blaðið

Ulloq

blaðið - 01.03.2006, Qupperneq 13

blaðið - 01.03.2006, Qupperneq 13
blaðiö MIÐVIKUDAGUR 1. MARS 2006 VIÐTALI 13 auglýsingar sitt hvoru megin við barnatímann." Börn gera kröfur á foreldra sína um að kaupa vörur „Það er til Evróputilskipun sem fjallar m.a. um börn og auglýsingar og ákvæði 20. greinar islensku út- varpslagslaganna eru sniðin að þessum reglum. Þar segir meðal ann- ars að auglýsingar megi ekki valda ólögráða börnum siðferðilegum eða líkamlegum skaða. Þær skuli ekki beinlínis hvetja ólögráða börn eða ungmenni til að kaupa ákveðna vöru eða þjónustu með því að nýta sér reynsluleysi þeirra eða trúgirni. Þær skuli ekki beinlínis hvetja ólögráða börn eða ungmenni til að hvetja foreldra sína eða forráðamenn til að kaupa vöru og þær skuli ekki nýta sér það sér- staka trúnaðartraust sem börn bera til fullorðinna. Að lokum skulu þær ekki sýna ólögráða börn við hættu- legar aðstæður eða í hættu stödd. Þetta eru reglur Evrópusambands- ins og öll lönd innan þess eiga að virða þessar reglur í sinni sjónvarps- starfssemi, en einstök lönd á borð við Svíþjóð og Danmörku hafa þó sett strangari reglur en þetta. Stundum er þó farið í kringum reglurnar með því að senda út frá löndum sem ekki búa við þessar sömu ströngu reglur.“ Kynlífsvæddar auglýsingar Tíðarandinn breytist eftir því sem ár og aldir líða. 1 dag er óhætt að fullyrða að það séu aðrir hlutir sem ögra og koma fólki í uppnám en til dæmis fyrir tuttugu og fimm árum. 1 dag þarf oft meira áreiti til að aug- lýsingar nái til fólks og áherslurnar eru orðnar ýktari. „Við erum kannski svolítið að troða þessum fullorðins heimi og fullorðins skyldum upp á börnin. Til dæmis kynlífsvæðum við aug- lýsingarnar meira og látum þær höfða til hvata sem börn hafa engan skilning á en eru samt að reyna að tileinka sér án þess að gera sér grein fyrir hvað í því felst,“ segir Ingibjörg alvarleg í bragði. Ekki hægt að banna Silvíu Nótt Undanfarið hefur Silvta Nótt öðlast miklar vinsœldir hjá ungum börnum og þá sér í lagi stelpum sem kannski taka hana sér til fyrirmyndar. Silvía Nótt er samt sem áður ádeila á af- sprengi hinnar svokölluðu klámkyn- slóðar, lágmenningar og neyslumenn- ingar. Hvað finnst Umboðsmanni barna um þetta? „Þetta er auðvitað mjög vandmeð- farið. Hún er eflaust að gera grin að þessari fígúru, en svo er til fullt af fólki sem samsamar sig þessu og finnst smart og flott. Krakkar hafa auðvitað ekki þroska til að sjá satír- una í þessu. Það er náttúrlega ekkert hægt að banna Silvíu Nótt en það væri kannski hægt að sjá til þess að hún væri ekki i mynd á meðan börnin horfa á sjónvarpið, til dæmis fram til klukkan níu á kvöldin. Við fullorðna fólkið eigum bara að sitja á okkur fram yfir þann tíma með að birta efni sem er óæskilegt fyrir börn. Þetta kallar líka á að foreldrar fræði börnin sín um hvað Silvía Nótt sé að meina með þessu. Otskýra fyrir þeim að hún sé ekki að hvetja fólk til að vera svona heldur er hún að gera grín að þeim sem eru svona -yfirborðsmennskunni. Þetta er alltaf spurning um hvort það þurfi að vernda og hver eigi að gera það. Ég er þeirrar skoðunar að það séu fyrst og fremst foreldrar sem eiga að bera þessa ábyrgð. Stjórnvöldum ber svo að styðja foreldrana í þessu hlutverki enda eigum við að leyfa börnunum að vera börn sem allra, allra lengst. Við eigum að virða það að þau eru bara lítil og hafa rétt á því að vera saklaus eins lengi hægt er.“ Ber okkur þá skylda til að halda frá börnunum frá ákveðnu áreiti? „Já, bæði foreldrum og fjölmiðlum ber skylda til þess. Þeir sem eru að miðla efni eiga líka að gera þetta. Sjónvarpinu ber til dæmis að taka tillit til barna út frá sinni samfélagslegu ábyrgð. Einkum vegna þess að þeir fá úthlutað útvarpsleyfi og það eru verðmæti. Verðmæti sem við eigum öll sem samfé- lag. Þeir eiga ekki að fá að nýta þau nema samkvæmt reglum sem eru í útvarp- slögum og að sama skapi eiga þeir ekki að geta selt að- gang að börnum okkar eins og þeim sýnist. Þeir verða að sýna ábyrgð hvað varðar það efni sem er verið að sýna og hvenær og það getur ekki verið mikið mál fyrir sjónvarpsstöðv- arnar að setja mörkin við klukkan níu á kvöldin.“ Útskýra hvað gengur á í fréttum En hvað með fréttatímann? /honum eru oftar en ekki mjög ofbeldisfullar myndir eða eitthvað efni sem getur komið börnum í mikið uppnám. Til dœmis eins og fréttirnar af flóð- öldunni á Tælandi, árásinni þann n. september og nú síðast fréttir af fuglaflensu. „1 þessu tilfelli eiga ábyrgðarmenn að vara við því sem er verið að fara að sýna, sem þeir gera oftast. En að sama skapi verður að gera ráð fyrir því að foreldrar fræði börnin um það sem er að gerast í fréttatím- anum og útskýri fyrir þeim eðli málsins. Það sem er verst er þegar það er verið að setja óæskilegt myndefni, líkt og útdrætti úr kvikmyndum sem eru að koma út á myndböndum, eða auglýsingar um eitthvað sem verður á dagskrá í vikunni, beint á eftir barnaefninu. Foreldrar eiga að geta treyst því að á ákveðnum tímum séu börnin óhult. Fréttir eru hinsvegar þannig að það má eiga von á öllu og ef fólk kýs að hafa sjónvarpið opið á þeim tíma þá verður það að útskýra þá hluti sem gætu komið börnum í uppnám. En maður á ekki alltaf að þurfa að vera á vaktinni. Til dæmis væri það mjög viðráðanlegt að hafa tímann fram til klukkan níu örugg- ann fyrir börn. Það væri engin árás á tjáningarfrelsið," segir Ingibjörg Rafnar, umboðsmaður barna að lokum. Málþingið hefst eins og fyrr segir klukkan 13:00 á Grand Hotel við Gullteig og er aðgangur ókeypis og öllum frjáls. 99...................................... Þetta kallar líka á að foreldrar fræði börnin sín um hvað Silvía Nótt sé að meina með þessu. Útskýra fyrirþeim að hún sé ekki að hvetja fólk til að vera svona heldur er hún að gera grín að þeim sem eru svona - yfirborðsmennskunni

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.