blaðið - 04.02.2006, Blaðsíða 54

blaðið - 04.02.2006, Blaðsíða 54
 LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR 2006 blaðið 541 TILFINNINGALEYSI FÓRNARLAMBA Smáborgarinn las viðtal um dag- inn við konu sem hafði gengið í gegnum mikla erfiðleika í gegnum tíðina. Allt frá því að blessuð kon- an var barn hafði hún þurft að feta þröngan stíginn sem vægast sagt var henni erfiður. Viðtalið var allt saman mjög kalt og yfirvegað. Ein- um of kalt að mati Smáborgarans. Þó taldi Smáborgarinn líklegra að það væri sök blaðamannsins því auðveldlega hefði verið hægt að ná einhverjum tilfinningum á blað þar sem efnið sjálft var mjög til- finningaríkt. En þetta viðtal leiddi þó huga Smáborgarans að því hvernig fólk sem hefur lent í erfið- leikum tekur á þeim og þá sérstak- lega þegar fólk lendir í þeim sem börn. Mannskepnan er nefnilega svo sniðug að henni tekst einhvern veginn að fjarlægja sig frá vandan- um. Oftsinnis hefur Smáborgarinn heyrt konur og menn sem hafa kannski orðið fyrir svívirðilegu of- beldi, tala um það líkt og þau væru að tala um veðrið. Þetta er þá ekki tilfinningaleysi hjá fólkinu heldur er það þannig að þegar fólk býr við eitthvað í langan tíma þá verður það ónæmt fyrir því. Þannig getur kona sem var barin af foreldrum sínum ekki fundið fyrir reiði en um leið og foreldrarnir berja kannski systur eða bróðir þá fyllist sama manneskjan af réttmætri reiði ;te og vill gera eitthvað í málunum. f Þegar maður lifir í ástandinu þá ■ „normalíserar" maður það. Þetta er merkilegur veruleiki. Kannski snýst þetta líka um það að oft þykir fólki vænna um vini og ættingja heldur en sjálft sig. Þetta á kannski sér- staklega við þegar fólk hefur búið lengi við andlegt, líkamlegt og/eða kynferðislegt ofbeldi. Á sama tíma og þessir einstaklingar vilja ekk- ert um mál sín tala, því þeir telja að þeir séu einir í heiminum sem eiga við þetta tiltekna vandamál að stríða, þá „normalísera" þeir vandann þannig að þetta verður að viðteknu, daglegu lífi. Hvort sú staðreynd er sorgleg eða nauðsyn- leg áttar Smáborgarinn sig ekki á. HVAÐ FINNST ÞÉR? Kristján Hreinsson, skáld Er allt í háa lofti í Eurovision? „Það er á hreinu. Keppendur ætla ekkert að láta bjóða sér það að reglum sé breytt í miðri keppni. Þetta er bara eins og í spretthlaupi þar sem einn keppandi fær að taka af stað fimm sekúndum á undan hinum, það er ekki hægt að taka þátt í svo- leiðis.“ Kristján gefur lítið fyrir röksemdarfærslur þeirra sem koma að lagi Silvíu Nóttar. „Keppendur bera ábyrgð á lögunum sínum. Þetta eru bara reglurnar. Nú hefur útvarpsstjóri breytt reglunum bara til þess að fá inn einhverja peninga í símakosningum. Við munum berjast fyrir því að þetta lag verði ógilt, sama í hvaða sæti það lendir. Það er alveg skelfilegt að brjóta lög í lagakeppni.“Svo virð- ist sem keppendur í Söngvakeppni Sjónvarpsins ætli ekki að sætta sig við það að lag Silvíu Nóttar verði með í keppninni þar sem lagið lak á Netið. Svo virðist sem keppendur í Söngvakeppni Sjónvarpsins ætli ekki að sætta sig við það að lag Silvíu Nóttar verði með í keppninni þarsem iagið lak á Netið. Britney ólétt aftur Britney Spears kom öllum á óvart í verslun í Malibu í síðustu viku þegar hún tilkynnti að hún væri ólétt aftur. Vitni sögðu stjörnuna hafa verið pirr- aða yfir athygli aðdáenda þegar hún var að skoða rándýr húsgögn í snobb- búðinni Shabby Chic. Náinn vinur Spears sagði í samtali við tímaritið In Touch að hún væri pottþétt ólétt þar sem hún hagaði sér eins og þegar hún var ólétt með sitt fyrsta barn. Sá orðrómur flýgur um í Malibu að Spears dreymi um að eignast litla systur fyrir son sinn, Sean Preston. Hjónaband Madonnu í himnalagi Madonna harðneitar sögusögnunum um að náið samband hennar og upptökustjórans Stuart Price sé að rústa hjónabandi hennar með leikstjóranum Guy Ritchie. Samkvæmt göturitinu The Daily Mirror eyðir Madonna öllum sínum frítíma með Price, þrátt fyrir að vinnu þeirra við nýju plötu hennar, Confessions on a Dancefloor, er löngu lokið. Blaðafulltrúi Madonnu, Liz Rosenberg, steig nýlega fram og sagði samband Madonnu og Stuart Price vera eins og samband systkina. Það er ekkert að hjónabandi Mádonnu, samband hennar og Guy er gott. Þau eru hamingjusöm." Paris berst fyrir eigin eigum Milljónaerfinginn Paris Hilton berst nú fyrir að fá stolnar eigur sínar aftur sem seldar voru á uppboði fyrir skömmu. Paris komst að því að tölvum, dagbókum, spólum og ljósmynd- um hafði verið stolið þegar blaðamaður frá slúðurritinu National Enquirer hafði samband við umboðsmann hennar og sagði að honum hefði boðist að kaupa eigur hennar. Hann neitaði boð- inu. Paris hefur kallað til lögfræðinga sína sem segja þann sem mun bjóða vörurnar til sölu ekki eiga von á góðu. ókeypis til heimila og fyrirtækja alla virka daga eftir Jim Unger 4-18 kft © Jim Unger/dist. by United Medía, 2001 Ef þú ert að gera þér þetta upp verður ekkert hundanammi í viku. HEYRST HEFUR... Dorrit Mouss- aieff getur prísað sig sæla að hafa ekki staðið í nágrenni við Össur Skarphéð- insson þegar hún féll í ómegin á Bessastöðum við afhendingu íslensku bókmenntaverðlaun- anna á fimmtudag. Flestir muna eftir frægri senu þegar þáverandi heilbrigðisráðherra, Ingibjörg Pálmadóttir, leið út af í beinni útsendingu og alþjóð fylgdist með Össuri standa áhugasamur en aðgerðarlaus hjá þegar Ingi- björg féll í gólfið. Svipað virðist reyndar upp á teningnum með fyigi Samfylkingar undir stjórn svilkonunnar Ingibjargar Sóírún- ar. Athyglivert er að sjá hversu Össur er áhugasamur um fylgis- tapið en eins og venjulega þegar konurnar falla í kringum hann er gamli formaðurinn algerlega aðgerðarlaus. Páll Magnús- son hefur reynst Ríkisút- varpinu hinn allra mesti feng- ur en auk þess að lesa fréttirnar frítt og hala inn helstu stjörnur ljósvakans af samkeppnismiðlunum, aðallega sínum gamla miðli, hefur hann nú nappað Lottóinu aftur yfir til RÚV. Logóið hefur verið sýnt á báðum «bðvum undanfarin ár og framjgitt af Stöð tvö eða 365 miðlum eins og þeir heita víst núna og hefur það skilað ein- hverjum krónum í kassann. Þær renna nú hraðar í kassa allra landsmanna og ætla má að fáir aðrir stjórar hafi reynst 365 miðl- um eins erfiðir, sérstaklega þar sem það er ekki einu sinni hægt að reka hann! Pað vakti athygli í Kastljósinu i fyrrakvöld hvað forystu- sveit borgarstjórnarflokks Sam- fylkingairinnar var samstíga í umfjöllun sinni um borgarmálin ólíkt því sem uppi var á teningn- um þegar Gísli Marteinn og Vil- hjálmur Þ. tókust á um fyrsta sæti á borgarstjórnarlista. Þau Dagur, Stefán Jón og Steinunn virtust hins vegar öll sammála um að borginni væri vel stjórnað þó Dagur og Stefán Jón hefðu alla trú á að þeirra eigin stjórn gæti kórónað verkið. Þessi samstaða toppbaráttunnar er ekki líkleg til að auðvelda kjósendum valið. Leitað hefur verið logandi ljósi að stjórnend- um morgunþátt- ar á Bylgunni frá því síðasta haust en fyrirhugað var að fara með hann í loftið í nóv- ember. Margir hafa verið kallaðir til en enginn hefur bitið á agnið og því má enn heyra óminn af röddum stjórnenda morgunsjón- varpsins Gulla Helga, Heimis Karlssonar og Ragnheiðar Guð- finnu. Leitin stendur þó enn yfir og aldrei að vita nema Morgun- koss Röggu af Kiss.fm smelli á Bylgjunni. Stuðningsmenn Bjarna Torfa Álfþórssonarsegjastvongóð- ir um árangur hans um helgina þegar fram fer prófkjör sjálfstæð- ismanna á Seltjarnarnesi. Bjarni fer fram gegn bæjarstjóranum, Jónmundi Guðmarssyni, og hitnað hefur í kolunum á síðustu dögum. Stuðningsmenn Bjarna segja að skjálfti hafi gripið um sig í „flokkseigendafélaginu“ á Nesinu enda hafi framboð hans hlotið góðan hljómgrunn. Við spyrjum að leikslokum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.