blaðið - 23.02.2006, Side 20
20 I SWYRTIVÖRUR
FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2006 blaöiö
Virkar náttúrulegar vörur
í ólífulínu L'Occitane varanna er notað sambland af ólífuolíu og
ólífuvatni sem er þrjátíu prósent virkara en E-vítamín.
Elísabet Guðmundsdóttir, sölu-og verslunarstjóri, ásamt starfstúlku L'Occitane?,oð"WnM"
Ólífuolía mýkir,
nærir og endurnýjar
Það glöddust margir þegar byrjað
var að selja L'Occitane vörurnar
á fslandi en fyrir fimm árum
opnaði lítil, sæt búð á Lauga-
veginum þar sem vörurnar fást.
Búðin hefur ekki látið mikið
fyrir sér fara en kúnnahópurinn
fer stækkandi. Margir kannast
við þessar vörur af ferðalögum
sínum erlendis og þótti gott að
þurfa ekki lengur til útlanda til
að kaupa þær.
Elísabet Guðmundsdóttir, sölu-
og verslunarstjóri L'Occitane á fs-
landi, segir að eigandi L'Occitane á
íslandi hafi samstundis fallið fyrir
vörunum er hann prófaði þær á leið
sinni um Frakkland. „Á hótelinu
sem hann gisti var karfa með L'Occ-
itane vörum. Hann prófaði vörurnar
og leist svakalega vel á þær. Hann
setti sig því strax í samband við eig-
endurna og fékk umboðið. Það var
handáburðurinn sem gerði útslagið
en hann er einmitt mjög vinsæll í
búðinni sem opnaði við Laugaveg í
október árið 2001“
Eykur súrefnismettun húðarinnar
L'Occitane vörurnar eru gerðar úr
náttúrulegu hráefni og segir Elísa-
bet rotvarnarefni notuð i eins litl
magni og hægt er. „Ef það er mögu-
lega hægt að nota náttúruleg rotvarn-
arefni þá er það alltaf gert. Þetta eru
því virkar náttúrulegar vörur þar
sem þekking úr fortíðinni er nýtt
auk þess sem unnið er að nýjum
uppgötvunum. Nýlega uppgötvuðu
rannsakendur L'Occitane að ólífu-
vatn eykur súrefnismettun húðar-
innar. Þeir hafa sótt um einkaleyfi
á samblandi af súrefnismettaðri
ólífuolíu og ólífuvatni en sú blanda
er þrjátíu prósent virkari heldur en
E vítamín til að vinna gegn ótíma-
bærri öldrun húðarinnar," segir
Elísabet. Úrval verslunarinnar mið-
ast við húðsnyrtivörur fyrir allan
kroppinn. „Við erum í raun og veru
með líkamsvörur frá toppi til táa og
til dæmis erum við með fimm and-
litslínur. Svo erum við með ýmis-
legt aukreitis eins og kerti, reykelsi,
strauvökva og sápur svo eitthvað sé
nefnt.“
Vönduð gjafavara
Elísabet segir viðbrögðin við vör-
unumhafaverið góð. „Við erum með
stóran og tryggan viðskiptahóp og
það eru náttúrlega alltaf einhverjir
að bætast við. Þegar við opnuðum
fyrst þá kom til okkar fólk sem hafði
kynnst vörunum erlendis. Vörurnar
eru líka vinsæl gjafavara. I dag á
fólk orðið allt og því henta vörunar
vel til gjafa því þær nýtast og klárast.
Þetta er ekki eitthvað sem fer upp í
hillu og safnar ryki þar.“
Möndluolía stinnir og styrkir
,Shea butter hefur alltaf verið mjög
vinsælt á íslandi vegna veðráttunnar
en Shea butter er nærandi og græð-
andi jurtafeiti sem ver húðina," segir
Elísabet þegar hún er innt eftir því
hvað sé vinsælast. „Möndlulínan
hefur Hka verið sérstaklega vinsæl
en hún stinnir og styrkir húðina.
Óléttum konum er til dæmis ráð-
lagt að bera möndluolíu á líkamann
á meðgöngu. Húð í góðu jafnvægi
eykur teygjanleika sinn betur,“ segir
Elísabet að lokum.
svanhvit@bladid. net
Mýkjandi hárnæring
Það sem skilgreinir þessa góðu
hárnæringu er sambland af
ólífuvatni og ólífuolíu en hún hefur
löngum verið þekkt fyrir nærandi,
mýkjandi og endurnýjandi áhrif sín.
Ólífuvatnið er ekki síðra. Áhrif hár-
næringarinnar sjást samstundis en
hárið glansar og verður fallegt eftir
notkun. L'Occiatane Daili Conditi-
oner er skoluð strax úr hárinu en
hárið verður léttara auk þess sem
auðvelt er að móta það.
Dregið úr baugum
Allir kannast við að vera með
þrútin augnsvæði og bauga.
Þetta gagnlega augnkrem, Express
Eye Treatment frá L'Occitane end-
urglæðir augnsvæðið, dregur úr
baugum og þrútnum augnsvæðum.
Augnkremið er einnig úr ólífuvatni
og er borið á í kringum augnsvæðið.
3Náttúrulegur glans
Það er ekki af ólífunum
skafið og hér er ólífukrem
fyrir hár sem er einkar árangursríkt.
Olive Paste for hair er silkimjúk og
mild formúla af ólífuolíu og ólífu-
vatni sem dregur fram náttúrulegan
glans hársins sem verður til þess að
hárið er heilbrigt og fallegt.
Nærir og mýkir
Shea butter hefur löngum
verið notað á alls kyns þurrku-
bletti ásamt öðru enda jurtafeiti.
L'Occitane Shea Butter stendur fyrir
sínu en í þessari sætu dollu er hreint
Shea Butter sem nærir, mýkir og
græðir þurra húð. Kremið er einnig
sérstaklega gagnlegt sem varasalvi
enda nærir hann varirnar án þess
að þurrka þær upp.
Full búá aí
nýjum vörum
Undirföt
Sundföt
Náttföt
Undirfataverslun, SíðlUTIÚIa 3, sími 553 7355.
Opið
virka daga kl. 11-18,
laugard. kl. 11-15.
Glæsileg undirföt
fyrir fermingfar-
dömuna