga lands-
ins þá má búast við að áhorf
verði ekki minna en á nýju
fréttastöðina...
Guðmundur Steingríms-
son sendir fyrrverandi
samstarfsmönnum sínum á
Sirkus tóninn í
Fréttablaðinu í
gær. Þar segist
hannhafaorðið
fyrir miklum
vonbrigðum
með að Kvöldþátturinn skuli
hafa venð sleginn af og kennir
óþolinmæði um. „Þeir hættu
með þáttinn þegar hann var
loksins að verða góður,“ segir
hann. Guðmundur segist ekki
vilja fara í neinn slag við yfir-
menn Sirkus. „Ég er ekki að
reyna að koma mönnum fyrir
kattarnef með einhverjum
vúdú dúkkum,“ segir hann. Þá
vitum við það.
eftir Jim Unger
Ekki segja mér hvað þetta er fyrr en ég er búinn að borða.
Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG
Hvað finnt þér um brottflutn-
ing íslensks friðargæsluliðs
frá norður Afganistan?
„Ég fagna því. Þangað hefðum við auðvitað aldrei átt að fara. Ástandið þar
er mjög ótryggt, og allra síst er það gæfulegt að senda þangað borgaralega
starfsmenn, sem þó eru blandaðir inn í hernaðarleg verkefni, eru vopnaðir
og bera hernaðarlega titla, og eru hluti af umsvifum herja á svæðinu. Slíkir
menn eru að mínu viti miklu verr settir heldur en annað hvort hreinir og
klárir hermenn, eða þá starfsmenn hjálparstofnana. Þessi samblöndun er
mjög varhugaverð og það er umhugsUnarefni hvernig þessi mál hafa þróast
hjá utanríkisráðuneytinu og íslenskum stjórnvöldum. Ég tel að endurskoða
þurfi þessa hluti í heild sinni og hef ekki legið á þeirri skoðun minni að
þessi mál hafi verið að þróast inn á ógæfulegar brautir.“
--------------------------------
Api Paris Hilton brjálast
Húsið hennar Paris Hilton er í stórhættu á að breytast í dýragarð því hin ljóshærða stjarna
hefur enn bætt við dýrasafn sitt. Þótt síðasta innleggið, apinn Baby Luv, sé sætur hefur
hann nú bilast og réðst á Paris í nærfatabúð. Baby Luv hefur ekki alveg náð að læra
hvernig á að sýna eiganda sínum ástúð, og þegar Paris tók Baby Luv með út að versla í
undirfatabúðina Agent Provocateur, réðst hann á hana og beit og klóraði í andlitið.
Að lokum varð að binda hann í einum mátunarklefanum meðan Paris kláraði að
eyða 4000 dollurum í netsokka og blúndunærföt. Sama kvöld hélt apinn áfram
að vera óþekkur þegar hann stakk af úr 21 árs afmælisveislu Kelly Osbourne, og
20 mínútur fóru í að leita að honum. Fyrr á árinu skipti Paris Chihuahua-hund-
inum sínum Tinkerbell út fyrir Chihuahua-hundinn Bambi. Svo féll hún fyrir
merðinum Cinderellu við tökur á auglýsingu í Paramount-stúdíóinu, og ættleiddi
hann. Síðan þá hefur hún keypt 3 merði til viðbótar, þrátt fyrir að í
Kalíforníu sé bannað að eiga þau dýr sem gæludýr.
C Jim Ung*r/dist, by United Menia, 2001
aðdáendum skemmt
Ozzy Osbourne beraði botninn þegar hann var að spila á sviði í tilefni af UK Music Hall
of fame-verðlaunahátíðinni. Black Sabbath var ein af níu hljómsveitum og listamönnunum
sem teknar voru inn í heiðursklúbbinn þetta árið. Áður en Ozzy girti niður um sig bux-
urnar sagði hann áhorfendum: „Ég hef séð meira líf á líkvöku“. Á eftir hafði hann þetta
um málið að segja: „Mér fannst að þau þyrftu eitthvað til að hressa sig aðeins við. Þetta var
stórskemmtilegt11. Pink Floyd, The Who, The Kinks, The Eurythmics, Joy Division/New Or-
der, Bob Dylan, Jimi Hendrix og Aretha Franklin voru öll heiðruð á hátíðinni. Útvarpsplötu-
snúðurinn John Peel, sem dó á síðasta ári, var gerður að sérstökum heiðursfélagar. Sheila kona
hans og bróðir hans Alan tóku við viðurkenningunni fyrir hans hönd. Alan sagði: „Ég vil
fá að segja fyrir hönd Sheilu og allrar fjölskyldunnar hvílíkur heiður þetta er. Við erum
bara örlítið döpur að snillingurinn sjálfur er ekki staddur hér með okkur H1 að
njóta stundarinnar".
Jack segist hafa
að nota ei
Jack Osbourne trúir því að skyldleiki sinn við Ozzy Osbourne hafi gert
það að verkum að hann hafi hreinlega orðið að nota eiturlyf. í þættinum
Entertainment Tonight sagði hann: „A einhvern undarlegan og hræðilegan
hátt langaði mig til að verða dópisti. Af einhverjum ástæðum þráði ég að
tilheyra þessum lífsstíl. Ég hélt það væri svalt að verða fullur og taka eitur-
lyf - það er það sem ég hélt að maður ætti að gera. Eftir að ég gerði þetta allt
vonaði ég svo að ég myndi deyja“. Jack hefur nú þegar farið í meðferð og
verið laus við eiturlyf í yfir eitt ár.