blaðið - 02.02.2006, Page 8
8 I ERLENDAR FRÉTTIR
FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2006 blaöió
Olía frá Miðausturlöndum er
lítill hluti af heildarinnflutningi
Bush vill að Bandaríkin dragi stórlega úr innflutningi á olíufrá Miðausturlöndum og leggi áherslu á þróun annarra orku-
gjafa. Sérfrœðingar telja að það komi til með að breyta litlu þar sem stærsti hluti innfluttrar olíu komifrá öðrum svœðum.
Sérfræðingar telja að áætlun Bandaríkjaforseta um að draga stórlega úr innflutningi
á olíu frá Miðausturlöndum komi til með að hafa lítil áhrif þar sem megnið af innfluttri
olíu komi annars staðar frá.
George Bush, Bandaríkjaforseti,
sagði að Bandaríkin væru háð olíu
frá Miðausturlöndum í stefnuræðu
sinni á þriðjudag. Samkvæmt áætl-
unum Bush verðurdregið úrinnflutn-
ingi á olíu frá Miðausturlöndum um
75% fyrir árið 2025. Af þeim sökum
telur Bush nauðsynlegt að þróa nýja
tækni og aðra orkugjafa.
Bush hefur gert áætlun til sex ára
sem miðar að því að gera etanólelds-
neyti að raunhæfum og samkeppn-
ishæfum kosti. Hann hét því að
fjármagna frekari rannsóknir á fram-
leiðslu etanóls, ekki aðeins úr korni
eins og algengast er heldur einnig
úr viðarspænum og grasi. Framlög
til slíkra rannsókna verða aukin um
22%. Ennfremur kynnti hann áætl-
anir um byggingu fleiri kjarnorku-
vera. Markmiðið er að Bandaríkja-
menn muni í framtíðinni ekki verða
háðir olíu frá Miðausturlöndum.
Gagnrýnendur efast þó um að
Bush muni leggja það sem til þarf í
slíkar rannsóknir og benda meðal
annars á að hann hafi áður kynnt
svipaðar hugmyndir en það hafi
haft lítil áhrif á verð eða olíubirgðir
í landinu. Bush hefur fjallað um
nauðsyn þess að Bandaríkin verði
ekki háð innflutningi á olíu frá út-
löndum í hverri einustu stefnuræðu
sinni síðan hann tók við embætti. Á
sama tíma hefur hlutfall innfluttrar
olíu aukist úr 53% í 60% í Bandaríkj-
unum. Sérfræðingar í orkumálum
benda jafnframt á að markmiðið
um að minnka innflutning olíu frá
Miðausturlöndum um 75% hafi ekki
eins mikil áhrif og líti út fyrir þar
sem Bandaríkjamenn kaupi meiri
olíu frá Mexíkó, Kanada og Venesú-
ela. Innflutningur frá Miðaustur-
löndum nemur aðeins um 11% af
olíuneyslu í Bandaríkjunum sem er
lægra hlutfall en þegar Bush varð
forseti og í raun hefur innflutningur
aukist frá öllum öðrum svæðum en
þessu.
Gæti orðið kosningamál
Jafnframt endurspeglar áhersla Bush
á að dregið verði úr innflutningi á
olíu áhyggjur Bandaríkjamanna af
síhækkandi gas- og hitunarkostn-
aði. Það gæti orðið að stóru kosn-
ingamáli í þingkosningum í landinu
síðar á árinu, ekki síst í ljósi þess að
olíufélög skila methagnaði þessa
dagana. Ennfremur benda sumir á
að forsetinn eigi sjálfur hagsmuna
að gæta í olíuiðnaðinum. „Forsetinn
sagði í kvöld að Bandaríkjamenn
væru háðir olíu en stjórn hans er háð
olíufyrirtækjunum og við munum
ekki verða sjálfstæð í orkumálum
fyrr en stjórnin brýst undan fíkn
sinni,“ sagði Charles Schumer, öld-
ungadeildarþingmaður demókrata.
Um 160 manns slösuðust í átökunum í
Amona.
Átök í Amona
Israelskar hersveitir luku niðurrifi
níu húsa í Amona, ólöglegri land-
nemabyggð á Vesturbakkanum í gær.
Til átaka koma á milli ísraelskra her-
og lögreglumanna og mótmælenda
vegna aðgerðarinnar og slösuðust
um 160 manns og tugir voru hand-
teknir. Um 5.000 stuðningsmenn
landnema höfðu safnast saman
til að sýna þeim stuðning í verki.
Þetta var í fyrsta skipti sem
ísraelskir landnemar voru fluttir
nauðugir á brott síðan í fyrrahaust
þegar Israelsmenn yfirgáfu byggðir
á Gasaströnd og hluta Vesturbakk-
ans. Litið var á rýmingu og niðurrif
byggðarinnar sem prófraun fyrir
Ehud Olmert, starfandi forsætis-
ráðherra Israels, sem lýst hefur
yfir að hann muni taka hart á
landnemum sem brjóti lögin.
Ef Olmert verður kosinn forsæt-
isráðherra í þingkosningunum í
mars er búist við að hann muni láta
rýma og rífa fleiri landnemabyggðir
Israelsmanna á Vesturbakkanum,
ýmist einhliða eða samkvæmt
samkomulagi við Palestínumenn.
Háttsettur félagi í Hamas-samtökunum var borinn til grafar í bænum Jenín á Vestur-
bakkanum í gær. (sraelsmenn skutu tvo félaga f Hamas til bana á þriðjudag í fyrstu
mannskæðu átökunum sem eiga sér stað síðan Hamas-samtökin unnu sigur í þingkosn-
ingunum f Palestínu sem talinn er marka tfmamót í stjórnmálum Miðausturlanda.
AIA >-(<) I írr V ERHHRUN
háá-QýGafhluldL
J Opið virka daga frá kl. 10-18
Engjateigi 5 • Sími 581 2141 Laugardaga frá kl. 10-16
C N
BÓKAMARKAÐUR 2006
Árlegur Bókamarkaður Félags íslenskra
bókaútgefenda verður í Perlunni og á
Akureyri 23. febrúar til 5. mars
næstkomandi. Útgefendum sem vilja
bjóða bækur sínar á markaðinum er
bent á að hafa samband við Félag
íslenskra bókaútgefenda sem fyrst í
síma 511-8020 eða á netfangið
baekur@simnet.is
Aðeins verður tekið við bókum
sem komu út 2004 eða fyrr.
FÉLAG ÍSLENSKRA
BÓKAÚTGEFENDA
______________/
Blair beygir ekki af leið í írak
Forsætisráðherra Breta segir mikilvægt að Bretar Ijúki ætlunarverki sínu í írak. Mótmæli
vegna veru hersins í írak magnast. Hundrað hermenn hafa látist við skyldustörfí landinu
Kona les nöfn breskra hermanna sem fallið hafa í frak við minningarathöfn fyrir fram-
an breska þingið á þriðjudag. Hundrað breskir hermenn hafa fallið í frak sfðan innrásin
var gerð árið 2003. Tony Blair hyggst ekki kalla hersveitir heim í bráð frá landinu.
Tony Blair, forsætisráðherra Bret-
lands, hefur heitið því að beygja
ekki af leið í írak þrátt fyrir að
hundrað breskir hermenn hafi fallið
í landinu síðan innrásin var gerð í
mars árið 2003. Hann sagði að fall
hermanns væri alltaf harmleikur en
fólk yrði að skilja mikilvægi þess að
Bretar lykju ætlunarverki sínu. „Það
er mikilvægt vegna þess að það sem
á sér stað í Afganistan og írak er að
fólk í þessum löndum vill segja skilið
við hryðjuverk og öfgastefnu og vilji
taka upp lýðræði," sagði Blair.
Jack Straw, utanríkisráðherra
Breta, sagði í gær að verið væri að
kanna möguleika þess að draga
smátt og smátt úr herafla landsins
í írak. „Ég held að við megum eiga
von á góðum fréttum á næstu 12
mánuðum í því efni,“ sagði hann í
viðtali við breska ríkisútvarpið.
Mótmæli víða um Bretland
Mikil mótmæli hafa verið gegn veru
breska hersins í Irak í tilefni þess að
hundraðasti breski hermaðurinn
féll í vegasprengingu fyrr í vikunni.
Á þriðjudagskvöld voru mótmæli
mbl.is | Fæðingardeildir í Noregi
eru fullskipaðar af sængurkonum.
„Hér er allt fullt,“ var svarið sem ein
barnshafandi kona með hríðir á
fimm mínútna millibili fékk á fæð-
ingadeildinni í Ahus í Lörenskog.
Ragnhild Matre hringdi á undan
sér en var beðin að fara annað. „Ég
hafði farið á fæðingarnámskeið.
þar og svo þegar ég var komin
með hríðir stóð ég frammi fyrir
vali sem ég hafði ekki hugsað út í,“
sagði hún í viðtali við norska blaðið
Aftenposten.
Blaðið skýrir frá því að hún hafi
að lokum komist að og eignast son-
inn Simon á fæðingardeildinni
við breska þinghúsið og svipuð mót-
mæli og minningarstundir hafa
verið skipulagðar á fleiri stöðum í
landinu.
Um 8.000 breskir hermenn eru
í suðurhluta Iraks, einkum í borg-
inni Basra og í nágrenni hennar.
Vandamál hafa skapast á fæðingardeild-
um í Noregi vegna fjölda sængurkvenna.
á sínu sjúkrahúsi og að allt hafi
gengið að óskum.
Foringjar í breska hernum segja
að hætta hafi aukist á svæðinu á
undanförnum mánuðum þar sem
vegasprengjur skæruliða verði sífellt
skæðari.
Ben Bernanke ásamt George
Bush, Bandaríkjaforseta.
Bernanke sver
embættiseið
Ben Bernanke sór í gær embættiseið
sem nýr formaður stjórnar banda-
ríska seðlabankans. Forveri hans,
Alan Greenspan, lét af störfum í
gær eftir að hafa gegnt embættinu
í rúm 18 ár. Tilnefning Bernanke
var staðfest í fyrradag og mun
hann starfa næstu íjögur árin sem
yfirmaður bandaríska seðlabank-
ans. Embættið er hið valdamesta á
sviði efnahagsstjórnar í heiminum.
Fæóingardeildirnar
yfirfullar í Noregi
V