blaðið - 02.02.2006, Side 10
10 I ERLENDAR FRÉTTIR
FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2006 blaöiö
Laða að sér
maka með söng
Hvalir nota söng til að laða hitt
kynið að sér samkvæmt nýrri
ástralskri rannsókn. Vísindamenn-
irnir sem hafa rannsakað hegðun
hnúfubaka undan strönd Queens-
land í þrjú ár segja að karlkynshvalir
syngi stundum í allt að sólarhring
í þessum tilgangi. Kvenkyns
hnúfubakar meta karlinn síðan
út frá eiginleikum söngsins. Þetta
er í fyrsta sinn sem hópur vísinda-
manna finnur út tengsl milli söngs
og mökunaratferlis hjá hvölum.
Umdeildar skopmyndir birtar víðar
Fleiri dagblöð í Evrópu birtu skopmyndir í gær afMúhameð sem valdið hafa mikilli reiði
meðal múslima. Danskurþingmaður hvattifólk til að sniðganga fyrirtœki múslima.
Nokkur dagblöð í Evrópu birtu í gær
umdeildar skopmyndir af Múhameð
spámanni sem upphaflega birtust í
Jótlandspóstinum og hafa vakið reiði
múslima víða um heim. Franska
blaðið France Soir birti allar mynd-
irnar 12 sem birtust í Jótlandspóst-
inum en þýska blaðið Die Welt birti
fimm þeirra, þar af eina á forsíðu.
Að auki birtir France Soir myndir af
Guði, Búdda og Múhammeð undir
fyrirsögninni: „Já við höfum rétt til
að gera grín að guði.“ France Soir
kveðst hafa birt skopmyndirnar í
nafni tjáningarfrelsis og til að berjast
gegn skorti á trúarlegu umburðar-
lyndi. „Vegna þess að þeir sem aðhyll-
ast trúarkreddur geta ekki þröngvað
skoðunum sínum upp á lýðræðislegt
og veraldlegt samfélag birtir France
Soir þessar teiknimyndir," segir í
blaðinu.
Danir hvattir til að snið-
ganga fyrirtæki múslima
Hægri menn í Danmörku hafa hvatt
almenning til að sniðganga verslanir
og fyrirtæki í eigu múslima út af mál-
inu og meðal annars sendi Louise Fre-
vert, þingmaður danska Þjóðarflokks-
ins, SMS-skilaboð þess efnis til vina
sinna og kunningja. Stjórn flokksins
gagnrýndi hana harðlega fyrir þetta
og Anders Fogh Rasmussen, forsæt-
isráðherra, hvatti Dani til að sýna
samstöðu og láta ekki deiluna koma
niður á saklausu fólki.
Carsten Juste, aðalritstjóri Jót-
landspóstsins, sem baðst afsökunar
á myndbirtingunum á mánudag
segir að andstæðingar málfrelsis hafi
unnið sigur í deilunni. „Það er jú það
óhugnanlega við það. Ég spái því að
enginn muni teikna spámanninn Mú-
hammeð í Danmörku á næsta manns-
MISSTU EKKI
AF ÞRÆÐINUM
Notaðu tannþráð daglega.
Hann nær þangað sem þurstinn kemst ekki
og munnurinn verður hreinni og heilþrigðari
U T
L A
25-55%
afsláttur
af gólf- og veggflísum!
Dnghtla Kf6l,l>|~j^» ■ LthUI. I / «2» %
HARÐVIÐ ARVAL
Krókhálsi 4 • 110 Reykjavík
Sími 567 1010
www.parket.is
Maöur í Barein virðir fyrir sér danskar mjólkurvörur í stórmarkaði f Manama. Múslimar
víða um heim hafa sniðgengið danskar vörur vegna birtingar umdeildra skopmynda.
aldri og því verð ég að segja að þeir
hafa unnið,“ sagði hún í viðtali við
Berlingske Tidende. Ritstjórinn sagði
jafnframt að hann hefði ekki leyft
birtingu myndanna hefði hann vitað
hvaða afleiðingar það myndi hafa.
Stjórn Blaðamannafélagsins
fundar um málið
Samtök blaðamanna á Norðurlönd-
unum hafa ekki enn gefið frá sér yfir-
lýsingu vegna málsins að sögn Örnu
Schram, formanns Blaðamannafé-
lags Islands. Arna hefur sent öllum fé-
lögum blaðamanna á Norðurlöndum
fyrirspurn um hvort þau hyggist
bregðast sameiginlega við málinu.
Stjórn Blaðamannafélags Islands
kemur saman á föstudaginn til að
ræða málið.
Saddam neitar að
mæta fyrir réttinn
Saddam Hussein, fyrrverandi forseti
Iraks, fjórir meintir samverkamenn
hans og lögmenn þeirra mættu ekki
fyrir rétt í gær til að mótmæla til-
nefningu nýs yfirdómara.
Raouf Abdel Rahman, yfirdóm-
ari, sagði að hann myndi halda
réttarhöldunum áfram án þeirra og
lögmenn tilnefndir af dómstólnum
tóku við af verjendum Saddams.
„Þrátt fyrir persónulegar tilraunir
mínar til að fá þá til að vera við rétt-
arhöldin neituðu verjendur að gera
það,“ sagði Jaafar al-Musawi, yfirsak-
sóknari sem hvatti dómarann til að
neyða sakborninga til að mæta fyrir
Saddam Hussein mætti ekki í réttarsal og
mótmælti þannig nýjum yfirdómara.
réttinn. Réttarhöldunum var frestað
til dagsins í dag eftir að fimm vitni
saksóknara höfðu borið vitni. Öll
gáfu þau vitnisburð sinn fyrir aftan
tjald til að þau þekktust ekki.
Stórt fjársvikamál
kemur upp í Hollandi
mbl.is | Hdlensk yfirvöld hafa hand-
tekið sjö manns, þ.á.m. fyrrum
starfsmann í heilbrigðisráðuney tinu,
í tengslum við fjársvikamál. Fram
kemur að um 22 milljónir evra, sem
jafngildir tæpum 1,7 milljörðum ís-
lenskra kr„ hafi verið sviknar út úr
ráðuneytinu.
I yfirlýsingu frá hollenska sak-
sóknaranum kemur fram að hand-
tökurnar hafi átt sér stað fyrir
nokkrum mánuðum og að ekki liggi
ljóst fyrir hvort ráðuneytið muni fá
féð til baka.
Sjömenningarnir eru ákærðir
fyrir fals, fjársvik, fyrir að múta
ríkisstarfsmanni og fyrir aðild að
glæpastarfssemi milli áranna 2002
og 2003.
Fjórir sakborninganna hafa
verið leystir úr haldi. Ekki er búið
að ákveða hvenær réttarhöld muni
hefjast.
Andalúsískur knapi heldur á kyndli við opnunarathöfn Alþjóðlegrar nautahátfðar í Se-
villa á Suður-Spáni. Hátíðin sem hófst f gær er haldin til heiðurs hinu sérstaka nautakyni
sem leitt er til slátrunar við hefðbundið nautaat á Spáni.