blaðið - 01.03.2006, Blaðsíða 21

blaðið - 01.03.2006, Blaðsíða 21
blaðiö MIÐVIKUDAGUR 1. MARS 2006 FERÐALÖG I 21 BlaM/Fnkki um að þrífa hann á meðan á ferða- laginu stendur. Bílnum er þá ekið á skammtímastæði fyrir framan völl- inn og síðan er móttaka lykla í inn- ritunarsal. Bíllinn er svo þrifinn og bíður viðskiptavinarins fyrir utan flugvöllinn þegar heim kemur. svanhvit@bladid. net Fljúgðu af stað Ferðalagið hefst jafnan áflugvellinum enda er ákveðin stemning þar en hvernig er hest að koma sér á völlinn? Það má óhikað segja að ferðalagið hefjist á flugvellinum. Það er einhver ákveðin stemning fólgin í því að rölta um fríhöfnina, versla gjafir handa vinum og vanda- mönnum og fá sér eitthvað að narta í. Flestum finnst þægilegt að koma tímanlcga í fríhöfnina og gefa sér eins mikinn tíma og mögulegt er. Fararskjótinn á flugvöllinn er eitthvað sem ber að velta fyrir sér í tíma því það er liður í þvi að komast tíman- lega af stað. Það eru helst þrír kostir í boði; Flugrútan góða, hlýr og þægilegur leigubíll eða gamli góði einkabíllinn. En hvað stendur upp úr? Fljúgðu afstað Flugrútan hefur för frá Umferðamið- stöðinni BSl samkvæmt ákveðinni tímatöflu og ekur sem leið liggur í Keflavík. Á leiðinni er hægt að taka upp farþega við Bitabæ í Garðabæ og við Fjörukrána í Hafnarfirði. Hægt er að panta ferðir í síma 562- 1011 og ferðin kostar 1100 krónur. Þegar heim er komið má líka taka flugrútuna til baka en hún fer að jafnaði 35-40 mínútum eftir komu hvers farþegaflugs. Flugrútan hefur hiklaust þá kosti að ekki þarf að hafa áhyggjur af einkabílnum né eyða miklu fé í að komast á flug- völlinn. Margir búa svo vel að geta jafnvel gengið að rútunni og þar með er ferðin hafin. Ókostirnir við að fara í rútunni geta verið þrengsli, en sumum þykja þau truflandi auk þess sem margir vilja helst ekki ferð- ast með hópi ókunnugra. Fljótlegt, þægilegt og gott Enginn efast um þægindi leigubíla og þá nota margir til að komast leiðar sinnar á flugvöllinn. Leigu- bíllinn er þá oftar en ekki pantaður kvöldið áður og um morguninn þarf einungis að setjast upp í heitan bíl- inn og láta sig dreyma alla leiðina á flugvöllinn. Rétt eins og í flugrút- unni þarf engar áhyggjur að hafa í leigubílnum, utan þess að setjast inn í farartækið og láta sér líða vel. Kost- irnir eru ótvíræðir en gallinn er helst sá hve dýr ferðin er. Ef miðað er við að leigubíllinn sé tekinn að morgni (fyrir átta) frá miðbæ Reykjavíkur út á Keflavíkurflugvöll þá kostar ferðin um það bil 8000 krónur. Gamli, góði, öruggi Sumir kjósa að fara á sínum eigin bíl enda hefur það alltaf ákveðna kosti í för með sér. Hægt er að ráða ferð- inni algerlega sjálfur og til dæmis má koma við einhvers staðar án þess að í því felist aukakostnaður. I einka- bílnum er auk þess hægt að bjóða hverjum sem er far án þess að krefja hann greiðslu. Bílinn er svo hægt að geyma á Keflavíkurflugvelli í eins langan tíma og ferðin tekur. Kostn- aðurinn við að fara á eigin bíl fer því algerlega eftir því hve löng ferðin er. Ef ferðalagið stendur yfir í 1-7 daga þá kostar sólarhringurinn 500 krónur. Þó fæst einhver afsláttur við lengri geymslu á bílnum og til dæmis kostar 4500 krónur að geyma bílinn í 15 sólarhringa. Eins er hægt að nota tímann og fá fyrirtækið Alex til að geyma bílinn en þeir sjá FISKISLÓÐ16 I 101 REYKJAVÍK I SÍMI 520 0000 I www.rs.is I www.garmin.is Umboðsmenn I Akureyri: Haftækni ■ Blönduós: Krákur Egilsstaðir: Bílanaust ■ Grundarfjörður: Mareind • ísafjörður: Bensínstöðin • Reyðarfjörður: Veiðiflugan ■ Selfoss: Hársnyrtistofa Leifs ■ Vestmannaeyjar: Geisli ■ Reykjavík: Arctic Trucks, Bífanaust. Elko, Everest, Gísli Jónsson, Hlað, Intersport, Stormur, Toyota aukahlutir, Útitif, Vesturröst, Yamaha ■ Fríhöfnin GARMIN KEMUR ÞÉRÁSPORIÐ MEÐ NÝJU X-TREME TÆKJUNUM SGARMIN. R.SIGMUNDSSON Komdu í glæsilega verslun okkar við Fiskislóð 16 úti á Granda og kynntu þér gott úrval GPS stað- setningartækja frá Garmin. Við eigum allar stærðir og gerðir af tækjum sem henta fyrir hvers konar veiði, útivist og jafnvel skokkiö, innanbæjar sem utan. Garmin GPSmap 60CSx Leiðsögutæki fyrir veiði- og útivistarfólk Ótrúlega öflugt staðsetningartæki fyrir útivistarfólk. Tækið er með rafeinda- áttavita, hæðartölvu, 64Mb Micro SD minniskubbi og SiRF GPS móttakara. Fjölhæft tæki í bílinn, veiðina eða á fjallið. Vinsælasta GPS tækið í dag. eTrex Legend Cx Smár en knár, fer vel í hendi og tekur lítið pláss í vasa með 32Mb Micro SD minniskubbi. eTrex Vista Cx Láttu ekki stærðina blekkja þig, þessi er með rafeinda- áttavita og hæðar- tötvu ásamt 32Mb Micro SD minniskubbi. Garmin GPS60Cx Sama tæki og 60CSx en án rafeindaátta- vitans og hæðar- tölvunnar en er með 64Mb Micro SD minniskubbi og SiRF GPS móttakara. Nýtt GPS kort fyrir Garmin tæki, með götum, heimilisföngum og hæðarlínum GPS kort er vektor kort af íslandi fyrir Garmin GPS tæki með leiðsöguhæfum vegagögnum um allt land. Einnig götukort af höfuðborgarsvæðinu með heimilisföngum, 20 metra hæðarlínum úr ISV-50, 40.000 örnefni og áhugaverðir staðir, vatnafar, þjóðvegir, fjallaslóðar og skálaskrá. í fyrsta sinn á íslandi fæst nú vegakort með leiðsöguhæfum gögnum fyrir PC tölvur, Windows Mobile handtölvur og Garmin GPS tæki. Láttu ekki afvegaleiða þig - vetdu Garmin. ókeypis til heimila og fyrirtækja alla virka daga I ?] FTT»lt»g

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.