blaðið - 04.02.2006, Síða 22
22 I VIÐTAL
LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR 2006 blaöið
Garðar Thór Cortes
m
BlaöiÖ/SteinarHugi
www.sigrunelsa.is
Eg vil vinna . . .
... á grunni þess sem við höfum gert
... Sjálfstæöisflokkinn í vor
... að enn betri Reykjavík
Ég þarf stuðning þinn í
2.-4.
í opnu prófkjöri Samfylkingarinnar
11.-12. febrúar
SIGRUN ELSA SM ARADOTTIR
Fáir hafa farið varhluta af miklu
hástökki óperusöngvarans Garð-
ars Thórs Cortes, en hann hefur
á örskömmum tíma skotist upp
á stjörnuhimininn og skapað sér
nafn hér á landi. Hann þykir stór-
góður söngvari og listamaður af
guðs náð, auk þess að hafa vakið
athygli fyrir heillandi útlit. Er
hann ósjaldan nefndur sem einn
af kynþokkafyllstu mönnum
landsins og þykir mikið augna-
yndi hjá þorra kvenþjóðarinnar.
Garðar ræddi við Blaðið um æsku-
árin, tónlistina og væntingar til
framtíðarinnar, en hann vísaði
yfirlýsingum um hinn marg-
rómaða kynþokka rakleiðis til
föðurhúsanna.
„Ég er búin að vera voðalega mikið
erlendis síðustu árin, bæði í skóla
og við hin ýmsu verkefni. Eftir Söng-
skólann í Reykjavík fór ég til Austur-
ríkis, Kaupmannahafnar og London
til þess að læra meira,“ segir Garðar
aðspurður um hvar hann hafi haldið
sig síðustu árin, en skyndileg vel-
gengni hans í tónlistarbransanum
hefur vakið áhuga margra.
Ertu komitin heim til að vera eða
liggur leiðin út?
„Ég vil búa á íslandi og vera eins
mikið heima og ég get. Hins vegar
kem ég til með að fara mikið út og
vinna í hinum ýmsu löndum, þó svo
að ég komi alltaf heim á milli.“
Eru nóg af verkefnum fyrir óperu-
söngvara á íslandi?
„Hérna er bara eitt óperuhús og því
ekki verkefni á hverju strái. I raun eru
bara tvær stórar uppfærslur á hverju
ári, en það er mjög ólíkt því sem ger-
ist annars staðar. I Þýskalandi eru
t.d. um íoo óperuhús. Það er óhætt
að segja að lítið sé um að vera fyrir
óperusöngvara hérna heima, án
þess þó að lítilsvirða þau tækifæri
sem hér bjóðast," segir söngvarinn,
sem nú tekur þátt í sýningu íslensku
óperunnar, Öskubusku. „Við erum
að frumsýna á sunndaginn. Þetta