blaðið

Ulloq

blaðið - 25.02.2006, Qupperneq 2

blaðið - 25.02.2006, Qupperneq 2
2 i INNLENDAR FRÉTTIR LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 2006 blaAÍ6 blaðiðt—a Bæjarlind 14-16,201 Kópavogur Sími: 510 3700 • www.vbl.is FRÉTTASÍMI: 510 3799 netfang: frettir@bladid.net AUGLÝSINGADEILD: 510 3744 netfang: auglysingar@bladid.net Lést eftir slys í Garðabæ mbl.is | Stúlkan sem lést á sjúkrahúsi á fimmtudag eftir að hafa orðið fyrir bíl á Bæjarbraut í Garðabæ þann 15. febrúar síðastliðinn hét Halla Margrét Ásgeirsdóttir. Halla fæddist árið 1990 og var nemi við Garðaskóla í Garðabæ. Byggðastofnun rekin með tapi mbl.is | Tap Byggðastofnunar á síðasta ári nam um 272 millj- ónum króna samkvæmt tilkynn- ingu sem send var Kauphöll íslands í gær. Þar kemur fram að tapið hefur dregist saman milli ára, en árið 2004 nam það rúmum 385 milljónum. Hreinar vaxtatekjur stofn- unarinnar námu rúmum 140 milljónum sem er talsvert minna en árið áður þegar þær numu rúmum 269 milljónum króna. Rekstrartekjur námu rúmlega 400 milljónum í fyrra. í tilkynningunni til Kaup- hallarinnar kemur fram að hlutverk Byggðastofnunar er að vinna að eflingu byggðar og atvinnulífs á landsbyggðinni. Stofnunin undirbýr, sldpuleggur og fjármagnar verkefni og veitir lán með það að markmiði að treysta byggð, efla atvinnu og stuðla að nýsköpun í atvinnulífi. Byggðastofnun fylgist einnig með þróun byggðar í landinu. Byggðastofnun er með skrifstofu sína á Sauðár- króki. í lok árs vann 21 starfs- maður hjá Byggðastofnun. Útlán í lok árs 2005 námu 9.019.762 þús. kr. og hafa lækkað um 1.366.979 þús. kr. frá lok árs 2004. „Sælli konu finnur þú ekki í dagv' Ríkisstjórnin hefur ákveðið að teknir verði upp styrkir til œttleiðinga. Guðrún Ögmunds- dóttir segist alsœl með að niðurstaða sé komin í málið sem hún hefur baristfyrir lengi. Þau sem barist hafa fyrir því að styrkir til ættleiðinga erlendis frá verði teknir upp hér á landi glödd- ust í gær þegar ákveðið var á ríkis- stjórnarfundi að gert verði ráð fyrir þess konar styrkjum í fjárlögum fyrir árið 2007. Guðrún Ögmunds- dóttir, þingkona Samfylkingarinnar segist hæstánægð með að málið sé til lykta leitt. Hún hefur lagt fram tillögur þessa efnis þrisvar sinnum á síðustu árum. Gíslína Ólafsdóttir, kjörmóðir, segist einnig ánægð með það að baráttumál þeirra sem talað hafi fyrir styrkjum til ættleiðinga hafi náð fram að ganga. Sátt við ákvörðunina „Ég er óskaplega sátt við þessa ákvörðun," segir Guðrún. „Sælli konu finnur þú ekki í dag.“ Hún segist ánægð með að ríkisstjórnin skuli hafa tekið þetta mál sem hún hefur barist fyrir, upp á sína arma. „Maður flytur þessi mál á Alþingi í þeim tilgangi að fá þeim framgengt. Það gerðist núna og er það gleði- efni.“ Hún sagðist hafa fengið mikil og jákvæð viðbrögð frá verðandi foreldrum í gær þegar ákvörðun ríkisstjórnarinnar var opinberuð. Nokkur ágreiningur var um það á Alþingi undir hvaða ráðuneyti þessi mál ættu að heyra. Guðrún beindi fyrirspurn sinni til heilbrigðisráð- herra en Jónína Bjartmarz, þing- kona Framsóknarflokksins og for- maður heilbrigðisnefndar, sagðist í samtali við Blaðið efast um að málið heyrði undir heilbrigðisráðherra. Jónína studdi málið heilshugar, en vildi fá úr því skorið hvar það ætti heima. Nú hefur verið skorið úr um að málið skuli verða í forsjá félagsmálaráðherra. Gott mál sem kostar ekki mikið „Það skiptir mig engu máli hvaða ráðuneyti sér um þetta. Aðalatriðið er að ríkið ætlar að ganga í það að semja þessar reglur,“ sagði Guðrún og benti á að ekki væri um miklar fjárhæðir að ræða. Reglurnar hafa ekki verið útfærðar til fulls en gert er ráð fyrir að tekið verði mið af nágrannalöndum í þessum efnum. „Þó að þetta verði um hálf milljón á hverja ættleiðingu eru það ekki nema i kringum tuttugu miljónir á ári. Þetta er gott mál sem ekki Fjölmargir (slendingar hafa farið til Ind- lands til þess að ættleiða börn kostar miklar fjárhæðir." Guðrún sagðist bera fullt traust til þess að starfsfólk félagsmálaráðuneytisins muni standa sig vel við að útfæra reglurnar, „enda er ég gamall starfs- maður ráðuneytisins.“ „Þetta er stór sigur" Fulltrúi nemenda fagnar niðurstöðu ráðherra og segir að stór sigur hafi unnist. Framhaldsskólanemar fagna þeirri ákvörðun menntamála- ráðherra að leggja af samræmd stúdentspróf. Menntamálaráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, tilkynnti í gær að hún hefði ákveðið að fella niður samræmd stúdentspróf í framhaldsskólum landsins. Mikill styr stóð um þessi próf fyrir áramót og skilaði stór hluti nemenda próf- unum auðum þegar þau voru þreytt á síðustu haustönn. Ýmsir annmarkar komu í ijós I tilkynningu ráðuneytisins segir meðal annars að við framkvæmd prófanna í fyrra hafi komið í ljós ýmsir annmarkar. „Nemendur sáu lítinn tilgang með prófunum, lítil merki sáust þess að skólar á háskólastigi kölluðu eftir því að nemendur hefðu lokið slíkum prófum svo og að prófin hentuðu misvel einstökum nemendum og ólíkum skólum. Einnig er ljóst að framhaldsskólar áttu í ýmsum erf- iðleikum með að bæta samræmdum stúdentsprófum við viðamikið prófahald sem þar hefur tíðkast um árabil, bæði í lok vor- og haustmiss- eris,“ segir í tilkynningunni. Stór sigur Gunnar Hólmsteinn Guðmundsson, talsmaður Hagsmunaráðs íslenskra framhaldsskólanema og nemandi í Menntaskólanum í Reykjavík fagnar niðurstöðu ráðherra frá því í gær. „Þetta er stór sigur, það er ekkert vafamál um það. Ef kerfinu hefði verið haldið óbreyttu hefði hver skóli fyrir sig misst öll sín sérkenni að lokum. Hver einasti nemandi er mismunandi og skólarnir eru það líka. Þarna var gerð tilraun til að gera skólana einsleita. Það var eins og menntamálaráðuneytið treysti ekki skólunum til að mæla getu nem- enda sjálfir. Mér sýnist hinsvegar að gamla kerfið hafi virkað ákaflega vel fram að þessu og því var engin ástæða til að gera breytingu á því,“ segir Gunnar. Gerirráð fyrirað ættleiðingum muni Qölga Gíslína Ólafsdóttir, kjörforeldri og einn af ritstjórum vefsins aettleid- ing.is, segir sigurinn í höfn. „Við erum búin að berjast fyrir þessu síð- ustu mánuði og niðurstaðan er góð.“ Gíslína segir ákvörðunina koma til með að létta verulega undir með því fólki sem vill ættleiða börn erlendis frá. „Ekki síst gagnast þetta þeim sem ættleitt hafa áður og vilja gera það aftur, því að við viljum auðvitað eignast fleiri en eitt barn eins og aðrir.“ Hún sagðist einnig gera fast- lega ráð fyrir því að ættleiðingum muni fjölga í kjölfarið. Kostnaður- inn við hverja ættleiðingu er um það bil ein og hálf milljón króna að jafn- aði. Gíslína sagðist gera ráð fyrir að styrkir muni nema í kringum helm- ings kostnaðar. Að sögn Gíslínu eru ættleidd börn hér á landi síðustu tutt- ugu árin í kringum fimmhundruð. „Þetta er ört stækkandi samfélag, og það er ánægjulegt að ríkistjórnin skuli hafa viðurkennt að þessi börn skuli vera jafn velkomin og önnur.“ Deilt um vændiskaup mbl.is | Starfshópur sem dóms- málaráðherra skipaði þann 23. nóvember 2Ö04 og kynnti sér mismunandi löggjöf um vændi o.fl. á Norðurlöndum og víðar heftir sldlað af sér skýrslu um vinnu hópsins. Starfshópurinn komst eldd að sameiginlegri niðurstöðu um það hvaða leið væri lfldegust til að draga úr vændi hér á landi, enda var það ddd í umboði hans að leggja fram tillögur um það. í fréttatilkynningu kemur fram að í slcýrslunni megi finna ítarlega umíjöllun um löggjöf er snertir vændi og vændiskaup. Sérstaldega eru rakin sjónarmið um kosti og galla þess að gera vændiskauþ refsiverð. Kolbrún Halldórsdóttir, Jónína Bjartmarz og Ágúst Ólafiir Ágústsson telja, að gera beri vændiskaup refsiverð með lagasetningu áþekkri þeirri sem í gildi er í Svíþjóð. Ásta Möller og Gunnar Örn Örlygsson telja að ekld sé ráðlegt að svo komnu máli að gera slíkar lagabreytingar. Ragna Árnadóttir, fulltrúi dóms- og kirkjumálaráðuneytis, mælir ekki með því að farin verði sú leið að setja í lög ákvæði sem geri vændiskaup refsiverð. Opið virka daga: 10-18, lau: 11-15 Reykjavik: Mörkin 4, s: 533 3500 Gæða sængur og heilsukoddar. O Heiðskirt 0 Léttskýjað ^ Skýjað ^ Alskýjað < Rigning,lítilsháttar //' Rigning 9 9 Súld Snjókoma 5 * Slydda TJJ Snjóél Skúr Amsterdam 02 Barcelona 11 Berlin 01 Chicago -01 Frankfurt 03 Hamborg 01 Helsinki -02 Kaupmannahöfn 0 London 05 Madrid 05 Mallorka 12 Montreal -14 New York -01 Orlando 19 Osló 01 París 05 Stokkhólmur 0 Þórshöfn 02 Vín 0 Algarve 12 Dublin 05 Glasgow 07 o -3e o O^ «e2° 0° 04- Á morgun • 0 ✓ / ✓ X 4° ✓ ' 3° Veðurhorfur í dag kl: 15.00 Veðursíminn 902 0600 Byggt á upplýsingum frá Veöurstofu íslands s s * / 4<v ' <* 3° 5°

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.