blaðið - 25.02.2006, Blaðsíða 32

blaðið - 25.02.2006, Blaðsíða 32
32 I TILVERAN LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 2006 blaðiö ! Halldóra hugsar upphátt Konurnar mœla út aðrar konur... Ég hef oft velt því fyrir mér hvort konur kappkosti að halda líkamanum grönnum og útlitinu óaðfinnanlegu til þess eins að ganga í augun á öðrum konum, eða hreinilega til að vera glæsilegri en hinar. Þetta kann að virka dálítið öfugsnúið enda liggur beinast við að halda að konurnar geri sig fínar fyrir karlþjóðina. Konur spá margar hverjar mikið í útlitið og leggja sig fram af ýtrustu kostgæfni um að líta sem best út og helst þannig að aðrir heillist. En fyrir hverja er þetta í raun? Ekki er það fyrir karlpeninginn eingöngu því að ég veit ekki betur en að þeir vilji nú flestir hafa okkur ómálaðar og helst nývaknaðar eins og reytt hænurassgöt. Er þetta kannski bara fyrir hinar kon- urnar sem við leggjum áherslu á fallegt útlit? Getur verið að við séum bara svona meðvitaðar um hvernig konur velta öðrum konum fyrir sér að við viljum þess vegna líta vel út? Eflaust er eitthvað til í þessu. Ég nefnilega verð oftar en ekki vör við at- hugasemdir kvenna um aðrar konur. „Gövuð, hvað þú ert búin að grennast!“ „Varstu að koma úr síló?“ eða „Hvað borðarðu til að halda maganum svona mjóum?“ eru spurningar sem ófáar stúlkurnar fá yfir sig. Þegar öllu er á botn- inn hvolft held ég að við spáum mun meira í þessa hluti en karlarnir... Þetta kom ansi skemmtilega í ljós þegar ég fór í verslunarleiðangur á dögunum. Jú,jú, mín auðvitað mátar flík eftir flík og falast svo eftir jákvæðum athugasemdum afgreiðslufólksins um hvað ég sé glæsileg í þessu og hinu. Nema hvað! Mig rekur svona líka í rogastans þegar ein lítil tyggjótott- andi afgreiðsludama tekur sig til og mælir mig út í einum gallabuxunum. Ég auðvitað beið eftir gullhömrum en sú von varð fljótlega að martröð þegar skoffínið sagði; „Vá - rassinn á þér minnkar alveg þvílíkt í þeim - geðveikar!" RASSINN MINNKAR? Ég náttúrulega vissi ekki hvort ég væri að koma eða fara og horfði á mann- eskjuna með hryllingsaugum, enda er það mikill mis- skilningur ef tuktin hefur haldið að ég tæki þessu sem hrósi. Ég hafði labbað inn ferlega sátt með rassalinginn en arkaði síðan út líðandi eins og súmóglímukappa sem ætti að leggja leið sína í seglagerðina Ægi til að fjárfesta í buxnatjaldi. Að pían skuli hafa vogað sér að „hrósa mér“ á þennan hátt fæ ég ekki enn skilið og það rann í raun upp fyrir mér hvernig við kerlingarnar erum; Glápum á rassa annarra kvenna (auk þess að spá hvort okkar sé minni eða stærri) og tippum svo á hvort manneskjan sé í a,b, c eða d-skála brjóstahaldara. Sannast þá hið forn- kveðna; Konur eru konum verstar! Halldóra Þorsteinsdóttir HEIMAVÖRN SECURITAS - ÖRYGGISKERFI FYRIR HEIMILIÐ Finnst þér nœg ástríða i sambandinu þínu? Það eru eflaust ófáir sem upplifa dofa og leiða í ástarsambandinu og mörgum þykir allur sjarmi farin af ástinni þegar tilhugalífið hefur sagt sitt síðasta. Auðvitað er þetta bara eðlilegt - fólk er ekki alltaf eins og ástfangnir ung- lingar, en sumir hafa þörf fyrir mikla ástríðu í sambandinu og sætta sig ekki við það þegar hún setur á sig fararsnið. Þreyttu prófið og þú getur komist að raun um hvort þú finnir fyrir nægri ástríðu í sambandinu eða hvort eitthvað megi bæta. Ertu ástfangin/n upp fyrir haus? a) Já, ég gæti varla verið ástfangnari. b) Nei, mér finnst það hafa minnkað til muna - ef það var þá einhvern tímann. c) Ég er ástfangin/n, en ég veit ekki hvort það sé upp fyrir haus endilega. Er mikil ástríða ykkar á milli? a) Nei, það hefur alveg verið slökkt á öllu slíku. b) Kannski engin rosaleg ástríða, en jú, við erum ástfangin... c) Já, ástríðan er allsráðandi í okkar sambandi - eiginlega flestar stundir. 3Eigið þið rómantísk augna- blik saman án alls áreitis úr umhverfinu? a) Nei, aldrei. Við höfum sjaldan tíma í eitthvað slíkt. b) Já,viðerumyfirhöfuðmjögróm- antísk og leggjum okkur fram við allt sem tengist rómantík. c) Jú, það kemur fyrir. Ekki kannski eins oft og þegar tilhuga- lífið var og hét, en það koma æðis- legar stundir. Komið þið hvort öðru á óvart með hinum ýmsu rómantíkheitum? a) Nei.hann/húnkemurméraldrei á óvart. b) Já,já, það eiga sér stað óvæntar uppákomur, en það gerist alls ekki oft. c) Já, við erum bæði mjög iðin við Reiknaðu út stigin: 1. a) 4 stig b) 1 stig c) 2 stig 2. a) 1 stig b) 2 stig c) 4 stig 3. a) 1 stig b) 4 stig c) 2 stig 4. a) 1 stig b) 2 stig c) 4 stig 5. a) 2 stig b) 4 stig c) 1 stig 6. a) 4 stig b) 1 stig c) 2 stig 7. a) 2 stig b) 4 stig c) 1 stig 8. a) 4 stig b) 1 stig c) 2 stig að koma hinu skemmtilega á óvart og brydda upp á nýjum hlutum í tilveruna. 5Hversu mikinn hluta spilar kynlífið í lífi ykkar? a) Ætli það sé ekki bara eins og hjá venjulegu fólki - þegar tími gefst til og spennan loðir í loftinu. b) Það spilar mjög stóran hluta, enda finnst okkur báðum mikilvægt að halda því í hávegum. c) Mjög lítinn hluta. Við stundum kynlif eingöngu „skyldunnar vegná' og gerist það afar sjaldan. 6Upplifir þú þig elskaða/n? a) Já, mjög svo. Mér finnst ég virkilega elskaður/elskuð og upplifi það dag hvern. b) Nei, ég get ekki sagt það. Hann/ hún er allavega ekki mikið að leggja sig fram við að sýna það. c) Já,já, alveg eins. Samt er nú engin ástæða til þess að spá mikið í það - við erum saman og það hlýtur að segja sitt... Er mikið um hlátur og gleði í sambandinu? a) Við hlæjum alveg saman, en brandararnir eru þó ekkert flæð- andi alla daga. b) Já, við hlæjum mikið saman og erum með svipaðan húmor. Við getum alveg legið í kasti saman og notið þess. c) Nei, við hlæjum eiginlega aldrei saman. Það virðist ekki vera mikið tilefni til hláturs, enda erum við með mjög ólíkan húmor. Finnst þér vanta spennu eða losta í sambandið? a) Nei, síður en svo. Það er rosaleg spenna í okkar sambandi og ekkert sem vantar þar uppá. b) Það er engin spenna í samband- inu og við tökum hvort öðru sem algerlega sjálfsögðum hlut - gerum ekkert til að krydda tilveruna saman. c) Hvernig mælir maður spennu? Við erum ekkert hoppandi hæð okkar yfir spennu, en hins vegar koma tímar sem kalla má spennu- þrungna og skemmtilega. 0-9 stig: Þú upplifir augljóslega ekki mikla ástríðu I sambandinu og eflaust þykir þér það miður. Það er hins vegar engin ástæða til að örvænta - ekkert samband helst ástríðuþrungið alla daga og þvi er ekki hægt að ætlast til þess að svo sé. Þú og þið getið engu að síður talað um þetta og reynt að bæta úr hlutunum með ýmsum aðferðum. Þetta er eingöngu spurning um að bæði leggi sig fram um að rækta sambandið og líta á það sem vinnu eins og allt annað. 10-20 stig: Ætli flest sambönd séu ekki eitthvað svip- uð þínu. Það koma „dauðir" tímar en svo er oft mikið um gleði, glaum og ástrfðu ykkar á milli. Eðlilega getur þetta ekki alltaf verið dans á rósum og sambönd haldast ekki alltaf eins og á fyrstu stigun- um, en mikilvægt er að vinna markvisst að því að halda losta ykkar á milli og leggja ykkur fram um að hafa hlutina spennandi og skemmtilega inn á milli. 21-32 stig: Það er greinilega magnþrungin ástríða í ykkar sambandi og þið eruð e.t.v. oft eins og nýbyrjuð saman. Það er ekkert nema gott um það að segja og í raun alveg frábært að fólk geti haldið slikri ástríðu gegnumgangandi. Haldið áfram á þessari braut og passaðu þig að segja frá löngunum þínum og væntingum svo að þetta haldist.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.