blaðið - 02.02.2006, Blaðsíða 15
blaóiö FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2006
ÁLIT I 15
Hreinar tennur - heilar tennur
Börn undir sex ára aldri eiga ekki aö skammta sér tannkrem. Fram aö tveggja ára aldri,
ætti aö nota það magn tannkrems sem þekur fjórðung naglar á litla fingri barnsins, en
eftir að allar tennur eru komnar upp og til sex ára aldurs, ætti þaö að þekja alla nöglina.
Tannheilsa er
jafn mikilvæg og
almenn heilsa.
Hreinar og heilar
tennur bæta
almenna líðan
en skemmdum
tönnum og bólgnu
tannholdi getur Hólmfríður
fylgt vanlíðan. Guðmunds-
Eigin tennur alla dóttir
ævierueftirsóknar- ”
verð lífsgæði og það er undir okkur
sjálfum komið hvernig til tekst.
Tannkrem eru gerð til að halda
tönnunum hreinum og heilum og í
þeim eru ýmis efni sem gegna því
hlutverki. Munnholið er bústaður
baktería og ákveðnar tegundir þeirra
líma sig við yfirborð tannanna og
mynda þar skán. Skánina þarf að
hreinsa burt með reglulegu milli-
bili og það er gert með aðstoð tann-
krems, tannbursta og tannþráðar. Ef
stöðugt er verið að borða og mikið er
af sykri í fæðunni, myndast skánin
hraðar. Ef tennurnar eru ekki hreins-
aðar reglulega og skánin nær að safn-
ast fyrir hindrar hún það að munn-
vatnið komist að yfirborði tannanna
og tannskemmdir geta myndast. Sá
tími sem það tekur tannskemmdina
að grafa sig í gegnum glerunginn er
breytilegur, frá nokkrum mánuðum
upp í nokkur ár. Hægt er að stöðva
tannskemmd á byrjunarstigi og
lækna eða endurherða glerunginn
en ef skemmdin er komin í gegnum
glerunginn og inn í tannbein verður
að hreinsa burt skemmdan tannvef
og setja fyllingu í staðinn.
Til að verjast tannskemmdum,
draga úr hraða eða lagfæra tann-
skemmd á byrjunarstigi er mælt
með notkun flúors en regluleg
notkun á flúortannkremi minnkar
líkur á myndun tannskemmda um
25%. Flúor er mikilvægasta efnið í
tannkremi. Mælt er með tannkremi
með flúorstyrko,i% við tannburstun
barna yngri en sex ára en eldri ald-
urshópar geta valið um tannkrem
með flúorstyrk frá 0,10% upp í 0,15%.
Börn kyngja almennt stórum hluta
tannkremsins sem upp í þau fer og
því er mikilvægt að börn undir sex
ára aldri skammti sér það ekki sjálf
og öruggast að geyma tannkremið
þar sem þau ná ekki í það. Við tann-
burstun barns sem er að taka sínar
fyrstu tennur og fram að tveggja ára
aldri ætti að nota það magn flúort-
annkrems sem nemur einum fjórða
af stærð naglar á litla fingri barnsins.
Þegar allar barnatennurnar tuttugu
eru komnar upp og til sex ára aldurs
ætti að nota það magn flúortann-
krems sem samsvarar allri nögl
barnsins á litla fingri.
Sótthreinsiefnum er bætt í
ákveðnar tegundir tannkrema og
þannig reynt að halda munnbakter-
íum í skefjum. Tríklósan er eitt þess-
ara efna og hefur sýnt sig að degur úr
bólgum í tannholdi þó áhrif á tann-
skemmandi bakteríur séu minni
en vonir voru bundnar við. Verið
er að rannsaka áhrif broddmjólkur
í tannkremi en ennþá bendir flest
til þess að jákvæð áhrif séu fyrst og
fremst bundin við slímhúð munns
en minna við tannyfirborð. Önnur
efni eru fægiefni ýmiss konar
(s.s. „calcium phosphates, alumina,
calcium carbonate, silicá') en æski
legt er að nota í hófi tannkrem sem
rík eru af fægiefnum. Sápuefnið
„sodium lauryl sulfate" (SLS) finnst
í flestum tannkremstegundum en
virðist geta framkallað munnangur
og því er þeim sem eiga vanda til
þess ráðlagt að nota frekar sápulaus
tannkrem (Zendium).
Börn geta ekki hreinsað tennurnar
nægilega vel sjálf með tannbursta,
flúortannkremi og tannþræði fyrr
en um tíu ára aldur.
Ekki er mælt með því að skola
munn eftir tannburstun, það nægir
að skyrpa. Þannig virkar flúorinn í
tannkreminu lengur og tennurnar
styrkjast.
Höfundur er tannlæknir.
Stórnmálamaður
eins og þeir eiga
að vera
Eftir því sem áhug-
inn vex á væntan-
legu prófkjöri Sam-
fylkingarinnar í
Reykjavík heyrist
þeirri kenningu
oftar fleygt að
oddviti flokksins
í síðustu kosn- Einar
ingum, Stefán Jón Kárason
Hafstein, hafi það
á móti sér að vera
hrokafullur og líta stórt á sig - um-
mæli í þessa veru mátti meðal ann-
ars lesa í annars ágætum pistli Kol-
brúnar Bergþórsdóttur hér í Blaðinu
á dögunum. Svonakenningum er að
sjálfsögðu haldið á lofti af þeim sem
ekki vilja hafa Stefán efstan á lista
í komandi kosningum, andstæð-
ingum hans innan flokks og utan,
en að einhverju leyti er þetta líka
sjálfsprottið í hugum fólks sem ekki
þekkir hann nema úr fjölmiðlum
og misskilja eitthvað í hans fari á
þennan hátt.
Stefán er mikill að vallarsýn
og það er jafnan dálítill sláttur á
honum; brosið er stórt og röddin
á það til að vera drýgindaleg, eins
og algengt er um menn sem vilja
hljóma eins og þeir viti um hvað
þeir eru að tala. En ástæða þess að
ég skrifa þessa klausu er sú að ég hef
verið í góðu vinfengi við manninn í
hálfan fjórða áratug og get því upp-
lýst fólk um að þarna eru á ferðinni
miklar ranghugmyndir. Stefán er
sérstakur drengskaparmaður, einn
af þeim sem maður vildi eiga að í
sjávarháska eða nauðum. Aldrei
hef ég vitað nokkurn sem á í vand-
ræðum sem Stefán er ekki tilbúinn
til að liðsinna, jafnvel þótt það kosti
að hann kasti öllu öðru frá sér. Þetta
kann að hljóma eins og oflof, en ég
veit að aðrir vinir hans hafa sömu
sögu að segja. Hann er meira að
segja svo laus við að líta stórt á sig
að það hefur frekar hamlað hans
eigin stjórnmálaframa, eins og sést
til dæmis á því að þótt Stefán sé
búinn að vera að hrærast í pólitík
af ýmsu tagi í aldarfjórðung þá var
hann lengst af ófáanlegur til að sækj-
ast eftir persónulegum vegtyllum;
og lögðu samt margir að honum að
gera slíkt. Maður sem sækist fyrst
og fremst eftir að púkka undir eigið
egó fer að sjálfsögðu að gera kröfu
að verða valinn til forystu um leið
og hann gengur í flokk, en Stefán
Jón rótaðist í tíu-fimmtán ár í bak-
landi vinstrihreyfingarinnar, að
mestu kauplaust og án þess að kalla
eftir neinu nema því að baráttumál
hans fengju framgang. Hann vann
kappsamlega að því að Reykjavíkurl-
istinn yrði myndaður og barðist
fyrir því að þeir sem hann skipuðu
næðu sem bestum árangri. Hann
vann líka ötullega að því að Sam-
fylkingin yrði að veruleika og gekk
raunar ekki í neinn flokk fyrr en
á stofndegi hennar. Það var fyrst
fyrir fjórum árum að hann lét tilleið-
ast að bjóða sig fram í prófkjöri og
reyndar með glæsilegum árangri.
Þeir sem vilja kynnast persónu
Stefáns vinar míns ættu til dæmis
að lesa bókina hans frá árinu 2000,
„Fluguveiðisögur“. Þar er hann,
fullur af virðingu og aðdáun á
öllum meisturum þessa fags en ger-
andi góðlátlegt grín að sjálfum sér,
bara þakklátur fyrir að hafa fengið
að læra og vera með. Þannig er
hann. Þess vegna styð ég hann í pól-
itík; það kennir okkur sagan að því
minna sem menn sækjast eftir að fá
að ráða, því betur fallnir eru þeir til
að gera það. Stefán er stálminnugur,
jötunefldur til vinnu og umfram
allt, hann vill öllum vel. Hann væri
bæjarfógeti eins og þeir eiga að vera.
Höfundur er rithöfundur.
Auglýsingar 510 3744
blaöid
Aöalfundur 4. febrúar 2006
Landsbankinn
Aöalfundur Landsbanka íslands hf. veröur haldinn
á Nordica hótel laugardaginn 4. febrúar kl. 14.
Dagskrá:
1. Skýrsla bankaráðs um starfsemi bankans sl. starfsár.
2. Ársreikningur fyrir liðið starfsár ásamt skýrslu endurskoðenda
lagður fram til staðfestingar.
3. Ákvörðun um greiðslu arðs og meðferð hagnaðar eða taps
á síðastliðnu reikningsári.
4. Tillögur til breytinga á samþykktum.
5. Tillaga um að heimila bankanum að kaupa eöa taka að veði
allt að 10% af eigin bréfum.
6. Kosning bankaráðs.
7. Kosning endurskoðenda.
8. Ákvörðun um þóknun til bankaráðsmanna fyrir næsta kjörtímabil.
9. Önnur mál.
Tilkynna skal um framboö til bankaráös eigi slðar en 5 dögum fyrir aðalfund. Dagskrá,
endanlegar tillögur og ársreikningur félagsins ásamt skýrslu endurskoöenda liggja frammi í
Aðalbanka Landsbankans, Austurstraeti 11, Reykjavik, hluthöfum til sýnis. Einnig er hægt aö
nálgast þessi gögn á www.landsbanki.is
Gerð er tillaga um breytingu á samþykktum félagsins um aö bankaráði verði heimilt aö fela
formanni bankaráðs að sinna ákveönum verkefnum i þágu félagsins umfram þau sem tengjast
reglulegum fundum bankaráðs. Hluthöfum er bent á að kynna sér tillögurnar fyrir fundinn.
Atkvæðaseölar og önnur fundargögn verða afhent við inngang í upphafi fundar.
Bankaráö Landsbanka islands hf.