blaðið - 02.12.2005, Síða 30
30 I HELGXN
FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 2005 blaðiö
Lestrarstund
gefur gull
í mund
Nú þegar jólabækurnar eru farnar
að streyma inn fyrir börnin er
upplestur víða um borg. Hvað er
skemmtilegra en að setjast niður
með börnunum og gleyma sér yfir
lestrinum. Bæði bókabúðir og bóka-
söfn bjóða upp á lestur fyrir börnin
og má þar nefna:
Iða fyrir börnin
Laugardaginn 3. desember verður
dagskrá fyrir börnin í bókabúðinni
Iðu.
Töframaður kemur og sýnir töfra-
brögð úr Töfrabragðabókinni.
Dagskráin er sem hér segir:
K113:00 Töfrabragðabókin. Töfra-
maður mætir og sýnir töfrabrögð
Kl. 13:30 Döflatertan. Höfundar
bórinnar Marta María Jónasdóttir
og Þóra Sigurðardóttir lesa úr
bókinni.
K113:45 Jólasveinasaga. Höfundur-
inn Bergljót Arnalds les.
Kl. 14:00 Prinsessusögur. Þórir Guð-
bergsson les.
K114:15 Þverúlfsaga Grimma. Höf-
undurinn Þorgerður Jörundsdóttir
les út bókinni.
Borgarbókasafnið íTryggvagötu
Sögustund verður í Borgarbókasafn-
inu klukkan 15 á sunnudaginn. Þor-
björg Karlsdóttir les Gott kvöld eftir
Áslaugu Jónsdóttur en hún hlaut
Dimmalimm verðlaunin í ár fyrir
bókina. Þá verður Grýlusaga lesin
eftir Gunnar Karlsson. í henni segir
frá þvi þegar afi var lítill og lenti í
klónum á Grýlu.
Útgáfuhátíð
Geimsteins í
Borgarleikhúsinu
Á morgun verður útgáfuhátíð Geim-
steins í Borgarleikhúsinu. Keflavík-
urundrin mæta til leiks og gera allt
vitlaust klukkan 20. Miðasala fer
fram í Skífubúðunum og á midi.is.
Geimsteins útgáfan hefur svo
sannarlega blandað sér í hljómplötu-
útgáfuna þetta árið og fyrir þessi jól.
Innan útgáfunnar má finna vinsæl-
ustu hljómsveitir landsins svo ekki
sé talað um Hr. Rokk sjálfan. Það
verður því að teljast mikill fengur
að fá allar þessar sveitir saman í
BlaíiíAleinarHugl
góðu húsi og topp græjum. Þetta er
viðburður sem ætti að gleðja tónlist-
aráhugamenn til sjávar og sveita.
Fram koma: Rokksveit Rúnars Júlí-
ussonar, Deep Jimi and the Zep Cre-
ams, Baggalútur og Hjálmar koma
fram þannig að gestir mega eiga
von á óvæntum glaðning.
Miðar eru fáanelgir á midi.is og
í Skífuverslunum og verða gefnir á
Rás 2 dagana fyrir hátíðina.
Ljósin tendruð
viö Austurvöll
Fyrir marga hefst jólastemningin
ekki fyrr en kveikt hefur verið á Os-
lóartrénu á Austurvelli en sú stund
mun einmitt renna upp um helgina.
Á sunnudaginn verða þau tendruð
klukkan 15:30. Kynnir er Gerður G.
Bjarklind
Allt frá árinu 1951 hafa frændur
okkar í Osló fært Reykvíkingum jóla-
tré sem sett hefur verið upp á Áust-
urvelli. Á hverju ári hafa borgarbúar
fagnað þessari gjöf með því að bregða
undir sig betri fætinum og taka þátt í
þeim hátíðarhöldum sem haldin eru
í tilefni af ljósadýrð trésins góða.
Dagskráin verður eftirfarandi:
15:30 Lúðrasveit Reykjavíkur leikur
jólalög á Austurvelli.
16:00 Dómkórinn syngur nokkur
lög undir stjórn Marteins H.
Friðrikssonar.
Guttorm Vik, sendiherra, afhendir
Reykvíkingum jólatréð fyrir hönd
Oslóarbúa og ljósin kveikir hin 7 ára
norsk-íslenska Kristin Magnúsdóttir.
Persónurnar Reyndar og Raunar
úr aðventuævintýri Þjóðleikhússins,
Leitin að jólunum eftir Þorvald Þor-
steinsson, líta við á Austurvelli og
syngja jólasveinavísur Jóhannesar úr
Kötlum við tónlist Árna Egilssonar.
Söng- og leikatriði úr Jólaævintýri
Hugleiks byggt á jólasögu Dickens um
Ebenezer Skrögg. Klassísk saga sem
öll fjölskyldan getur notið saman, og
er kjörin til að koma fólki í jólaskap.
Þá kemur það sem flest börn bíða
eftir en það er þegar jólasveinarnir
streyma á svæðið. Stekkjastaur, Stúfur
og Þvörusleikir ætla ekki að láta sig
vanta, enda hafa þeir sérstaklega
gaman af jólaljósum og ekkert finnst
þeim skemmtilegra en að syngja
með kátum kröldcum, og hver veit
nema fleiri úr þeirri skemmtilegu
og skrýtnu fjölskyldu séu komnir í
bæinn. ■
Sign spilar á „Rokkfest"
Hljósmveitin Sign spilar á “Rokkfest”
í félagsmiðstöðinni Þebu í Kópavogi,
í kvöld. Félagsmiðstöðin stendur
fyrir styrktartónleikum fyrir Sjónar-
hól. Samtökin Sjónarhóll láta sig hag
langveikra og fatlaðra barna varða
og rennur allur ágóði tónleikanna
til þeirra.
Sjónarhóll er ráðgjafarmiðstöð
fyrir fjölskyldur barna með sérþarfir.
Að starfseminni standa ADHD sam-
tökin, Landssamtökin Þroskahjálp,
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
og Umhyggja, félag til stuðnings
langveikum börnum. Félögin og
samtökin sem standa að Sjónarhóli
vinna öll að réttindamálum fjöl-
skyldna barna með sérþarfir hvert á
sínu sviði.
Útgáfutónleikar Garðars Thórs Cortes
Á laugardaginn verða útgáfutón-
leikar Garðars Thórs Cortes i Grafar-
vogskirkju klukkan 18:00. Þar mun
hann syngja lög af fyrstu einsöngs-
plötu sinni „Cortes”. Hljómsveitin
er skipuð stórkanónum úr tónlistar-
geiranum og mun Friðrik Karlsson
fljúga sérstaklega heim frá London
til að taka þátt í flutningnum og
Óskar Einarsson mun leika á pí-
anó en þeir félagar stjórnuðu upp-
tökum á plötunni. Faðir söngvar-
ans, Garðar Cortes, mun stjórna 20
manna strengjahljómsveit og von
er á nokkrum gestum til að taka
lagið með Garðari Thór. Uppselt er
á fyrri tónleikana sem eru á dagskrá
kl. 18:00 en nokkur sæti eru ennþá
laus á seinni tónleikana sem eru á
dagskrá klukkan 21:00. Miðasala
fer fram í Skífunni, í BT utan höf-
uðborgarsvæðisins og hjá Concert í
síma 5112255 og á www.concert.is
Frá opnun Sjónarhóls
Ásamt Sign koma fram hljóm- 500 krónur. Sjá frekari upplýsingar
sveitirnar The Weebls, Benny Cres- umSjónarhólávefsíðunni: www.ser-
pos Gang, Amos og Dikta. Húsið stokborn.is
opnar klukkan 19 og er miðaverð