blaðið - 04.02.2006, Blaðsíða 24

blaðið - 04.02.2006, Blaðsíða 24
24 I TILVERAN LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR 2006 blaAÍA MHalldóra hugsar upphátt Heyra stefnumót sögunni til? Ég átti á dögunum ansi skemmtilegt spjall við vinkonu mína sem einmitt er ein af þeim sem stendur staðföst í þeirri trú sinni að engin verði mannsefnin og að hún endi einsömul. Þegar maður talar við manneskju sem áhyggjur hefur af karl- mannsleysinu verður auðvitað ekki hjá því komist að fara aðeins yfir stöðu mála í stefnumótamenningu landans. Eftir nokkrar pælingar rann upp fyrir okkur ansi merkileg og óneitanlega sorgleg staðreynd. Jú, það er nefnilega þannig að einhverra hluta vegna hafa samskipti á milli kynjanna fallið niður um ófáa þrep síðustu árin. Það sem áður þótti eðlilegt í daðri og stefnumótum hefur allsnarlega orðið undir á litla Islandi, sem í raun er miður. Hér má nefna kvöldverði, stefnumót á kaffihúsi og fleira sem áður tíðkaðist þegar karlmaður hafði augastað á konu. Það þótti hinn eðlilegasti hlutur að fá skemmtilegt símtal á þriðjudegi þar sem spennandi (nú eða óspennandi) maður bauð konu út. Ég veit ekki hvort að fólkið sem ég þekki sé hreinlega svona hrikalega leiðinlegt eða bara blússandi nei- kvætt - en upplifunin er allavega sú að þetta hafi breyst verulega. Nú á dögum fer lítið fyrir boðum sem þessum og mega konur heldur eiga von á einu stykki sms-i eða sorglegu símtali þegar viðkom- andi hefur spannað öldurhús borgarinnar. Mað- urinn hefur þá eflaust beðið alla vikuna eftir því að helgin rynni upp og bjórinn drukkinn eins og enginn sé morgundagurinn. Þetta er auðvitað leiðinleg þróun og kannski erf- itt að segja til um orsökina, en ég get mér þess til að aukin tækni hafi sitt að segja í þessum efnum. Sms-samskipti, msn-ið í tölvunni og annað gerir það að verkum að það heyrir til tíð- inda að fólk hringi fullt hugrekkis í aðra mann- eskju og falist eftir stefnumóti. Svo vantar eflaust eitthvað upp á sjálfstraust fólks í dag sem þorir ekki að taka af skarið nema eftir gott rúll niður Laugarveginn og er nánast heiladautt sökum áfeng- isdrykkju (þá oft með það fyrir augum að plata viðkomandi „heim í drykk“). Nei, þetta er kannski svolítið ýkt en engu að síður er skemmtilegt að velta þessu fyrir sér. Hvað varð t.d. um rómantíkina? Er hún algjörlega á bak og burt? Ég get ekki / svarað þessu að svo stöddu en kem ) vafalaust til með að velta vöngum yfir þessu áfram. Á meðan situr vinkonan sárþjáða eflaust á barnum - bíðandi eftir sms-i með orðunum: „Hæ sæta | - eigum við að hittast í sjúss?" Halldóra Þorsteinsdóttir HEIMAVÖRN SECURITAS - ÖRYGGISKERFI FYRIR HEIMILIÐ Fer skammdegið illa i þig? Febrúarmánuður er nýgenginn í garð og blákaldur raunveru- leikinn eflaust farinn að plaga suma - enda er þessi mánuður af flestum talin erfiðastur. Lítið er um að vera, veðrið er ekki upp á sitt besta og ófáir eru enn að reyna að ná tökum á fjárút- látum desembermánaðar. Sem betur fer finna margir hvorki fyrir erfiði né leiða á þessum tíma en alltaf eru einhverjir sem verða varir við andlegt ójafn- vægi og depurð. Þreyttu prófið og athugaðu hvort þú sért einn af þeim sem taka dýfur á þessum tíma og hvað þú getur gert þér til framdráttar. IHvernig Iíður þér dag frá degi? a) Mjög vel. b) Sæmilega. c) Oftast hræðilega. 2Ertu yfirleitt daufari á þessum tíma árs en á öðrum tímum? a) Já, auðvitað er leiðinlegra að vera til á þessum tíma. b) Nei, ég held að þessir mánuðir séu ekkert verri en aðrir. c) Ég hef lítið pælt í því. Áttu i erfiðleikum með svefn? a) Já, ég finn fyrir miklum breytingum og á erfitt með að sofna og að vakna. b) Nei, svefninn er fremur reglulegur. c) Það kemur fyrir, en er alls ekki viðvarandi. Kemur fyrir að þú dettir niður í mikið þunglyndi eða finnir fyrir sterkum depurðareinkennum? a) Nei, ekki nema eitthvað alvar- legt komi fyrir. b) Já - mér er eiginlega alltaf mikið niðri fyrir. c) Auðvitað er maður misglaður, en ég get ekki sagt að ég sé þunglynd/ur. 5Hefur fólkið í kringum þig orð á þvi að þú sért ekki upp á þitt besta hvað and- legt jafnvægi varðar? a) Nei - það hefur enginn komið með athugasemdir um mína líðan, enda ekki mikið út á að setja. b) Já, mér finnst ansi margir hafa orð á því að ég sé dauf/ur... c) Nei - það virðist öllum vera sama um mína líðan og enginn tekur eftir neinu. Ertu kvíðin/n án þess kannski að vita af hverju? a) Já, mér finnst ég oft ansi kvíðin/n og yfirleitt er engin ástæða fyrir því. b) Nei, ég er yfirleitt ekki kvíðin/n. c) Ég kvíði ákveðnum hlutum, eins og t.d. að koma fram fyrir framan marga, en það er allt saman á eðlilegum nótum - ekk- ert um of. BlaÓiÖ/Frikki Hvað af eftirtöldu lýsir þér best í dag? a) Ég er sátt/ur með lífið og nýt daganna í botn. b) Ég hef það ágætt alla jafna, en er þó ekkert að springa úr gleði... c) Það er eiginlega allt í volæði hjá mér og fátt sem kemur mér í gott skap. Finnst þér þú líta vel út? a) Nei, alls ekki - ég er alls ekki í góðu formi. b) Ekkert sérstaklega vel, en það kemur fyrir að maður lætur ljós sitt skína... Reiknaðu út stigin: 1. a)4stig b)2stig c) 1 stig 2. a) 1 stig b) 4 stig c) 2 stig 3. a) 1 stig b) 4 stig c) 2 stig 4. a) 4 stig b) 1 stig c) 2 stig 5. a) 4 stig b) 2 stig c) 1 stig 6. a) 1 stig b) 4 stig c) 2 stig 7. a) 4 stig b) 2 stig c) 1 stig 8. a) 1 stig b) 2 stig c) 4 stig 0-9 stig: Þú ert greinilega ekki upp á þitt besta þessa dagana og finnur oft fyrir depurfi, kvíöa og öðrum óþægindum. Þaö er mikilvægt aö þú takir þetta alvarlega og gerir hvað þú getur til þess aö bæta Ifðan þfna. Ef ástandið er mjög slæmt er ekki um annað að ræða en að leita sér læknishjálpar, en annars geturðu gert margt sjálf/ur. Þar má nefna aukna hreyfingu, breytt mataræði og breyt- ingar i þankagangi. Það er ótrúlegt hvað mikið er hægt að gera bara með þvf að hugsa jákvætt og gefa sjálfum sér góðar sefjanir. Ekki hætta fyrr en þú kemst í jafnvægi og láttu ekki deigan sfga - þetta er eingöngu vandamál sem hægt er að laga á stuttum tfma. 10-20 stig: Þú ert f ágætis jafnvægi alla jafna en köldustu vetrarmánuðirnir leggjast oft illa f þig. Skammdegið hefur slæm áhrif á þig og þú getur varla beðið eftir breyttum timum. Mikilvægt er þó að horfa á björtu hliðarnar og sjá fram á betri tfma, auk þess að gera hluti sem valda þér ánægju og gera þér gott. 21-32 stig: Það er óhætt að segja að þú látir skammdegið ekki á þig fá - enda af- spyrnu jákvæð manneskja að eðlisfari og glöð með lífið. Haltu áfram á þessari braut og reyndu auk þess að hafa jákvæð áhrif á fólkið í kringum þig. Þar sem þú ert á góðri braut er ekki úr vegi að nota þennan kraft og hjálpa þeim sem eiga erfitt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.