blaðið - 19.11.2005, Page 36
-36 I ÝMISLEGT
LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 2005 blaöiö
TRYGGÐU ÞÉR EINTAK STRAX f DAG!
SAM MYNDIR
Góð ráð við stressi og kvíða
Skrifaðu áhyggjurnar niður
og þœr hverfa á braut
Stress og kvíði virðist vera orðinn eins mikill hluti af nú-
tímalífi og tölvurnar og tcekin sem við notum. Þetta lífs-
mynstur nútímamannsins getur óneitanlega tekið sinn toll
og sífellt fleira enda á borðum nuddara, sálfræðinga eða
jafnvel skurðlœkna til að losa sig við kvilla stressins. Smá
adrenalín gerir öllum gott en ofmikið getur verið skaðlegt
heilsufólks. En það er alltafhægt aðfinna einhverjar leiðir
til að eiga áhyggjulausara lífog hér eru nokkurgóð ráð.
Horfðu í augun við óttann og
ekki láta hann stoppa þig. Með
því að viðurkenna fyrir sjálfri/
sjálfum þér að þú óttist eitthvað
í stað þess að hylja það getur það
verið fyrsta skref þitt til að yfir-
buga óttann.
Þegar kvíðinn fer að naga þig
að innan skaltu setjast niður og
skrifa áhyggjur þínar niður á
blað. Þegar þú sérð vandamálið
svart á hvítu getur verið auð-
veldara að ráða fram úr því. Ef
þú þarft virklega að létta á þér
þá er dagbók alger töfralausn.
Þegar þú skoðar hana nokkrum
dögum seinna mun þér líða
miklu betur.
• Deildu þínum vandamálum
með einhverjum. Það er miklu
erfiðara að geyma allt innra með
sér og það gerir vandann ennþá
stærri. Talaðu við góðan vin, ráð-
gjafa, prest eða sálfræðing. Allt
mun án efa líta betur út eftir
góðar samræður.
• Það er alltaf best að reyna að
leysa vandamál í stað þess að
vonast til að þau hverfi. Dragðu
djúpt andann og taktu á vand-
anum með þeim ráðum sem
reynast best. Sennilega mun
lausnin finnast eða það kemur
í ljós að þú þarft ekki að hafa
neinar áhyggjur.
• Fáðufagleganstuðningíljósiþess
hvert vandamálið er. Stundum er
erfitt að finna lausnirnar sjálfur.
Leitaðu eftir faglegum ráðum
frá sérfræðingum, það er engin
skömm að því. Með því að lesa
eða tala um vandamálið gætirðu
öðlast nýja sýn.
• Heilbrigður líkami býður upp á
heilbrigðan huga. Það virkar ekk-
ert betur til að hreinsa hugann
en góð og hressandi hreyfing.
Endorfínið vinnur á neikvæðum
hugsunarhætti og þú verður já-
kvæðari og orkumeiri.
• Það er ekki gáfulegt að fara að
sofa ef áhyggjurnar eru miklar.
Byrjaðu á því að slaka á með því
að fara í heitt og gott bað með
slakandi olíum, fá þér heitt kakó
og lestu afslappandi bók. Skrif-
aðu niður áhyggjur þínar eins
og rætt var um hér að ofan og
hrjóttu svo frá þér áhyggjunum.
• Reyndu að leiða hugann að öðru
því stundum þarfnast hugurinn
hvíldar frá vandamálinu til að
geta leyst það. Gleymdu þér í
lestri góðra bóka eða við áhorf
skemmtilegrar bíómyndar. Svo
er jafnvel hægt að taka til hend-
inni heima fyrir, mála, breyta til
eðajafnvelþrífa.
• Það er sagt að breyting jafngildi
lækningu. Væri því ekki tilvalið
að stíga út fyrir hefðbundið
líf þitt og losna þar með við
áhyggjur. Farðu til fjarlægra
landa eða reyndu fyrir þér með
nýju áhugamáli. Þér mun líða
eins og nýrri persónu.
• Vitanlega eru þín vandamál
mikilvæg en það er hægt að öðl-
ast nýja sýn á líf sitt með því að
átta sig á hvað aðrir eru að ganga
í gegnum. Reyndu að gefa eitt-
hvað af þér með því til dæmis
að stunda sjálfboðastörf. Vanda-
mál þín eru lítil í samanburði við
aðra verr stadda.