blaðið - 01.03.2006, Blaðsíða 22

blaðið - 01.03.2006, Blaðsíða 22
22 I FERÐALÖG MIÐVIKUDAGUR 1. MARS 2006 blaðiö Allt um Kaupmannahöín Á Netinu er að finna mjög góða vefsíðu sem frœðir mann um allt það helsta sem er á döfinni í Kaupmannahöfn. Kaupmannahöfn er án efa ein uppáhaldsborg íslendinga. Þangað höfum við farið í frí, nám, sumarvinnu eða jafnvel til að hefja nýtt líf. í hugum margra er Kaupmannahöfn álíka framandi og Akureyri og því ávallt auðsótt mál að skella sér til Köben. En hvað á svo að gera þegar þangað er komið? Á Netinu er hægt að finna svar við því, en á vefslóðinni www. aok.dk er hægt að fá upplýsingar um allt sem er að gerast í Köben, hvort sem um er að ræða flóaamarkaði, veitingastaði sem bjóða upp á vatns- pípureykingar, verslanir, leikhús eða skemmtistaði. Góðir hlekkir Umsjónarfólk síðunnar mælir sér- staklega með ýmsum viðburðum og veitingastöðum í borginni. Ef vera skyldi að eitthvað freistaði sér- staklega er auðvelt er að rata á rétta staðinn því við hverja umfjöllun er hlekkur sem sýnir manni kort af viðkomandi stað. Að auki eru þar hlekkir á upplýsingar um lesta og strætisvagnaferðir sem gott að er að nýta sér. Þá er sleginn inn tími og áfangastaður og svo koma fram upplýsingar um hvar næsta stoppi- stöð sé og hversu langan tíma ferðin komi til með að taka. Engin ástæða til að kunna dönsku, bara ensku. AOK er bæði á ensku og dönsku. Sé enski valkosturinn notaður er síðan aðeins öðruvísi en á dönsku og ekki alveg sömu upplýsingar í boði. Á ensku útgáfunni er til dæmis hægt að skoða veitingastaðina beint út frá þeim löndum á meðan það er einn valmöguleiki á síðunni sem er á dönsku. Búast má við að danska út- gáfan innihaldi líka einhverjar fleiri ‘innanbúðar” upplýsingar þó að sú enska sé vissulega ákaflega gagnleg. Útsölur og annað gott Langi þig til að versla ódýrt er hægt að slá inn leitarorðinu “lagersalg” eða “outlet” og þannig ættir þú að ramba á útsölur sem selja merkja- vöru á góðu verði. Það er einmitt upplagt nú, þvi aldrei fyrr hafa Danir verið jafn mikið fyrir tískuna og á undanförnum árum. Hafir þú áhuga á gömlu dóti, húsgögnum og fleiru, skaltu slá inn leitarorðið ‘loppemarked” og þá færðu upplýs- ingar um skemmtilega flóaamark- aði sem Danir eru góðir í að halda. Inn á þessa gagnlegu síðu eru líka settar upplýsingar um nýjustu versl- anirnar, útsölur, tilboð og margt margt fleira þannig að enginn ætti að láta það framhjá sér fara að skoða AOK vandlega áður en flogið er út til kóngsins, eða drottningarinnar Köbenhavn. margret@bladid.net Listasafn Kópavogs GERÐARSAFN Kópavogui Menning og list Listasafn Kópavogs - Gerðarsafn Sýningarsalir eru opnir Alla daga nema mánudaga: 11:00-17:00 Skrifstofan opin: 9:00-12:00 og 13:00-17:00 Aðgagseyri: 300 kr. Aðgangur er ókeypis á föstudögum Hamraborg 4 200 Kópavogi Sími 570 0440 og 570 0442 Fax 570 0441 www.gerdarsafn.is Bókasafn Kópavogs Bókasafnið er opið: Mánudaga til fimmtudaga kl. 10:00-20:00 föstudaga kl. 11:00-17:00 laugardaga og sunnudaga kl. 13:00-17:00 Hamraborg 6a 200 Kópavogi Sími 570 0450 Fax 570 0451 www.bokasafnkopavogs.is Salurinn, Tónlistarhús Kópavogs Skrifstofa Salarins er opin virka daga Hamraborg c kl. 9:00-16:00 200Kópavogi Bókanir og nánari upplýsingar Sim's ™° 400 i sima 5 700 400 salurinn@salurinn.is Miðasala opin virka daga 9:00-16:00 og klukkustund fyrir tónleika. Salurinn Náttúrufræðistofa Kópavogs Sýningarsalir eru opnir semhérsegir: Mánudaga tii ftmmtudaga kl. 10:00-20:00 Föstudaga kl. 11:00-17:00 laugardaga og sunnudaga kl 13:00-17:00 Aðgangurerókeypis. Hamraborg óa 200 Kópavogi Sími 570 0430 www.natkop.is láttúrufræðístofa Kópavogs

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.