blaðið - 02.12.2005, Page 6
6 I INNLENDAR FRÉTTIR
FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 2005 blaöiö
Barnamenningarverðlaun:
Sigursteinn Másson, formaður Öryrkjabandalagsins:
Þórunni Björnsdóttir
veitt Barnamenn-
ingarverðlaun
í gær afhenti Kári Stefánsson, for-
stjóri íslenskrar erfðagreiningar
Þórunni Björnsdóttur, kórstjóra
Barnakórs Kársnesskóla Barnamenn-
ingarverðlaun Velferðarsjóðs barna á
Islandi. Verðlaunin voru veitt í fyrsta
sinn í gær, og ásamt verðlaunafé sem
nemur einni milljón króna fylgir
verðlaununum gripur sem hannaður
og smíðaður er af Dýrfinnu Torfa-
dóttur. Með verlaununum er Þór-
unni þakkað 30 ára farsælt starf við
kórstjórn í Kársnesskóla sem skipað
hefur kórnum á bekk með bestu
barnakórum í Evrópu, og þótt víðar
væri leitað. Verðlaunaféð verður
nýtt til að hljóðrita efni sem kórinn
hefur frumflutt. Fleiri aðilar nutu
Þórunn veitir verlaununum viðtöku
úr hendi Kára Stefánssonar í húsnæði
(slenskrar erfðagreiningar.
gjafmildi Velferðarsjóðsins í gær og
hlutu Hrókurinn, BUGL, íslensku-
skólinn á netinu og Hjálparstarf
Kirkjunnar og Mæðrastyrksnefnd
eina milljón króna í styrk. ■
OfjTJJ'fj. jjfij fÍJ
q fj.ooj 11 f:
.fi.TJ OTj.i
iffi J
m 4u\
EK
Varúð!
Mjög öflugur
illjöllfngg
-hreinlega sterkari
Dreifing:
BéBé Vöruhús ehf.
Sími 512-3000
Leysir upp
erfiðustu
óhreinindi
svo sem fitu,
sót, olíu, túss,
blek og
tjöru.
Almannatryggingakerfið
þarfnast grundvallar
endurskoðunar
íslendingar hafa dregist aftur úr öðrum þjóðum í þjónustu við
öryrkja. Kaupmáttur þeirra hefur ekki hækkað í samrœmi við al-
menna kaupmáttaraukningu.
Atvinnuleysisbótakerfið og félags-
þjónusta sveitarfélaganna hafa
ýtt fólki með óbeinum hætti inn í
örorkulífeyriskerfið. Þetta kemur
fram í skýrslunni Örorka og vel-
ferð á íslandi sem Stefán Ólafsson,
prófessor við Háskóla íslands, tók
saman og kynnt var á sérstökum
blaðamannafundi í gærmorgun.
Tekjur öryrkja hafa hækkað minna
en tekjur almennings í landinu síð-
astliðin tíu ár.
Skattbyrði stóreykst
I skýrslu Stefáns Ólafssonar kemur
fram að stjórnvöld hafi brugðist í
tveimur meginatriðum þeim mark-
miðum semíög gera ráð fyrir þ.e. að
tryggja fötluðum jafnrétti og sam-
bærileg lífskjör við aðra þjóðfélags-
þegna og skapa þeim skilyrði til þess
að lifa eðlilegu lífi. Hann bendir á
að lífeyrir almannatrygginga hafi
ekki hækkað í samræmi við aðrar
launahækkanir í landinu og að á
síðustu tíu árum hafi skattbyrði
öryrkja stóraukist. í því samhengi
kemur fram að öryrkjar með lægstu
tekjur hafi verið skattlausir á fyrri
hluta tímabilsins frá 1995 til 2004 én
greiða í dag. umtalsverðan skatt af
tekjum sínum vegna raunlækkunar
skattfrelsismarka. Þá koma íslend-
ingar illa út í samanburði við önnur
OECD ríki hvað varðar þjónustu við
öryrkja og útgjöld til örorkumála
og eru að því leyti á svipuðu reki og
Portúgal.
Falleinkunn
Sigursteinn Másson, formaður Ör-
yrkjabandalagsins, segir að skýrslan
sýni ótvírætt hversu illa sé búið að
öryrkjum hér á landi. „Við erum
BMi6/Cúndi
Skýrslan er falleinkunn fyrir fslendinga í málefnum öryrkja samkvæmt Sigursteini
Mássyni, formanni Öryrkjabandalagsins.
í hópi þeirra sem eru með lægstu
tekjur öryrkja og við erum klárlega
I hópi þeirra sem hafa sem minnstu
starfsendurhæfinguna. Við erum
búin að tapa öllum samanburði
ekki bara við Norðurlöndin heldur
Norður-Evrópu. Þessi skýrsla er
einfaldlega falleinkunn og þá ekki
bara fyrir stjórnvöld heldur fyrir
samfélagið í heild.“ Sigursteinn
segir endurhæfingarstarf á Islandi
vera i skötulíki sem hindri að
öryrkjar komist aftur út á vinnu-
markaðinn. Þá bendir hann á að eng-
inn hvati sé til staðar í atvinnulífinu
til að styðja við bakið á öryrkjum.
„Við erum búin að byggja upp svo
andstyggilegt tekjutengt örorku og
almannatryggingakerfi sem að bein-
línis þrýstir fólki til aðgerðarleysis.
Þrýstir fólki til að vera um langan
tíma og alla ævi inní þessu kerfi.
Læst inni í því. I stað þess að vera
Kjaramál
Sjúkraliðar
boða til verkfalls
Sjúkraliðar sem starfa hjá
sveitarfélögum samþykktu í
gærkvöldi að fara í verkfall þann
17. desember næstkomandi verði
ekki búið að ganga frá kjarasamn-
ingum við Launanefnd sveitarfé-
laganna fyrir þann tíma. For-
maður Sjúkraliðafélags íslands
vonast til þess að hægt verði að
ganga frá samningum áður en til
verkfalls kemur.
Samþykkt með yfirgnæf-
andi meirihluta
Verkfall var samþykkt með 97%
greiddra atkvæða en 3% voru á móti.
A kjörskrá voru 189 en 131 nýttu at-
kvæðisrétt sinn. Verði ekki búið að
ganga frá samningum við sveitarfé-
lögin fyrir 17. desember næstkom-
andi muna sjúkraliðar á landsbyggð-
inni því leggja niður vinnu. Að
sögn Kristínar Á. Guðmundsdóttur,
formanns Sjúkraliðafélags Islands,
standa vonir til þess að hægt verði
að ganga frá samningum áður en
til þess kemur. I gær var fýrirhug-
uðum fundi Launanefndar sveitarfé-
laganna og Sjúkraliðafélags Islands
frestað fram á mánudag að beiðni
Launanefndar. I fyrrakvöld náðust
BI06Í6/FMÍ
samningar við Reykjavíkurborg en
þeir eru á svipuðum nótum og þeir
samningar sem gerðir voru við ríkið.
Komi til verkfalls mun það því ekki
ná til þeirra sjúkraliða er vinna á
höfuðborgarsvæðinu. ■
með hér öflugt endurhæfingarkerfi
sem byggir á því og þeirri grund-
vallarhugsun að það vilja allir hafa
hlutverk í lífinu og það eiga allir að
hafa hlutverk,“ segir Sigursteinn og
bætir við „við eigum alveg að geta
tekið þetta fyrir í heild sinni. Hent
þessum almannatryggingalögum
og búið til ný og endurskoðuð lög
um málefni fatlaðra og síðan bætt
duglega í málaflokkinn.“ ■
Karlar um borð:
Boðað til að-
ljóðlegrar
karlaráðstefnu
Karlar komu saman í Salnum
í gær á ráðstefnu sem bar yfir-
skriftina „Karlar um borð“. Árni
Magnússon félagsmálaráðherra
setti ráðstefnuna sem einungis
körlum var boðið til. Þó var
gerð undantekning með Frú
Vigdísi Finnbogadóttur sem
ávarpaði gesti og sat ráðstefn-
una sem verndari og heiðurs-
gestur. Á meðal þeirra sem
ávörp fluttu voru Ari Edwald,
framkvæmdastjóri Samtaka
Atvinnulífsins, Bjarni Ármanns-
son forstjóri íslandsbanka og
Ingólfur V. Gíslason, sviðstjóri
hjá Jafnréttisstofu. I lok fundar
stjórnaði sjónvarpsmaðurinn
Egill Helgason pallborðs-
umræðum þar sem ungir
menn úr stjórnmálaflokkunum
og reynsluboltar úr jafnréttis-
málunum ræddu jafnréttismál
út frá sjónarhorni karla.
Karlar axli aukna ábyrgð
Árni Magnússon bar svo upp
ályktun á fundinum þar sem
meðal annars var hvatt til þess
að karlar axli aukna ábyrgð á
jafnrétti kynjanna. Fram að
þessu hafi konur borið hitann
og þungann af jafnréttisbarátt-
unni, en jafnréttismálin eigi
ekki eingöngu að vera kvenna-
mál. Jafnframt skoraði ftrndur-
inn á karla heimsins að taka
jafnréttismálin föstum tökum
og mæta til íslands á haust-
dögum 2006, þar sem haldin
verður alþjóðleg ráðstefna
um karla og jafnréttismál.