blaðið - 01.03.2006, Blaðsíða 1

blaðið - 01.03.2006, Blaðsíða 1
FRJALS IBUÐALAN Okkar markmiö er að veita framúrskarandi þjónustu á sanngjömum kjörum. Komdu til okkar í Lágmúla 6. hringdu i 540 5000 eöa sendu okkur póst á frjalsi@frjalsi.is. Viö viljum aö heima sé best! FRJÁLSI FJÁRf ESTINGARBANKINN Fríálst, óháð & ókeypis! 49. tölublað 2. árgangur miðvikudagur 1. mars 2006 Viðskiptasið- ferði á Islandi gæti versnað Breytingar á íslensku viðskipta- umhverfi gætu haft slæm áhrif á viðskiptasiðferði hér á landi. Þetta má lesa úr orðum Helga Gunnlaugssonar, afbrotafræð- ings við Háskóla Islands, sem segir hættu á að með aukinni áherslu á fyrirtæki á að skila ekki aðeins hagnaði, heldur verulegum hagnaði, leiti stjórn- endur allra leiða til að bæta af- komu fyrirtækja sinna. Dýrir fyrir samfélagið Þessi þróun gæti orðið til þess að svokölluðum hvítflibba- glæpum fjölgi á næstunni. Slíkir glæpir eru gríðarlega kostnað- arsamir fyrir samfélagið og er- lendar rannsóknir sýna að þeir valda allt að tíu sinnum meira fjárhagstjóni en „hefðbundnir götuglæpir“. Nokkur mál sem flokka má sem hvítflibbaglæpi hafa komið upp hér á landi að undanförnu. Umræða um slík brot hefur því verið mikil en engu að síður virðist almenningur sýna þeim lítinn áhuga. Vegna þessa er þrýstingur á stjórnvöld, lögreglu og dóm- stóla minni vegna þessara mála en margra annarra afbrota. Nánar er fjallað um málið á blaðsíðu 6. Heitt vatn olli töfum á umferð All sérstæð sjón blasti við vegfarendum um Reykjanesbraut og Ártúnsbrekku í gærmorgun. Aðalæð hitaveitunnar frá Reykjavik í Mosfellsbæ til borgarinnar sprakk og flæddi heitt vatn upp á Reykjanesbrautina og beljaði þar niður í niðurföll. Samtímis steig upp mikill gufustrókur þannig að úr varð sjónarspil hið mesta. Strókurinn byrgði hinsvegar ökumönn- um sýn og voru margir ragir við að aka í gegnum gufustrókinn án þess að vita hvers kyns væri. Vegna þessa myndaðist mikið umferðaröngþveiti á tímabili. Starfsmenn Orkuveitu Reykjavíkur brugðust hinsvegar hratt við og leiddu heitt vatn með öðrum leiðum inn í þau hverfi sem misstu heita vatnið við bilunina og hófu síðan handa við að stoppa upp í gatið á lögninni. Unnið var við viðgerð stærstan hluta gærdagsins. Höfuðborgarsvæðið meðallestur Ákærður fyrir barnsrán í Bretlandi íslendingur handtekinn á hótelherbergi í Burnley með 14 ára gamalli breskri stúlku. íslendingur á þrítugsaldri er í gæslu- varðhaldi í Burnley á Englandi en hann var handtekinn á miðvikudag í liðinni viku á hótelherbergi með 14 ára gamalli breskri stúlku. Talið er að þau hafi kynnst á spjall- síðu á Netinu og ferðaðist maður- inn til Burnley til þess að hitta hana. Þegar móðir stúlkunnar uppgötv- aði að hún var horfin af heimili sínu hringdi hún til lögreglu og bað um aðstoð. Eftir leit á hótelum í borg- inni fannst stúlkan ásamt mann- inum á hótelherbergi sem skráð var á hans nafn. Ekki er talið að maður- inn hafi haldið stúlkunni gegn vilja hennar, en þar sem hún er undir sextán ára aldri, er farið með málið sem barnsrán. Allt að sjö ára fangelsi Damian Darcy, rannsóknarlögreglu- maður í Burnley, segir í samtali við Blaðið að maðurinn komi fyrir rétt á morgun, fimmtudag. Darcy telur ólíklegt að hann verði leystur úr varðhaldi gegn tryggingu þar sem hann sé búsettur á Islandi og þess vegna sé hætta á að hann flýi land. Viðurlög við brotum af þessu tagi nema að sögn Darcy allt að sjö ára fangelsi. Að hans mati er þó ólík- legt að maðurinn verði dæmdur til þyngstu refsingar. Hann reiknar með að dómurinn, verði hann sakfelldur, muni hljóða upp á að minnsta kosti þrjú ár í fangelsi. íslendingurinn er ákærður fyrir að hafa, á tímabililinu 19-22. febrúar haft stúlkuna hjá sér án samþykkis forráðamanns. Kynntust á Netinu Lögreglan telur að maðurinn hafi kynnst stúlkunni á Netinu. Að sögn Darcy grunaði móður stúlkunnar að hún hefði farið að hitta manninn og kærði hún málið til lögreglunnar. Darcy segir, að samkvæmt breskum lögum gildi einu hvort stúlkan hafi samþykkt að fara með manninum, hann verði sjálfkrafa kærður fyrir barnsrán þar sem hún er undir sex- tán ára aldri. Maðurinn kom fyrir rétt þann 23. febrúar sl. Málið verður næst tekið fyrir á morgun. Darcy segir að þá verði sakborningur spurður hvort hann lýsi sig saklausan eða sekan, og síðan gangi málið sína leið. STÓRI BÓKAMARKAÐURINN Perlunni og Akureyri 23. feb. - 5. mars Hvaða langar OPIÐ ALLA DAGA FRÁ KL. 10-18 Bókamarkaður

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.