blaðið - 04.02.2006, Blaðsíða 18

blaðið - 04.02.2006, Blaðsíða 18
18 I HEILSA LAUGARDAGUR 4. FEBRÖAR 2006 blaöíö Sífellt stækkandi hópur barna og ungmenna hreyfir sig lítið eða ekki neitt og lélegt framboð er af grænmeti og ávöxtum i grunnskólum landsins. Þetta eru niðurstöður rannsóknar sem eru hluti af stærra verkefni sem Lýðheilsustöð ákvað að fara af stað með árið 2004. Verkefnisstjóri er Jórlaug Heimisdóttir, en hún hefur meistaragráðu í lýðheilsufræðum frá Kaupmannahafnarháskóla. Verkefnið fékk heitið Allt hefur áhrif - einkum við sjálf og til sam- starfs við Lýðheilsustöð kallaði Jór- laug tuttugu og fimm sveitarfélög víðsvegar að á landinu. Saman telja þau 76% þjóðarinnar. í síðustu viku komu saman í fyrsta sinn fulltrúar þessara 25 sveitarfélaga, rúmlega 100 þátttakendur og þar af um 25 unglingar. „Meginmarkmið verkefnisins er eins og fyrr segir að stuðla að heil- brigðum lífsháttum barna og fjöl- skyldna þeirra, með áherslu á aukna hreyfingu og bætt mataræði. Með aðgerðum því tengdu vonumst við til að börn og fjölskyldur þeirra velji heilbrigðari valkosti fram yfir annað. Þetta krefst fræðslu og vitundarvakn- ingar ásamt aðgerðum í skólum, á tómstunda -og frístundaheimilum og á fleiri stöðum,“ segir Jórlaug þegar hún er innt eftir kjarna málsins. M/ww.ganuBgogn.i8 99................. Aðeins lítill hluti nem- enda í efstu bekkjum grunnskóla borðar heita máltíð í skól- anum og almennt er mataræði þeirra mun lakara en þeirra yngri. Sérsmíðaðir hornsófar - ykkar hugmynd, okkar smíói Víðtækt samstarf nauðsynlegt „Heilsuefling meðal barna og ung- menna verður að byggjast á mjög víðtæku samfélagslegu samstarfi. Með verkefninu er leitast við að virkja sem flesta sem þarna hafa áhrif. Það eru sveitarfélögin sjálf sem leiða verkefnið en auk þess að vera í samstarfi við þau er Lýð- heilsustöð í formlegu sam- starfi við leik- og grunn- skóla og heilsugæsluna. Hvert sveitarfélag mótar sína eigin að- gerðaráætlun og leggur áherslu á aðstæður og um- hverfi barna í skólum. Einnig verður lögð áhersla á að ná til foreldra með tilliti til viðhorfa þeirra og aðstæðna. Við- horf unga fólksins til þessara mála verða einnig kannað sem og líðan þeirra.“ Hanga fyrir framan sjónvarp og tölvu „Við upphaf verkefnisins var kannað hvernig ýmsum þáttum er háttað í þeim sveitarfélögum sem taka þátt. Lykilaðilar voru beðnir að svara spurningum, m.a. börnin sjálf og foreldrar þeirra. Á samráðs- fundinum voru svo fyrstu niður- BlaÖiÖ/Frikki Brynjar Guðnason segir krakka velja ruslfæði umfram hollustu þegar hlaupið er í búðina í frímínútum, endameira framboð af því. fræði inn í skyldunám grunnskól- anna. Þá ættu félagsmiðstöðvarnar líka að vera með matarklúbba svokallaða og þar mætti kenna krökkum að elda hollari mat. Krakk- arnir gætu svo tekið þessa þekkingu með sér heim til fjölskyldunnar og þannig stuðla að betra mataræði hjá þjóðinni allri.“ Hvaðfinnstþér sjálfum um matar- æði jafnaldra þinna? „Ég gerði næringarkönnun í nátt- úrufræði um daginn þar sem við skráðum allt sem við borðuðum og drukkum í einn sólarhring. Nið- urstaðan var sú að langflest okkar skorti mikið af vítamínum og stein- efnum. Ég fékk alveg bullandi sam- viskubit eftir þetta og sá að ég þarf að fara að bæta þessi mál hjá mér.“ Ef þig langar í eitthvað hollt að borða ífrímínútum í skólanum er það þá auðsótt mál? „Nei, síður en svo. Það er mikið meira framboð af óhollum mat. Hann er bæði ódýrari og svo er miklu meira úrval af honum. Ég gæti ekki labbað út í búð,í styttri frímínútum en í lengri pásunni gæti ég gert það. Fæstir velja það samt að ganga út í búð til að kaupa sér ávexti eða skyr eða aðra hollustu. Ef fólk leggur það á sig að ganga þá er það vanalega til að sækja einhvern óhollan mat sem fæst kannski ekki í skólanum," segir Brynjar og hlær. margret@bladid. net Hér má sjá nokkrar lausnir við heilsufarsvandanum sem blasir við þjóðinni. Lausn- irnar eru hluti af niðurstöðum hópanna sem hittust í síðustu viku. • Lækka tolla á innfluttu grænmeti og ávöxtum • Metnaðarfyllri iþróttakennara og þjálfara sem öskra ekki • Kynna fleiri íþróttir • Hafa áhrif á yngstu krakkana • Fræða krakka um afleiðingar hreyf- ingarleysis • Senda þéttbýliskrakka f sveit • Lækka verð á líkamsræktarkortum til ungmenna » Auka fræðslu í heimilsfræðitimum f 1 .-7. bekk • Hvetja félagsmiðstöðvar til þátt- töku • Hafa hollan dag í skólum • Hætta að selja snakk og nammi f sjoppum félagsmiðstöðva stöður þessara kannana kynntar. Þegar litið var á þætti sem sneru að hreyfingu og næringu barna þá kom fram að áhyggjuefni er hversu löngum tíma mörgbörn og unglingar verja fyrir framan tölvur og sjón- varp og foreldrar þeirra virðast oft eiga erfitt með að takmarka þennan tíma. Stór hluti barna og unglinga stundar mjög litla hreyfingu og hóp- urinn sem hreyfir sig lítið fer stækk- andi í elstu bekkjum grunnskóla. Hvað varðar mataræði þá borða ís- lensk börn og unglingar áberandi lítið af grænmeti og ávöxtum. Að- eins lítill hluti nemenda í efstu bekkjum grunnskóla borðar heita máltíð í skólanum og almennt er mataræði þeirra mun lakara en þeirra yngri. Langflestir foreldrar vilja að boðið sé upp á ókeypis, holla skólamáltíð, að börn fái ókeypis ávexti í skólanum og einnig að holl- ustuvörur séu í lægra skattþrepi en óhollari matvörur. Meirihluti for- eldra er hlynntur því að markaðs- setning á feitum eða sykruðum mat- vörum sem beint er að börnum verði takmörkuð.“ Melónur og vínber fín eru sjaldan á borðum Þú segist hafa sent spurningalista til allra leik- og grunnskólastjóra á landinu og kannað viðhorfþeirra tilþess sem börnunum er boðið upp á ogaðstöðu þeirra til hreyfingar. „Helstu niðurstöðurnar voru þær að það er nánast enginn grunnskóli með sælgæti eða gosdrykki í boði, sem er gott, en á sama tíma er áberandi lítið fram- boð af grænmeti og ávöxtum. Fram- boðið af mat og drykkjarvörum Stendur til að fylgja þessu verk- efni eftir? „Já, vorið 2007 og aftur vorið 2010 munum við leggja sömu spurninga- lista fyrir og þannig komast að því hvort eitthvað hefur áunnist með verkefninu,“ segir verkefnisstjórinn Jórlaug Heimisdóttir að lokum. Óhollstan auðsóttari og ódýrari Einn afþeim sem tók þátt í verk- efninu fyrir hönd síns sveitarfé- lags (sem er Hafnarfjörður) var Brynjar Guðnason, sextán ára nemi í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Hann segir að þátt- takan í verkefninu hafi haft áhrif á hann og vakið hann til meðvit- undar um eigið heilsufar. „Ég þekki margt fólk sem hefur búið í Svíþjóð og þar er víst ástandið mun betra en hérlendis þegar kemur að skólamötuneytum,“ segir Brynjar aðspurður um skoðun sína á fram- boði skólanna. „Það mætti bæta ástandið hérna með því að bjóða upp á hollari mat og hafa hann ókeypis að auki. Okkur þótti líka ráðlegast að byrja á yngstu bekkjum grunn- skólans þar sem það er svo erfitt að kenna gömlum hundi að sitja. Ef krókurinn er beygður snemma .. þá eru mun meiri / líkur á því að fólk § kjósi ávexti, grænmeti og aðra hollustu fram yfir óhollustuna, einfald- lega vegna þess að það er alið upp við það. Það er miklu flóknara og erfiðara að ætla að fara að breyta unglingum sem eru búnir V að venja sig á eitthvað ákveðið mataræði." Hvaða lausnir funduð þið til þess að miðla upplýsingum um heilsumál til ungs fólks? „Ein hugmyndin var að setja þessi er líka mjög ólíkt og hollustan mis- mikil. Svo kom einnig fram að það mætti bæta aðstöðu og hvatningu til hreyfingar utan hefðbundinna íþróttatíma.“ Er ástandið ásættanlegt? „Það er mjög mis- munandi eftir sveitarfélögum og skólum. Það virðst vera að leik- skólarnir standi sig betur en grunn- skólarnir í að bjóða upp á holla fæðu, en í framhaldi af rann- sókninni munu sveitar- félögin fá sérsniðnar nið- urstöður sem þau geta svo notað til bættra aðgerða." Þriðjudaginn 7. febrúar :\smm Auglýsendur, upplýsingar veita: Kolbrún Ragnarsdóttir • Sími 510 3722 • Gsm 848 0231 • kolla@bladid.net EUert Ágúst Pálsson • Simi 510 3746 • Gsm 869 9903 • elU@bladid.net Bjarni Daníelsson • Sími 510 3725 • Gsm 856 4299 • bjami@bladid.net Framtíðin í rusli
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.