blaðið - 02.02.2006, Síða 30
30 I ÍPRÓTTIR
FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2006 blaöið
EM í Sviss:
Grátlegt eins marks tap gegn Króötum
Nýi varabúningur
þýska landsliðsins
í knattspyrnu
Enski boltinn:
Henry er ekki enn
búinn að skrifa undir
Franski knattspyrnusnillingurinn
Thierry Henry, seiri leikur með
enska úrvalsdeildarliðinu Arsenal,
hefur ekki enn skrifað undir áfram-
haldandi samning við enska félagið.
Samkvæmt enskum fjölmiðlum
í gær er ástæðan sögð vera sú að
Henry vill fyrst að Arsenal tryggi sér
þátttökuréttinn til að leika í meist-
aradeildinni á næstu leiktíð. Arsenal
er sem stendur í sjötta sæti ensku
úrvalsdeildarinnar og er fjórum
stigum frá fjórða sæti sem gefur
þátttökurétt í meistaradeildinni á
næstu leiktíð. Arsenal er komið í 16-
liða úrslit keppninnar á þessari leik-
tíð og mætir Real Madrid í tvígang
í næsta mánuði. Arsene Wenger,
framkvæmdastjóri Arsenal, er ekki
alveg sáttur við að Henry sé ekki
enn búinn að skrifa undir samning-
inn: „Ég held að hann viti að besta
Ieiðin er ávallt traust, skrifaðu fyrst
undir og náðu síðan árangri,‘' sagði
Wenger.
Samningur Henry við Arsenal
rennur út vorið 2007. „Hann sagði
ekki auglitis til auglitis við mig að
hann ætlaði að skrifa undir nýjan
samning en hann sagðist vilja vera
áfram hér. Fyrir mér er það ná-
kvæmlega það sama,“ sagði Arsene
Wenger í gær í breskum fjölmiðlum.
Fyrir einum þremur vikum var
haft eftir Thierry Henry i enskum
fjölmiðlum að hann vildi vera áfram
hjá Arsenal og þar með héldu flestir
að hann væri að fara að skrifa undir
nýjan samning sem myndi tryggja
að þessi 28 ára snillingur léki með
Arsenal næstu fimm árin eða svo.
Einhver skjálfti virðist vera kominn
í herbúðir Arsenal vegna málsins og
hver veit hvað gerist á næstu vikum
eða mánuðum með Thierry Henry.
Skíði:
Elsastóð
sig vel
í gær keppti Elsa Guðrún
Jónsdóttir í 5 kílómetra göngu
á heimsmeistaramóti unglinga.
Keppt var í Slóveníu með hefð-
bundinni aðferð. Elsa Guðrún
stóð sig ágætlega og varð í 58.
sæti af 82 keppendum. Hún var
tveimur mínútum og tíu sek-
úndum á eítir sigurvegaranum,
Astrid Jakobsen frá Noregi.
Fyrir þessa frammistöðu fékk
Elsa Guðrún 159 FIS punkta
og heldur því áfram að bæta
punktastöðu sína. Hún hefur
þar með fengið 283 FIS punkta
og hefur hækkað sig um 167
punkta á nýjum lista sem birtur
var í gær. Elsa Guðrún heftir
að auki hækkað sig verulega á
heimslistanum en hún var í 724.
sæti en er nú í 441. sæti. Það
verður því gaman að fylgjast
með þessari efnilegu skíða-
göngukonu okkar í framtíðinni
en hún keppir aftur á morgun í
tvíkeppni í 5 kílómetra göngu.
Leikur íslands og Króatíu í gær á
Evrópumeistaramótinu í handknatt-
leik f Sviss var svakalega spennandi
allan tímann. Mestur var munurinn
á liðunum þrjú mörk en yfirleitt var
jafnt á komið með liðunum. ísland
skoraði fyrsta mark leiksins en Kró-
atar skoruðu næstu tvö. Meirihluta
fyrri hálfleiks voru íslendingar yfir
og náðu mest þriggja marka forskoti,
9-6 og 10-7. Þá söxuðu Króatar á for-
skot okkar manna og staðan í hálf-
leik var jöfn, 13-13. Island átti síðustu
sóknina í fyrri hálfleik og hafði 6
sekúndur til að skora en tókst ekki
þrátt fyrir góða tilraun.
Islendingar gerðu mörg mistök í
hraðaupphlaupum sínum í fyrri hálf-
leik og töpuðu boltanum sjö sinnum.
Ekkert íslenskt mark kom úr hraða-
upphlaupi í fyrri hálfleik en það
hefur verið aðall liðsins. Birkir Ivar
varði 14 skot í leiknum, þar af eitt víti.
Einar Hólmgeirsson meiddist á 10.
mínútu en hann hafði þá skorað tvö
mörk. Fara varð með Einar á sjúkra-
hús en hann fékk mikið högg á and-
litið og var talið að um vægan heila-
hristing hafi verið að ræða. I seinni
hálfleik höfðu Króatar frumkvæðið
og náðu tveggja marka forystu, 16-18,
þegar um 8 mínútur voru liðnar. Is-
land komst yfir 19-18 skömmu síðar
og þegar um 13 mínútur voru til
leiksloka var staðan jöfn 20-20. Þá
tóku Króatar af skarið og enginn lék
betur en hinn stórkostlegi leikstjórn-
andi þeirra Ivano Balic sem leikur
með spænska stórliðinu Portland
San Antonio. Hann átti hreinlega
síðustu mínútur leiksins og skoraði
alls 9 mörk. Þegar tvær mínútur
voru til leiksloka var staðan 26-28.
Okkar menn áttu möguleika á að
minnka muninn í eitt mark rúmri
mínútu fyrir leikslok og var auk
þess einum leikmanni fleiri. Það
tókst ekki og Balic stal boltanum,
fékk víti sem Dzomba skoraði úr.
Guðjón Valur minnkaði muninn í
eitt mark þremur sekúndum fyrir
leikslok. Lokastaðan varð því ísland
28 - Króatía 29.
Frábær leikur Ólafs
Ólafur Stefánsson var frábær sem
fyrr í liði Islands og skoraði 8 mörk
auk þess sem hann átti fjölda stoð-
sendinga, Guðjón Valur Sigurðsson
var með 8 mörk, Snorri Steinn Guð-
jónsson 4 og öll komu þau í fyrri hálf-
leik. Róbert Gunnarsson skoraði 3,
Arnór Atlason og Einar Hólmgeirs-
son skoruðu 2 mörk hvor og Ásgeir
Örn Hallgrímsson skoraði 1 mark.
Króatar léku mjög gróft í þessum
leik eins og búist var við og fengu á
sig einar tíu brottvísanir á móti sex
hjá íslandi. Frönsku dómararnir
hefðu alveg getað hent Króötunum
oftar út af og það var til dæmis um
greinilegan ásetning að ræða þegar
lamið var viljandi í Ólaf Stefánsson.
Þá var Guðjón Valur kýldur í kvið-
inn í lok leiks en ekkert var dæmt.
Þar hefði þó átt að dæma víti og tvær
mínútur. En svona eru bara Króatar.
Þeir leika mjög grófan og ljótan leik
oft á tíðum og lymskuleg brot eru
þeirra aðalvopn.
Þar með er ísland í þriðja sæti
milliriðils 2 með 5 stig, en Króatar
og Rússar eru á toppnum með 6 stig.
Leikir dagsins í dag verða gríðarlega
spennandi. Tvö efstu lið riðilsins fara
í undanúrslit og ekki verður ólíklegt
að úr því verði skorið með markatölu.
Leikir dagsins eru: Ísland-Noregur
sem hefst klukkan 17.00 og hinir tveir
leikirnir eru: Rússland-Danmörk og
Króatía- Serbía/Svartfjallaland.
„Örlagastund"
Hvað segir Þorbergur Aðal-
steinsson um leikinn og mögu-
leika íslands í riðlinum?
„Nú er það þannig eins og við
komum inn á í upphafi að það vantar
breidd í hópinn. Varnarleikurinn
var rétt útfærður, gekk vel og mark-
varslan fylgdi ekki í fyrri hálfleik en
í þeim seinni kom markvarslan mjög
sterk inn og vörnin. Þá fór hins vegar
þreyta í mannskapnum að gera vart
við sig. Við misstum Einar Hólmgeirs-
son snemma leiks. Ólafur Stefánsson
átti mjög góðan leik en var greini-
lega orðinn þreyttur í lokin sem og
til dæmis Snorri Steinn. Þessir burð-
arstólpar mega ekki gefa sig og þegar
BlaðWrikki
tiað gerist þá er þetta mjög erfitt.
sland átti fáar lausnir í lok leiksins.
Það hefði mátt prófa að taka Balic al-
veg úr umferð. Birkir ívar hélt okkur
inni í seinni hálfleiknum með mjög
góðri markvörslu. I heildina var leik-
urinn skemmtilegur og góður hand-
bolti var spilaður og þrátt fyrir tap er
ekki hægt að vera svekktur.
Leikurinn í dag snýst um vilja og
ekkert annað. Nú er örlagastund.
Norðmenn eru með góðar skyttur
sem geta skotið af gólfinu og ég tel
að við eigum að leika framarlega á
á. Ég held að þeir ráði illa við það.
g spái því að við vinnum 30-25 og
förum í undanúrslit - vonandi,“
sagði Þorbergur Aðalsteinsson
fyrrum landsliðsþjálfari um leikinn
í gær gegn Krótöum og leikinn gegn
Noregi í dag. Viðureignin gegn Nor-
egi hefst klukkan 17.00 og verður í
beinni útsendingu á RÚV.