blaðið - 01.03.2006, Blaðsíða 38
MIÐVIKUDAGUR l.MARS 2006 blaðið
381
HINN
ÚRKYNJA HER
Þetta kann að koma ykkur á óvart: Smá-
borgarinn er samkynhneigður. Eflaust
taka margir andköf þegar þeir lesa þetta
en svona er í pottinn búið. Ykkar auðmjúki
Smáborgari kengöfugur. Hverjum hefði
dottið slík óhæfa í hug?
En þetta er ekki allt, það glittir rátt
svo í topp isjakans. Smáborgarinn á nefni-
lega barn. Barn sem hann eignaðist með
vægast sagt ókristilegum og ógeðfelldum
aðferðum. Barn sem er hvorki hvítt, gult,
rautt, brúnt né svart heldur röndótt - úr
öllum regnbogans litum. Með hjálp ým-
issa hefur Smáborgaranum tekist að búa
til smáborgarafjölskyldu þar sem allir
meðlimirnir eru af sama kyni. Og þið sem
hélduð að þið hefðuð heyrt allt.
Barn smáborgarans er auðvitað gjör-
samlega veruleikafirrt og gerirengan grein-
armun á góðu og slæmu, réttu eða röngu.
Það fær þetta frá uppeldinu sem Smáborg-
arinn og samkynhneigðir vinir hans bera
ábyrgð á. Eins og allir alvöru öfuguggar
hefur Smáborgarinn átt marga „góða vini"
sem hefur einungis hjálpað til við óöryggi
krílisins sem kallar annan hvern mann á
götu úti mömmu eða pabba - voðalega
krúttlegt. Smáborgarinn stundar þar að
auki svokölluð barnaskipti sem tíðkast
mikið innan samfélags samkynhneigðra.
Barnaskiptin ganga út á að rugla börn í
ríminu með því að skipta reglulega um
maka. Best er ef skiptin ganga svo hratt
fyrirsig að sama manneskjan skiptir aldrei
tvisvarum bleyju.
Allt að ofangreindu er gert af yfirlögðu
ráði og samkvæmt vandaðri heráætlun
Samfélags samkynhneigðra smáborgara.
SSS er nefnilega komið vel á veg með
að mynda fyrstu herdeildina af mörgum
sem smjúga mun inn í íslenskt samfélag
og sökkva því hægt og bítandi. Samfélagið
hefur þegar hrint djöfullegum áætlunum
sínum f framkvæmd og komið sínu fólki
í innsta hring áhrifamanna þjóðarinnar;
meðal spilltra þingmanna, ómálefnalegra
pistlahöfunda og jafnvel hárgreiðslufólks.
Af Alþingi verður ráðabrugginu stýrt fyrst
um sinn svo samkynhneigðir fái örugglega
inngöngu að himnaríki með tilheyrandi
vellystingum þrátt fyrir að lifa í eilífri
synd. Þegar því hefur verið komið á kopp-
inn byrjar svo ballið fyrst fyrir alvöru.
( þúsundatali munu börn samkyn-
hneigðra fara inn í skólakerfið og menga
það með ranghugmyndum innanfrá. Her
úrkynjunar mun fylla höfuð trúrækinna Is-
lendinga með tómri þvælu um að allir skuli
vera jafnir, að útréttir armar Krists séu
næstum öllum opnirog að samkynhneigð
sé eðlileg -jafnvel ekki sjúkdómur.
HVAÐ FINNST ÞÉR?
Gtsli Marteinn Baldursson, varaborgarfulltrúi.
Hvernig líst þér á
friðarsúluna í Viðey?
„Við eigum eftir að sjá almennilega hvernig útfærslan verður. Mér finnst til
dæmis skipta máli hvort hún verður 12 eða 30 metrar. Samkvæmt því sem
mér skilst er þetta býsna dýr framkvæmd og ég myndi vilja sjá einkaaðila
koma að þessu verkefni, enda nægt framboð fyrirtækja sem vilja leggja sitt
af mörkum til þess að fegra borgina. Ég sit reyndar í menningar og ferða-
málaráði og þar hefur ekkert verið fjallað um málið, þrátt fyrir að það sé á
okkar könnu.“
Doherty enn einu
sinni handtekinn
Enn og aftur er vandræðagemsinn Pete Doherty búinn að koma sér í
klandur en í þetta skiptið var hann handtekinn vegna gruns um að stela
bíl og að vera með fíkniefni í fórum sínum.
Doherty var ásamt tveimur mönnum, 18 og 19 ára, í bílnum þegar þeir
voru stöðvaðir og voru þeir að sögn lögreglu i annarlegu ástandi.
Ekki er langt síðan Doherty slapp við fangelsisdóm vegna
fíkniefnanotkunar. Þetta mál er því olía á eldinn og á hann
að öllum líkindum yfir höfði sér háar sektir og fangelsis-
dóm ef hann verður sakfelldur.
Carey aftur í kvikmynd
Eftir vel heppnaða endurkomu í tónlistarbransann hyggst Mariah Carey beina sjónum
sínum að kvikmyndum og hefur hún fallist á að leika í kvikmyndinni Tennessee. Kvik-
myndir hafa ekki alltaf verið það besta fyrir Carey en eftirminnilegt er þegar kvik-
myndin Glitter frá árinu 2001 rústaði nánast ferli hennar og geðheilsu.
Carey lék einnig í kvikmyndinni WiseGirls frá árinu 2002 en í þetta skiptið hef-
ur hún fallist á að leika þjónustustúlku sem leggur upp i ferðalag með tveimur
bræðrum sínum í leit að föður þeirra til að bjarga yngsta bróður sínum sem er
með banvænan sjúkdóm.
Leikstjóri myndarinnar, Aaron Woodley, ákvað að bjóða Carey hlutverkið
eftir að hennar síðasta plata, The Emancipation Of Mimi varð mest selda
plata ársins 2005 en hann var einnig ánægður með frammistöðu hennar
í WiseGirls.
Hawn íœr sér húðflúr
1
/ Leikkonan Goldie Hawn fagnaði ásamt fjölskyldu sinni 60 ára
afmæli sínu með því að fá sér húðflúr.
Hawn og fjölskyldan voru í fríi á Tahítí þegar þau tóku eftir húð-
flúrstofu í göngutúr sem þau fengu sér eftir afmæliskvöldverðinn.
„Þetta var ekki planað,“ sagði Hawn, aðspurð um húðflúrin. „Eldri sonur
minn stakk allt í einu upp á að öll fjölskyldan gerði þetta og okkur fannst
þetta bara frábær hugmynd vegna þess að við erum svo brjáluð fjölskylda.“
Hawn fékk sér hjarta, sem tengdardóttir hennar teiknaði og Kurt Russell, eigin-
maður hennar, fékk sér stafinn „G“ á öklann. Synir þeirra tveir fengu sér asísk tákn
sem merktu „bróðir.“
Vel veiðist
Hollensku fatahönnuðurnir Viktor & Rolf eru fastagestir í tískuvikunni í París þar sem
þeir sýna það nýjasta og flottasta sem boðið verður upp á á komandi hausti. Á sýningu
þeirra í vikunni báru allar fyrirsæturnar net fyrir andlitum sínum og vakti það athygli
gesta.
HEYRST HEFUR...
Prátt fyr-
ir að
Ólína Þor-
varðardótt-
ir hafi sagt
skólameist-
arastöðunni
lausri má
segja að þau
hjónin hafi töluverðan stuðn-
ing ísfirðinga enda landaði
eiginmaður hennar, Sigurður
Pétursson góðum kosninga-
sigri í prófkjöri 1-listans á Isa-
firði. Menn fyrir vestan virð-
ast því flestir þakklátir fyrir
þann skikk sem Ólína hefur
komið á bókhald skólans, auk-
inn nemendafjölda og bættari
einkunnir. Ólína sjálf er ekki
eins ánægð með framgöngu
menntamálaráðuneytisins í
málinu en einhver verður bið-
in á svörum ráðherra þar sem
Þorgerður Katrín er enn og
aftur fjarri góðu gamni þegar
málefni ráðuneytisins eru í
brennidepli.
Prátt fyr-
ir fjöld-
ann allan af
fordæmum
pískra menn
nú um að
ekki geti far-
ið vel á því
að Bjarni
Benediktsson gegni samtimis
þingmennsku og stjórnarfor-
mennsku í gamla olíufélaginu
Essó. Það geti orkað verulega
tvímælis- enda margvísilegir
hagsmunáárekstrar sýnilegir í
stöðunni og óvarlegt að halda
því fram að þessi aukavinna
þingmannsins geti talist til eft-
irbreytni.
Borgarfull-
t r ú i n n
Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson,
sem tjúttaði
með Baugs-
mönnum í
London í síð-
ustu viku, átelur kollega sinn
Dag Bergþóruson Eggertsson
fyrir að vera ekki við borgar-
stjórnarfundi en Dagur hefur
verið á ferðalagi um Istanbúl
að undaförnu. Dagur er þó
varla í mikilli partístemmn-
ingu en hann er í forsvari fyr-
ir borgina
í forvarn-
arverkefni
nokkurra
E v r ó p u -
ríkja gegn
fíkniefna-
notkun ung-
menna.
Ossur Skarphéðinsson
er ekki beinlínis vanur
að skafa af hlutunum en á
heimasíðu sinni hefur hann
tilnefnt Kastljóskonuna knáu,
Jóhönnu Viihjálmsdóttur,
til blaða-
mannaverð-
launa næsta
árs fyrir
v a n d a ð a
umfjöllun
um skatta-
mál. Gamli
ritstjórinn
ætti að þekkja faglegu vinnu-
brögðin til hlítar en hann telur
þessari tilnefningu sinni það
til enn frekari staðfestingar
hvert Jóhanna rekur ættir sín-
ar. Það er ótrúlega leiðinlegt
þegar stjórnmálamenn draga
fjölmiðlafólk í dilka með þess-
um hætti en líklega eiga þeir
erfitt með að hugsa málin með
öðrum hætti.
Vaknaðu. Kötturinn komst í tennurnar þínar.