blaðið - 19.11.2005, Blaðsíða 40
- 40 I MENNIWG
LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 2005 blaöiö
Vaka til minningar Gunnars Gunnarssonar skálds
Frumflutt kvœði eftir Gunnar
Á mánudaginn 21. nóvember
verða liðin þrjátíu ár frá því
Gunnar Gunnarsson skáld lést,
86 ára að aldri. Gunnar
Gunnarsson er eitt af stærstu
nöfnum íslenskrar bókmennta-
sögu og bækur hans voru gefnar
út víðs vegar um heim. Til að
minnast skáldsins stendur
Gunnarsstofnun fyrir Gunnar-
svöku að Skriðuklaustri, fyrrum
heimili Gunnars, í dag. Dag-
skráin, sem er öllum opin, hefst
klukkan 16:00 og stendur fram
eftir kvöldi.
Skúli Björn Gunnarsson, for-
stöðumaður Gunnarsstofnunar,
segir að eitt og annað verði á dag-
skrá á Gunnarsvökunni. „Gunnar
_ safnaði blaðaúrklippum þar sem
er verið að tala um hann eða
bækur hans, alls um 15-20 þús-
und úrklippur. Við höfum verið
að skanna, flokka og skrá blaða-
úrklippusafnið sem er frá öllum
heimsálfum, Ástralíu, Indlandi,
Bandaríkjunum, Bretlandi og Evr-
ópu. Gunnar var náttúrlega einn
af þessum stóru rithöfundum
í Evrópu á tímabili þannig að
hann var gefinn út víða um heim
og vakti athygli hvert sem hann
kom. Hans var víða getið. Við
munum til dæmis gefa mönnum
sýnishorn hvað leynist í þessu
úrklippusafni."
99..................
Hér verða einnig sýndar
Ijósmyndir afskáldinu
sem hafa verið að
koma fram sem og
skemmtiiegar teikn-
ingar enda voru myndir
ekki almennt komnar í
dagblöð á þessum tíma..
Herragarðskvöldverður
að hætti Frú Franziscu
Aðgangur að Gunnarsvöku er ókeypis
en þó er æskilegt að panta sæti í
herragarðskvöldverð sem verður í
dönskum stíl að hætti Frú Franziscu,
konu Gunnars. „Svo mun Halldór
Guðmundsson, sem er að stúdera
Gunnar og Þórberg, spjalla aðeins um
Gunnar auk þess sem hann er með
námskeið í endurmenntun um þá.
Hér verða einnig sýndar ljósmyndir
af skáldinu sem komið hafa fram sem
og skemmtilegar teikningar enda
voru myndir ekki almennt komnar
í dagblöð á þessum tíma. Rúsínan í
pylsuendanum er svo að komið hafa
í Ijós nótur við mörg kvæði Gunnars
sem norræn tónskáld hafa tekið sig
til og samið lög við. I kvöld verða því
frumflutt á íslandi þrjú til fjögur lög,“
segir Skúli sem býst við dágóðum
fjölda enda Gunnar vinsælt skáld.
Ritaði verk sín á dönsku
Gunnar Gunnarsson skáld fædd-
ist að Valþjófsstað í Fljótsdal árið
1889. Það sem mótaði hann helst
sem ungan dreng var missir móður
sinnar um átta ára aldur. Gunnar
var aðeins sautján ára þegar hann
gaf út sín fyrstu ljóðakver, Vor-
ljóð og Móðurminning sem hlutu
almennt ekki góða dóma enda
bernskuverk. Gunnar flutti til Dan-
merkur, fór í lýðháskóla og tók í
kjölfarið þá ákvörðun að rita bækur
sínar á dönsku svo hann gæti nálg-
ast fleiri lesendur. Fyrstu árin voru
erfið fyrir Gunnar og verðandi konu
hans, Franziscu Jörgensen, en árið
1912 var fyrsta bindið af Sögu Borgar-
ættarinnar gefið út. Sú bók vakti
athygli á Gunnari og með útgáfu
næstu binda var Gunnar kominn
í hóp vinsælustu rithöfunda Dan-
merkur. Auk þess var sagan þýdd á
önnur tungumál og hlaut frábærar
viðtökur. Saga Borgarættarinnar
var kvikmynduð á íslandi 1919 og
varð fyrsta íslenska sagan sem var
kvikmynduð hér á landi. Gunnar
flutti heim til íslands árið 1938 og
lét byggja Skriðuklaustur sem hann
bjó í næstu tíu árin eða þar til hann
flutti til Reykjavíkur. Gunnar Gunn-
arsson lést í nóvember 1975 og kona
hans lést árið síðar.
svanhvit@vbl.is
Gunnar Gunnarsson er eitt af stærstu nöfnum íslenskrar bókmenntasögu og bækur
hans voru gefnar út víðs vegar um heim.
Jólakort Amnesty International
Fallegt málverk eftir
' Guðmundu Andrésdóttur
íslandsdeild Amnesty International
hefur undanfarin ár gefið út lista-
verkakort fyrir jól og hefur sala
þeirra verið ein helsta
fjáröflurn
arleið
deildar-
innar. ís-
landsdeild
Amnesty
hefur hafið
sölu á jóla-
korti ársins
2005 og það
prýðir fallegt
málverk eftir
Guðmundu
Andrésdóttur.
Guðmunda er
einn af frum-
kvöðlum abstrakt
myndlistaráíslandi. Kaup á
jólakortum Amnesty International
jafngildir markvissum stuðningi
við mannréttindi og deildin vonast
til að sem flestir sameini fallega
jólakveðju og stuðning við brýnt
mál- efni með kaupum
á kortunum. Jóla-
kortin eru seld á
skrifstofu deild-
arinnar að
Hafnarstræti
15 í Reykjavík
og einnig er
tekið á móti
pöntunum
í síma
551-6940.
íslands-
d e i 1 d
A m -
nesty
Interna-
tional gegnir mik-
ilvægu hlutverki í verndun
mannréttinda. Sammtökin berjast
fyrir mannréttindum og verndun
fórnarlamba með því að grípa til
aðgerða þegar grundvallarréttindi
fólks eru fótum troðin. ■
Verk eftir Heklu Dögg Jónsdóttur
Er háriö fariö aö gráili og þynnast?
Þá er Grecian 2000 hárfroöan lausnin!
Þú þværð hárið, þurrkar, berð froðuna í,
greiðir og háriö nær sínum eðlilega lit á
ný, þykknar og fær frískari blæ.
Athl - leiöbeiningar á íslensku fylgja
Grecian 2000 hárfroðan fæst hjá:
- Árbœjar Apótek
- Lyfjaval Apótek, Mjódd
- Skipholts Apótek
- Hárflikk, Miklubr. /Lönguhlíö
- Hársnyrtistofan Hár, Hjallahr.13, Hafnarf.
- Rakarast. Ágústar og Garðars, Suðurlandsbr.10
- Rakarast. Gríms, Grímsbæ
- Rakarast Klapparstíg
- Rakarast. Ragnars, Akureyri
-Torfl Geirmunds, Hverfisg. 117
Hagkaupsverslanir:
Akureyri, matvara - Kringlunni, matvara - Skeifunni,
snyrtlvara - Smáralind, snyrtivara - Spönginni, snyrtivara
Árnl Schevlng slf. - Helldverslun
síml 897 7030
Sýningin Ný íslensk myndlist II
Ómögulegt aö greina á
milli skynjunar og rýmis
í Listasafni íslands stendur yfir
sýningin Ný íslensk myndlist
II - um rými og frásögn sem
stendur til 12. febrúar 2006.
Með þessari sýningu vill Lista-
safn Islands efla samtalið milli
Iistar og almennings og verða
þannig mikilvægur vettvangur
sem styrkir tjáningarfrelsi og
skoðanaskipti.
Á undanförnum árum hefur end-
urskoðun átt sér stað á viðhorfum
manna til listsköpunar. í stað þess
að fjalla einungis um formfræði
hins hefðbundna skúlptúrs hafa
menn velt fyrir sér tengslunum
milli hlutar, áhorfanda og stað-
setningar. Á sýningunni eru verk
þar sem unnið er úr hugmyndum
um rýmisskynjun áhorfandans
og sem beina sjónum manna að
meðhöndlun listamanna á rými.
Listamennirnir sem eiga verk á
sýningunni eru Darri Lorenzen,
Elín Hansdóttir, Hafdís Helga-
dóttir, Hekla Dögg Jónsdóttir,
Hlynur Helgason, Hulda Stefáns-
dóttir, Inga Þórey Jóhannsdóttir
og Katrín Sigurðardóttir.
Ólíkar merkingar og viðmið
Þessir listamenn eiga það sam-
eiginlegt að áhorfandinn er settur
í þá aðstöðu að hann getur ekki
greint á milli skynjunar á verkum
þeirra og rýmisins þar sem þau er
að finna, þó þeir vinni með ólíkar
merkingar og viðmið I verkum
sínum. Innblástur verkannakemur
úr ýmsum áttum, en þau hafa það
sammerkt að vera háð rýminu sem
þau eru í hvort sem um er að ræða
verk sem eru sérstaklega unnin í
rými safnsins, eða verk sem fjalla
beinlínis um ólíkar víddir rýmis-
ins með forskrift huglægra merk-
inga. Listasafn Islands er opið dag-
lega á milli klukkan 11-17 nema á
mánudögum en þá er lokað. ■