blaðið - 25.02.2006, Blaðsíða 10
10 I ERLENDAR FRÉTTIR
LAUGARDAGUR 26. FEBRÚAR 2006 blaöid
Neyðarástand á Filippseyjum
Gloria Arroyo forseti fullyrðir að komið hafi verið í vegfyrir áform um valdarán.
Gloria Arroyo, forseti Filippseyja,
lýsti yfir neyðarástandi í landinu
í gær, bannaði fjöldasamkomur
og fyrirskipaði handtökur nokk-
urra herforingja og óbreyttra
borgara sem sakaðir eru um að
hafa lagt á ráðin um að steypa
stjórn hennar.
I tilkynningu frá Arroyo sagði að
sveitir hægri manna og kommúnista
hefðu bundist höndum saman um
valdaránið. Embættismenn segja að
herforingjar uppreisnarmanna hafi
ætlað að hvetja til þess að Arroyo
yrði steypt af stóli á fjöldafundum í
tilefni hátíðahalda vegna þess að 20
ár eru liðin frá því að einræðisherr-
anum Ferdinand Marcos var komið
frá völdum.
Herforingjar viðriðnir valdaránið
Sögusagnir um samsæri um að
koma Arroyo frá völdum hafa verið
háværar í þessari viku en hún hefur
verið sökuð um fjárglæfra og svindl
í forsetakosningum árið 2004.
Þrír foringjar í sérstökum örygg-
issveitum hers Filippseyja hafa
verið sviptir tign og er mál þeirra í
------qp--
Rebfejan
rannsókn samkvæmt tilkynningu
frá hernum. Að minnsta kosti átta
manns til viðbótar er leitað að sögn
aðstoðarmanns forsetans.
„Ríkisstjórnin hefur komið í veg
fyrir þessar ólöglegu aðgerðir,“
sagði Arroyo í sjónvarpsávarpi í
gær og hvatti jafnframt landsmenn
til að sýna stillingu. Hún sagðist
jafnframt hafa stjórn á ástandinu
en hún hefur þegar staðist tvær til-
raunir til að steypa henni af stóli frá
árinu 2001. Hún tók við embætti for-
seta eftir að forvera hennar, Jospeh
Estrada, var steypt af stóli í uppreisn
hersins árið 2001.
Arroyo sagði að óbreyttirborgarar
væru viðriðnir samsærið og hét því
að haft yrði upp á þeim sem hefðu
fjármagnað áætlunina eða komið að
henni með öðrum hætti.
Verð á hlutabréfum og gengi pesó-
ans lækkaði í kjölfar fréttanna.
Þrátt fyrir að Arroyo hafi lagt
bann við fjöldafundum og hvatt til
stillingar þurfti lögregla að beita
vatnsþrýstidælum og kylfum til að
dreifa um 5000 mótmælendum í höf-
uðborginni Manila. I fjármálahverfi
borgarinnar komu einnig nokkur
þúsund mótmælendur saman og var
óeirðalögregla með viðbúnað.
(búar 1' Manila, höfuðborg Filippseyja, mótmæltu ríkisstjórn Gloriu Arroyo, forseta, fgær
sama dag og forsetinn setti neyðarlög í landinu vegna samsæris um valdarán.
FULL BÚÐ AF FRÁBÆRUM
AMERÍSKUM HEILSURÚMUM
Amerískar heilsudýnur í
hæsta gæðaflokki. King
Koil hefur framleitt hágæða
rúm í Bandaríkjunum síðan
árið 1898 og framleiðir í
dag einu dýnurnar sem eru
bæði með vottun frá FŒR
og Good Housekeeping,
stærstu neytendasamtök í
Bandaríkjunum.
ÓTRÚLEG
48.800
► 20%
Eldhúsinnréttingar
Baðinnréttingar
Þvottahússinnréttingar
Fataskápar með venjulegum- og
rennihurðum
Við seljum allar Nettoline innréttingar með
20% afslætti í tvær vikur
(tilboðsdagar 24. feb. -13. mars)
Snaigé EL.I3/V
KÆU-OGFRYSHSKÁPAR OFNAR - HELLUBORÐ - VIFTUR
58.600
68.500
97.800
Vtö bjóðum einnig fullkomið úrval vandaðra raftækja, Elba
eldunartæki og uppþvottavélar og Snaigé kæli- og frystiskápa
með allt að 25% afslætti, þegar þau eru keypt með
eldhúsinnréttingu
HELGAROPNUN
Laugardaginn 25. febr. kl. 10-16
Sunnudaginn 26. febr. kl. 13-16
^Fríform
Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500
Mafíuforingi
ákærður
Alríkissaksóknarar í Bandaríkj-
unum ákærðu á fimmtudag 32
menn sem grunaðir eru um að
vera félagar í Genovese-glæpasam-
tökunum. Mennirnir eru ákærðir
fyrir ýmsa glæpi svo sem morð,
eiturlyfjasmygl og peningaþvætti.
Á meðal þeirra sem eru ákærðir
er Liborio Bellomo sem talinn er
vera foringi glæpasamtakanna.
Bellomo situr nú í fang-
elsi fyrir fjárkúgun.
Vitnisburður Peter Peluso,
lögmanns Genovese-fjölskyld-
unnar, gerði saksóknurum kleift
að ákæra Bellomo fyrir að hafa
fyrirskipað morð á Ralph Coppola,
fyrrum samstarfsmanni sínum,
árið 1998. Bellomo sat í fangelsi á
þessum tima en Peluso hefur sagt
að hann hafi borið skilaboð frá
honum til félaga í samtökunum.
Ef Bellomo verður sakfelldur gæti
hann átt yfir höfði sér dauðarefsingu.
Museveni
með forskot
Yoweri Museveni, forseti Úganda,
var með afgerandi forskot á helsta
keppinaut sinn, Kizza Besigye, sam-
kvæmt fyrstu opinberu tölum úr for-
setakosningum í landinu sem birtar
voru í gær. Museveni var með tæp-
lega 60% fylgi en Besigye rúmlega
37% fylgi þegar búið var að telja 7,7%
atkvæða. Þetta voru fyrstu fjölflokka
kosningar í landinu frá árinu 1980.
Niðurstöðurnar eru í algeru ósam-
ræmi við bráðabirgðaniðustöður
sem birst höfðu í fjölmiðlum fyrr
um daginn sem sýndu að mjótt væri
á munum með frambjóðendunum
tveimur. Samkvæmt þeim tölum
sem byggðar voru á talningu 5%
atkvæða var Besigye með 48,6%
atkvæða en Museveni með 47,2%.
Flokkur Besigye hefur haldið því
fram að svindl hafi átt sér stað í
kosningunum og íhuga forsvars-
menn hvort þeir muni kæra fram-
kvæmd þeirra. Frambjóðandi þarf
að fá meira en helming atkvæða til
að ekki þurfi að koma til annarrar
umferðar í næsta mánuði. Endan-
leg úrslit eiga að liggja fyrir í dag.
Yoweri Museveni greiðir atkvæöi f forseta-
kosningunum I Úganda á fimmtudag.
Tugir fórust
í eldsvoða
Eldsvoði í vefnaðarverksmiðju í
Bangladesh varð að minnsta kosti 65
starfsmönnum að bana á fimmtu-
dagskvöld. Talið er að allt að 500
manns, aðallega konur, hafi verið að
störfum i verksmiðjunni í borginni
Chittagong þegar eldurinn braust út.
Rashedul Islam, slökkviliðsstjóri,
sagði að aðalinngangur verksmiðj-
unnar hefði verið lokaður og því
hefðu slökkviliðsmenn orðið að
bjarga innilokuðum starfsmönnum
út um glugga. Islam sagði að þetta
væri versti eldsvoði í sögu landsins.
Talið er að eldurinn hafi
kviknað út frá skammhlaupi í
rafmagni og barst hann fljótt
um alla bygginguna vegna garns-