blaðið

Ulloq

blaðið - 01.03.2006, Qupperneq 4

blaðið - 01.03.2006, Qupperneq 4
4 I IWWLEWDAR FRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 1. MARS 2006 blaðiö Skaðlegar auglýsingar Auglýsingar sem eru skaðlegar börnum eru alltof algengar á þeim tíma þegar börn horfa hvað mest á sjónvarp að mati Ingibjargar Rafnar, umboðsmanns barna. f dag, miðvikudag, verður haldin ráðstefna á vegum umboðsmanns barna, talsmanns neytenda og samtakanna Heimili og skóli undir yfirskriftinni Börn og auglýsingar. Á ráðstefnunni er ætlunin að skoða hvort vilji sé til að setja frekari mörk við markaðssókn sem beinist að börnum. Að sögn Ingibjargar berast henni margar kvartanir vegna sjón- varpsauglýsinga þar sem gengið er fram af börnum. Þá segir hún alltof mikið um það að auglýsingar sem beinlínis eru skaðlegar börnum séu birtar i kringum barnatíma. Ráðstefnan verður haldin Grand Hótel í dag en viðtal við Ingibjörgu má lesa á blaðsíðu 12 í Blaðinu í dag. Ekki farið á áhættustig tvö mbl.is | Jarle Reiersen dýralæknir alifuglasjúkdóma hjá Landbúnaðar- stofnun, sem situr í viðbragðshópi stofnunarinnar vegna fuglaflensu, segir ekki þörf á því að fara á áhættustig tvö vegna flensunnar þó skúfendur hafi greinst með alvarlegt afbrigði fuglaflensu í Sví- þjóð. Jarle sagði að þessi andastofn flygi ekki til Islands og lítil hætta á því að hann komi til lslands. Það verði ekki farið á hættustig tvö þar sem það sé afar dýrt og erfið framkvæmd fyrir fuglabændur. Ef flensan greinist í Bret- landi verði hins vegar farið á það áhættustig án tafar. i" Bókaðu nuna a < i www.hei msferdijr.is ; Samstillt átak þarf til að koma Háskóla íslands í fremstu röð Gylfi Magnússon segir mögulegt að koma HÍ á meðal 100 bestu háskóla heims á tíu árum. Á lista sem tekin er saman af fræði- mönnum við Jiao Tong háskólann í Sjanghæ, þar sem 500 bestu háskólar heims eru tilgreindir, er fjöldi nor- rænna háskóla, og í efstu hundrað sæt- unum eru þeir sjö. Gylfi Magnússon, forseti viðskipta- hagfræðideildar HÍ segir yfirlýst markmið háskólarekst- ors vera lofsvert, en til þess að það megi nást verði að koma til samstillt átakþjóðarinnar. Skólagjöld nægja ekki Viðskipta- og hagfræðideild oglaga- deild Hl hafa sótt um heimild til þess að taka upp skólagjöld. Gylfi segir skólagjöldin, verði þau tekin upp, ekki nægja til þess að það markmið að koma Háskóla íslands í fremstu röð í heiminum verði að veruleika. „Ósk okkar um að taka upp skólagjöld snýst aðallega um að geta komist sómasamlega frá kennslunni og ég held að með þessari fjárhæð sem skólagjöldin gæfu ættum við að geta það.“ Hann segir gæðamat há- skóla fara annars vegar eftir gæðum kennslunnar, og hins vegar eftir því rannsóknarstarfi sem stundað er í skólunum. „Rannsóknir verða ekki fjármagnaðar með skólagjöldum og til þess að ná þeim árangri sem þarf til þess að komast á þennan lista, sem ég tel vera mjög lofsvert markmið, þarf að stórauka fé til rannsókna," sagði Gylfi. H( um margt ágæt stofnun Gylfi segir að rannsóknaháskólar leggi miklu meiri áherslu á meistara- | mL Frá 43*895 kr. Vinsælasta sólarströnd ítaliu frá 43.895 kr. Netveró á mann með 10.000 kr. afslætti, m.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára, vikuferð í maí eða 21. júní. Riviera íbúðahótelið. 0, Heimsferðir nám og sérstaklega á doktorsnám. Hann segir raunhæft að stefna að því að Hl komist ofarlega á þennan lista á tíu árum. „Við náum þessu ekki fyrir hundrað ára afmælið sem er árið 2011, en ég held að með góðum stuðningi þjóðarinnar og samstilltu átaki háskólafólks gæti markmiðið verið innan seilingar eftir áratug.“ Hann bendir á að þeir skólar sem hæst mælast þegar gæði háskóla eru mæld séu flestar stofnanir með mörg- hundruð ára sögu. „Hlerum margt ágæt stofnun sem á sér nítíu ára sögu. Skólinn hefur náð góðum árangri á ýmsum sviðum, sérstaklega í ljósi þess hve litlum fjár- munum hann hefur haft úr að spila. Hagkerfið og þjóðin eru að komast á það stig, að ef við ætlum að taka þátt í lífsgæðakapphlaupi 21. aldarinnar þá verðum við að eiga háskóla sem er samkeppnisfær við þá bestu i heim- inum. Það er deginum ljósara að efna- hagslíf framtíðar mun snúast um alls kyns þekkingariðnað, en ekki fram- leiðslu eða náttúruauðlindir.“ Skólagjöld skapa aðhald Umsókn þessara tveggja deilda til þess að taka upp skólagöld er leið þeirra til þess að ráða fram út þeim fjárhagsvanda sem þær búa við að sögn Gylfa. „Hins vegar tel ég einnig að skólagjöld bæti að mörgu skóla- starf alveg óháð því fé sem þau útvega skólunum. Við verðum vör við að nem- endur bera ekki tilhlýðilega virðingu fyrir því sem þeir fá ókeypis." Hann segir nemendur hafa tilhneigingu til þess að prófa sig áfram í náminu ef það kostar ekkert og að oft verði lítið sem ekkert úr því námi. „Það er allt annað andrúmsloft í skólum þar sem eru skólagjöld. Við þekkjum það vel hér í minni deild þar sem við höfum boðið MBA nám þar sem eru skóla- gjöld. Þar ríkir allt annar andi en þar sem fólk fær þetta nánast ókeypis. Skólagjöld skapa því ákveðið aðhald. Fólk sem hefur nám sem kostar það eitthvað gerir það að vandlega athug- uðu máli og leggur sig fram um að fá eitthvað út úr náminu." Vilja opna landið fyrir erlendu launafólki Tryggja verður að farið verði eftir íslenskum lögum og kjarasamn- ingum ef opna á fyrir frjálsa för erlends launafólks hingað til lands að mati Ögmundar Jónassonar, formanns Bandalags starfsmanna ríkis og bæjar (BSRB). Samtök at- vinnulífsins vilja afnema allar tak- markanir sem allra fyrst. íslensk laun skulu gilda Fram kom í fjölmiðlum í gær að Hannes G. Sigurðsson, aðstoðar- framkvæmdastjóri Samtaka at- vinnulífsins (SÁ), telur mikilvægt að afnema beri sem fyrst takmark- anir á frjálsri för launafólks hingað til lands frá Evrópusambandinu. Bindur hann vonir við að stjórn- völd afnemi allar takmarkanir ekki síðar en 1. maí næstkomandi. Útlit er fyrir að Austurríki, Frakkland og Þýskaland muni ekki framlengja þau takmörk sem þar hafa verið í gildi og bendir Hannes á að góð reynsla sé af frjálsu flæði verkafólks í Svíþjóð, á Englandi og írlandi. Ögmundur Jónasson, formaður BSRB, segir rétt að fara vel yfir stöðu málsins áður en ákvarðanir verði teknar. „Þetta hefur verið til umræðu innan BSRB. Við teljum rétt að farið sé yfir stöðu málsins og höfum leitað eftir því við stjórn- völd að svo verði gert. Að þeirri yfir- ferð lokinni munum við kveða upp úr með okkar afstöðu en ekki fyrr.“ Þá telur Ögmundur mikilvægt að verði takmarkanir afnumdar muni það ekki leiða til þess að réttindi íslensks launafólks skerðist. „Það hefur verið reynt að fara á bak við lögin að undanförnu og gegn því hefur verkalýðshreyfingin almennt snúist til varnar. Við viljum að það verði farið að íslenskum lögum sem kveða mjög skýrt á um að umsamin laun á íslenskum vinnumarkaði skuli gilda sem lágmarkskjör.“ jjl Dýrkeypt grín í Alasundi Tvítugur Islendingur, sem starfað hefur í verksmiðju Sæplasts í Ála- sundi í Noregi, sagði upp störfum í vikunni. Uppsögnin kom í kjölfar þess að hann, ásamt norskum vinnu- félaga sínum, skrýddist búningum í vinnunni eins og notaðir eru af fé- lögum bandarísku kynþáttaaðskiln- aðar samtakanna Ku Klux Klan. Þeir gengu um verksmiðjugólfið með hvítar hettur á höfði og veif- uðu uppreisnarfána Suðurríkjanna. Uppátækið vakti litia hrifningu innan fyrirtækisins og var þess óskað að tvímenningarnir segðu störfum sínum lausum. Ekki kynþáttahatarar I viðtali við norska blaðið Sunnmörs- posten segir Norðmaðurinn að þeir félagar séu á engan hátt haldnir kyn- þáttafordómum, heldur hafi uppá- tækið átt að vera grín. Ljósmyndir voru teknar af atvikinu og var þeim dreift á meðal vina mannanna. I sama blaði er haft eftir Ara Jósefssyni, forstjóra Sæplasts í /rœrt' 'íAyr Noregi, að þrátt fyrir afsak- anir tvímenninganna eigi svona athæfi ekki að viðgangast á vinnu- stað og því hafi þeim verið gert eafóoeeimi að hætta. UM mr Skógarhlíð 18 • 105 Reykjavik • Sími 595 1000 • Fax 595 1001 Akureyri sími: 461 1099 • Hafnarfjörður sími: 510 9500 ' oy/ofluáfxi

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.