blaðið - 02.12.2005, Qupperneq 16
16 I SKOÐUW
FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 200S blaöiö
Hvað ætlar þú að
gera til að efla
mannréttindi?
1 næstu viku, þann ío. desember nk.,
er alþjóðlegi mannréttindadagur-
inn haldinn hátíðlegur. í ár eru 57 ár
liðin frá þvi Mannréttindayfirlýsing
Sameinuðu þjóðanna var samþykkt.
Á sama tíma standa yfir á Alþingi
umræður um fjárlagafrumvarp
ársins 2006. Margir fslendingar og
mannréttindastofnanir í Evrópu
fylgjast með furðu með þróuninni
hér á landi; meðan aðrar mannrétt-
indastofnanir undirbúa hátíðahöld
vegna mannréttindadagsins, blasir
lokun við Mannréttindaskrifstofu
íslands vegna þess að ekki fæst nægt
fé til starfseminnar. Þetta er dapur-
legt ástand. Vil ég því hvetja alla
þingmenn til að beita sér fyrir því
að beinn fjárstuðningur til Mann-
réttindaskrifstofu íslands verði
tryggður en skrifstofan hefur um ára-
bil unnið að eflingu mannréttinda
hér á landi, - þar til fyrir skömmu
- með opinberum stuðningi.
Um daginn var haldin ráðstefna
i Ráðhúsi Reykjavikur undir yf-
irskriftinni „Hvað getur ungt
fólk lagt að mörkum til friðar- og
mannréttinda á 21. öldinni sem
einstaklingar?“ Soka-gakkai (Búdd-
istafélagið) hafði frumkvæði að
skipulagningu ráðstefnunnar, í
samstarfi við UNICEF, Rauða kross-
inn o.fl. Ráðstefnan var fjölmenn
og mér fannst stórkostlegt að sjá
hversu virkan áhuga ungt fólk hefur
á mannréttinda- og friðarmálum og
hversu áfjáð það er í að að leggja sitt
af mörkum. Ljóst er að framtíð þjóð-
arinnar er björt ef hún er falin þessu
kraftmikla hugsjónafólki.
Ég fékk tækifæri til að segja
nokkur orð sem gamlamenni, svo
ég deildi speki minni með ungmenn-
unum. Hún er sú að mannréttindi
eru ekki eins fjarlæg og fræðileg og
margir halda, heldur eru þau áþreif-
anleg og persónuleg. Mannréttinda-
yfirlýsingin S.þ. er kannski tákn um
háleit markmið en birting mannrétt-
indamála er í raun oftast mjög áþreif-
anleg og persónuleg. Þau varða mig
eða þig. Við þurfum að vera vakandi
og láta mannréttindamál okkur
Toshiki Toma,
prestur irmflytjenda
varða í daglegu lífi okkar.
f þessu samhengi er það áþreif-
anlegt mannréttindamál dagsins
hvort MRSÍ getur haldið áfram mik-
ilvægri starfsemi sinni eða ekki. f
Vestur-Evrópu er engin þjóð sem
ekki heldur úti sjálfstæðri mann-
réttindastofnun. Fyrir smáþjóðfélag
eins og ísland, er bersýnilega nauð-
synlegt að ríkið styðji Mannréttinda-
skrifstofuna fjárhagslega án þess þó
að vilja hafa áhrif á starf hennar. Ef
MRSI þarf að leggja upp laupana
verður engin sjálfstæð mannrétt-
indastofnun héríendis er starfar að
mannréttindum á heildstæðan hátt.
Hvert verður svarið þegar komandi
kynslóð spyr; „Af hverju eigum
við enga sjálfstæða mannréttinda-
stofnun á fslandi?”.
Ég treysti þingheimi til að koma
í veg fyrir að Mannréttindskrifstof-
unni verði lokað. Jafnframt vil ég
biðja alla í þjóðfélaginu um að fylgj-
ast með fjárlagafrumvarpinu og
framtið MRSÍ en starfsemi hennar
snýst um að vernda réttindi OKKAR.
Sérstaklega vil ég hvetja ungt fólk
til að skoða málið og taka þátt í að
efla virðingu fyrir mannréttindum
á fslandi. Þetta er þjóðþrifamál og
hvert og eitt ykkar getur lagt sitt
mörkum. ■
Athugasemd við frétt Blaðsins um
flugvallarkönnun F-listans.
Linkindin gagnvart
fangafluginu
f frétt Blaðs-
ins 30. nóv-
ember sl.um
könnun sem
IMG Gallup
gerði fyrir
borgarstjórn-
arflokk F-list-
ans er reynt
að breiða yfir
þann mikla
stuðning sem Ólafur F.
staðsetning Magnússon,
flugvallarins
í Vatnsmýri hefur meðal borgar-
búa. Ætla mætti af forsíðufrétt
Blaðsins að fleiri vildu flugvöll-
inn til Keflavíkur en að hafa hann
áfram í Vatnsmýrinni. Því fer víðs
fjarri.
Af öllum kostum sem spurt
var um vildu 47,7% hafa völlinn
áfram í Vatnsmýri, 23,1% í Kefla-
vík, 5,8% á Lönguskerjum, 12,8% á
tilgreindum stað annars staðar og
10,5% á ótilgreindum stað.
Áf þeim sem sögðust vilja að
völlurinn færi úr Vatnsmýrinni en
nefndu aðra staðsetningu en Kefla-
vík sögðust 37,6% frekar vilja hafa
völlinn í Vatnsmýrinni en að flytja
hann til Keflavíkur, en 62,4% vildu
frekar að hann færi til Keflavíkur.
Meginniðurstaða könnunar-
innar er því sú að aðrir kostir en
Vatnsmýri og Keflavík hafa sáralít-
inn stuðning en ef velja þarf milli
Vatnsmýrar og Keflavíkur vilja
59% hafa völlinn áfram í Vatnsmýr-
inni en 41% vilja flytja hann til
Keflavíkur.
Ég leyfi mér að benda lesendum
Blaðsins á að könnunina í heild má
lesa á heimasíðunni xf.is
Virðingarfyllst
ÓlafurF. Magnússon, oddviti
F-listans í borgarstjórn.
ríkisráðherra
Bretlands, á
blaðamanna-
fundi með
í t ö 1 s k u m
starfsbróður
sínum, Gina-
franco Fini,
að hann hefði
sent Banda-
ríkjamönnum
formlegt bréf Össur
og krafist Skarphéðinsson
skýrra svara.
Bréfið sendi hann skv. ósk kollega
sinna, utanríkisráðherra Evrópusam-
bandsins. Nýi þýski utanríkisráðherr-
ann, Franz-Walter Steinmeier, hyggst
jafnffamt taka málið sjálfur upp við
bandarísk stjórnvöld þegar hann
fer í sína fyrstu opinberu heimsókn
vestur um haf innan skamms.
f þessu ljósi er vægast sagt fráleitt
að halda því fram að íslensk stjórn-
völd hafi gengið lengra og staðið sig
betur en stjórnvöld annarra þjóða við
að upplýsa málið. En það gerði Siv Frið-
leifsdóttir i fréttum í dag, eftir fund
utanríkismálanefndar með embættis-
mönnum utanríkisráðuneytisins.
Ekkert kom fram á þeim fundi sem
benti til að sú staðhæfing ætti rétt á
sér - enda mótmæltum við Stein-
grímur Jóhann Sigfússon því báðir í
viðtölum við Ríkisútvarpið og aðra
miðla. Þvert á móti virðist mér að ut-
anríkisráðuneytið fylgist ekki nægi-
lega vel með málinu - og mér finnst
það ekki standa sig nógu vel.
f þessu máli skiptir miklu að um-
ferð meintra fangaflugvéla hefur
verið svo mikil um fsland að erlend
stórblöð hafa kveðið svo fast að orði
að fsland sé miðstöð fangaflugsins.
Ég hef ekki aðstöðu til að dæma um
það. Slíkar staðhæfingar virtra blaða
ættu hins vegar að ýta hressilega við
utanríkisráðuneytinu og vera því
ögrun til að rannsaka þetta ljóta mál
miklu betur.
í nokkrum löndum eru þegar búið
að ýta úr vör rannsóknum á meintum
lögbrotum. Spænska lögreglan er til
dæmis önnum kafin við að rannsaka
brot á spænskum lögum og hefur
þegar fundið nöfn 40 meintra CIA-
agenta sem eru grunaðir um að hafa
tekið þátt í leynilegu flugi með fanga
um spænska lögsögu. Þýskaland og
ftalía hafa byrjað samskonar rann-
sókn. Afhverju ekki fsland?
Rannsókn lögreglu í þessum
löndum er byggð á því að það er brot
á þeirra eigin lögum, á alþjóðalögum,
og alþjóðlegum mannréttindasátt-
málum, að taka þátt í hvers kyns at-
hæfi sem tengist pyntingum.
f sland er aðili að þessum sömu sátt-
málum. Samkvæmt íslenskum lögum
nær refislögsaga í málum sem tengjast
pyntingum út fyrir fsland. íslenskum
stjórnvöldum ber að rannsaka hvort,
og hverjir, hafi hugsanlega brotið um-
rædd lög og alþjóðasáttmála, og gera
það sem í þeirra valdi stendur til að
draga þá fyrir dómstóla hér á landi.
Nú liggur fyrir rökstuddur grunur
um að tilteknar flugvélar, sem hafa
farið um fsland, kunni að tengjast
ólögmætum fangaflutningum. All-
staðar í heiminum eru þessar fregnir
teknar alvarlega. Evrópuráðið hefur
sérstakan rannsóknarmann, sem er
að skoða flutningana út frá þessum
grun. Hér á fslandi segja hins vegar
ráðamenn og þingmenn úr bæði Sjálf-
stæðisflokki og Framsóknarflokki að
þetta sé bara sögusveimur - og óstað-
festar fréttir.
Geir H. Haarde sagði á Alþingi um
daginn að mannréttindi væru algild.
En afhverju framfylgja þá íslensk
stjórnvöld ekki íslenskum lögum
og láta rannsaka hugsanleg tengsl ís-
lands við málið? Heimatökin eru þó
hæg. Skráningarnúmer og eigendur
flugvélanna liggja fyrir.
Er hugsanlegt að íslensk stjórnvöld
vilji ekki styggja Bandaríkjamenn
vegna varnarviðræðnanna?
össur Skarphéðinsson
http://web.hexia.
net/roller/page/ossur//
Meint brot CIA á alþjóðlegum samn-
ingum og lögum fjölmargra ríkja
vegna fangaflutninga til landa sem
vitað er að beita pyntingum við yf-
irheyrslur eru orðnar að pólitísku
stórmáli víðs vegar um heiminn. Evr-
ópusambandið og Evrópuráðið, sem
einkum beitir sér á sviði mannrétt-
inda, hafa tekið mjög fast á málinu.
f dag upplýsti svo Jack Straw, utan-
U & -c
9p'^ j
09 »h
Burton
snjóbrettavörur
iiboðin-
S: 5200 200 MÁN- FÖS. Htrð-18. LAU. KL. 10-14
FAXAFENI 7
www.gap.is