blaðið - 25.02.2006, Blaðsíða 54

blaðið - 25.02.2006, Blaðsíða 54
54 I FÓLK LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 2006 blaöiö ÓRANNSAKANLEG- IR VEGIR RÉTTAR- KERFISINS Smáborgarinn þarf að kljást við margar lífsins gátur, líkt og aðrir smáborgarar. Sumar þeirra eru eðli málsins samkvæmt staerri en hinar. Ein og sú sem Smáborgarinn hefur oft reynt að henda reiður á er hið snúna réttarkerfi (slendinga. Þar er ekkert eins einfalt og það sýnist. Það sem lögin segja getur verið alls ólíkt anda laganna og svo dómahefð eða fordæmi svo það ertil lítils að fletta upp í íslenskum lögum til að átta sig á því hvort athæfi er refsivert og það borgi sig að leita réttvísinnar. Til að mynda lenti Smáborgarinn í þeirri leiðinlegu lífsreynslu að höfundarverki var af honum stol- ið. Reyndar vildu þjófarnir ekkert kannast við glæpinn en það skipti litlu máli því þetta var ritverk og eftirprentunin var sönnunargagn sem sannaði glæpinn svart á hvítu. Reyndar var eitthvað líka um smá hugmyndastuld en á hann urðu eng- ar sönnur færðar svo Smáborgarinn reyndi ekki einu sinni, enda ekki til neins að fá þann stuld bættan. Lögfræðingur Smáborgarans taldi málið allt hið augljósasta og að best væri að senda þjófunum bréf og ýta við þeim með svolitlum tilvísunum í lögin og sjá hvort þeir myndu ekki gangast við sekt sinni. En nei. Þess- ir óskammfeilnu náungar sáu ekki ástæðu til þess og létu eins og mál- ið væri allt ein fjarstæða, þrátt fyrir augljósan vitnisburð þeirrar eigin eftirprentunar. Það var því ekkert annað í stöð- unni en að fara í mál við þrjótana. Þá fyrst urðu málin flókin. Það kom á daginn að þær bætur sem Smáborgarinn gæti vonast til að fá sér dæmdar vegna skaðans voru svo óheyrilega smánarlegar að það hefði kostað Smáborgarann meira að borga lögfræðingi sínum laun en því sem skaðabæturnar gætu numið! Svo Smáborgarinn sat eftir með sárt ennið, sönnunargögnin svört á hvítu, lögin sín megin en framkvæmdina á móti. Smáborgarinn er enn að reyna aðfinna lausn á þessari einkennilegu gátu réttarkerfisins. HVAÐ FINNST ÞÉR? BlaSiS/Frikki Branda, kýr í Húsdýragarðinum. Hvaö finnst þér um að Eldur hafi verið felldur? „Það stefndi í þvílíkt óefni með þennan bola að öðru var ekki við komið og má segja að hann hafi haldið garðinum í gíslingu með hegðun sinni. Hann var fuílkomlega óalandi og óferjandi. Þegar hann mætti hingað var okkur sagt að hann hefði verið sérstaklega valinn til þess að taka við af Guttormi vegna góðs geðslags. Annað kom nú aldeilis á daginn. Okkur kúnum líst muuuun betur á ríkisarfann, enda er kálfurinn kominn í beinan karllegg af Guttormi gamla og eina eftirlifandi afkvæmi hans. Það má því segja að krúnan sé komin aftur til réttmæts erfingja." Arftaki Guttorms, yfir-tudda í Húsdýragarðinum er kominn yfir móðuna miklu. Hann var orðinn það skapstyggur að gestum var farin að standa hætta af honum. Ákveðið hefur verið að setja allt traust á kálf í garðinum sem er afkvæmi Guttorms. Pamela gerð að skrímsli Hin stórkostlega Pamela Anderson er ekki ánægð með ástralska fjölmiðla eftir að þeir fjölluðu um hana á frekar slæman hátt þeg- ar hún var í Ástralíu að kynna M&M sælgætið í síðustu viku. „Ég er búin að vera í Ástralíu í sólarhring og fjölmiðlarnir eru strax búnir að gera úr mér skrímsli,“ sagði Pameli, bálreið á vef- síðu sinni. „Ég var með handfarangur í flugvélinni og svo stóð í blöðunum að ég hefði verið með níu töskur og að ég hefði hætt við öll viðtölin mín. Þetta er brandari. Fjölmiðlafulltrúinn minn bókaði mig en þurfti að hætta við nokkur viðtöl sem gafst ekki tími til að taka.“ Og hún var ekki hætt: „Mér skilst að einu viðtölin sem hætt var við hafi verið slúðurblöð, ég tala ekki við þann- ig blöð.“ Engin táningsdrottning Talandi um fjölmiðlapirring fræga fólksins þá er söng- og leikkonan unga, Lindsay Lohan, bálreið út í fjölmiðlana fyrir að kalla hana „Táningsdrottn- ingu“ og segist eiga stóran hóp fullorðinna aðdáenda. Lohan, sem er rétt um tvítugt, hefur upp á síðkastið unnið að nýrri, fág- aðari ímynd vegna þess að lífið í Hollywood hefur gert hana bráðþroska, að hennar sögn. „Ég þoli ekki að vera kölluð táningsdrottning. Ég er búin að þroskast svo mikið síðustu ár að mér finnst ég vera orðin þrítug. Ég veit betur hvað ég get gert og hvað ekki og ég er búin að missa af fólki og hlutum sem skipta mig máli.“ 'ngar fyrirmyndir Barnastjarnan Mary-Kate Olsen sem nú telst fullorðin hefur blásið á gagnrýnisraddir sem segja hana slæma fyrirmynd. Þess í stað fullyrðir hún að þær tvíburasysturnar hafi engan hug á að gefa gott fordæmi. Leikkonan hefur barist við átröskunarsjúkdóma og segir að hvorki I sé hægt að kenna henni né tvíburasysturinni, Ashley, um slæm áhrif, eða góð, sem þær hafi á krakka. Mary-Kate segist ennfremur þreytt - á álaginu sem er ætíð á henni þar sem fólk vill að hún sé góð fyrir- mynd. „Ég held að við höfum strax verið stimplaðar sem fyrirmyndir þeg- ar við vorum mjög ungar. Við systurnar lítum ekki á hvora aðra sem fyrirmyndir - mér finnst gífurleg ábyrgð fylgja því. Við get- um ekki gert fleira en að sjá um okkur sjálfar og lifa lífinu á eigin forsendum án utanaðkomandi áhrifa. Mánudaginn 27. febrúar Auglýsendur, upplýsingar veita: Kolbrún Ragnaisdóttir • Sími 510 3722 • Gsm 848 0231 • kolla@bladid.net Ellert Ágúst Pálsson • Sími 510 3746 • Gsm 869 9903 • elli@bladid.net Bjami Daníelsson • Sími 510 3725 • Gsm 856 4299 • bjarni@bladid.net eftir Jim Unger Á þessari hæð eru tvö svefnherbergi... O Jim Llngef/dist. by United Media, 2001 HEYRST HEFUR... Lítið fer fyrir Degi B. Eggertsyni, borgarstjóra- efni Samfylk- ingarinnar, þessa dagana. Margir telja að það sé reyndar afar skyn- samlegt hjá Degi að láta sem minnst til sín sjást m.a. vegna klúðursins í sambandi við lóða- útboðið í Úlfarsársdal. Stuðn- ingsmenn Dags segja að hann hræðist ekki þá umræðu en hafi ákveðið að taka sér örlítið frí frá mesta fjölmiðlahasarn- um til að hvíla kjósendur á per- sónu sinni. Dagur hafi á hinn bóginn skipað herráð og sé að leggja línurnar fyrir kosninga- baráttuna sem bráðum skellur á af fullum þunga. Flestir sem telja sig hafa vit á segja að móð- ir allrar kosningabaráttu sé í uppsiglingu og að hún verði dýr, mjög dýr. Ag ú s t Ólafur Ágústsson þingmaður Samfylking- arinnar gerir skattagleði núverandi ríkisstjórnar að umtalsefni í nýjasta pistli á vefsíðu sinni. Segir Ágúst að Árni M. Mathie- sen fjármálaráðherra sé í stök- ustu vandræðum þessa dagana við að sannfæra þjóðina um það að skattbyrði hér á landi hafi ekki aukist á síðustu ár- um. Ágúst Ólafur vitnar m.a. í nýlegt skriflegt svar Árna við fyrirspurn þingmanna Sam- fylkingarinnar um skattbyrði. í því svari sé beinlínis sagt að skattbyrði allra tekjuhópa hafi þyngst frá árinu 2002 að einum hópi undanskildum. Það séu þau 10% einstaklinga sem hafa hæstu tekjurnar. Skattbyrði ess eina hóps hafi minnkað. gúst Ólafur segir að trúi Árni honum ekki geti hann sjálfur skoðað svar sitt og vísar á það á vef Alþingis. Og þar kemur þetta klárlega fram í töflu. Ág- úst Ólafur vitnar líka í svar frá þáverandi fjármálaráðherra, Geir H. Haarde, frá árinu 2002. Þar standi skýrt og greinilega að 95% hjóna og sambúðarfólks og 75% einstaklinga greiði árið 2002 hærra hlutfall tekna sinna í tekjuskatt en árið 1995 þegar núverandi ríkisstjórn tók við. Þarna stendur þetta svart á hvítu og heldur eru nú svör ráð- herrans aum. Fr a m - sóknar- flokkurinn í Reykjavík hefur enn ekki ákveð- ið hver skip- ar annað sætið list- ans fyrir borgarstjórnarkosn- ingarnar. Eins og kunnugt er ákvað Anna Kristinsdóttir að taka ekki sæti á listanum eftir að hafa beðið ósigur fyrir Birni Inga Hrafnssyni. Óskar Bergs- son varð í þriðja sæti í prófkjör- inu og stendur uppstillingar- nefndin nú frammi fyrir þeim vanda að ákveða hvort færa eigi hann upp um eitt sæti eða fá konu til að skipa það í stað Önnu. Fjórar konur komu á eftir Óskari í prófkjörinu, þær Marsibil J. Sæmundsdóttir, Ás- rún Kristjánsdóttir, Elsa Ófeigs- dóttir og Gerður Hauksdóttir. Við heyrum að Marsibil verði fyrir valinu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.