blaðið - 23.02.2006, Síða 14
blaði
Útgáfufélag: Ár og dagur ehf.
Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson.
Ritstjóri: Ásgeir Sverrisson.
Fréttastjórar: Aðalbjörn Sigurðsson og Erna Kaaber.
ÚTHLUTUN GÆÐA
slendingar þekkja þjóða best þann vanda, sem fylgir úthlutun takmark-
aðra gæða. Árum saman hefur verið deilt um úthlutunarkerfi afla-
heimilda og þær tryllingslegu birtingarmyndir, sem það hefur tekið
á sig. Fullyrðingar um að klíkuskapur hafi ráðið för fylgja jafnan úthlutun
takmarkaðra gæða ekki síst í fjölskyldu- og kunningjasamfélaginu, sem
óhjákvæmilega þróast fram í örríki.
Fyrir rúmum fimm árum ræddu menn á Islandi í fullri alvöru nauðsyn
þess að Björk Guðmundsdóttur tónlistarkonu yrði fengin eyja til afnota á
Breiðafirði. Björk hafnaði reyndar þessu fráleita boði og sýndi þannig að
hún ræður yfir betri dómgreind en ráðamenn þjóðarinnar á þeim tíma.
Nú beinist athygli manna mjög að úthlutun lóða í Reykjavík. Fréttir af
bjánalegu klúðri Reykjavíkurborgar í tengslum við útboð lóða í Úlfarsárdal
vekja furðu. Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri hefur reynt að bregð-
ast við þeim vanda, sem skapaðist þegar í ljós kom að sami einstaklingur-
inn, er óvart mun vera verktaki, átti hæsta boð í 39 af 40 lóðum. Verktakinn
braut ekki gegn skilmálum í tengslum við útboðið; það var einfaldlega ekki
nógu vel að því staðið.
Sjálfstæðismenn í Reykjavík gagnrýna framgöngu borgaryfirvalda og segja
lóðagjöld í borginni hafa hækkað gríðarlega sökum þeirrar stefnu Reykja-
víkurlistans að takmarka framboð á þeim. Athyglisverður samhljómur er
með sjálfstæðismönnum og fulltrúum vinstri-grænna í þessu máli; þessir
flokkar eru andvígir því að borgaryfirvöld freisti þess að hagnast á þeim
lóðum, sem fram eru bornar.
Þessi nálgun er hæpin. Lóðir undir heimili manna eru takmörkuð gæði. Og
það sem meira er, þær eru mjög svo misgóðar og þar með misverðmætar.
Fráleit er sú nálgun að borgaryfirvöld eigi jafnan að tryggja nægilegt fram-
boð fyrir þá, sem vilja byggja og þar með sé vandinn leystur. Svo er ekki.
Ekki eru allar lóðir eins með tilliti til útsýnis, staðsetningar osfrv.
Uppboðskerfið hefur þ'ann augljósa galla að það gagnast einkum hinum
efnameiri. En það er skárra fyrirkomulag en að úthlutunarvaldið sé í
höndum stjórnmálamanna. Vissulega er unnt að draga um lóðir en það
skapar hættu á að menn reyni að hafa þær að féþúfu (í orðsins fýllstu
merkingu).
Lóðirnar á því að selja með uppboði og þær bestu eiga að vera mjög dýrar.
Almenningur á að njóta góðs af hagnaði, t.d. í formi skattalækkana. Jafn-
framt ber yfirvöldum í nafni sanngirni að bjóða jafnan fram ódýrari kosti,
sem alþýða manna hefur ráð á að nýta.
Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson. Ritstjórn & auglýsingar: Bæjarlind 14-16,201 Kópavogur.
Aöalsími: 5103700. Símbréf á fréttadeild: 510.3701. Símbréf á auglýsingadeild: 510.3711.
Netföng: vbl@vbl.is, frettir@vbl.is, auglysingar@vbl.is.
Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins. Dreifing: íslandspóstur.
Auglýsendur, upplýsingar veita:
Kolbrún Ragnarsdóttir • Sími 510 3722 • Gsm 848 0231 • kolla@bladid.net
Ellert Ágúst Pálsson • Sími 510 3746 • Gsm 869 9903 • elli@bladid.net
Bjami Darúelsson • Sími 510 3725 • Gsm 856 4299 • bjami@bladid.net
14 I ÁLIT
FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2006 blaöiö
WEtNúDÍ VlEV IPBKKA LÁf®VÆFi$MaT MiTT
(AA-) VÚ VEiTi-p MfTT HTt ME-P
VfflMTÍWCr/lVfSTTÖLUNA \ miAtíÞi VorNt
KfNrl
HDA &c\Ci ? <
wíThab
ÍSLENSiCr
Hlutverk ríkisins í menntamálum
Aðalræðumaður á Viðskipaþingi
Viðskiptaráðs setti fram þá skoðun
að ef ríkið hefði einhvers staðar
hlutverki að gegna þá væri það
í menntamálum. Þetta er sjónar-
mið sem gjarnan er haldið á lofti,
einkum þegar vikið er að mikil-
vægi menntunar. Nú skal ósagt
látið hvað það í raun var sem ræðu-
maðurinn vildi sagt hafa á Við-
skiptaþingi með þessum orðum. Jú,
eitthvað snerust þessi orð hans um
fjárfestingu í menntakerfinu og má
líklega túlka það sem svo að hann
mælist til þess að ríkið leggi ríflegt
fé í málaflokkinn. Einhverjir gætu
túlkað orðin á þá lund að ríkið eigi
beinlinis að koma að rekstri skóla.
Svo má líka túlka þetta sem svo að
hlutverk ríkisins lúti að námsefn-
inu. Allt að einu er ekki ljóst hvað
athafnamaðurinn var að fara með
orðum sínum.
Gallar á ávísanakerfinu
Það er hins vegar hægt að velta
fyrir sér þeirri hugmynd að ríkið
eigi að skipta sér af menntamálum
almennt. Taka má sem dæmi
grunnskólann. Ýmsir sem telja sig
fylgjandi markaðslausnum og at-
vinnufrelsi hafa hvatt til einkafram-
taks á grunnskólastiginu. Um leið
hefur þó ekki verið hvatt til þess að
hið opinbera - sveitarfélög í þessu
tilviki - dragi sig í hlé. Þvert á móti
er lögð áhersla á að hið opinbera
leggi fram fé en einkaaðilar sjái um
framkvæmdina og reki skólana. í
skýrslu Viðskiptaráðs til Viðskipta-
þings er þessi tónn einmitt sleginn
og lögð á það áhersla að einkaskólar
fái jafnmikið fé með hverju barni
af skattfé og hinir opinberu skólar
fá. Þetta hefur verið kallað ávísana-
kerfi og hefur tíðkast lengi í Banda-
ríkjunum og í ýmsum löndum Evr-
Sigríður Á. Andersen
ópu. Reynslan er hins vegar ekki
öll á eina leið. Víst er það til bóta
að einkaaðilar fái að spreyta sig á
þessu sviði, en ávísanakerfið hefur
það einnig í för með sér að skól-
arnir verða alltaf háðir hinu opin-
bera með margvíslegum hætti.
Skattgreiðendur vilja hafa áhrif
I Bandaríkjunum sjást áhrif þessa
glögglega í námsskrá skólanna sem
fylgir nú fast ýmsum reglum rétt-
trúnaðarins. Þannig er gerður fyr-
irvari við trúfræðslu í skólunum, í
nafni stjórnarskrárinnar auðvitað,
og svör við ýmis konar siðferðis-
spurningum virðast sífellt vefjast
fyrir stjórnendum þeirra skóla sem
nýta ríkið sem millilið í greiðslu
skólagjalda nemenda. Afskipti skatt-
greiðenda af skólastarfinu verða
þannig ekki minni en foreldra.
Það er kannski freistandi að
lifa í þeirri trú að þær aðstæður
sem hafa skapast í Bandaríkj-
unum eigi ekki við hér á landi.
Þannig sé trúarhiti nokkrum
gráðum lægri á íslandi en vest-
anhafs og því ólíklegt að bæna-
hald í skólum verði deiluefni
hér. Menn skyldu þó ekki halda
að svo verði alltaf. Og hvað með
ýmis konar annan boðskap sem
skólar standa að? Fívað með til
dæmis umhverfismál. Þar sýnist
nú sitt hverjum og fráleitt að allir
foreldrar styðji þann málflutning
sem oft er kenndur við umhverf-
isvernd og fer fram í skólunum,
en á sama tíma óttast aðrir hið
gagnstæða, eins og nýleg mót-
mæli gegn meintum áróðri
Landsvirkjunar fyrir vatnsafls-
virkjunum í grunnskólum. Ætli
þeir foreldrar myndu ekki eftir
sem áður láta í sér heyra þótt
Landsvirkjun leitaði samstarfs
við einkaskóla, sem fá greitt úr
opinberum sjóðum með hverju
barni?
Á ávísanakerfinu eru því gallar
sem ekki verður bætt úr. Hafi menn
áhuga á raunverulega sjálfstæðum
skólum er ekki um annað að ræða
en að foreldrar komi með beinum
hætti að rekstrinum og felli niður
milliliðinn hvort sem það er ríki
eða sveitarfélag.
Höfundur er lögfrœðingur.
Klippt & skoríð
Lesendur Fréttablaðs-
ins hafa sumir tekið
eftir smávægilegum
breytingum á blaðinu undan-
farna daga. Þannig hefur til
dæmis leiðarasfða Fréttablaðs-
ins verið færð aftur fyrir opnu og markar nú upp-
haf afþreyingarefnisins aftast í blaðinu. Frétta-
haukurinn Jóhann Hauksson sér nú jafnan
um dálkinn Frá degi til dags, sem Guðmundur
Magnússon annaðist af ekki minni natni til
skamms tíma, en sá dálkur er ekki óskyldur
þessum. Þá hefur það breyst að nú birtist fyrir
neðan kjallaragrein dagsins dálkinn Efst á Baugi,
en þar lýsa tveir viðmælendur öndverðum við-
horfum til þeirra mála, sem heitast brenna hverju
sinni. Ýmsir kimdu þó við heitið Efst á Baugi í Ijósi
eignarhalds Fréttablaðsins. Þeim væri þó hollt
að minnast þess að dr. Hannes Hólmsteinn
Gissurarson hélt einu sinni úti tímariti með því
heiti og enn áðurbarfréttaskýringaþátturum er-
lend málefni á Gufunni þetta heiti.
Klippari les að ofurbloggarinn Össur
Skarphéðinsson hefur í fyrsta sinn
á 15 ára þingferli sínum verið ávíttur
af forseta fyrir ummæli í ræðustóli, en Össur
sagði eitthvað á þá leið að ákvörðun rikisstjórn-
arinnar um stuðning við hernaðaraðgerðir gegn
Saddam Hussein f írak hefði í senn verið „lög-
laus og siðlaus". Burtséð hvað mönnum finnst
um það viðhorf er erfitt að skilja hvað Sólveigu
Pétursdóttur gekk til með því að flauta víti á
þessi orð. Sérstaklega er það erfitt í Ijósi þess að
í sfðustu viku fékk flokksbróðir Össurar, Valdi-
mar Leó Friðriksson að segja eftirfarandi í um-
klipptogskorid@vbl.is
ræðum um heimilisofbeldi
öldungis óvittur:„Svo virðist
því miður sem stjórnarliðum,
herra forseti, sé algjörlega
sama um ofbeldi á heimilum,
ofbeldi sem konur eru fyrst
og fremst beittar."
Guðlaugur Þór Þórðarson steig þó
í ræðustól og baðst undan aðdrótt-
unum af þessu tagi og sagði að þó
menn greindi um margt (sölum Alþingis hefði
það fram að þessu ekki hvarflað að neinum að
bera upp á menn illar hvatir, hvað þá skeyting-
arleysi um ofbeldi gagnvart konum og kvaðst
vonast til þess að Valdimari hefði einfaldlega
orðið fótaskortur á tungu. En þá brá svo við að
Valdimar kom aftur upp og sagði orð sín standa.