blaðið - 19.11.2005, Qupperneq 24
24 I VIÐTAL
LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 2005 blaöiö
Jón Ólafsson unt drifkraftinn, uppvöxtinn, slúðrið, pólitíkina og andlega leit
BlaÖiÖ/SteinarHugi
ráEg skal"
99.....................................................
Lýðræði felst ekki íþví að eitt afl sé alltaf við völd. Þá þurfum við
ekki flokka. Þáþurfum við bara einn flokk - Flokkinn."
„Þetta er ekki ævisaga, þetta
er baráttusaga sem gefur fólki
innsýn í íslenskt umhverfi og
þær aðstæður sem ég bjó við.
Þær voru ekki eins og best var
á kosið,“ segir Jón Ólafsson um
bók þeirra Einars Kárasonar,
Jónsbók. „Ég braust frá ákveðnu
umhverfi og komst til áhrifa og
efna. Það virðist hafa farið í taug-
arnar á mörgum að mér tókst
þetta af eigin rammleik. Ég fór
ekki hefðbundnar leiðir. Sumt
fólk á íslandi var ekki tilbúið
að sætta sig við þetta en mín
aðferðarfræði, að vera ákveðinn
og fylginn sér, er þekkt erlendis
enda fæ ég ekki það viðmót þar
sem mætir mér hér.“
Finnst þér erfitt að vera jafn um-
deildur ogþú ert.
„Já, mér finnst það
Þú ert viðkvœmur?
„Já, ég er viðkvæmur og kæri mig
ekkert sérstaklega um þá athygli
sem ég fæ. Það virðast flestir hafa
skoðun á mér.“
Telurðu þig eiga marga óvini?
„Það eru allir jafnir i mínum huga.
Ég get ekki sagt að einn né neinn sé
óvinur minn. Ég veit hins vegar að
mörgum er í nöp við mig. Þótt fólk
hafi komið illa fram við mig, svikið
mig eða leikið á mig þá er ég ekkert
að erfa það. Ég tek því fólki alveg
eins og öðrum.“
Þú ert þá ekki langrækinn?
„Nei, langt í frá. Við gerum öll
mistök. Það að ég verði undir þýðir
ekki að sá sem hafði betur sé verri
maður en ég. En það virðist oft vera
þannig að þeir sem verða undir
telja mig vera skúrkinn.“
Stærsta áfallið
Þú hefðir varla náð svona langt
nema vegna þess að peningar skipta
þig máli.
„Það sem skipti mig öllu var að
mitt fólk þyrfti ekki að ganga í
gegnum það sama og ég. Eg fædd-
ist inn á fátækt heimili og ólst upp
við gamlan tíma. Matseðillinn var
einhæfur og í föstum skorðum. Á
mánudögum voru gellur, á þriðju-
dögum sigin ýsa, skata á miðviku-
dögum. Þegar gellur voru ekki til
þá voru borðaðir fiskhausar. Fyrsta
kjötið sem ég man eftir að hafi
verið í matinn á heimili mínu var
saltkjöt. Það var ekki fyrr en um
níu til tíu ára aldur sem ég fór að
finna ilm af lambalæri inni í ofni.
Það voru ekki til peningar á heim-
ilinu og ég gat ekki gert það sama
og jafnaldrar mínir. Ég var orðinn
töluvert gamall þegar mamma og
hennar maður gáfu mér reiðhjól.
Þá höfðu allir vinir mínir átt reið-
hjól í fjölda ára.
Sem barn og unglingur stund-
aði ég íþróttir af kappi alla daga
vikunnar. Þetta var nauðsynleg út-
rás og ég var í fótbolta, handbolta,
körfubolta og frjálsum íþróttum.
Samtíma mér í skólanum í Keflavík
var drengur sem var alltaf bestur i
íþróttum og ég varð alltaf númer
tvö. Ég man sérstaklega eftir lang-
hlaupi sem ég var að vinna þegar
hann fór fram úr mér á lokmetr-
unum. Þetta átti ég afar erfitt með
að þola.
Mér fannst ég oft verða fyrir
höfnun og verða undir. Stærsta
áfallið var þegar ég var settur út úr
handboltaliðinu vegna þess að ég
sagði við einhvern að ég hefði reykt
kannabis. Það var vendipunktur í
lífi mínu. Ég sagði við sjálfan mig:
„Ég skal sýna þessum mönnum og
ég skal“. Þessi hugsun hefur verið
drifkrafturinn í lífi mínu, ekki pen-
ingar. Ég vakna oft á morgnana og
segi: „Ég skal“. Það hvetur mig eng-
inn meir en ég sjálfur.“
Ertu ennþá haldinn þessari þörf að
sanna þig?
„Hún hverfur aldrei. Á þeim degi
þegar mér var hent út úr iþrótta-
hreyfingunni hefði ég getað brugð-
ist við með því að detta í það og fara
í sukk og svínarí. Ég gerði það ekki
heldur ákvað að spjara mig. Trúin
hjálpaði mér. Ég var alinn upp af
ömmu minni í miklum guðsótta.
Alla sunnudaga frá því ég fædd-
ist þar til ég var fermdur fór ég í
kirkju."
Fór út af sporinu
Býrðu ennþá að trúnni?
„Já, ég trúi á Guð. Hann hefur leitt
mig i gegnum erfiða tíma og erfiðar
stundir. Ég veit líka að amma mín
er alltaf hjá mér. Ég hef oft fundið
fyrir henni. Sem betur fer.“
Heldurðu að hún sé sátt við allt sem
þú hefurgert?
„Nei, nei. Ég mun aldrei geta
bætt fyrir það hvernig ég hagaði
mér sem barn og unglingur. Ég hef
margt gert síðan sem ég veit að hún
væri ekki sátt við. En ég er bara
mennskur.“
Vandaðir gjafapokar
í úrvali
Eingöngu sala til fyrirtækja. ^
Opiðfrá kl. 08.00-16.00. GRÆNN
Réttarhálsi 2-110 Rvk MARKAOUR
Sími: 535-8500-Netfeng: info@Sora.is r