blaðið - 19.11.2005, Blaðsíða 8
8 I ERLENDAR FRÉTTIR
LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 2005 bla6ið
rijjöllfrigg
-hreinlega sterkari
Dreifing:
BéBé Vöruhús ehf.
Sími512-3000
Leysir upp
erfiðustu
óhreinindi
svo sem fitu,
sót, olíu, túss,
blek og
tjöru.
Þú færö nýjan Opel Astra frá aöeins 1.695.000 kr. eöa 19.772 kr. á mánuði.
Miöaö viö 20% innborgun og afganginn á 84 mánuðum.
Blóðbað í írak
Að minnsta kosti 55 fórust og
meira en 60 manns slösuð-
ust í sjálfsmorðsárásum á
tvær moskur sjítamúslima í
bænum Khanaqin norðaustur
af Bagdad í gær. Tveir menn
með sprengjubelti vöfð utan
um sig gengu inn í moskurnar
á meðan á bænum stóð og
sprengdu sig i loft upp. Yfivöld
fyrirskipuðu um leið útgöngu-
bann í bænum þar sem sjítar
og kúrdar eru í meirihluta íbúa.
Sprengingarnar urðu aðeins
örfáum Ídukkustundum eftir
að tvær bílsprengjur sprungu
fyrir utan hótel í Bagdad þar
sem erlendir blaðamenn gista
gjarnan. Að minnsta kosti
sex fórust í þeirri árás þar á
meðal kona og tvö börn.
Blóðbaðið átti sér stað í
kjölfar þess að Bandaríkja-
her varaði við auknu ofbeldi
í aðdraganda kosninga í
landinu í næsta mánuði.
Kona með barn í fangi fellir tár á
vettvangi sjálfsmorðsárásar sem varð
að minnsta kosti sex manns að bana í
Bagdad í gær.
Starfsstöðvar CIA í 20 löndum
Bandaríska leyniþjónustan rekur starfsstöðvar t um 20 löndum í
samvinnu við leyniþjónustur annarra rtkja. Þœr sjá um að hafa
uppi á grunuðum hryðjuverkamönnum ogflytja þá á milli landa.
Bandaríska leyniþjónustan (CIA)
hefur komið upp starfsstöðvum í
um 20 löndum þar sem bandarískir
og erlendir leyniþjónustufulltrúar
vinna í sameiningu að því að hafa
uppi á og handtaka grunaða hryðju-
verkamenn og uppræta starfsemi
þeirra. Stöðvarnar bregðast við
ábendingum frá CIA og þar eru
teknar ákvarðanir um hvenær og
hvernig eigi að handtaka grunaða
menn, hvort flytja eigi þá til ann-
arra landa til yfirheyrslna eða vist-
unar og hvernig eigi að eyðileggja
stoðkerfi A1 Kaída-samtakanna.
Þetta kemur fram í grein í banda-
ríska dagblaðinu The Washington
Post í gær. Starfsstöðvarnar eru í Evr-
ópu, Miðausturlöndum og í Asíu.
Samkvæmt frétt blaðsins eru stöðv-
arnar óháðar meintum leynifang-
elsum eða „svörtu svæðunum“ svo
kölluðu sem dagblaðið benti nýlega
á að stofnunin reki eða hafi rekið í
ýmsum löndum. Starfsstöðvarnar
er meðal annars að finna í löndum
á borð við Úsbekistan og Indónesíu
sem bandarísk stjórnvöld hafa gagn-
rýnt fyrir mannréttindabrot.
1 París hefur CIA í samvinnu við
frönsku leyniþjónustuna komið upp
fjölþjóðlegri miðstöð sem stendur
að aðgerðum víða um heim. Meðal
þeirra þjóða sem taka þátt í starfi
Varúð!
Mjög öflugur
s j
Já
- ;
Starfsstöövar CIA eru óháðar meintum leynifangelsum sem stofnunin er sögð reka eða
hafa rekið f ýmsum löndum.
stöðvarinnar eru Bretland, Frakk-
land, Þýskland, Kanada og Ástralía.
Hafa gegnt mikilvægu hlutverki
CIA hóf að koma stöðvunum upp
fýrir hryðjuverkaárásirnar á New
York og Washington haustið 2001
en þær hafa síðan gegnt mikilvægu
hlutverki í baráttunni gegn hryðju-
verkum. Nær allir þeir meintu
hryðjuverkamenn sem hafa verið
handteknir eða myrtir utan Iraks
frá haustinu 2001 voru handteknir
í samvinnu CIA og erlendra starfs-
bræðra þeirra. Meira en 3000 grun-
aðir hryðjuverkamenn hafa verið
handteknir eða myrtir á þessu
tímabili.
Starfsstöðvarnar eru fjármagn-
aðar að mestu leyti af CIA og nota
einhverja bestu njósnatækni sem
stofnunin býr yfir. Þar á meðal eru
örugg samskiptatæki, tölvur sem
eru tengdar gagnagrunni CIA og
leynilegan hlerunarútbúnað sem að-
eins nánustu bandamenn Bandaríkj-
anna fá aðgang að.
Forsetakosningar á Sri
Lanka:
Rajapakse
verður næsti
forseti
Mahinda Rajapakse, verðandi
forseti Sri Lanka, hefur heitið
því að semja frið við uppreisn-
armenn Tamíl-tígra. Rajapakse
sem nú er forsætisráðherra
landsins, sigraði í forsetakosn-
ingunum á fimmtudag, degi
áður en hann fagnaði 60 ára af-
mæli sínu. Hann hlaut tæplega
4,9 milljónir atkvæða (rúmlega
50%) en helsti andstæðingur
hans hægri maðurinn Ranil
Wickremesinghe hlaut 4,7 millj-
ónir atkvæða. Alls voru 13 í
framboði.
Þar með lýkur síðara loka-
kjörtímabili Chandrika Ku-
maratunga sem forseta Sri
Lanka en hún mun sitja í
embætti þangað til að Rajap-
akse tekur við innan tveggja
vikna. Forsetakosningarnar á
fimmtudag voru fimmtu stóru
kosningarnar í landinu á jafn-
mörgum árum. Tamílar sem
eru í minnihluta landsmanna
hunsuðu kosningarnar að
áeggjan uppreisnarmanna Ta-
míl-tígranna og er talið að það
hafi átt stóran þátt í sigri Ra-
japakse. Kjörsókn var nánast
engin í norðurhluta landsins
og í lágmarki í hinum eldfima
austurhluta. Þrátt fyrir það var
kjörsókn að meðaltali um 75%
á landsvísu.
Ingvar Helgason
Sævarhöfða 2, sími 525 8000, www.ih.is
Opið: Mán - fös kl. 9-18 og lau kl. 12-16