blaðið - 02.12.2005, Síða 32

blaðið - 02.12.2005, Síða 32
32 I GÆLUDÝR FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 2005 blaöiö Jólagjafir handa dýr- um og dýr í jólagjafir Hundar skynja komu jólanna .,Við erum með jólagjafir af öllum stærðum og gerðum fyrir gælu- dýrin', segir Gunnar Helgason versl- unarstjóri í Dýraríkinu. „Við erum með jóladagatöl fyrir hunda og ketti, þar sem hundarnir fá hundasúkku- laði og kettirnir jógúrtdropa. Einnig er vinsælt að kaupa slaufur og föt á hundinn eða ól á köttinn en ólin kostar um 560 kr. Fatnaður á hunda getur verið vesti, smókingar, jóla- sveinagallar og margt fleira, verð á sparifötum á hundinn er um 1900 kr. Gjafasokkar fyrir hunda og ketti eru líka mikið teknir fyrir jólin og þá er innhald sokkins í samræmi við það dýr sem á að fá gjöfina. Dýra- ríkið selur 15 gerðir af hundasokkum en í þeim eru nokkrar tegundir af kexi, nagbein og ýla (leikfang fyrir hundinn). Hundasokkur kostar frá 1000 kr og 800 kr fyrir kött. Fyrir hamstra er vinsælt að kaupa hnetur en þeir geta líka fengið sína jóla- sokka sem kosta um 660 kr.“ »»; ’Furðufuqltir O J pjiáifisk.wy PROFORMANCE HUNDA OG KATTAFÓÐUR á mánuðum“, segir Gunnar. Hann segir vinsælt að gefa fiska kannski í og með vegna þess hversu dýraof- næmi er algengt vandamál á íslandi. „í fiskum erum við með ferskvatns- fiska og sjávarfiska. Það er vinsælt að gefa fisk í fiskakúlu en því fylgir lítill tilkostnaður og umhirða er auð- veld. Annars erum við með fiskabúr af öllum stærðum og gerðum og eru þau stæstu 54 lítrar. Páfagaukarnir eru líka vinsælir en þá eigum við af öllum stærðum og gerðum", segir Gunnar og nefnir sem dæmi Ara sem er 90 cm og getur orðið 120 ára gamall. Af öðrum fuglategundum má nefna dísarfulga og ástarfugla. Gunnar segir að hægt sé að halda á stóru fuglunum og klappa þeim. „Þessir fuglar hafa verið handmat- Gunnar segir nokkuð um að fólk gefi gæludýr í jólagjafir og segir mest um að for- eldrar gefi börnum sínum dýr. „Við erum með mikið úrval dýra og má nefna froska, naggrísi kanínur og stökkmýs. Einnig er hægt að fá búr fyrir allar tegundir dýra. Við erum með opið á aðfangadag þ.a. fólk getur komið og tekið dýrin þá þótt það hafi gengið frá greiðslu áður. Ef fólk ætlar að gefa hunda og ketti er betra að panta fyrirfram því það ferli getur tekið tíma og bið eftir hrein- ræktuðum hundum getur hlaupið I 1 I aðir frá fæðingu og eru því hændari af fólki en annars. Vilji fólk gefa fugl- inum sínum jólagjafir er vinsælt að gefa hirsi og stangir. „Ég á sjálfur hund og veit að hann skynjar komu jólanna. Hann fær sinn eigin pakka undir tréð sem yfirleitt inniheldur eitthvað mat- arkyns. Hundurinn finnur lykt af pakkanum og nagar utan af honum pappírinn til að ná í góðgætið. Þegar hann er búinn að taka upp pakkann leggst hann út í horn og gæðir sér á innihaldinu. Ég veit um konu sem ákvað að gefa hundinum sínum jóla- gjöf. Gjöf var sett undir tréð ásamt hinum gjöfunum. Þegar konan sá ekki til tætti hundurinn alla pakk- ana sem voru undir jólatrénu í þeim tilgangi að finna sinn pakka sem innihélt mat. hugrun@vbl.is Fólk endurnýjar dýraútbúnað fyrir jólin Hundar og kettirfá flestar gjafir „Það er nokkuð um að fólk noti tæki- færið fyrir jólin og endurnýi bæli dýranna og annan útbúnað sem tilheyrir þeim “, segir Sigurteinn Þorsteinsson verslunarstjóri gælu- dýraverslunarinnar Fiskó í Kópa- vogi. „Við erum með mikið úrval bæla fyrir hunda og ketti en einnig gjafir fyrir dýrin. Jólasokkarnir eru sívinsælir fyrir hunda og ketti en þeir eru á verðbilinu 850-1150 fyrir ketti og 790-1590 fyrir hunda. í jóla- sokkum fyrir hunda eru nagbein og jafnvel svínseyru sem hægt er að naga, þá innihalda þeir eitthvað af nammikexi og ýlur. Jólasokkar fyrir ketti innihalda yfirleitt einhvers- konar dót eins og loðnar mýs eða bolta. Einnig er hægt að fá jólasokka fyrir nagdýr. Hlífðarföt á hunda eru á bilinu 5000-9500 og jólasveina- búningur fyrir millistærð af hundi kostar 3400 krónur." Sigursteinn segir alltaf eitthvað um að fólk gefi dýr í jólagjöf en dýrakaup byrji ekki fyrr en seinna í desember. „Ég ráðlegg þeim sem eru að gefa dýr utan fjölskyldunnar að kanna hvort viðkomandi sé með dýraofnæmi, sérstaklega ef ætlunin er að gefa nagdýr, ketti og hunda.“ „1 Fiskó erum við með kanínur, naggrísi, hamstra, dverghamstra og nokkrar tegundir af fuglum. Við erum m.a. með ástar- og dísarfugla og rósellur sem eru skildar gárum en litskrúðugri. Kanína kostar 1700 kr, naggrísinn 2900 kr og gárinn, sem er algengasti páfagaukurinn er á 3.900 krónur. Þá erum við með nokkrar tegundir af finkum. Þeir sem vilja gefa fugla og nagdýr geta komið og tekið dýrin frá og sótt þau á aðfangadag. Þá er hægt að fá gjafa- bréf upp á fiska. Kettir hafa ekki verið fáanlegir í gæludýrabúðum í áraraðir en við bendum á Kattholt og auglýsingar blaðanna þar sem fólk er gjarnan að auglýsa ketti gefins. „Sjálfur á ég tík og hún fær jólasokk til að verða ekki skilin útundan um jólin. Það getur verið hamagangur í öskjunni ef sokkurinn inniheldur eitthvað sem lyktar vel“, segir Sigur- steinn að lokum. PROFORMANCE - dýranna vegna 1 TnTT Wfi “<«3 HHI < - : f ' www.fiorvar.is * Bleikargróf 15 Rvk • Hafnarstræti 17 Rvk Hfj Skólabraut 37 Akranesi • Hrannargötu 2 ísafirði Kaupangur Akureyri • Eyrarvegi 35 Selfossi OFormance PET PRODIJCTS INC GÆLUDÝRABÚR 50% AFLÁTTUR Öll fuglabúr, hundabúr, NAGDÝRABÚR, KATTABÚR OG FISKABÚR MEÐ 50% AFSLÆTTI. ALLAR AÐRAR VÖRUR MEÐ 30% AFSLÆTTI. FULL BÚÐ AF NÝJUM VÖRUM. TOKYO gæludýravörur Hjallahraun 4 Hafnarfirði s.565-8444 Fólk á að hugsa vel um dýrin sín allan ársins hring Dýrahaldi fylgir ábyrgð „Fólk er mikið að kaupa fugla og fiska allan ársins hring,“ segir Ingólfur Tjörvi Einarsson eigandi Furðu- fugla og fylgifiska. „Þeir sem vilja gefa fiska í jólagjöf koma gjarnan og fá búrið og sækja svo fiskana eftir jól. Verð á fiskum er frá 200 krónur og upp úr. Hægt er að gera fiskum dagamun í fæðu því við erum með svokallaðan sunnudagsmat fyrir þá. Við erum líka með mikið úrval tamdra fugla en verð á þeim er frá 6000-500.000 þúsund. Sem dæmi um vinsældir þessara fugla má nefna að við fengum 25 fugla fyrir 2 vikum síðan en nú eru aðeins þrír eftir. Ef fólk vill kaupa gjafir handa fuglum mæli ég með þroskaleikföngum og naghlutum sem eru þroskandi leikföng fyrir þá. Fuglar eru nagdýr í eðli sínu og ef þeir hafa ekkert til að naga er hætta á að þeir fari að skemma hluti. Margir fuglanna eru með greind á við 5 ára barn og þurfa því að hafa eitthvað fyrir stafni. Við erum líka með fylgihluti og gjafir fyrir nagdýr en það má gefa þeim nammistangir og leikföng um jólin. Fyrir ketti erum við með ólar og kattaklósett sem er alveg eins og kattasandur í kassa nema það er lok yfir“, segir Tjörvi og bætir við að þetta komi í veg fyrir að sandurinn fari út um allt.“ I Furðufuglum og fylgifiskum er hægt að fá hundaföt og kjóla á smærri hunda, fötin eru hand- saumuð og oftast úr ull. Þá er hægt að fá lopapeysur á hunda en verð á hundafötum er á bilinu 2800-3900 krónur. „Við höldum námskeið fyrir fólk sem er að kaupa sér gæludýr og seljum dýrin með ábyrgð. Fólk verður að athuga að kaupi það fiska þurfa þeir að passa saman og svo er mikilvægt að þeir hafi rúmt í kringum sig og því betra að kaupa stærri búr en minni. Það er stór hluti af uppeldi barna að eiga gælu- dýr og þannig læra börn að bera ábyrgð á dýrinu. Það er oft fyrsta sorg barnsins þegar gæludýrið deyr og því ennþá mikilvægara að hugsa vel um dýrin. Oft er það þannig að dýr sem börn fá í gjafir enda með því að verða á ábyrgð foreldranna“, segir Tjörvi. Hann segir Furðufulga og fylgifiska halda úti neyðarvakt og þar geti fólk hringt ef eitthvað kemur upp á með dýrin. hugrun@vbl.is

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.