blaðið - 23.02.2006, Blaðsíða 19
blaöið FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2006
VIÐTAL I 19
efni. Það væri miklu einfaldara að
gera ekki neitt. Hún er komin út í
ána og á eftir að ná landi og mér sýn-
ist að margirkennarar munu eiga erf-
itt með að fylgja henni eftir. Það er
slæmt því mörg verkefni eru óleyst
á þessum vettvangi en þó er bót í
máli að samtök kennarar hafa sýnt
djörfung og dug með því að ganga
til samninga við menntamálaráðu-
neytið um framtíðar námsskipun í
landinu. Ég endurtek, þar er gríðar-
lega mikilvægt skref stigið.
Innihaldsleysi umræðunar blasir
við á síðum dagblaðanna þar sem
hver kennarinn á fætur öðrum
stígur fram og lítur á það sem níð-
ingsverk að stytta framhaldsskól-
ann. Ég vil stytta framhaldsskólann
og grunnskólann um tvö ár á næstu
5 til 6 árum. Framhaldsskólinn mun
fara til sveitafélaganna vegna þess
að sveitafélögin sjá möguleika á sam-
þættingu milli skólastiganna tveggja.
Kennaramenntun mun breytast og
laun kennara munu hækka. Þetta
eru verkefnin sem kennarasam-
tökin og menntamálayfirvöld þurfa
að vinna að og þau eru stór. Eg hef
enga lausn á því hvernig á að gera
það, samræðan er fyrir öllu. Menn
verða að horfa fram á veginn, takast
á við breytingar og gera það hratt.
Tíminn líður á ógnarhraða."
Fer í sölumannssokka
Ég veit að fjölskylda þín átti máln-
ingafyrirtækið Hörpu. Þú ert fræði-
maður sem kemur úr viðskiptaum-
hverfi. Hefurþað gagnast þér ?
„Ég hef litið á fræðin sem sölu-
mennsku. Ég fer í mína sölumanns-
sokka og sel röksemdarfærsluna
sem ég er að vinna með, gef hana út
í bók eða birti í tímaritsgrein. Geng
jafnvel svo langt að selja hana í við-
tali eins og þessu! Ég er höfundur
rúmlega tíu bóka og í þeim fjalla ég
um sýn mína á 19. og 20. öldina og
hugmyndafræðilegar hræringar hér
og erlendis. Ég sé ekki mikinn mun
á föður mínum sem rak iðnfyrirtæki
og kom heim og las ljóð á kvöldin
eða mér sem stunda mín fræði og
tek þátt í að byggja upp Reykjavíkur-
Akademíuna. Ahugi okkar er líkur
þó leiðirnar sem við rötum hlykkist
eftir ólíkum stígum.
Rétt eins og skil á milli grunn- og
framhaldsskóla eru að hverfa þá eru
skil á milli viðskipta, mennta og at-
vinnulífs að riðlast. Sem betur fer
er fólk í atvinnulífinu að átta sig á
þýðingu þess að hugvísindamenn
séu hafðir með í ráðum. Þegar ég
geng inn í kennslustofu Háskólans
til að kenna nemendum mínum þá
segi ég við þá: „Ég er ekki að kenna
ykkur staðreyndir. Ég er ekki að
færa ykkur þekkingu. Mitt hlutverk
er að efla hugmyndaflug ykkar.“
Fólk með hugmyndaflug nýtist alls
staðar.
Ég var tíu ár í námi í Bandaríkj-
unum. Ég veit hvernig Bandaríkja-
menn hugsa um menntun og það
hefur kannski haft meiri áhrif á mig
en umhverfið sem ég ólst upp í.
Hvaða áhrifhöfðu Bandaríkin?
„Þar voru minni stúkur á milli ein-
stakra þátta hins akademíska lífs en
ég fann vissulega að ég var í vernd-
uðu umhverfi háskólalífsins. Maður
umgengst ekki mikið fólk utan við
múrinn. En innan múrsins var sam-
þætting og samkrull hugmynda.
Menn töluðu saman, alveg eins og
Kennarasambandið og menntamála-
yfirvöld eiga að gera. Um leið og fólk
nær saman gerðist sitthvað áhuga-
vert og skemmtilegt. Þessa sömu
hugsun höfum við innleitt i starf
okkar hér í ReykjavíkurAkadem-
íunni, hér vinnum við saman að
mótun hugmynda, ræðum endalaust
um hugmyndir og hugsjónir og við
það gerist undrið! Menn mega ekki
fara í skotgrafirnar og segja: Það
kemur enginn nálægt mér og mínu
sérsviði. Bandarískt háskólakerfi og
bandarískt samfélag er suðupottur,
þar er gerjun og þar eru átök. Menn
leysa sín vandamál með samræðum
, oft hörðum samræðum þar sem nið-
urstaða fæst að lokum. Þegar ég kom
heim fannst mér ísland vera dálítið
leiðinlegt samfélag. Það var ekkert
að gerast. Við vorum að takast á um
það hvort ráðherrabílarnir kostuðu
fjórar eða fimm milljónir.
Mest upplýsandi kennslustund
í lýðræði fékk ég í Bandaríkjunum.
Þar er venja að forsetinn tilnefni
hæstaréttardómara. Þingið kallar
síðan fyrir sig þann sem er til-
nefndur sem á eftir að hafa gríðar-
leg áhrif á hvernig bandarískt sam-
félag þroast og spyr hann eða hana
spjörunum úr. Það er sjónvarpað frá
þessum yfirheyslum og þar er farið í
öll grunnhugtökin: Hvað er lýðræði?
Hvað er jafnrétti? Ég lærði gríðar-
lega mikið af því að fylgjast með
þessu, sannkölluð kennslustund í
samfélagssamræðu."
Hvar stendurðu í pólitík, ertu
vinstri tnaður eins og svo margir
fræðimenn?
„Talandi um andófsafl þá er ég
viss um að um leið og vinstri stjórn
kemst á í landinu þá verð ég gagn-
rýnandi hennar. Ég hef gagnrýnt
Hannes Hólmsteinn, ég hef gagn-
rýnt Halldór Guðmundsson, ég hef
gagnrýnt forsetann, Jón Steinar,
Björn Bjarnason og fleiri. Ég veit
ekki hvaða mynstur kemur út úr
þeirri orðræðu allri.
Ég er ekki flokksbundinn. Ég
studdi Steinunni Valdísi í prófkjöri
Samfylkingarinnar, meðal annars
vegna þess að hún hefur sýnt mik-
inn skilning á því sem við höfum
verið að gera hér í ReykjavíkurAka-
demíunni. Hún hefur þá framtíðar-
sýn sem ég var að kalla eftir hér fyrr
í viðtalinu. Ég hef mikla trú á Vil-
hjálmi Þ. Vilhjálmssyni. Ég hef trú
á þeirri tegund af stjórnmálamanni
sem hann er. Ég hef ekki áhuga á
stjörnunum. Mér finnst mikilvægt
að menn komist fram úr rúminu án
þess að dást að sjálfum sér í spegl-
inum í tvo tíma áður en þeir fara í
vinnuna. Ég vil fá fólk sem vinnur
verkin og leggur sig fram. Ég held
að Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson geri
það og ég held að Steinunn Valdís
geri það líka. Ég er ekkert að velta
þessu fólki mikið fyrir mér en ég
óska þess að það valdi starfinu. En
ég ætla og mun veita því aðhald, ef
ég sé ástæðu til þess. Rétt eins og
ég veiti kollegum mínum aðhald.
Ég hef ekki hikað við að gagnrýna
,sögustofnunina“ íslensku, þá sem
leiða hina sagnfræðilegu umræðu,
meðal annars fyrir að leggja upp
i hendur á valdhöfunum efni sem
þeir vinna úr í sínum sértæka pólit-
íska tilgangi.
í Bandaríkjunum tileinkaði ég mér
sjónarhorn gagnrýnandans. Það er
erfitt að vera gagnrýninn á íslandi
því maður er að gagnrýna manninn
í næsta húsi eða frænda mannsins í
næsta húsi. Ágeng andófsumræða er
mikilvæg að mínu viti og því miður
er skortur á henni á flestum sviðum
mannlífsins hér á landi.“
kolbrun@bladid.net
www.ljosin.is
Vorwm að fá' rtifjO' fmrffrrcfU' ai
íjórcmf/ frá' Zpá'frf
Ljósin í bænum
^ SUÐURVERI
Opið: Virka daga kl. 10.00 til 18.00, Laugardaga kl.11.00 til 16.00 StigahlíÓ45 105 Reykjavík Sími 553 7637