blaðið - 19.11.2005, Síða 2
2 I INWLEWDAR FRÉTTIR
LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 2005 blaóiö
SUSHI
T R H I n
OPNAR1. DESEMBER
[LÆKJARGATA]
Fl Group:
Langbesta
afkoma í sögu
félagsins
FL Group birti í gær níu
mánaða uppgjör sitt. Hagn-
aður félagsins fyrir skatta
nam 8 milljörðum og var
hagnaður eftir skatta 6,6
milljarðar. Á sama tíma í
fyrra var hagnaðurinn aðeins
2,8 milljarðar eftir skatta.
Hannes Smárason, forstjóri
FL Group segir afkomuna
vera þá langbestu í sögu
félagsins. Hann segir hana
endurspegla árangurinn af
þeim breytingum sem gerðar
hafa verið á starfseminni
á undanförnum misserum.
„Þessi góða afkoma byggist að
stórum hluta á gengishagnaði,
en afkoma rekstrarfélaganna
var einnig góð og í samræmi
við væntingar. Sá árangur er
vel viðunandi í ljósi þess að
eldsneytisverð hefur verið
mjög hátt og gengi íslensku
krónunnar óhagstætt.“
Breytingar á
efnahagsreikningi
f lok tímabilsins námu heildar-
eignir samstæðunnar um 70
milljörðum króna. Það þýðir
að frá áramótum hafa eignir
fyrirtækisins aukist um 27
milljarða króna. Stærstan
hluta þeirrar aukningar, eða
11,2 milljarða má rekja til fyr-
irframgreiðslna vegna kaupa
á fimmtán Boeing 737-800
vélum. Því er gert ráð fyrir að
fyrirframgreiðslurnar fari út
af efnahagsreikningi félags-
ins við afhendingu vélanna á
næstu tveimur árum. Grund-
vallarbreytingar hafa verið
gerðar á rekstri félagsins eftir
að þriðja ársfjórðungi lauk.
Skipulagi hefur verið breytt,
skrifað var undir kaupsamn-
ing á Sterling og hlutafé var
rúmlega tvöfaldað í hluta-
fjárútboði. Útboðið leiddi til
þess að FL Group varð eitt
stærsta félagið í Kauphöll-
inni og fjárhagslegir burðir
þess hafa styrkst til muna.
Samruni Sagafilm og365 Ijósvakamiðla:
Hefur skaðleg áhrif á samkeppni
- segir Samkeppnisstofnun sem samþykkir samrunann með fjölmörgum fyrirvörum.
Fyrirtækið 365 ljósvakamiðlar
keypti allt hlutafé í Sagafilm í júlí
á þessu ári. Samkeppniseftirlitið sá
f framhaldi ástæðu til rannsóknar
á „samkeppnislegum áhrifum
samrunans“ eins og segir í skýrslu
eftirlitsins sem birtist í vikunni. I
áliti eftirlitsins segir að fyrirtækin
tvö séu markaðsráðandi á þeim
mörkuðum sem þau starfa á, sem
og að samruninn takmarki mjög
möguleika keppinauta Sagafilm á
að selja 365 efni. Ennfremur standi
aðrar sjónvarpsstöðvar eftir með
takmarkaðan möguleika á að láta
framleiða fyrir sig sjónvarpsefni.
í skýslu eftirlitsins kemur fram
að það samþykkir samrunann, en
með fjölmörgum fyrirvurum.
Tryggja þarf trúnað
Meðal fyrivara er að hvorki stjórn-
armenn og starfsmenn 365 ljós-
vakamiðla né eigendur að meira
en 1% hlut í 365 ljósvakamiðlum
eða tengdum fyrirtækjum mega
sitja í stjórn Sagafilm. Ennfremur
ber að tryggja að upplýsingar um
verkefni Sagafilm berist ekki yfir
til 365. Þar er sérstaklega tekið
fram að ekki sé heimilt að gefa
upplýsingar milli fyrirtækja um
hvaða verkefni sé unnið að. Starfs-
mönnum beggja fyrirtækja er þvi
gert að skrifa undir sérstaka yfir-
lýsingu um þagnarskyldu. Tekið
er fram að þrátt fyrir að stórir að-
ilar njóti eðli málsins samkvæmt
góðra kjara verði að tryggja að kjör
365 verði ekki of góð, og einnig er
Sagafilm óheimilt að synja öðrum
viðskiptavinum um þjónustu, né
að láta 365 njóta nokkurs forgangs
um framleiðslu. Að lokum er 365
algerlega óheimilt að gera þá
kröfu til auglýsenda að þeir beini
viðskiptum sínum um gerð auglýs-
ingaefnis til Sagafilm samkvæmt
úrskurði Samkeppniseftirlitsins.
Umskipti í stjórn
Eins og fyrr segir eru settar
nokkuð strangar skorður fyrir því
hverjir mega vera í stjórn Sagafilm
í framtíðinni. Þrír einstaklingar
skipa stjórnina í dag, en þau eru
Þórdís J. Sigurðardóttir, Baltasar
Kormákur og Árni Hauksson.
Þórdís er stjórnarformaður Dags-
brúnar, Árni situr þar í stjórn og
Baltasar situr í stjórn 365 Ijósvaka-
miðla. Að sögn Kristjáns M. Grét-
arssonar, forstjóra Sagafilm þýðir
úrskurðurinn að Þórdís og Árni
fara úr stjórn, en Baltasar mun
sitja í henni áfram. Hvað úrskurð-
inn varðar segir Kristján:
„Við reiknuðum með þessari nið-
urstöðu og erum búnir að haga
okkur samkvæmt því undanfarið.
Þetta er ekkert áfall - langt í frá.
1 staðinn verður það til þess að
fyrirtækið verður sjálfstæðara en
áður, sem var alltaf markmið hjá
okkur“ segir Kristján.
Hann segir ennfremur að hann
geri ekki ráð fyrir að úrskurðinum
verði áfrýjað, en það mál sé engu
að síður í skoðun. ■
Heimilislausir:
45 - 55 manns á
götunni í Reykjavík
Samráðshópur sem félagsmálaráð-
herra skipaði til að kanna stöðu
heimilislausra leiðir í ljós að heim-
ilislausir einstaklingar í Reykjavík
eru á bilinu 45 - 55 á hverjum tíma. I
skýrslunni kemur fram að einkenni
hópsins séu fremur skýr. Flestir eru
karlmenn milli þrítugs og fimmtugs,
þeir eru einhleypir og margir eru
einstæðingar. Flestir eru þeir öryr-
kjar og búa á götunni, í gistiskýlum
eða eru inni á meðferðarstofnunum.
1 skýrslunni eru settar fram tillögur
til úrbóta. Lagt er til að stofnuð
verði tvö heimili fyrir átta húsnæð-
islausa einstaklinga, hvort með sér-
hæfðri, öflugri félags- og heilbrigð-
isþjónustu. Gert ef ráð fyrir að ríki
og borg skipti með sépkostnaði við
reksturinn en hann er talinn nema
um 25 - 30 milljónum á ári hverju
fyrir eitt heimili. íbúar eiga svo
sjálfir að greiða fyrir uppihald með
föstum greiðslum af örorkubótum
1
sínum. Stefnt skuli að því að taka
fyrra heimilið í notkun á næsta ári.
Að því gefnu að reksturinn gangi
vel skal stofna annað heimili að ári
liðnu.
Hægt farið í sakirnar
Félagsmálaráðherra tók undir til-
lögur nefndarinnar á Alþingi í gær
og segist ræðubúinn að ganga til
samninga við borgaryfirvöld um
rekstur heimilanna. Árni sagði að
þeir sextán einstaklingar sem munu
fá inni á þessum heimilum verði
þeir sem eru með langvarandi geð-
röskun. Árni segir þann hóp telja
um 30 - 35 manns. Hann sagðist
einnig vonast til að aukin samvinna
milli manna um þessi mál muni
leiða til að fleiri lausnir finnist fyrir
þá sem ekki komast að á þessum
heimilum. Jóhanna Sigurðardóttir,
sem hóf umræðuna um þessi mál
á þinginu í gær sagðist gleðjast yfir
því að lausn væri í sjónmáli fyrir
nokkra þessara einstaklinga. „Mér
kemur þó á óvart hvað fækkað hefur
í þessum hópi sem að var á annað
hundrað manns, og maður veltir því
fyrir sér hvort skilgreiningin sé of
þröng.“ Jóhönnu finnst einnig mjög
hægt farið í sakirnar með því að
aðeins sé fundin lausn fyrir sextán
manns. „Er ekki hægt að gera betur
fyrir þennan hóp,“ spurði hún.
Kjarasamningar
Forsendu-
nefndin
gagnrýnd
„Það er með ólíkindum að
forsendunefndin telji við-
unandi að verkafólk innan
Starfsgreinasambands íslands
fái aðeins 26 þúsund króna
eingreiðslu og 0,65% hækkun
á laun 1. janúar 2007 til að
mæta þeim skerðingum
sem það hefur orðið fyrir
vegna verðbólguþróunar
að undanförnu" segir í
ályktun sem Verkalýðsfélag
Húsavíkur sendi frá sér í
gær. Gerir félagið ennfremur
athugasemdir við ummæli
forystumanna verkafólks
sem lýst hafa yfir sérstakri
ánægju með launahækkunina.
„Félagsmenn í Verkalýðs-
félagi Húsavíkur telja ekki
ástæðu til að gleðjast yfir
hækkun sem er langt frá vænt-
ingum verkafólks á Islandi og
er auk þess alls ekki í hendi“
segir ennfremur í ályktuninni.
Gæða sængur
og heilsukoddar.
Opið virka daga: 10-18, lau: 11-15 Reykjavík: Mörkin 4, s: 533 3500
o
Heiöskirt
0 Léttskýjað ^ Skyjað Q Alskýjað
Rigning, litilsháttar /'// Rigning 9^9 Súld
^ Snjókoma
*
*
JJ Slydda JJ Snjóél jj
Skúr
Amsterdam 06
Barcelona 15
Berlin 03
Chicago -01
Frankfurt 03
Hamborg 03
Helsinki 01
Kaupmannahöfn 05
London 07
Madrid 11
Mallorka 17
Montreal -02
New York 02
Orlando 16
Osló 03
París 06
Stokkhólmur 0
Þórshöfn 08
Vin 02
Algarve 16
Dublin 07
Glasgow 06
///
///
///
'//
/ //
"G 7
8'
&
6° U'/
Veðurhorfur í dag kl: 18.00
Veðursíminn 9020600
Byggt ó uppiýsingum frá Veöurstofu íslands
'//
fO / //
%
'//
///
//
3°///
Ámorgun
6°*