blaðið - 19.11.2005, Page 46
46 I ÍPRÖTTIR
LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 2005 bla6Í6
Keane hættur með United
Stærsta frétt keppnistímabilsins
í ensku úrvarlsdeildinni í knatt-
spyrnu kom í gær þegar Roy Keane
fyrirliði Manchester United til-
kynnti að hann væri hættur að leika
með félaginu. Farinn, búið, bless.
.,Það hefur verið mikill heiður og for-
réttindi fyrir mig að leika fyrir Man-
chester United þau tólf ár sem ég
hef verið hér“, sagði hinn 34 ára Roy
Keane við fréttamenn í gær. „Fyrir
mig er þetta dapur dagur að fara
frá svo stórkostlegu félagi og fram-
kvæmdastjóra en það er núna tíma-
bært fyrir mig að halda áfram. Eftir
svo mörg ár mun ég aðallega sakna
allra hjá félaginu“, sagði Roy Keane.
Sir AÍex Ferguson framkvæmda-
stjóri sagði, „Roy Keane hefur verið
stórkostlegur þjónn fyrir Manchest-
er United. Besti miðjumaður heims
af sinni kynslóð og hann er eitt af
stóru nöfnunum í sögu félagsins",
sagði Sir Alex.
Vangaveltur hafa verið uppi að
undanförnu um hvað verði um
Roy Keane en hann var á sinu sið-
asta keppnistímabili á núverandi
samningi við félagið. Sjónvarpsstöð
Manchester United, MUTV, tók
fyrir nokkrum vikum síðan viðtal
við Roy Keane þar sem hann jós úr
skálum reiði sinnar yfir leikmenn
félagsins og sakaði þá um að leggja
sig ekki nægilega fram fyrir félagið
og að spila ekki með hjartanu. Við-
brögð forráðamanna United vegna
þessa viðtals urðu þau að viðtalið
var ekki birt en leikmenn fengu
hinsvegar að sjá viðtalið fyrir leik-
inn gegn Chelsea þar sem United
varð fyrsta liðið til að vinna Chelsea
í 50 leikjum í deildinni. Fjölmiðlar
ytra gera af því skóna að umrætt við-
tal við Keane hafi verið kornið sem
fyllti mælinn um framhaldið hjá Ke-
ane og Manchester United. Á haust-
mánuðum var reiknað með að Roy
Keane yrði í þjálfarateymi United
á næstu leiktíð og myndi síðan jafn-
vel taka við sem framkvæmdastjóri
félagsins. Eitthvað gerðist þó í sam-
skiptaferlinu sem enginn veit fyrir
vissu um, en ljóst er að Roy Keane
fer ekki sáttur frá félaginu. Það má
alveg lesa það á milli línanna.
Hvert fer Keane?
En hvert skyldi Roy Keane, sem
orðinn er 34 ára, fara? Spilar hann
áfram á meðal þeirra bestu? Ein-
hverju sinni lét Roy Keane sem er
írskur, hafa eftir sér að hann myndi
ekki leika með neinu öðru ensku
liði nema Manchester United og
nefndi þá um leið liðið Celtic sem
möguleika ef hann færi frá United.
Hvort sem af þessu verður eður ei á
að sjálfsögðu eftir að koma í ljós en
kappinn er jú orðinn 34 ára og það er
svo sannarlega farið að síga á seinni
hlutann á hans knattspyrnuferli.
Roy Keane hefur verið þjakaður af
meiðslum undanfarið og síðasta leik-
tímabil einnig. Hversu mikill fengur
er í honum sem leikmanni í dag skal
ósagt látið en það er nokkuð ljóst að
hann á ekki nema svona eitt til tvö
AVELLINUM
MEÐ SNORRA MA
ALLTAF A LAUGARDOGUM
AÐ LEIKSLOKUM
Á MÁNUDOGUM KL. 21.00
LIDIÐ MITT
HELGARUPPGJOR
ASUNNUDÖGUMKL 21.00
LEIKIR HELGARINNAR
LflUGARDAGUR 19. NOVEMBER
12.45 Wigan - Arsena (b)
15.00 Chelsea - Newcastle (b|
15.00 Charlton - Man.Utd B2 (b)
15.00 Liverpool - Portsmouth EB3 (bi
15.00 Man.City - Blackburn B4 (b)
í 5.00 Sunderland - Aston Villa EB5 (b)
17.15 WBA - Everton (li)
SUNNUDAGUR 20. NÓVEMBER
13.00 Tottenham - West Ham (b)
16.00 Middlesbrough - Fulliam (b|
MÁNUDAGUR 21. NÓVEMBER
13.00 Birmingham - Bolton (b)
ICELANDAIR 0tSr
f
TRjÁLSI
TRYGGÐU ÞER ASKRIFT
I SÍMA 800 7000. Á WWW.ENSKI.IS
EÐA í NÆSTU VERSLUN SÍMANS.
Ensiíi'%
B O LT I N
keppnistímabil eftir á meðal þeirra
bestu.
Missir Manchester United er
mikill, ekki aðeins að fyrirliði liðs-
ins sé farinn, heldur má líkja því við
að hjartað hafi verið rifið úr liðinu.
Hann var kóngurinn og stjórnaði
málum ásamt Sir Alex Ferguson.
Manchester United á að leika gegn
Hermanni Hreiðarssyni og félögum
í dag í ensku úrvalsdeildinni á The
Valley heimavelli Charlton. Erfiður
leikur á erfiðum tíma en oft er það
nú þannig að næsti leikur á eftir
áfalli er sigur en síðan kemur dýfan.
Úrslitin í fyrirtækja-
bikarnum í dag
Úrslitaleikurinn í fyrirtækja-
bikarnum í körfubolta í karlaflokki
fer fram i dag. Leikurinn verður í
Laugardalshöll og hefst klukkan
16.15. Mikið álag hefur verið á liði
Keflavíkur undanfarna daga en
Keflavík afrekaði það að vinna Riga
frá Lettlandi í Evrópukeppninni á
fimmtudag með 31 stigs mun sem
nægði Keflavík til að komast áfram
i keppninni en þar mæta þeir portú-
galska liðinu Madeira. Keflavík lék
svo í gær við Njarðvík í undanúr-
slitum keppninnar en þegar Blaðið
fór í prentun var leik ekki lokið.
Ef Keflavík hefur unnið, þá bíður
þeirra þriðji leikurinn á jafnmörg-
um dögum. Einhver þjálfarinn væri
fyrir löngu búinn að kvarta undan
leikjafyrirkomulagi en Sigurður
Ingimundarson gerir ekkert slíkt og
sagði í útvarpsþættinum Mín Skoð-
un á XFM í gær að það væri bara
væll og leikmenn vildu spila alvöru
leiki og það yrði bara að hafa það
þó þeir yrðu þrír á þremur dögum.
Hörkutól Siggi Ingimundar. Ekki
eru allir á eitt sáttir með fyrirtækja-
bikarinn í körfubolta og þjálfari
eins liðsins i úrvalsdeildinni sagði
í samtali við Blaðið í gær, „að tíma-
setningin á keppninni sé ekki góð
í ljósi þess að deildarkeppnin sé
nýhafin og siðan gert 10 daga hlé
á henni vegna fyrirtækjabikarsins.
Að auki vantar alveg kynningar-
þáttinn á þessa keppni, það virðist
enginn vita neitt um þessa keppni.
Fyrir hvern er þetta. Það er enginn
áhugi fyrir þessari keppni. Keppnin
sem slik er alveg í lagi en tímasetn-
ingin er ekki rétt og það þarf að laga
eitthvað verulega til þarna ef það á
að halda áfram með þessa keppni“,
sagði umræddur þjálfari eins liðsins
í úrvalsdeildinni í körfuknattleik.
Það er vissulega hægt að taka
undir þessi orð þessa ágæta manns
og það þarf að taka fram stóra kúst-
inn og sópa og laga til.
.fraáa
Við sendum
I póstkrðfu
samdægurs!
m____
Komdu og skoðaðu úrvalió!
é
Veggklukka
kr 2.990,-
Liverpool vörur - við eigum líka mikiö úrval frá hinum liöunum
Flíspeysa 1 “ « LFC
kr. 6.490.- Jolabangsi Lukkubangsi
Skemmtilegir T-bolir kr. 2.990.-
www.joiutherji.is
%'táítaSy * _ kr 6.490.- JOiaDangsi Lukkubangsi
W • * i |
m Joi utherji
ifmI , knattspyrnuverslun ,
W I samstarfi við Liverpoolklúbbinn á Islandi
Ci*Í2S
m
Heima og útitreyjur
Kr. 6.490.-
Evrópumeistarar
2005
s.588 1560