blaðið - 04.02.2006, Blaðsíða 11
blaðið LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR 2006
ERLENDAR FRÉTTIR I 11
Chavez hyggst vísa „njósnara" ur landi
Fagnar sjö ára valdaafmœli með því að ögra Bandaríkjunum sem hann vœnir um áform um valdarán
Hugo Chavez, forseti Venesúela,
lýsti því yfir í sjónvarpsávarpi á mið-
vikudag að stjórnvöld hefðu brotið
upp bandarískan njósnahring sem
hafi lagt á ráðin um valdarán. í
kjölfarið hafi verið ákveðið að vísa
hernaðarfulltrúa við bandaríska
sendiráðið úr landi.
Segir Bandaríkjamenn
skipuleggja valdarán
Ávarpið var flutt af tilefni þess að
sjö ár eru liðin frá því að Chavez
komst til valda. Á þeim tíma hefur
ríkt vaxandi spenna í samskiptum
ríkjanna sem hefur komið Banda-
ríkjunum illa þar sem Venesúela
er einn stærsti olíuútflytjandi
Suður-Ameríku. Chavez hefur verið
svarinn andstæðingur utanríkis-
stefnu Bandaríkjanna og myndað
bandalög við stjórnvöld í öðrum
ríkjum sem svipað er ástatt um. Til
marks um það fór forsetinn í opin-
bera heimsókn til Kúbu að ávarp-
inu loknu. Forsetakosningar verða
í landinu næstkomandi desember
og ljóst er að hagsmunir Bandaríkj-
anna eru að vinveittari stjórn taki
við völdum.
Þrátt fyrir að Chavez hafi oftar
en einu sinni sakað stjórnvöld í
Washington um undirróður og
tilraunir til þess að steypa honum
af stóli er þetta í fyrsta skipti sem
hann hótar að vísa bandarískum
embættismanni úr landi. Chavez
sagði ennfremur að héldu Banda-
ríkjamenn njósnum og undirróðri
áfram myndi hann gera alla full-
trúa bandaríska hersins brottræka.
Bandarískir sérsveitamenn eru í
landinu meðal annars vegna yfir-
ráða kólumbíska byltingahersins á
svæðinu á landamærum Venesúela
og Kólumbíu. Um það svæði liggja
mikilvægar olíuleiðslur og þar eru
einnig miklar ólíulindir.
Rumsfeld líkir Chavez við Hitler
Stjórnvöld í Washington hafa ekki
Hugo Chavez, forseti Venesúela.
svarað ásökunum Chaves en á
fundi með blaðamönnum lét Don-
ald Rumsfeld, varnarmálaráðherra
Bandaríkjanna, í ljós áhyggjur sínar
af þróuninni í Venesúela og öðrum
ríkjum Suður-Ameríku þar sem
„pópúlískir" stjórnmálamenn, líkt
og Evo Morales forseti Bólivíu, hafa
sigrað í kosningum að undanförnu.
Rumsfeld sagðist ekki óttast að fleiri
„pópúlískir“ stjórnmálamenn sem
gera út á að ögra Bandaríkjunum
kæmust til valda í fleiri ríkjum í álf-
unni. En hann benti á að slíkir leið-
togar hefðu tilhneigingu til þess að
taka sér alræðisvöld og líkti Chavez
við Adolf Hitler í því samhengi.
Bandarískir repúblikanar velja nýjan
þingleiötoga í skugga hneykslismála
Fulltrúadeildarþingmenn
bandaríska Repúblikanaflokksins
kusu sér nýjan þingleiðtoga s á
fimmtudag. John Boehner sigraði
óvænt Roy Blunt, sitjandi leiðtoga
flokksins, með naumum meirihluta.
Blunt tók við af Tom DeLay fyrir
skömmu en hann þurfti að segja
af sér leiðtogahlutverkinu vegna
fjármálahneykslis sem tengist sam-
skiptum þingmanna flokksins við
þrýstihópa í Washington D.C. Sigur
Boehner kom á óvart þar sem hann
var látinn víkja fyrir DeLay á sínum
tíma í kjölfar afhroðs flokksins í
þingkosningunum 1998.
Aukin spenna er að færast í stjórn-
málalíf í Bandaríkjunum vegna þing-
kosninganna sem verða haldnar
n.k. nóvember. Repúblikanar hafa
meirihluta í bæði öldunga- og full-
trúadeild en hneykslismál sem
tengjast Jack Abramoff, talsmanni
áhrifmikilla þrýstihópa í Washing-
ton, hafa grafið undan stöðu þeirra
undanfarið. Tveir þingmenn flokks-
ins hafa nú þegar þurft að segja af
sér vegna þeirra mála. Rannsókn á
tengslum Abramoff við þingmenn
stendur enn yfir og er talið að allt að
20 þingmenn séu grunaðir um ólög-
mætt athæfi í samskiptum sínum
við þrýstihópa.
Ekki spilltir, bara heimskir
Stjórnmálaskýrendur telja að með
þvi að velja Boehner til forystu séu
þingmenn flokksins fyrst og fremst
að bregðast við þeirri umræðu
sem hefur átt sér stað um tengsl
þingmanna flokksins við þrýsti-
hópa. Þar sem hann hafi ekki verið
í framvarðarsveit flokksins frá því
á tíunda áratugnum sé hann „nýtt
andlit“ á kjósendur. Blunt var náinn
samstarfsmaður DeLay og því var
honum hafnað. Með því vali treysti
þingmenn flokksins á að Boehner
muni virka sem afturhvarf til hefð-
bundinna gilda. Bandaríska blaðið
New York Sun hafði eftir einum
þingmanni flokksins að valið sann-
aði það að þingmenn hans væru
„ekki spilltir, einungis heimskir.”
Demókratar gefa hins vegar lítið
fyrir vammleysi Boehner og tals-
menn þeirra benda á að á 16 ára þing-
ferli hafi hann átt í nánum tengslum
við bæði hagsmunasamtök og þrýsti-
hópa, ekki síst tóbaksiðnaðinn.
Tengslin við þrýstihópa
kosningamái
Ljóst þykir að fjármál flokkanna og
tengsl þeirra við hagsmunasamtök
og þrýstihópa verður eitt af aðal
kosningamálunum. Atburðir undan-
farinna mánaða gera að verkum að
staða repúblikana í þeim efnum er
veik. Það verður eitt fyrsta verkefni
Boehner að hafa umsjón með því að
móta frumvarp flokksins um tengsl
þingmanna við hagsmunasamtök
og endurvekja þar með trúverðug-
leika flokksins í þeim málaflokki.