blaðið - 04.02.2006, Blaðsíða 12
12 I FRÉTTASKÝRING
LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR 2006 blaöiö
Ovíst hvað vakir íyrir Irönum
Vísun kjarnorkuáœtlunar íranskra stjórnvalda til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna á sér langan aðdraganda ogekki
er Ijóst hvernig máliðþróast á nœstu vikum. Skiptar skoðanir eru um hvort og í hvaða tilgangi íranarþurfi á kjarn-
orkuáœtluninni að halda. írönsk stjórnvöld segja hana friðsamlega og tilgangurinn sé einungis orkuframleiðsla
Alþjóðakjarnorkumálastofnunin
(IAEA) greindi frá því árið 2003 að
íranar hefðu haft leynilegar áætl-
anir um auðgun úrans í 18 ár. Full-
trúar vesturveldanna í IAEA hvöttu
írana í kjölfarið til að láta af slíkum
tilraunum í eitt skipti fyrir öll. Ir-
anar höfnuðu þeirri beiðni og þann
10. janúar síðastliðinn lýstu þeir því
yfir að þeir myndu ekki heldur virða
tímabundið bann við tilraunum til
auðgunar úrans.
Vesturveldin vantreysta írönum
á þeim forsendum að þeir hafi áður
gerstbrotlegir við alþjóðlegan samn-
ing um takmörkun á útbreiðslu
kjarnavopna. íranar halda því aftur
á móti fram að þeir virði samning-
inn núna og því ætti að heimila
þeim, undir eftirliti, að auðga úran
í friðsamlegum tilgangi þar sem
það brjóti ekki í bága við ákvæði
samningsins.
Þó að íranar segist vilja auðga
úran til að framleiða kjarnorkuelds-
neyti er sú hætta fyrir hendi að þeir
auðgi það enn frekar þannig að nýta
megi það til smíði kjarnavopna.
Þegar þeim áfanga væri náð gætu
þeir sagt upp samningnum um tak-
mörkun á útbreiðslu kjarnavopna.
Málamiðlun Rússa
Rússar buðu írönum að vinna að
auðgun úrans á sínu landsvæði sem
þeir gætu síðan nýtt til að framleiða
kjarnorkueldsneyti. Sú málamiðlun
hefði jafnframt friðað vesturveldin
þar sem með henni hefði verið
komið í veg fyrir að sérfræðikunn-
átta á auðgun úrans bærist í hendur
Irana. Upphaflega höfnuðu íranar
málamiðlunartillögu Rússa á þeim
forsendum að þeir yrðu að þróa sína
eigin sérfræðikunnáttu áþessu sviði.
Þeir hafa þó dregið í land á undan-
förnum dögum og hafa lýst yfir vilja
til samstarfs með Rússum.
Mahmoud Ahmadinejad, forseti (rans, I skoðunarferð í Bushehr-kjarnorkuverinu í suður-
hluta landsins í síðustu viku. Ögrandi ummæli hans hafa hellt olíu á eldinn.
RÆKTAÐU
NNGARÐINN
ÞINN
Tanngarðurinn mun blómstra ef þú borðar
hollan mat, burstar tennurnar með flúor-
tannkremi tvisvar á dag, notar tannþráð
og ferð regiulega í tanneftirlit.
LYÐHE I LSUSTOÐ
- Ilfiö hell
Mohamed El Baradei, yfirmaður Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar, greinir frétta-
mönnum frá stöðu mála eftir skyndifund stjórnar stofnunarinnar í Vínarborg I fyrradag
þar sem ályktað var um kjarnorkuáætlun klerkastjórnarinnar í fran.
Stjórnvöld í fran halda því fram
að þeir verði að geta þróað tækni
og kunnáttu til að auðga úran sjálf
en þó undir eftirliti. Þau telja að
þeir geti ekki lagt traust sitt á utan-
aðkomandi birgja sem Bandaríkja-
menn gætu haft áhrif á. Þrátt fyrir
að miklar olíu- og gasauðlindir séu í
f ran segja stjórnvöld að þau vilji fjöl-
breytt framboð orkugjafa.
Efasemdarmenn halda þvi fram
að franar þurfi ekki að framleiða
eigin kjarnorkueldsneyti þar sem
aðrir geti útvegað þeim það. Af
þeim sökum hljóti kjarnorkuáætlun
stjórnvalda að miða að því að smíða
kjarnavopn.
í ranar hafa á hinn bóginn margoft
lýst því yfir að eini tilgangur kjarn-
orkuáætlunar þeirra sé að framleiða
rafmagn og að þeir hafi engar áætl-
anir um að þróa kjarnavopn. Banda-
rísk stjórnvöld draga það aftur á
móti í efa og telja þá stefna á að koma
sér upp slíkum vopnum.
Alþjóðakjarnorkumálastofnunin
segir að þriggja ára rannsókn hafi
ekki leitt í ljós nein sönnunargögn
um það að íranar séu að reyna að
smíða kjarnavopn en ekki sé þó
heldur hægt að útiloka það. f fyrra
afhjúpuðu Bandaríkjamenn leyni-
legar upplýsingar sem benda til
þess að vísindamenn í Teheran hafi
undir höndum teikningar af kjarna-
oddum. Sérfræðingar telja að það
gæti tekið írana 3-10 ár að framleiða
kjarnorkuvopn ef þeir hefja tilraunir
við úranauðgun af fullum krafti.
Refsiaðgerðir ekki sjálfgefnar
Vísun málsins til öryggisráðsins
kann að vera upphaf að löngu ferli
sem gæti endað með þvi að gripið
verði til refsiaðgerða gegn stjórn-
völdum í fran. Það ferli kemur þó
til með að taka sinn tíma. Þau ríki
sem hafa neitunarvald í öryggisráð-
inu hafa komið sér saman um að
bíða þangað til í lok mars með að
taka málið upp á þeim vettvangi.
Það myndi gefa frönum ráðrúm til
að milda afstöðu sína eða ganga að
málamiðlunartillögu Rússa.
Ekki er sjálfgefið að það komi til
refsiaðgerða þó að f ranar breyti ekki
afstöðu sinni þar sem Rússar og Kín-
verjar sem eiga hagsmuna að gæta
myndu hugsanlega koma í veg fyrir
það. Þá hafa embættismenn í Banda-
ríkjunum lýst því yfir að þeir vilji
fara sér hægt í sakirnar. Verði gripið
til refsiaðgerða mun það lama hag-
kerfi frans, koma niður á lífskjörum
fólks og leiða til hækkunar á heims-
markaðsverði á olíu.
STANGAVEIÐIMENN ATHUGIÐ
Nýtt námskeiðifluguköstun hefst sunnudaginn 5. febrúar ÍTBR húsinu
Gnoðavogi 1 klukkan 20:00.
Kennt verður 5., 12., 19. og 26. febrúar.
Við leggjum til stangir. Skráning á staðnum gegn greiðslu (ekki kort).
Mætið tímanlega. Munið eftir inniskóm.
Verð krónur 8.000 en krónur 7.000 til félagsmanna gegn framvísun
gilds félagsskirteinis.
Upplýsingar veita Gísli í síma 894-2865 og Svavar í síma 896-7085
KKR, SVFR og SVH ^
Skráðu þitt tölvupóstfang á ba.com fyrir 31.mars 2006 til að njóta þessa afsláttarfargjalds. Gildir fyrir flugfrá Reykjavik til
London. Ljúka þarf ferð fyrir 31. ágúst 2006. Skattar og flugvallargjöld innifalin. Athugið skilmála og skilyrði, nánar á ba.com