blaðið - 25.02.2006, Side 36
36 I SNYRTIVÖRUR
LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 2006 blaðiö
Hvað segir hárgreiðslan um þig?
Margir sérfræðingar telja að hár-
greiðslan segi ansi margt um per-
sónuleikann og andlegt jafnvægi
fólks. Blaðið vill að sjálfsögðu
ekki selja þetta dýrara en keypt
var en skemmtilegt getur verið
að skoða málið með hliðsjón af
hinum ýmsu hárgreiðslum sem
verið hafa í tísku.
Pónýhesta tagl
Pónýhesta tagl er þetta háa tagl
sem sumar konur og stúlkur setja í
hárið. Þá eru lokkarnir teknir aftur
og helst eins ofarlega á höfuðið og
hægt er. Yfirleitt eru ekki lausir
lokkar eða lítil hár, heldur er þetta
allt rykkt fast aftur svo að ekkert
flækist fyrir augunum.
Þær sem eru oft með pónýhesta-
tagl geta að líkindum verið meðvit-
aðar um eigin kynþokka og viljað
vekja hvað mesta athygli fyrir kyn-
þokkann. Þó svo að taglið minni
suma einna helst á litla skólastelpu
í skólabúningi er þetta oft til þess
að draga fram seðjandi og þokka-
fullt yfirbragð konunnar.
Uppsettar hárgreiðslur
Hárgreiðslur geta verið afar mis-
munandi og glöggt má sjá hinar
ýmsu gerðir á árshátíðum, böllum
og öðrum skemmtunum þar sem
margt er um manninn og glæsi-
Tjásað tagl
Það að vera með tjásað tagl er að
mörgu leyti líkt því og að vera
með hárið villt og frjálslegt. Hár-
inu er bara kippt upp í tagl án þess
að spáð sé í að hafa taglið eins og
best verður á kosið. Lokkarnir
lafa og oft er skiptingin ójöfn og
half-drusluleg.
Þær sem eru iðulega með tjásað
tagl eru með ágætis sjálfstraust og
líður vel með hár sitt þó svo að það
sé ekki alveg fullkomið. Viðkom-
andi getur verið róleg að eðlisfari
og óhrædd við að vera ekki alveg
upp á tíu í útliti.
Einnig getur spilað inn í að mann-
leikinn allsráðandi. Sumar
konur kjósa að vera helst
alltaf eins og nýkomnar úr
lagningu á meðan aðrar
fussa við uppástrílingum og
öðru sem gerir þær eins og
drottningar.
Þær sem líta alltaf út eins
og þær séu nýstignar út af
hárgreiðslustofunni (jafnvel
þó svo að þær séu bara í sauma
klúbbnum) eru líklegar til að vilja
reglu, festu og öryggi í sínu lífi.
Þær sömu gætu eflaust verið ánægð-
astar þegar verið er að skipuleggja
dagskrá vikunnar.
Villt og frjálslegt
Krullur, liðir og óheft hár hefur
verið mikið í tísku undanfarið og
eflaust eru flestar konur sem vilja
hafa hárið eins frjálslegt og kostur
er. Sumar mæta jafnvel til vinnu
eins og þær vakna og þykja hinar
glæsilegustu, þrátt fyrir flóka og
úfið hár.
Ef þú kýst að hafa hár þitt óheft
og eðlilegt er það merki um að þér
líði vel í eigin líkama. Þú ert líklegri
til að vera róleg
varðandi
þ a ð
eskjan sé
kynþokka-
full og
vilji sýna
hálsinn,
h e r ð -
a r n a r
og það
s e m
morgum
þ y k i r
þokkafyllst
við líkama
kvenna.
og fellt. Það þykir reyndar mjög
flott og margir karlmenn kjósa það
einna helst, en hins vegar er það
einnig merki um að viðkomandi
þori ekki að taka af skarið og prófa
nýja hluti.
Þær sem kjósa alltaf þess sömu
hárgreiðslu vilja halda í hefðina og
sniðganga allar tilraunir. Margar
vilja fara öruggar út og eru hræddar
við að breyta um útlit ef ske kynni
að breytingin félli ekki í góðan jarð-
veg hjá öðrum. Annars er þetta yf-
irleitt mjög flott og kannski ekkert
athugavert við þær sem vilja halda
sig við það sama...
sem
á daga
þína drífur,
ástarlífið og kyn-
lífið. Týpur sem þessar láta allan
stífleika lönd og leið og geta hoppað
upp í rúm án ótta við að verða eins
og úfin hæna.
Slétt og slegið
Það er einnig mjög algengt
að konur séu alltaf með hárið slétt
JBleikt, bleikt
_ og aftur bleikt!
Seiðandi línafrá Chanel
Bleiki liturinn hefur verið mis-
jafnlega vinsæll í gegnum tíðina
enda þótt hann hafi alltaf verið
viðloðandi að einhverju leyti. í
ROPE YOGA
STYRKIR KVIÐVÖÐVA - EFLIR BRENNSLU
Upplýsingar í síma 895 9016
kennslustaður í vesturbænum
morgun og síðdegistímar
dag er sá bleiki vinsæll sem aldrei
fyrr og þá sérstaklega þegar
kemur að snyrtivörum og tísku-
straumum í förðun.
Mörgum konum kann að finnast
barnalegt að vera bleikar og sumum
finnst þessi litur minna einna helst
á litlar barnasamfellur. Staðreyndin
er hins vegar sú að bleikur stendur
ekki síður fyrir kvenleika og kyn-
þokka, eins og sjá má á þessum
vörum frá Chanel. Gerið ykkur
dagamun og setjið bleikt lakk á negl-
urnar og gerið varirnar kyssilegar
með bleikum varalit. Ekki skemmir
svo fyrir að vera með bleikt belti,
klút, hálsmen eða annað sem kór-
ónar heildartóninn.
Oldrunar-
krem frá
Origins
þéttari húð og minni línur
Origins hefur nú framleitt í
fyrsta skiptið öldunarkrem fyrir
konur, 35 ára og eldri.
Varan heitir Youthtopia og er gerð
fyrir þurra sem feita húð, þannig
að allar konur ættu að geta prófað
kremið. Kremið hefur mótandi
eiginleika og dregur úr hrukkum,
bólgum og þrota í andliti, auk þess
að gefa góðan raka og vernda húðina.
Origins hefur sérhæft sig í góðum
kremum og möskum fyrir allar húð-
gerðir og því er ekki úr vegi að gefa
þessari nýju vöru gaum. Tilvalið
fyrir þær sem vilja aukið heilbrigði
húðarinnar, fallegri línur í andliti
og fallegri húð yfirhöfuð.
Kremið er selt í túpuformi eða
krukku, allt eftir því hvort viðkom-
andi hefur þurra eða feita húð. Hægt
er að nálgast vöruna í næstu verslun
á undir 5000 krónum.