blaðið - 02.02.2006, Side 4
4 I IWWLEWDAR FRÉTTIR
FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2006 blaðið
Dæmdir fyrir
ránstilraun
mbl.is I Tveir karlmenn á þrítugs-
aldri voru í gær dæmdir í fangelsi
fyrir ránstilraun og fíkniefnabrot
í Héraðsdómi Reykjavíkur. Fékk
annar maðurinn tólf mánaða
fangelsisdóm en hinn tíu mánaða.
Mönnunum var gefið að sök að hafa
farið inn í lyfjaverslun í Reykja-
vík í júlí síðastliðið sumar með
hulin andlit, annar vopnaður hnífi
en hinn skrúfjárni. Þeir ógnuðu
starfsmanni og eftir að hafa leitað
í lyfjaskápi hurfú þeir tómhentir
á hraut. Annar maðurinn var enn-
fremur fundinn sekur um að hafa
farið inn á pítsustað, hótað þar
starfsmanni og horfið á braut með
rúmlega 10.000 króna ránsfeng.
Fékk sá lengri dóminn. Báðir voru
mennirnir í talsverðri fíkniefna-
neyslu þegar brotin áttu sér stað.
Lítill áhugi
á hvalkjöti
mbl.is I Könnun sem Gallup gerði
í október síðasthðnum sýnir að
um 84% íslendinga keypti ekki
hvalkjöt síðustu tólf mánuðina
á undan. Skoðanakönnunin var
gerð af alþjóðlegu dýraverndunar-
samtökunum IFAW. Aðeins 7,6%
íslendinga keypti hvalkjöt þrisvar
sinnum eða oftar síðastliðna 12
mánuði, 3,9% þjóðarinnar keypti
það tvisvar og 7,6% keypti hvalkjöt
einu sinni á umræddu tólf mánaða
tímabili. Samkvæmt upplýsingum
frá Náttúruverndarsamtökum
tslands leiðir könnunin einnig í
ljós að 64% þjóðarinnar telji að
eftirspurn eftir hvalkjöti innanlands
sé lítil en 22,2% telja hana mikla.
Strætó milli
Selfoss og
Reykjavíkur
Bæjarstjórn Árborgar kannar nú
möguleikana á því að koma á fót
strætisvagnaferðum milli Reykja-
víkur og Selfoss. Þetta kom fram í
fréttablaðinu Sunnlenska í gær-
morgun. Samkvæmt könnun frá
árinu 2004 sækja um 10% íbúa Ár-
borgar vinnu til höfuðborgarinnar.
íslandsbanki
hækkar vexti
íslandsbanki ákvað í gær í fram-
haldi af stýrivaxtabreytingu
Seðlabanka íslands að hækka
óverðtryggða inn- og útlánsvexti.
Innlán hækka um 0,1% til 0,25%
og útlán hækka um 0,25%.
Viðbúnaði versl-
ana vegna rána
velt út í vöruverð
Langflest rán eru framin á höfuðborgar
svœðinu. Litlar verslanir eru oft á tíðum ber
skjaldaðar gegn rœningjum ogþjófum.
Þjófnaðir og rán eru sameiginlegt
vandamál atvinnurekenda og laun-
þega að mati framkvæmdastjóra
Samtaka verslunar og þjónustu
(SVÞ). Kostnaði verslana vegna
fyrirbyggjandi aðgerða er velt út í
vöruverðið.
Flest rán á höfuðborgarsvæðinu
Eins og fram kom í Blaðinu f gær fjölg-
aði ránum um 30% á sfðasta ári miðað
við árin þar á undan. 1 fyrra voru
ffarnin 52 rán samkvæmt tölum frá
embætti ríkislögreglustjóra en að með-
altali voru framin árlega um 36 rán frá
2000 til 2004. Ránin virðast fyrst og
fremst beinast að söluturnum og mat-
vöruverslunum og þá eiga langflest
ránin sér stað á höfuðborgarsvæðinu.
Svo dæmi sé tekið voru framin 35 rán í
heildina árið 2004 ogþar af 24 á höfuð-
borgarsvæðinu eða rúmlega 68%.
Öryggið meira hjá stærri aðilum
Samtök verslunar og þjónustu brugð-
ust við fjölgun rána á sínum tíma
með því að fara af stað með verkefnið
Varnir gegn vágestum til að hjálpa
verslunareigendum og starfsfólki að
bregðast við ránum og ránstilraunum.
Sigurður Jónsson, framkvæmdastjóra
SVÞ, segir menn hafa miklar áhyggjur
af þróun mála og telur verslanir mis-
jafnlega í stakk búnar til þess að taka á
vandamálinu. „Það er frekar hugað að
þessum öryggismálum í stórum fyrir-
tækjum heldur en smáum. Hjá stærri
aðilum starfa í mörgum tilvikum
sérstakir öryggisfulltrúar sem
vinna eingöngu að öryggis-
og forvarnar-
málum.Þar
er ástandið
mikið betra
heldur en i
söluturnum
úti í bæ. Það
má segja að
söluturnar
verði oftast
fyrir þessu
enda eig-
endaskipti
tíð og
allur við-
búnaður í
lágmarki."
Þá bendir
Sigurður á að
þó ræningjar
komist sjaldan í
burtu með stórar
upphæðir sé kostn-
aður verslana tölu-
verður vegna þessa. „Þetta
þýðir að menn þurfa að festa
Lögreglan í Reykjavík birti í gær myndir úr eftirlits-
myndavél Happdrættis Háskólans af ráninu
sföastliðinn mánudag. Myndin sýnir
m.a. ungan mann í bláleitum
samfestingi meö hettu og f
hvítum skóm með svörtum
röndum. Maðurinn tók
um 93 þúsund krónur úr
afgreiðslukassa áðuren hann
hijóp á braut og skildi eftir
reiðhjól sem hann kom á. Leit
stendur enn yfir að mann-
inum og hefur lögreglan
í Reykjavík beðið alla þá
sem geta gefið upplýsing-
ar um málið að gefa sig
fram.
kaup á myndavélum
og jafnvel ráða sérstaka
öryggisverði. Þetta er tölu-
vert mikill kostnaður og
allt Ieggst þetta ofan á vöru-
verð. Þetta er sameiginlegt
vandamál atvinnurekenda og
launþega og það er mikilvægt að
menn fari sameiginlega í málið og
finni góða lausn á því.“
Ovenjulegur ferill Þorsteins
Þorbjörn Broddason, prófessor, segir Fréttablaðið vilja skapa sér
ákveðinn virðuleika með ráðningu Þorsteins Pálssonar ritstjóra
„Þarna fer auðvitað þrautreyndur
maður með mjög mikla reynslu
þannig að Þorsteinn er mikill liðs-
auki, á því er enginn vafi,“ segir
Þorbjörn Broddason, prófessor
við félagsvísindadeild Háskóla
fslands. „En auðvitað er orðið
langt síðan hann var blaðamaður
og þannig er erfitt að ímynda sér
að hann setji einhvern algjörlega
nýjan svip á blaðið.“ Þorbjörn
segir varla hægt að sjá fyrir sér
ráðsettari mann en Þorstein Páls-
son „og þó að þetta séu nú mjög
ólíkir menn, hann og Kári Jónas-
son, þá eru þeir báðir ráðsettir.
Þannig má segja að með ráðningu
þessara manna sé blaðið að kaupa
sér ákveðinn virðuleika."
Sérstök staða komin upp
„En þetta er auðvitað mjög sérstæð
staða sem komin er upp, að aðstoð-
armaður fyrrum forsætisráðherra
sé orðinn yfirmaður hans og yfir
þeim trónir síðan götublaðastrák-
urinn sem einu sinni var. Þarna er
röðin orðin talsvert önnur en menn
hafa átt að venjast og held ég að fáir
hefðu þorað að spá þessu fyrir ekk-
ert svo löngu síðan." Þorbjörn þekkir
ekki fordæmi þess erlendis frá að
fyrrum forsætisráðherra hafi verið
Þorbjörn útilokar ekki að ráðning
Þorsteins tengist ráðningu Ara Edwald f
forstjórastól Dagsbrúnar.
ráðinn ritstjóri á útbreiddu dagblaði.
„Það er auðvitað alls ekki óþekkt
að menn ferðist á milli stjórnmála
og blaðamennsku. En ég man ekki
nein dæmi um nákvæmlega þennan
feril. Nærtækasta dæmið hér á landi
er hins vegar líklega þegar Bjarni
Benediktsson fór úr ráðherrastóli
árið 1956 og gerðist ritstjóri Morgun-
blaðsins. Það er svona það næsta sem
maður kemst 1 hliðstæðum. En að
öllu öðru leyti er það dæmi gjörólíkt
þar sem Bjarni var í forystusveit síns
flokks og hann beitti sér í sínu mál-
gagni þangað til hann komst aftur
til pólitískra valda. Því fer hins
vegar víðsfjarri að Fréttablaðið og
þeir sem því ráða vilji stimpla sig á
nokkurn hátt sem eitthvað málgagn
Sj álfs t æðisflokksi ns.“
Hraustlegt að nenna
að standa í þessu
Ferill Þorsteins er á allan hátt dá-
lítið óvenjulegur að mati Þorbjörns.
„Hann er felldur úr formanssæti en
heldur þó áfram þátttöku í stjórn-
málum og tekur þátt í ríkisstjórn.
Síðan dregur hann sig í hlé sem emb-
ættismaður á virðulegan hátt. Hann
skýtur svo allt í einu upp kollinum
þarna og ef ég ætti að setja mig í
hans spor finnst mér þetta nú fremur
hraustlegt af honum, að hann nenni
að standa í þessu.“ Þorbjörn sér ráðn-
ingu Þorsteins í ákveðnu samhengi
við ráðningu Ara Edwald í forstjóra-
stól Dagsbrúnar. „Þeir eru gamlir
samstarfsmenn og menn þurfa ekk-
ert að útiloka það að þetta hafi verið
rætt samtímis, að þeir hafi komið
saman í einhverjum pakka, án þess
að ég viti nokkuð um það.“
Vöruskiptahalli
aldrei meiri
Útlit er fyrir að vöruskiptahalli í
desember hafi numið á bilinu 5-7
milljörðum króna að mati Grein-
ingadeildar íslandsbanka. Það þýðir
að vöruskiptahalli síðasta árs hafi
numið um 95 milljörðum króna
sem er um 10% af landsframleiðslu.
Vöruskiptahallinn hefur aldrei
áður mælst jafn mikill á einu ári í
krónum talið og leitaþarf sex ára-
tugi aftur í tímann til að finna ár þar
sem hann var álíka mikið hlutfall
af landsframleiðslu. í morgunkorni
íslandsbanka í gær segir að ekki sé
útlit fyrir verulegan bata á viðskipta-
jöfnuði í ár. „En á næsta ári gerum
við ráð fyrir að hallinn minnki í
rúm 7% í kjölfar gengislækkunar
krónu og stórauldnnar framleiðslu-
getu í áliðnaði. Jöfnuður gæti sfðan
náðst á utanríkisviðskiptum fyrir
lok áratugarins ef okkar spá gengur
eftir,“ segir í morgunkorninu.
H ÚSGAGNA
Bæjarlind 14-16, Kópavogi
LINDIN
10.000 MÖGULEIKAR - fyrirfólkmeð
sjálfstæðan smekk
Þú velur sófa
Þú velur stól
Þú velur áklæði
Þú velur lit
Þú hannar
Bara gaman
Xavira Sessalong + 3 púðar Cube sófasett 2.5+1+1+4 púðar
Áklæði frá kr 48.000 Áklæði frá kr 104.000
Leður frá kr 77.000 Leöur frá kr 172.000