blaðið - 25.02.2006, Side 23
blaðið LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 2006
VIÐTALI 23
hvort leikrit fer á svið eða hvort lista-
maður hefur í sig og á. Það er fremur
aum staða."
Kommúnismi forstjóranna
Hvernig upplifir vinstri maður eins
°g þú þjóðfélagsbreytingar seinni
ára?
„Það var einkenni þeirra pólitísku
tíma sem ég lifði að menn gerðu
sér hugmyndir um að hægt væri að
skapa samfélag sem væri öðruvísi
og með annars konar áherslur. Að
um eitthvað væri að velja. Nú hafa
flestir gefist upp gagnvart ríkjandi
markaðsnaumhyggju. Þar með er
verið að afskrifa möguleika pólit-
ískrar hugsunar og pólitískra sam-
taka til að gera eitt eða neitt. Til
verður samkomulag um að stjórn-
málamenn eigi að gera sem allra
minnst og pólitískir flokkar eigi
ekki að gera annað en passa upp á
umferðarreglur á markaðstorginu,
og varla það einu sinni.
Menn mjálma stundum eitthvað
um ofurlaun forstjóra en eru jafn-
framt sammála um að ekki sé neitt
við þeim að gera því þar ráði mark-
aðslögmál, sem er rangt. Þetta heitir
sjálftaka, ekki markaðslögmál. Stétt-
arbarátta er talin úrelt og alveg út úr
kú að minnast á hana. A sama tíma
er í gangi öflug stéttarbarátta for-
stjóra sem hafa komið sér upp eigin
kommúnisma ef svo mætti kalla.
Formúlan fyrir kommúnismann
í gamla daga var að hver og einn
skyldi vinna eftir getu og fá eftir
þörfum. Þessir menn vinna eins og
þeir geta og fá eftir þeim þörfum
sem þeir ákveða sjálfir hverjar eru.
Aðrir eiga að halda sér á mottunni.
Þá er unnið markvisst að því í efn-
aðri löndum Evrópu að koma inn
samviskubiti hjá almenningi: Þið
hafið svo gott kaup, tíu sinnum
hærra kaup en í Litháen, þrjátíu
sinnum hærra kaup en í Kína. Menn
eiga að sitja þegjandi undir þessum
samanburði sem er meira og minna
úti í hött.
Þegar ofurlaun berast í tal segja
menn gjarnan: Æ, þetta er alveg
út úr kortinu. Enginn vill þó gera
neitt nema kannski nokkrir Vinstri
grænir. Þökk sé þó fyrir það frum-
kvæði. Aðrir eru búnir að gefast upp
enda á lítill hópur forríkra nú allt:
Bankana, fjölmiðlana og með tíð og
tíma stjórnmálamennina."
Mun þetta breytast?
„Það eina sem maður lærir á því að
verða sjötugur er að allt getur breyst
og að öll stórveldi hrynja að lokum.“
Ertu sami vinstri maðurinn ogáður?
„Já, það er ég. Grundvallarspurn-
ingin er þessi: Höfum við áhyggjur
af því að gæðunum sé misskipt í
heiminum eða ekki? Það hefur alltaf
verið og verður þörf fyrir andóf og
vinstri mennsku. Þó ekki væri nema
til þess - og það skiptir miklu máli
- að láta öllum illum látum yfir alls
konar ranglæti, og láta helst svo
illum látum að breyting verði til
batnaðar."
Ólíkir heimar
Þú fórst til náms í Rússlandi og átt
rússneska konu. Hvað á Rússland
mikið íþér?
„Geysilega mikið. Það er þakkar-
vert að hafa fengið að lifa í tveimur
ólíkum heimum, reyndar svo ólíkum
að ég áttaði mig ekki á því fyrr en
löngu seinna hversu mikill munur
var á þeim. Ég lærði rússnesku og
saga, örlög og hugarfar Rússa urðu
mér nákomin. Og ég bætti miklu við
lífsreynslu mína. Agæt kona sagði
einhvern tíma að mér áheyrandi: Ef
maður eignast ekki lífsreynslu þá
verður maður óhamingjusamur.“
Var Rússlandsdvölin eins og þú bjóst
við?
„Ég fór til Rússlands beint úr
menntaskóla, nýorðinn 19 ára. Ég
vissi ekki hverju ég átti að búast við.
Ungt fólk hefur litla yfirsýn. Það
heldur að allir lifi nokkurn veginn
sama lífi og það sjálft. Ég kom inn
í annan heim og hugsaði með mér:
Hvernig virkar þessi heimur? Ég
gekk inn í stúdentahópinn og eign-
aðist kunningja og marga vini. Á
þessum tíma voru Sovétríkin að
breytast - og ég spurði helst: hvernig
munu breytingarnar koma við
þetta fólk sem var farið að koma
mér mikið við? Þetta var bjartsýn-
isskeið. Krúsjov hleypti mörgum
úr Gúlagi Stalins og svo kom að því
að Rússar tóku forskot á Ameríku í
geimvísindun. Hjá Rússum varð þá
sterk sú tilfinning að erfiðleikarnir
og fórnirnar væru farnar að skila
góðum árangri. Þegar Gagarín hafði
fyrstur manna farið út í geiminn
þá var slegið upp mikilli þjóðhátíð.
Gleði Rússa var alveg ekta, sönn í
botn. Allir voru svo innilega stoltir
af þessum litla brosmilda strák
sem hafði farið út í geiminn. Menn
áttuðu sig ekki á því að þeir höfðu
einungis náð forystu á þröngu sviði.
Þeir töldu víst að svo margir aðrir
sigrar fylgdu í kjölfarið. Og um tíma
virtist svo vera.“
Oflætið og vanmetakenndin
Er til sérstök rússnesk þjóðarsál?
„Ungt fólk á íslandi sem hefur lært
mannfræði og menningarfræði er
svo ógurlega margmenningarlegt
að það má vart heyra það nefnt að
talað sé um íslenska menningu eða
íslenskan menningararf. En ef þú
nú segir við þá ágætu Pólverja sem
hér búa, að pólsk menning sé tilbún-
ingur og pólskt þjóðerni væri goð-
sögn sköpuð af þjóðernissinnum þá
myndu þeir álíta þig vera bölvaðan
fasista.
Svo mikið er víst að Rússar eru
sannfærðir um að þeir hafi þjóðar-
sál. Algengasta skilgreining þeirra
á henni er sú að þeir séu meiri og
einlægari tilfinningaverur en Vest-
urlandabúar og ekki eins mótaðir
af kaupmennskuviðhorfum. Þeim
finnst að þeir séu öðruvísi en við og
eigi að vera öðruvísi annars sé lítið í
lífið varið.“
Hvernig erþá íslenska þjóðarsálin?
„Það getur enginn sagt neitt um
sál sinnar eigin þjóðar. Þú veist
hvernig þetta er. Ef þú ferð til Ítalíu,
dvelur þar í mánuð og kannt örlítið
í ítölsku þá finnst þér þú vita heil-
mikið um Ítalíu og talar hiklaust
um það hvernig ítalir séu. Ef þú
hefur verið átta ár á Ítalíu eins og
ég var í Rússlandi þá mundir þú full-
yrða minna. Þú myndir sennilega
segja eins og ég sagði um Rússa: Þeir
halda að þeir séu svona og svona...
Þótt skrýtið sé eiga stórþjóð eins
og Rússar og smáþjóð eins og Islend-
ingar það sameiginlegt að hendast
sífellt á milli oflætis og vanmeta-
kenndar. Annars vegar teljum við
okkur heldur betri en aðra, duglegri,
gáfaðri eða hjartahreinni, eða þá að
okkur finnst allt í ólestri einmitt hjá
okkur og ekki eins og eigi að vera
hjá fólki. Það sem er leiðinlegast við
Islendinga nútímans er hvað oflætið
hefur mikla yfirburði yfir vanmeta-
kenndina. Menn verða að gæta þess
að blanda rétt - og ekkert er brýnna
á okkar ofstækisdögum en sjálfs-
gagnrýni hvers samfélags.“
kolbrun@bladid.net
m.
Jr
NYLINA A FRABÆRU VERÐI
—
Karolin kr. 119.000,-
Capri
kr. 79.000,-
Domus
ill
ElectcL^
-■*. »•* V~r -
90cm kr. 39.000.
120cm kr. 49.600,
160cm kr. 79.500,
■
ptiflex
Cð
tí
oj
O
c/D
O
•
£
£
£
HÚSGAGNAVERSLUN
TOSCANA
SMIÐJUVEGI 2, KÓP S:587 6090
HÚSGÖGNIN FÁST EINNIGIHÚSGAGNAVAL, HÖFN S: 478 2535
x200 verð frá kr. 69.000.