blaðið - 02.02.2006, Qupperneq 32
32 I MEWWIWG
MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 2006 blaóið
Heillandi
utangarðskona
Heimildarmynd um Rósku verður sýnd á
RÚV nœstkomandi sunnudagskvöld
Næstkomandi sunnudagskvöld
sýnir Ríkissjónvarpið heimild-
armynd sem Ásthildur Kjartans-
dóttir hefur gert um myndlist-
arkonuna Rósku. „Róska hefur
verið utangarðsmanneskja í
hugum fólks og ég er að vona að
ég geti breytt því með þessari
mynd. Hún var heillandi persóna
með mikla hæfileika og fyrsta
íslenska kvikmyndagerðarkonan,“
segir Ásthildur. „Það má kannski
segja að hún hafi dreift hæfi-
leikum sínum um of. Hún var
flogaveik frá unglingsaldri og
ég held að það hafi staðið henni
fyrir þrifum hvað einbeitingu
varðar. Málverkin hennar eru
frábær en bíómyndirnar eru
tilraunakenndar.“
Hvernig manneskja var hún?
„Fyrst og fremst var hún baráttu-
kona. Listamaður sem fórnaði ýmsu
fyrir list sína, meðal annars fjöl-
skyldulífi. Hún var gift íslenskum
manni og þau eignuðust son. Þegar
fjölskyldan var í Róm kynntist hún
bóhemum og listalífi. Þau sneru
heim og þá er eins og Róska hafi
tekið ákvörðun um að verða ekki
húsmóðir og móðir á Islandi. Hún
yfirgaf fjölskylduna og fór aftur
til Rómar. Þetta var meðvituð
ákvörðun. Hún ætlaði sér ekki að
festast í hefðbundnu hlutverki.
Auðvitað hefur hún einhvern tíma
staldrað við og hugsað hvort hún
væri að gera rétt. Ég held að hún hafi
ekki efast um það.“
Hvernig vegnaði henni í
kvikmyndagerðinni?
„Hún ætlaði sér stóra hluti í kvik-
myndaheiminum og stærsta verk-
efni hennar var myndin Sóley sem
var frumsýnd árið 1982. I þeirri
mynd er hún trú sinni sýn á lífið
en sú mynd er á skjön við íslenskt
samfélag þess tíma. Ég held að það
hafi staðið henni fyrir þrifum að
búa í Róm og hún leit rómantískum
augum á ísland, var upptekin af
álfum, náttúrunni og þjóðsögum og
áttaði sig ekki á þeim breytingum
sem höfðu orðið á íslensku samfé-
lagi. Myndinni var fálega tekið og
það urðu henni mikil vonbrigði.
Hún hafði lagt mikið undir og þarna
brást endanlega vonin um að ná fót-
festu í kvikmyndabransanum. Hún
lagði kvikmyndagerð á hilluna og
hafði hægt um sig í tíu ár. Persónu-
legt líf hennar var einnig erfitt. Hún
flækist í heim eiturlyfjanna og bjó
með manni sem varð fíkninni að
bráð.“
Fjallar heimildarmynd þín um alla
þœtti í lífi Rósku?
„Meginhluti myndarinnar fjallar
um ár hennar á Ítalíu enda bjó hún
þar í þrjátíu ár. Ég vissi lítið um ítal-
íuárin svo ég ákvað að fara til Ítalíu í
eins konar njósnaleiðangur og reyna
að hafa upp á því fólki sem Róska
þekkti og mér tókst það. Ítalíuárin
eru mest spennandi þátturinn i lifi
Rósku. Hún lifði og hrærðist í ítalskri
pólitík og var vinstri sinnaður anar-
kisti. Lóa Aldísardóttir vann hand-
ritið að myndinni með mér og við
töluðum við alla hér heima sem við
náðum í og höfðu þekkt Rósku en
sjálfsagt vantar þar einhverja. Þegar
maður fer af stað að gera heimildar-
mynd veit maður ekki hvaða efni
maður fær en gerir sitt besta. Inn í
þessa mynd vantar helst síðustu ár
Rósku á Islandi. Vitaskuld er gerð
grein fyrir þeim en myndin hefði
kannski mátt verða fyllri. Það var
ákaflega gaman að gera mynd um
þessa mjög svo óvenjulegu konu. Ég
vildi svo sannarlega að það væru til
fleiri Róskur."
Ásthildur Kjartansdóttir.„Það var ákaf-
lega gaman að gera mynd um þessa mjög
svo óvenjulegu konu. Ég vildi svo sannar-
lega að það væru til fleiri Róskur."
BlaMÆrikki
109 SU DOKU talnaþrautir
Lausn síðustu gátu Su Doku þrautin snýst um
aö raða tölunum frá 1-9
lárétt og lóörétt i reitina,
þannig aö hver tala komi
ekki nema einu sinni fyrir
í hverri línu, hvort sem er
lárétt eða lóörétt. Sömu tölu
má aukin heldur aöeins
nota einu sinni innan hvers
níu reita fylkis. Unnt er að
leysa þrautina út frá þeim
tölum, sem upp eru gefnar.
Gáta dagsins
2 6 3
6 2 7 1
4 5 3 6
4 2 7 1
3 8 2 5
8 9 1 2
3 1 4 5
9 5 7
1 9 2 6 4 3 8 7 5
6 5 4 8 7 9 3 1 2
7 8 3 1 2 5 9 6 4
9 3 5 7 1 2 6 4 8
4 1 7 5 8 6 2 3 9
2 6 8 3 9 4 7 5 1
3 4 1 9 6 8 5 2 7
5 7 9 2 3 1 4 8 6
8 2 6 4 5 7 1 9 3
Róska á Bfóbarnum