blaðið - 04.02.2006, Page 10
10 I ERLENDAR FRÉTTIR
LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR 2006 blaðiö
Pólitískt morð
framið í Nepal
mbl.is | Frambjóðandi úr flokki
konungsins í Nepal var skotinn
til bana af maóistum sem réðust
inn á heimili hans á fimmtudags-
kvöld. Maðurinn lést af sárum
sínum i gærmorgun. Hann er
annar frambjóðandinn sem
er drepinn á stuttum tíma en
sveitarstjórnakosningar fara
fram í Nepal 8. þessa mánaðar.
Tuttugu manns týndu lífi í
aðgerðum uppreisnarmanna
í Nepal er beindust gegn
öryggissveitum stjórnvalda
í lok janúar. Árásirnar koma
nákvæmlega einu ári eftir að
Gyanendra konungur leysti
upp ríkisstjórn sína og tók öll
völd í landinu í eigin hendur.
Sjálfsmorðsárás i Afganistan
Afganar virða fyrir sér flak bifreiðar sem sprengd var í loft upp í Khost-héraði i suðausturhluta landsins á fimmtudag. Maður ók bifreið-
inni sem var hlaðin sprengiefni að hermönnum sem voru við eftirlitsstörf og sprengdi því næst bílinn í loft upp. Þrír hermenn fórustu
auk tilræðismannsins og þrír til viðbótar særðust. Bandarískir hermenn voru einnig við eftirlitsstöðina en þá sakaði ekki.
Átta mönnum
rænt í Darfur
héraði í Súdan
mbl.is | Átta mönnum sem
voru við störf í Darfur-héraði
í Súdan á vegum franskra
mannúðarsamtaka hefur verið
rænt. Talið er að starfsmennirnir
séu allir frá Súdan. Starfsmenn-
irnir voru á vegum frönsku
mannúðarsamtakanna Action
Contre La Faim sem berst gegn
hungri í heiminum. Skömmu
áður en þeim var rænt hringdu
þeir með farsíma til skrifstofu
samtakanna í Al-Fashir í Súdan
og sögðu að hópur ío byssu-
manna hefði hrakið þá á brott
og væru þeir í hættu. Skömmu
síðar rofnaði sambandið.
FRÁBÆRT!"
ALLT UM ÚTFLUTNING - EITT NÚMER
Hjá viðskiptaþjónustu Eimskips eru sérfræðingar okkar þér innan handar um allt sem
varðar flutninga. Þar færðu m.a. sérhæfðar upplýsingar og lausnir varðandi útflutning og
við leggjum okkur alltaf fram um að finna bestu og hagkvæmustu lausnina hverju sinni.
Þú einfaldlega hringir í og sérfræðingar okkar sjá til þess að
leiðin verði greið.
Eitur-hvolpar frá Kólumbíu
Smyglarar komafyrir heróíni iðrum hvolpa ogflytja þá meðflugi til Bandaríkjanna
Smyglhringur í Kólumbíu hefur að
undanförnu freistað þess að smygla
heróíni til Bandaríkjann með því að
koma eitrinu fyrir í iðrum hvolpa.
Breska ríkisútvarpið, BBC, hefur
þetta eftir bandarískum embættis-
mönnum. í einu tilfelli fundust 14
pakkar af fljótandi heróíni í maga
hvolps og hafði dýralæknir sýnilega
komið þeim fyrir.
Hringurinn hefur einnig notað
svonefnd „burðardýr" i þessu skyni
þ.e.a.s. fólk sem ýmist hefur gleypt
eitrið eða falið það á sér. Nú þegar
hafa yfirvöld í Kólumbíu handtekið
22 menn sem tengjast smyglinu.
Upp komst um starfsemi þessa
þegar bandarískir og kólumbískir
lögreglumenn réðust til inngöngu
á búgarði einum í Kólumbíu. Þar
fundu þeir tíu hvolpa og hafði að-
gerð verið gerð á sex þeirra. í iðrum
hundanna fundust um þrjú kíló
af heróíni. Þrír hundanna drápust
af völdum sýkingar eftir að eitrið
hafði verið fjarlægt en þrír lifðu að-
gerðina af.
Ekki er vitað hversu margir
hundar hafa sætt þessari meðferð af
hálfu smyglaranna.
Talið er að höfuðstöðvar hringsins
séu í borginni Medellin í Kólumbíu.
Ótiltekinn fjöldi hvolpa mun hafa
verið fluttur þaðan til New York
í Bandaríkjunum í hefðbundnu
áætlunarflugi.
Málað með skegginu
Listamaðurinn Marco Figgen málar verk með skeggi sinu sem er f lengra lagi en það
mælist 110 sentimetrar. Figgen býr og starfar i Pattaya í Taflandi. Hann er 51 árs gamall
Þjóðverji en hefur búið í Taílandi í níu ár. Hann segir aðferð þessa við myndsköpunina
vera„útvikkun sálarinnar". Skegginu hefur hann safnað í 13 ár.